Bændablaðið - 11.02.2021, Blaðsíða 4

Bændablaðið - 11.02.2021, Blaðsíða 4
Bændablaðið | Fimmtudagur 11. febrúar 20214 Það var óneitanlega eftirminni- legt að fá innsýn í innflutning á dagsgömlum hænuungum frá Danmörku í síðustu viku sem flogið var til landsins á fyrsta farrými og mikill viðbúnaður var á Reykjavíkurflugvelli við komu þeirra til landsins. Stofnungi, sem flytur ungana inn, hefur þurft að breyta verklagsreglum í kjölfar- ið af COVID-19, því áður fyrr voru egg flutt inn frá Noregi en vegna sóttvarnareglna var það ekki lengur mögulegt og því þarf að flytja inn dagsgamla unga til landsins. Hildur Traustadóttir, fram­ kvæmda stjóri Félags eggja­ og kjúklinga bænda og Stofnunga, var með í för og fylgdi ungunum til landsins frá Danmörku. Ferðin gekk að mestu leyti vel að hennar sögn, fyrir utan tafir á Kastrup­ flugvelli sem komu þó ekki að sök. Engin frumstofnaræktun í alifuglaeldi á Íslandi „Það er engin frumstofnaræktun í alifuglaeldi á Íslandi. Stofn­ fuglar hafa verið keyptir frá Norðurlöndunum með sérstökum samningi við stofnabú sem sérhæfa sig í ræktun varpfugla og hér var um innflutning á stofnfuglum að ræða. Ferillinn hefur verið sá að kaupa frjóegg, sem fara í einangrunarstöð hér á landi. Úr þessum eggjum koma ungar sem þarf að kyngreina. Þessir ungar eru líka í einangrun þar til búið er að taka blóðsýni sem þarf að senda utan og fá það staðfest að fuglinn sé ekki með sjúkdóma sem finnast ekki hér á landi. Sýnatakan er framkvæmd þegar fuglinn er um það bil átta vikna. Ef allt er í lagi fara fuglarnir til bænda sem hafa pantað fugla og hafa til þess leyfi að rækta áfram þennan stofnfugl,“ segir Hildur. Léttur en dýrmætur farmur Vandamál komu upp vegna COVID­19 þar sem reglulegt flug milli landa liggur nánast niðri. Einnig er erfitt að fá starfsmenn sem koma frá Noregi til að kyn greina fuglinn þar sem þeir þurfa að fara í sótt kví við heimkomuna eftir að hafa starfað á Íslandi. Ákveðið var að reyna að flytja til landsins með leigu flugi dagsgamla unga. Samið var við Air Iceland Connect um að annast þennan viðkvæma flutning. „Á hverju ári þarf ekki nema um það bil fimm til sex þúsund fugla í frumstofni til að anna allri eggja­ framleiðslu hér á landi. Í síðustu viku fór flugvél til Kaupmannahafnar til að sækja rúmlega fjögur þúsund unga en hver ungi er ekki nema um það bil 40 grömm svo farmurinn er ekki þungur. Ungarnir klöktust út á stofnabúi á Sjálandi um morgun­ inn. Þetta er varpfuglategund sem kallast Lohmann, bæði hvítur og brúnn stofn, hanar og hænur. Áttatíu fuglar voru settir í hvern kassa og hver kassi er hólfaður niður í fjögur hólf. Ungarnir voru síðan keyrðir á Kastrup­flugvöll þar sem flugvélin beið eftir farminum. Nokkur töf varð í tollafgreiðslu þar sem ekki fékkst leyfi til að aka bílnum, sem ungarnir voru í, á flughlaðið heldur þurfti að setja alla kassana á töskuvagna og keyra þá síðan að flugvélinni. Þarna var ekki verið að hugsa um dýravel­ ferð en kjörhiti fyrir fuglinn er 25 °C til 30 °C. Á flugvellinum var ­2 °C, nokkur gola en heiðskírt. Í flugvél­ inni fór vel um fuglinn, hlýtt og rúm­ gott. Lent var á Reykjavíkurflugvelli um klukkan tæplega hálf sjö um kvöldið og vélin dregin inn í skýli, þar var kössunum raðað í bíl og keyrt var síðan í einangrunarstöð í Borgarfirði. Mjög vel hefur gengið að koma fuglinum af stað og virðist honum ekki hafa verið meint af þessu ævintýri,“ útskýrir Hildur. /ehg FRÉTTIR Dagsgamlir ungar komu til landsins á fyrsta farrými Flugvél frá Air Iceland Connect lent á Keflavíkurflugvelli með rúmlega fjögur þúsund hænuunga frá Danmörku. Myndir / Erla Hjördís Gunnarsdóttir Mikil skriffinnska og formlegheit fylgja innflutningi á lifandi dýrum. Þar þarf allt að vera samkvæmt ströngustu reglum. HIldur Traustadóttir komin með kassa í hendur fullan af ungum. Vegna COVID-19 hefur Stofnungi, sem flytur ungana inn, þurft að breyta verklags- reglum, því áður fyrr voru egg flutt inn frá Noregi en vegna sóttvarnareglna var það ekki lengur mögulegt og því þarf að flytja inn dagsgamla unga til landsins. Hún segir félagið flytja inn Lohman-unga einu sinni til tvisvar á ári en betra sé að flytja inn tvisvar út af aldri fuglanna og til að dreifa áhættu. Vegna COVID-19 komu upp vandamál varðandi innflutning á eggjum stofnunga frá Noregi þar sem reglulegt flug milli landa liggur nánast niðri. Einnig er erfitt að fá starfsmenn sem koma frá Noregi til að kyngreina fuglinn þar sem þeir þurfa að fara í sóttkví við heimkomuna eftir að hafa starfað á Íslandi. Ákveðið var að reyna að flytja til landsins með leiguflugi dagsgamla unga og samið var við Air Iceland Connect um að annast þennan viðkvæma flutning. Í síðustu viku voru um fjögur þúsund dagsgamlir stofnungar fluttir til landsins frá Danmörku, en hver ungi vegur ekki nema í kringum 40 grömm. Ungunum komið fyrir í bíl til flutn- ings í Borgarfjörð. Á hverju ári þarf ekki nema um það bil fimm til sex þúsund fugla í frumstofni til að anna allri eggja framleiðslu hér á landi en mikill viðbúnaður er við flutning á ungunum þar sem rétt hitastig og aðbúnaður er lykilatriði.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.