Bændablaðið - 11.02.2021, Blaðsíða 41
Bændablaðið | Fimmtudagur 11. febrúar 2021 41
Heklaðir pottaleppar með stuðlum og tvíbrugðnum
stuðlakrókum úr Drops Paris. Með því að skipta yfir
í fíngerðara Drops bómullargarn er hægt að nýta
uppskriftina til að gera hreinsiskífur.
DROPS Design: Mynstur w-822
Garnflokkur C eða A + A
Garn: Drops Paris, fæst í Handverkskúnst
- Salvíugrænn nr 62: 100 g í einn pottalepp
- Mosagrænn nr 25: 100 g í einn pottalepp
Heklunál: 3,5 mm
Heklfesta: 18 stuðlar x 10½ umferðir = 10x10 cm.
Stykkið er heklað í hring frá miðju og út.
Byrjið á að hekla loftlykkjuhringinn eins og útskýrt er í
mynsturteikningu. Heklið eftir mynsturteikningu A.1
í byrjun umferðar 1 sinni, síðan er mynsturteikning
A.2 endurtekin 6 sinnum, eða út umferðina.
Þegar mynsturteikningarnar hafa verið heklaðar til
enda er haldið áfram að hekla í hring og aukið út eins
og áður í hverri umferð, það er 2 stuðlar heklaðir í
stuðul á undan hverjum tvíbrugðnum stuðlakróki.
Heklið þannig þar til stykkið mælist ca. 21 cm í
þvermáli.
Síðasta umferðin: Heklið 13 loftlykkjur, tengið í
hring með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun
(fyrstu 3 loftlykkjurnar koma í stað fyrsta stuðuls
umferðarinnar – hinar 10 loftlykkjurnar eru lykkjan
til að geta hengt upp pottaleppinn), heklið einungis
stuðla út umferðina og aukið út eins og áður. Endið
umferð á keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun. Slítið
frá og gangið frá endum.
Heklkveðja,
mæðgurnar í Handverkskúnst
www.garn.is
Heklaðir pottaleppar
HANNYRÐAHORNIÐ
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma
fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um.
Létt
Þung
Miðlungs
2 8 9 7
1 6 2 4 9
5 7 6 3
9 4 1 2 5
2 6 9 1 7
1 8 3 2 4
1 5 6 7
3 7 4 6 9
4 9 2 8
Þyngst
9 4 5 6 2
1 4
7 3 6 2 9
8 6 2 4 7
1 5
7 8 4 3 6
8 7 4 5 1
2 3
7 9 1 8 6
6
7 3 4 1 8
6 4 3 9
8 6 7
6 9
9 8 6
4 1 5 6
7 9 5 1 2
4
4 9 1
4 8 2
6
2 8 6
4 5 7 1
5 1 7
3
8 2 7
3 9 7
Á fiska, froska, kanínur,
kisu, hund og hænur
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
Rúnar Berg Vattar Hjartarson býr
á Akranesi og á fiska, froska, kan-
ínur, kisu, hund og hænur. Hann
elskar að dansa, syngja og leika.
Hann á þrjú systkini, tvö eldri og
einn yngri bróður.
Nafn: Rúnar Berg Vattar Hjartarson.
Aldur: 8 ára.
Stjörnumerki: Vog.
Búseta: Akranes.
Skóli: Brekkubæjarskóli.
Hvað finnst þér skemmtilegast í
skólanum? List- og verkgreinar.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt?
Froskur.
Uppáhaldsmatur: Hamborgari.
Uppáhaldshljómsveit: Billie Eilish.
Uppáhaldskvikmynd: Matthilda.
Fyrsta minning þín? Þegar ég var á
bleyjunni að spila á trommur.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á
hljóðfæri? Já, ég æfi Parkour og á
trommur.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú
verður stór? Leikari.
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Handleggsbrjóta mig
heima hjá Elísu vinkonu minni.
Gerir þú eitthvað skemmtilegt í
sumar? Leika við vini mína og fara
á Vattarnes til ömmu og afa.
Næst » Rúnar Berg vill skora á Ástu
Marín Einarsdóttur í Reykjavík að
svara næst.
Mynstur
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
KÚPLINGAR í flestar
gerðir dráttarvéla