Bændablaðið - 11.02.2021, Blaðsíða 23
Bændablaðið | Fimmtudagur 11. febrúar 2021 23
Hafðu
samband
568 0100
www.stolpigamar.is
Gámur er
góð geymsla
Stólpi Gámar bjóða gáma-
lausnir fyrir atvinnulífið
– til leigu eða sölu Einnig gámahús og salernishús frá Containex, færanlega starfsmannaaðstöðu frá EuroWagon.dk,
gámar og vöruskemmur frá BOS, vörulyftur frá Maber og skemmur frá Hallgruppen.
Rakaskiljur og blásara
frá Heylo, rykvarnarkerfi
frá ZIPWALL,
og parket-og vinilklippur
frá BULLET TOOLS.
þurrgáma
hitastýrða gáma
geymslugáma
einangraða gáma
fleti og tankgáma
gáma með hliðaropnun
Óseyrarbraut 12 | 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5 | 104 Reykjavík
Margar gerðir gróðurhúsa - fást í ál lit, svörtu
og grænu. 4 mm hert gler eða 10 mm ylplast
GRÓÐURHÚS
TÖLVUPÓSTUR
sala@bkhonnun . is
SÍMI
571-3535
VEFFANG
www .bkhonnun . is
Bænda
bbl.is Facebook
LÍF&STARF
Loftslagsvænn landbúnaður:
Fimmtán sauðfjárbú bætast í hópinn
Fyrir skemmstu var nýr hópur
sauðfjárbænda tekinn inn sem
þátttakendur í verkefninu Lofts
lagsvænn landbúnaður, sem er
samstarfsverkefni stjórn valda,
Ráðgjafarmiðstöðvar land
búnaðarins, Skógræktarinnar og
Landgræðslunnar. Verkefnið er
að hefja sitt annað ár, en fyrstu
þátttökubændurnir byrjuðu árið
2020.
Verkefnið gengur út á að bænd-
urnir geri aðgerðaráætlun fyrir
búin um að draga úr losun gróð-
urhúsalofttegunda og auka kolefn-
isbindingu. Það er hluti af aðgerð-
aráætlun stjórnvalda í loftslagsmál-
um.
Bæirnir sem bætast við núna eru
15 talsins – og að sögn Berglindar
Óskar Alfreðsdóttur verkefnis-
stjóra er verkefnið mjög öflugt
stjórntæki í loftslagsmálum land-
búnaðarins. „Þar sem það byggir á
grasrótarnálgun þar sem hver bóndi
gerir sína eigin aðgerða áætlun.
Aðgerðaáætlun búsins er verk-
færakista og lykill þeirra að lofts-
lagsvænum land búnaði. Verkefnið
miðar allt að því að efla og smám
saman stækka verkfærakistuna,
meðal annars með fræðslu sér-
fræðinga í lofts lags- og umhverfis-
málum og jafningjafræðslu.“
Ýmsir möguleikar í boði
Þeir möguleikar sem eru skoð-
aðir til að draga úr losun eru bætt
nýting tilbúinna áburðarefna og
frekari nýting lífrænna áburðar-
efna, möguleikar á ræktun nitur-
bindandi jurta, minni olíunotkun,
verndun jarðvegs við jarðvinnslu,
endurheimt votlendis og draga úr
innyflagerjun búfjár.
Til aukinnar kolefnisbindingar
eru skoðaðir möguleikar til upp-
græðslu, endurheimt skóglendis
(birkiskóga og víðikjarrs), skjól-
belta ræktun og ræktun haga skóga
og ræktun timburskóga. Auk þess
eru þátttakendur hvattir til þess að
hugsa út fyrir rammann og koma
með nýjar hugmyndir að lofts-
lagsvænum aðgerðum.
„Loftslagsvænn landbúnað-
ur hentar öllum búgreinum og
búgerðum, það er stórum eða litl-
um búum og ólíkum staðháttum
þar sem það tekur mið af þörf-
um og getu hvers þátttökubús.
Verkefnið er samstarfsverkefni
allra þeirra sem búa á viðkomandi
búi, enda verða aðgerðirnar hluti
af daglegum störfum.
Það er gaman að sjá að strax
eftir fyrsta ár verkefnisins erum
við farin að sjá góðan árangur af
verkefninu. Ekki einungis í þeim
fjölda aðgerða sem þátttakendur
hafa sett sér, en á fyrsta ári ver-
kefnisins voru sett 165 markmið,
sem munu með beinum hætti skila
sér í loftslagsvænni búum. Ekki
má gleyma að þátt takendur í ver-
kefninu smita aðra í sínum samfé-
lögum af áhuga á loftslagsmálum
og miðla þekkingunni m.a. inn í
sveitarstjórnirnar.
Mikill áhugi er á verkefninu og
færri komust að en vildu,“ segir
Berglind Ósk.
Að sögn Berglindar Óskar
stend ur til að taka inn nýjan hóp
sauðfjárbænda í gæðastýringu
inn í janúar á næsta ári. Vonandi
verður öðrum búgreinum boðin
þátttaka sem fyrst, því verkefnið
tekur á flestum möguleikum land-
búnaðarins í loftslagsmálum,“
segir hún.
Verkefnið er hugsað til fimm
ára og eru bændurnir styrktir
fjárhagslega til að standa straum
af kostnaði. Einnig er gaman að
segja frá því að þegar líður á
verkefnið taka við aðgerða- og
árangurstengdar greiðslur en
Loftslagsvænn landbúnaður verð-
ur fyrsta verkefnið á Íslandi þar
sem árangurstengdar greiðslur
verða hluti af verkefninu.
/smh
Dreifing bæjanna sem taka þátt í verkefninu; gulu bæirnir eru þeir sem nú
bætast við.
Berglind Ósk Alfreðsdóttir verk efnis
stjóri.
Nám í jarðvirkjun hefst í Tækniskólanum
Nám í jarðvirkjun mun hefjast
hjá Tækniskólanum næsta haust
og verður það ætlað nýnemum
á framhaldsskólastigi, sem og
þeim sem þegar starfa í greininni.
Námið mun undirbúa einstaklinga
undir fjölbreytt störf sem felast í
jarðvegsvinnu, s.s. efnisflutninga,
frágangsvinnu og grunnvinnu við
byggingarlóðir.
Nýliða vantar í jarðvirkjun
Skortur hefur verið á nýliðun
starfsfólks í jarðvirkjun hérlendis
og með auknum kröfum um öryggi
og gæði, styttri framkvæmdatíma,
minna rask, þéttingu byggðar og
tækniþróun eykst þörfin sífellt fyrir
vel menntað starfsfólk á því sviði.
„Ég fagna því að nemendur
geti brátt sótt sér aukna þekkingu
á þessu mikilvæga starfssviði.
Við viljum skapa tækifæri fyrir
fólk á öllum aldri til þess að efla
færni sína og sérhæfingu, og mæta
þörfum samfélagsins hverju sinni,“
segir Lilja Alfreðsdóttir mennta-
og menningarmálaráðherra. Nánari
upplýsingar um námið má finna á
heimasíðu Tækniskólans. /MHH