Bændablaðið - 11.02.2021, Blaðsíða 22
Bændablaðið | Fimmtudagur 11. febrúar 202122
Fyrirtækið Navistar í Banda
ríkjunum tekur þátt í inn
leiðingu nýrra orkugjafa
í samgöngur um smíði á
vetnisknúnum rafmagns trukki
sem nýtir vetnisefnarafal frá
General Motors. Ráðgert er að
hann verði farinn að aka um
þjóðvegi í Bandaríkjunum eftir
þrjú ár, eða 2024, að því er fram
kemur í tímaritinu Forbes.
GM mun sjá um að framleiða
Hydrotec vetnisefnarafals-„orku-
kubb“ til Navistar sem fyrirtækið
Lisle í Illinois, mun setja upp og
prófa í flota bíla af Internatinal RH
gerð. Með áætluninni er ráðgert að
koma vetnisbílum í framleiðslu í
atvinnuskyni fyrir árið 2024.
Tilraunaútgáfur af bílnum munu
verða í akstri fyrir vöruflutninga-
bílaþjónustuna JB Hunt og verða
vetnis eldsneytisstöðvar settar
upp af OneH2 fyrirtækinu. Það er
rekstraraðili fyrir vetniseldsneyti
í atvinnuskyni og sér m.a. um að
útvega vetni fyrir verksmiðjur og
lyftara.
Markmiðið er að Navistar vöru-
bílarnir verði með meira en 500 mílna
drægni á hverja eldsneytishleðslu, eða
yfir 800 kílómetra, og að hægt sé að
fylla á tanka með vetni á um það bil
15 mínútum. Var þetta haft eftir Persio
Lisboa, stjórnarformanni og forstjóri
Navistar. Hann hefur þó ekkert
viljað láta uppi um hugsanlegt verð
á þessum International RH trukki.
Eru ekki að horfa á eina
allsherjarlausn í samgöngumálum
„Við höfum í huga að næsta kynslóð
flutningabíla verði mikilvægur hluti
af vistkerfislausn og farartæki sem
ekki losa CO2 og þar dugi ekki að
horfa á eina lausn varðandi orku.“
„Til að flýta fyrir upptöku nýrrar
tækni Navistar telur hann samvinnu
vera lykilatriði.
„GM er traustur samstarfsaðili á
sviði iðnaðar. Eftir umfangsmiklar
rannsóknir valdi Navistar GM til
samstarfs um efnarafala vegna forystu
fyrirtækisins á því sviði á heimsvísu.
“
Tilkynningin um þessi áform
Navistar komu í kjölfar yfir-
lýsinga nýju Biden-stjórnar innar
í Bandaríkjunum um forgangs-
röðun varðandi það hvernig
Banda ríkin muni draga úr losun
gróðurhúsalofttegunda. Hyggst
stjórnin því hvetja til framleiðslu
rafknúinna ökutækja.
Framtíðin liggur bæði í notkun
á rafhlöðum og efnarafölum
Þó að notkun rafhlaðna sé aðlaðandi
valkostur fyrir rafknúna fólksbíla og
létta og meðalþunga flutningabíla,
þá eru þyngri bílar og trukkar með
aftanívanga erfiðari áskorun að
leysa með notkun á rafhlöðum.
Rafhlöður eru hlutfallslega of
þungar miðað við orkurýmd til
að knýja þunga bíla um langar
vegalengdir. Fyrir vikið myndast
tækifæri fyrir alþjóðlegt samstarf
um þróun á vetnisknúnum trukkum.
Þannig vinnur Nikola, með Bosch
og GM. Samstarf hefur einnig
verið að mótast milli Toyota og
Kenworth, Hyundai Motor og
Cummins og Daimler og Volvo
Trucks.
Fyrir ökumenn flutningabíla er
vetnið áhugaverður kostur fyrir þær
sakir að það tekur svipaðan tíma að
dæla vetni á bíl og það tekur að fylla
á tankinn með dísilolíu. Hleðslutími
á rafhlöðum er hins vegar mun
lengri.
„Við teljum að bæði rafhlöður og
efnarafalatækni verði mikilvægar
lausnir á þessum markaði,“ sagði
verkfræðingurinn Gary Horvat, sem
er aðstoðarforstjóri Navistar. Hann
telur að í léttari bíla fyrir 400 til
500 km vegalengdir verði notaðar
rafhlöður en efnarafalar fyrir þyngri
bíla sem keyra þurfi að komast um
500 til 800 km á tanknum eða meira.
/HKr.
UTAN ÚR HEIMI
GM og Navistar mynda bandalag um
smíði á vetnisknúnum raftrukkum
Bandaríska fyrirtækið Navistar hyggst koma með á götuna International RH vetnisknúinn trukk árið 2024. Hann
verður búinn efnarafal frá GM sem breytir vetni í raforku fyrir rafmótora sem knýja bílinn áfram. Hann á að komast
yfir 800 kílómetra á tankfyllingunni. Mynd / Navistar
Hydrotec vetnisefnarafals-„orku kubbur“ frá General Motors, mun sjá um að
umbreyta vetni í rafmagn til að knýja nýjan International RH trukk frá Navistar.
Lífræn hreinsistöð
• Fyrirferðalítil fullkomin
sambyggð skolphreinsistöð
• Uppfyllir ýtrustu kröfur um
gæði hreinsunar
• Engin rotþró eða siturlögn
25 ára ábyrgð
• Tæming seyru á þriggja til
fimm ára fresti
• Engir hreyfanlegir hlutir
• Stærðir frá 6 – 55 persónueiningar
Tunguhálsi 10 - 110 Reykjavík
Sími 517 2220 - petur@idnver.is
G
ra
fik
a
19
Bændablaðið
Auglýsingasíminn er 56-30-300
Næsta blað kemur út 25. febrúar
NYTJAR HAFSINS
Þorskhrogn. Allir aðilar sem koma að meðferð og dreifingu matvæla eru
ábyrgir fyrir réttri meðferð sem tryggir öryggi og gæði matvæla.
Matvælastofnun:
Minnir á góða meðferð hrogna
Matvælastofnun minnir á
mikilvægi góðrar meðhöndlunar
fisks og fiskafurða. Við meðhöndlun
hrogna er mikilvægast að rétt sé
staðið að meðferð og frágangi við
slægingu um borð í skipum eða
slægingarstöð.
Allir aðilar sem koma að meðferð
og dreifingu matvæla eru ábyrgir
fyrir réttri meðferð sem tryggir
öryggi og gæði matvæla.
Halda skal mismunandi teg-
undum aðskildum ef selja á hrogn
undir fisktegundaheiti. Ef hrogn
eru seld sem þorskhrogn, Gadus
morhua, eiga það að vera hrogn
úr þorski. Ef tegundum er blandað
saman skal merkja þau sem blönduð
hrogn og tilgreina tegundir. Annað er
blekkjandi fyrir kaupendur. Skv. 11
grein laga nr. 93/1995 um matvæli er
óheimilt að hafa matvæli á boðstólum
eða dreifa þeim þannig að þau blekki
kaupanda að því er varðar uppruna,
tegund, gæðaflokkun, samsetningu,
magn, eðli eða áhrif. Einnig er bent
á að reglugerð EB nr. 1379/2013 um
markaðssetningu fisks og fiskafurða
(CMO regulation) er í gildi í Evrópu
og verða fyrirtæki sem setja vörur
á markað í Evrópu að merkja í
samræmi við kröfur hennar.
Gera skal að afla eins
fljóttog kostur er
• Blóðga skal fisk þegar hann er
dreginn um borð og láta blæða í
ísbaði (rennandi vatni/sjó)
• Slæging skal fara fram að
lokinni blóðgun
• Þá hluta aflans, sem ætlaðir eru
til manneldis, skal þvo vandlega
og aðskilja frá óætum hlutum
• Kæla skal afurðirnar; fisk, hrogn
og lifur, sem næst hitastigi
bráðnandi íss með ísun, eða
frysta
• Verja skal allar afurðir fyrir
veðri og vindum
• Eigi að nýta hrogn og lifur til
manneldis skal flokka afurðir
eftir fisktegund
•
Til að tryggja sem best gæði
hrogna og lifrar skal:
• Vanda slægingu, svo hrogn og
lifur séu eins heil og kostur er
• Varast að rjúfa himnuna sem
myndar hrognasekkinn og ver
hrognin
• Varast að láta meltingarensím
s.s. gall leika um afurðirnar
• Nota minni ílát svo komist verði
hjá því að hrognasekkurinn gefi
sig undan þrýstingi
• Nota krapa til kælingar.
/VH