Bændablaðið - 11.02.2021, Blaðsíða 4
Bændablaðið | Fimmtudagur 11. febrúar 20214
Það var óneitanlega eftirminni-
legt að fá innsýn í innflutning á
dagsgömlum hænuungum frá
Danmörku í síðustu viku sem
flogið var til landsins á fyrsta
farrými og mikill viðbúnaður var
á Reykjavíkurflugvelli við komu
þeirra til landsins. Stofnungi, sem
flytur ungana inn, hefur þurft að
breyta verklagsreglum í kjölfar-
ið af COVID-19, því áður fyrr
voru egg flutt inn frá Noregi en
vegna sóttvarnareglna var það
ekki lengur mögulegt og því þarf
að flytja inn dagsgamla unga til
landsins.
Hildur Traustadóttir, fram
kvæmda stjóri Félags eggja og
kjúklinga bænda og Stofnunga,
var með í för og fylgdi ungunum
til landsins frá Danmörku. Ferðin
gekk að mestu leyti vel að hennar
sögn, fyrir utan tafir á Kastrup
flugvelli sem komu þó ekki að sök.
Engin frumstofnaræktun í
alifuglaeldi á Íslandi
„Það er engin frumstofnaræktun
í alifuglaeldi á Íslandi. Stofn
fuglar hafa verið keyptir frá
Norðurlöndunum með sérstökum
samningi við stofnabú sem sérhæfa
sig í ræktun varpfugla og hér var um
innflutning á stofnfuglum að ræða.
Ferillinn hefur verið sá að kaupa
frjóegg, sem fara í einangrunarstöð
hér á landi. Úr þessum eggjum koma
ungar sem þarf að kyngreina. Þessir
ungar eru líka í einangrun þar til
búið er að taka blóðsýni sem þarf
að senda utan og fá það staðfest að
fuglinn sé ekki með sjúkdóma sem
finnast ekki hér á landi. Sýnatakan
er framkvæmd þegar fuglinn er um
það bil átta vikna. Ef allt er í lagi
fara fuglarnir til bænda sem hafa
pantað fugla og hafa til þess leyfi
að rækta áfram þennan stofnfugl,“
segir Hildur.
Léttur en dýrmætur farmur
Vandamál komu upp vegna
COVID19 þar sem reglulegt flug
milli landa liggur nánast niðri.
Einnig er erfitt að fá starfsmenn sem
koma frá Noregi til að kyn greina
fuglinn þar sem þeir þurfa að fara
í sótt kví við heimkomuna eftir að
hafa starfað á Íslandi. Ákveðið var
að reyna að flytja til landsins með
leigu flugi dagsgamla unga. Samið
var við Air Iceland Connect um að
annast þennan viðkvæma flutning.
„Á hverju ári þarf ekki nema um
það bil fimm til sex þúsund fugla í
frumstofni til að anna allri eggja
framleiðslu hér á landi. Í síðustu viku
fór flugvél til Kaupmannahafnar
til að sækja rúmlega fjögur þúsund
unga en hver ungi er ekki nema um
það bil 40 grömm svo farmurinn er
ekki þungur. Ungarnir klöktust út
á stofnabúi á Sjálandi um morgun
inn. Þetta er varpfuglategund sem
kallast Lohmann, bæði hvítur og
brúnn stofn, hanar og hænur. Áttatíu
fuglar voru settir í hvern kassa og
hver kassi er hólfaður niður í fjögur
hólf. Ungarnir voru síðan keyrðir á
Kastrupflugvöll þar sem flugvélin
beið eftir farminum. Nokkur töf varð
í tollafgreiðslu þar sem ekki fékkst
leyfi til að aka bílnum, sem ungarnir
voru í, á flughlaðið heldur þurfti að
setja alla kassana á töskuvagna og
keyra þá síðan að flugvélinni. Þarna
var ekki verið að hugsa um dýravel
ferð en kjörhiti fyrir fuglinn er 25 °C
til 30 °C. Á flugvellinum var 2 °C,
nokkur gola en heiðskírt. Í flugvél
inni fór vel um fuglinn, hlýtt og rúm
gott. Lent var á Reykjavíkurflugvelli
um klukkan tæplega hálf sjö um
kvöldið og vélin dregin inn í skýli,
þar var kössunum raðað í bíl og
keyrt var síðan í einangrunarstöð í
Borgarfirði. Mjög vel hefur gengið
að koma fuglinum af stað og virðist
honum ekki hafa verið meint af þessu
ævintýri,“ útskýrir Hildur.
/ehg
FRÉTTIR
Dagsgamlir ungar komu til landsins á fyrsta farrými
Flugvél frá Air Iceland Connect lent á Keflavíkurflugvelli með rúmlega fjögur þúsund hænuunga frá Danmörku. Myndir / Erla Hjördís Gunnarsdóttir
Mikil skriffinnska og formlegheit fylgja innflutningi á lifandi dýrum. Þar þarf
allt að vera samkvæmt ströngustu reglum.
HIldur Traustadóttir komin með kassa í hendur fullan af ungum. Vegna
COVID-19 hefur Stofnungi, sem flytur ungana inn, þurft að breyta verklags-
reglum, því áður fyrr voru egg flutt inn frá Noregi en vegna sóttvarnareglna
var það ekki lengur mögulegt og því þarf að flytja inn dagsgamla unga til
landsins. Hún segir félagið flytja inn Lohman-unga einu sinni til tvisvar á ári
en betra sé að flytja inn tvisvar út af aldri fuglanna og til að dreifa áhættu.
Vegna COVID-19 komu upp vandamál varðandi innflutning á eggjum
stofnunga frá Noregi þar sem reglulegt flug milli landa liggur nánast niðri.
Einnig er erfitt að fá starfsmenn sem koma frá Noregi til að kyngreina
fuglinn þar sem þeir þurfa að fara í sóttkví við heimkomuna eftir að hafa
starfað á Íslandi. Ákveðið var að reyna að flytja til landsins með leiguflugi
dagsgamla unga og samið var við Air Iceland Connect um að annast þennan
viðkvæma flutning.
Í síðustu viku voru um fjögur þúsund dagsgamlir stofnungar fluttir til landsins
frá Danmörku, en hver ungi vegur ekki nema í kringum 40 grömm.
Ungunum komið fyrir í bíl til flutn-
ings í Borgarfjörð. Á hverju ári þarf
ekki nema um það bil fimm til sex
þúsund fugla í frumstofni til að anna
allri eggja framleiðslu hér á landi en
mikill viðbúnaður er við flutning á
ungunum þar sem rétt hitastig og
aðbúnaður er lykilatriði.