Víkurfréttir - 02.06.2021, Blaðsíða 20
– segja þeir Ísak Óli Ólafsson og Rúnar Þór Sigurgeirsson sem leika saman í vörninni hjá úrvals-
deildarliði Keflavíkur. Strákarnir stigu stórt skref um helgina þegar þeir léku báðir sinn fyrsta
A-landsleik fyrir Íslands hönd. Leikurinn fór fram á AT&T leikvanginum í Dallas þar sem Mexíkó
hafði að lokum nauman 2:1 sigur fyrir framan rúmlega fjörutíu þúsund áhorfendur.
Eftir því sem Víkurfréttir komast
næst hafa tveir leikmenn Kefla-
víkur ekki leikið saman landsleik
með aðalliðinu síðan 7. desember
1997. Þá voru það þeir Jóhann
Birnir Guðmundsson og Jakob Már
Jónharðsson sem léku með Íslandi
gegn Saudi-Arabíu í markalausum
vináttulandsleik ytra. Víkurfréttir
slógu á þráðinn til þeirra Ísaks Óla
og Rúnars Þórs og spurðu út í upp-
lifunina um helgina.
„Hvaða meistarar voru það sem léku
þarna ‘97,“ spyrja þeir félagar fyrst
og segja svo að Jóhann Birnir hafi
einmitt þjálfað þá báða í yngri flokk-
unum. „Algjör snillingur.“
– Hvernig var þetta?
„Eiginlega bara sturlað,“ segir Ísak.
„Það eiginlega ekki hægt að segja
neitt annað,“ bætir Rúnar við. „Þetta
var eiginlega bara óraunverulegt.
Þetta er dýrasti leikvangur í heimi og
út af Covid var bara helmingur leyfi-
legs áhorfendafjölda leyfður – það
voru 44 þúsund manns á leiknum ...“
„... og mexíkanarnir alveg brjálaðir
allan tímann,“ grípur Ísak fram í. „Ég
gat ekki talað við Rúnar þótt hann
stæði við hliðina á mér.“
„Lætin voru þvílík,“ bætir Rúnar
við. „Ef maður var að reyna að öskra
á kantmanninn þá þurfti að bíða
eftir mómenti til þess, bíða eftir
að lætin minnkuðu á vellinum svo
maður þyrfti ekki að fara alveg upp
að honum.“
Nýttu tækifærið vel
Ísak Óli segir upplifunina hafa verið
magnaða og Ísland hafi verið ótrú-
lega nálægt því að klára leikinn.
„Þetta lið er eitt af ellefu bestu liðum
í heimi. Maður sá einhvern veginn
gamla Ísland í þessum leik, skipu-
lagið var svo gott.“
„Það er bara heiður að hafa fengið
þennan séns,“ segir Rúnar Þór sem
fer reyndar ekki áfram með liðinu í
leikina gegn Færeyjum og Póllandi.
– Svo eru Færeyjar næst.
„Já, ég verð ekki í hópnum þá,“ segir
Rúnar. „Við erum þrír úr í Mexíkó-
leiknum sem förum ekki til Færeyja
og Póllands. Það koma aðrir leik-
menn, sem eru að spila erlendis, inn í
hópinn. Við sem lékum gegn Mexíkó
fengum okkar tækifæri þar til að láta
ljós okkar skína.“
„Allavega miðað við Mexíkó-
leikinn þá voru þeir sem byrjuðu
og þeir sem komu inn á að nýta
sénsinn mjög vel,“ segir Ísak. „Þetta
er mjög gott lið og mjög góðir í
pressu, þannig að þetta var góð
prófraun – allavega fyrir mig og
Rúnar. Núna vitum við hverju má
búast við, hvað við þurfum að bæta
og þess háttar.“
Bjartsýnir á framhaldið
„Þegar þeir eru komnir á aftasta
þriðjung þá er þetta örugglega eitt
besta lið í heimi. Þeir eru frekar
litlir en rosalega snöggir á fyrstu
metrunum og boltinn límist við
þá. Þegar góðu, litlu, snöggu leik-
mennirnir þeirra fá boltann – þú vilt
ekkert lenda í kapphlaupi við þá.
Það var bara gaman að fá að spila
á móti þessum gæjum sem eru í
Atletico Madrid, Napoli og þannig
liðum. Alveg geggjað.“
Strákarnir eru núna staddir með
landsliðinu í búbblu á Hilton hótel-
inu í Laugardalnum. Þar verða þeir
við æfingar þangað til liðið fer til
Færeyja.
„Ég æfi með liðinu og þar sem
ég er bólusettur verð ég með þeim
þangað til þeir fara til Færeyja – þá
er ég laus,“ segir Rúnar.
– Hvernig líst ykkur svo á fram-
haldið í deildinni?
„Bara vel, við þurfum að fara að rífa
okkur í gang.“
– Það má eiginlega segja að þið
hafið gert það á móti Íslands-
meisturunum í síðasta leik.
„Já, við vorum góðir þar og eiginlega
bara betra liðið, allavega í seinni hálf-
leik,“ segir Ísak. „Allt annað að sjá til
liðsins og það gerir mann bjartsýnan
á framhaldið. Við erum að fara inn í
mikilvæga törn núna svo það er bara
upp og áfram. Við vonum bara að
stuðningsmennirnir hrúgist á völlinn
þegar samkomutakmarkanir rýmka
meira, það væri gaman.“
johann@vf.is
Það var bara gaman að fá
að spila á móti þessum
gæjum sem eru í Atletico
Madrid, Napoli og þannig
l iðum. Alveg geggjað . . .
Þetta er mjög gott l ið
og mjög góðir í pressu,
þannig að þetta var góð
prófraun – allavega
fyrir mig og Rúnar. Núna
vitum við hverju má búast
við, hvað við þurfum að
bæta og þess háttar . . .
Keflvíkingarnir Rúnar
Þór Sigurgeirsson og
Ísak Óli Ólafsson á AT&T
leikvanginum í Dallas fyrir
leikinn gegn Mexíkó.
Mynd af Facebook-síðu Rúnars
Þrjú af Suðurnesjum
valin í landslið Íslands
Sigurjón og Davíð Snær
æfa með U21 liðinu
Sigurjón Rúnarsson, fyrirliði kar-
laliðs Grindavíkur í knattspyrnu,
og Davíð Snær Jóhannsson, úr
Keflavík, hafa verið valdir í æf-
ingahóp U21 landsliðs Íslands sem
muna æfa saman í vikunni.
Davíð Snorri
Jónsson, lands-
liðsþjálfari U21,
valdi 29 leik-
menn í hópinn
að þessu sinni
en bæði Sig-
urjón og Davíð
Snær hafa verið
lyki l le ikmenn
í liðum sínum
undanfarin ár.
Amelía Rún tekur þátt í
æfingum U19 á Selfossi
Þá hefur Keflvíkingurinn Amelía
Rún Fjeldsted hefur verið valin í æf-
ingahóp U19 landsliðs kvenna sem
mun æfa á Selfossi í næstu viku.
Þórður Þórðarson, landsliðs-
þjálfari U19 kvenna, valdi 22 leik-
menn í hópinn og frá tólf félögum
en U19 kvenna undirbýr sig fyrir
undankeppni EM 2022/2023 þar
sem Ísland er í riðli með Frakklandi,
Svíþjóð og Serbíu í fyrstu umferð.
Riðillinn verður leikinn í sept-
ember og það væri skemmtilegt að
sjá Amelíu Rún leika með íslenska
liðinu í haust.
... og mexíkanarnir alveg
brjálaðir allan tímann!
Rúnar Þór er öflugur varnarmaður,
hann var til reynslu hjá sænska
úrvalsdeildarliðinu IK Sirius í byrjun
árs sem vildi fá hann í sínar raðir en
félögin náðu ekki saman um kaupverð.
Þess verðu líklega ekki langt að
bíða þar til Rúnar verður farinn
að leika með erlendu liði.
Ísak Óli gekk til liðs við danska úrvalsdeildarliðið
SønderjyskE frá Keflavík eftir tímabilið
2019. Hann varð bikarmeistari með liðinu
á síðustu leiktíð og leikur nú á láni með
Keflavík í Pepsi Max-deildinni á Íslandi.
Miðvikudagur 2. júní 2021 // 22. tbl. // 42. árg.sport
Stöðugar uppfærslur og úrslit leikja á vf.is