Skessuhorn


Skessuhorn - 09.06.2021, Qupperneq 28

Skessuhorn - 09.06.2021, Qupperneq 28
miðVikUdAgUR 9. júNÍ 202128 Vörur og þjónusta R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 H P Pípulagnir ehf. Alhliða pípulagnaþjónusta Hilmir 820-3722 Páll 699-4067 hppipulagnir@gmail.com S K E S S U H O R N 2 01 8 Fyrir alla vigtun Húsarafmagn Töflusmíði Iðnaðarrafmagn Bátarafmagn Bílarafmagn RAFMAGN vogir@vogir.is Sími 433-2202 VOGIR Bílavogir Kranavogir Skeifuvogir Pallvogir Aflestrarhausar Hönnun prentgripa & alhliða prentþjónusta Drei bréf - Boðsbréf Ritgerðir - Skýrslur Reikningar - Eyðublöð Umslög - Bréfsefni Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Getum við aðstoðað þig? sími: 437 2360 olgeirhelgi@islandia.is • Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS S: 860-0708 • Smiðjuvellir 7, Akranesi • bv.sprautun@gmail.com Vinnum fyrir öll tryggingafélög Þróunarfélag grundartanga, sam- starfsfélag sveitarfélaga og fyrir- tækja á grundartangasvæðinu, hef- ur áorkað miklu á starfstíma sínum. Félagið hefur gegnt grundvallar- hlutverki í að greina og vinna með tækifæri til verðmætasköpunar og byggja undir fjölgun starfa og meiri verðmætasköpun. Treysta umhverfi þeirra mikilvægu fyrirtækja sem starfa á svæðinu. Starfsemi fyrir- tækjanna er í raun fjöregg byggðar á svæði og nær langt út fyrir sveit- arfélög á Vesturlandi. Þá liggur á svæðinu stór virkjunarkostur í glat- varma. Virkjunarkostur sem nýtir auðlindastrauma svæðisins betur. Þrjú verkefni til eflingar á Grundartangasvæðinu Á því kjörtímabili sem nú er að ljúka hef ég sérstaklega beitt mér í þrem- ur meginverkefnum sem öll styðja og efla starfsemi á grundartanga. Í fjárfestingarátaki ríkisstjórnarinn- ar, fyrir ári síðan, beitti ég mér fyrir fjármunum, 50 milljónum króna, til að greina möguleika á framleiðslu á rafeldsneyti. Í því felast gríðarleg tækifæri. Treysta í sessi þá orku- stöð Íslands sem grundartangi er og láta reyna á hvort möguleikar á eldsneytisframleiðslu séu fýsilegir. Í umræðum um orkuskipti í sam- göngum er í vaxandi mæli horft til slíkra orkugjafa og þar skipta höf- uðmáli öflugar raforkutengingar sem svæðið býr að og nálægð við höfn. Því til viðbótar hef ég nú beitt mér fyrir breytingum á raforkulög- um sem hefur grundvallarþýðingu fyrir þau verkefni sem þróunar- félagið hefur unnið að. Í þriðja lagi hefur þróunarfélagið áður fengið stuðning til undirbún- ings að byggingu hitaveitu innan svæðis á grundartanga. Sá stuðn- ingur kom frá Orkusjóði. Tímamót Það eru mikil tímamót að látið sé reyna á breytingar á raforkulögum til að virkja og nýta glatvarma, því lagaumgjörð hefur skort. meiri- hluti atvinnuveganefndar Alþingis hefur að mínu frumkvæði lagt fram breytingar á frumvarpi, sem er til umfjöllunar á Alþingi um raforku- mál. Verði samstaða um þá breyt- ingu, raungerast áform Þróunar- félags grundartanga. Sérstök heim- ild sem heimilar nýtingu á glat- varma til orkuframleiðslu, verður þá raunhæfur kostur. Loksins. Fátt skiptir meira máli en að láta sig hagsmuni grundartangasvæðisins varða. Það hef ég og mun hafa að leiðarljósi. Nýting á glatvarma mun verða hin nýja sókn grundartanga- svæðisins. Haraldur Benediktsson Höf. er 1. þingmaður NV kjör- dæmis og oddviti Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu Leiðinlegasti þátturinn í stjórnmála- starfi að mínu mati er keppni milli samherja og vina um sæti á framboðs- lista og þá sérstaklega prófkjör. jafn nauðsynleg og sjálfsögð og þau geta verið draga þau oft fram neikvæðustu hliðar stjórnmálanna. Nú eru Sjálf- stæðismenn í kjördæminu í prófkjörs- baráttu þar sem Haraldur Benedikts- son og Þórdís kolbrún R. gylfadótt- ir takast á um fyrsta sæti framboðslist- ans fyrir alþingiskosningarnar í sept- ember. Við verðum að vona að barátt- an á milli þessara góðu þingmanna og stuðningsmanna þeirra verði málefna- leg og drengileg allt til enda. Þórdís kolbrún sækist eftir því að velta Har- aldi úr 1. sæti listans. Hún hefur fullan rétt til þess og gerir það á sínum for- sendum en enginn á neitt sæti frátekið í prófkjöri. Hún er varaformaður Sjálf- stæðisflokksins og hefur staðið sig vel sem ráðherra. Hún hefur sýnt mikið æðruleysi og yfirvegun sem ráðherra ferðamála á erfiðum tímum og vaxið í starfi. Hún er framsýn og áræðin og hefur margt til að bera sem prýðir góð- an stjórnmálamann. Haraldur hefur líka staðið sig sér- lega vel sem foringi Sjálfstæðismanna í kjördæminu. Hann hefur verið vak- inn og sofinn yfir hagsmunamálum þéttbýlissvæða jafnt og hinna dreifðu byggða og leitt áfram mál s.s. lagn- ingu ljósleiðara og vegamál og staðið þétt með hagsmunum íbúa kjördæmis- ins varðandi opinbera þjónustu. Har- aldur hefur sýnt í forustuhlutverki sínu í fjárlaganefnd Alþingis að hann kann mjög vel til verka og nær að vinna vel með samstarfsmönnum í meirihluta og þeim sem skipa minnihluta enda nálg- ast hann mál af sanngirni og á málefna- legan hátt. Ég kynntist Haraldi sérstaklega vel þegar hann var í lykilhlutverki við að verja Háskólann á Bifröst og hina há- skólana í kjördæminu, LBHÍ og Hóla- skóla. Að þessum skólum var hart sótt og fjárveitingar til Háskólans á Bifröst lækkaðar verulega og svo virtist sem vilji yfirvalda stæði til að loka skólan- um. Haraldur var sá sem ég, þá rekt- or skólans, gat alltaf leitað til og allt- af fengið fullan stuðning við að koma fjárveitingum til skólans í eðlilegt horf. Háskólinn á Bifröst var kominn á góð- an stað með metfjölda nemenda og á fjárhagslega góðum grunni þegar ég lét af starfi rektors á síðasta ári. Ég tel að Haraldur sé almennt í kjör- dæminu í góðu áliti sem alvöru stjórn- málamaður og mikilvirkur þingmaður. Allir sem ég hef talað við, hvar í flokki sem þeir standa, bera honum vel sög- una og hann á virðingu þeirra. Ég man ekki eftir því að hafa heyrt Harald sjálf- an hallmæla nokkrum manni og hann getur unnið með öllum. Í prófkjörinu þurfa Sjálfstæðismenn að svara þeirri spurningu hvort þeir telja ástæðu til að afturkalla það traust sem Haraldur hefur haft til að leiða framboðslista flokksins. Ekkert af verk- um Haraldar finnst mér gefa tilefni til þess. Þvert á móti er mikil ástæða til þess að endurnýja þetta traust sem honum hefur verið sýnt. Ég álít að það sé enginn ósigur fyr- ir Þórdísi kolbrúnu þótt hún nái ekki kjöri í fyrsta sætið og verði áfram í öðru sæti. Traust til hennar yrði end- urnýjað. Staða hennar sem ráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins yrði óbreytt. Þórdís kolbrún á vonandi eft- ir að vera lengi áfram í stjórnmálum og láta til sín taka. Staða hennar minnir mig að nokkru leyti á stöðuna í Norð- urlandskjördæmi eystra á sjöunda ára- tugnum þegar jónas Rafnar var í efsta sæti framboðslistans en magnús jóns- son var í öðru sæti. magnús varð fjár- málaráðherra 1965 þegar gunnar Thoroddsen varð sendiherra í kaup- mannahöfn en í kosningunum 1967 skipaði magnús áfram annað sæti framboðslistans (og varð svo varafor- maður Sjálfstæðisflokksins á árinu 1973). Engum datt í hug að það væri verið að setja magnús niður þótt jónas Rafnar skipaði áfram fyrsta sæti fram- boðslistans. Ég hvet Sjálfstæðismenn til að taka þátt í prófkjörinu og að ganga þannig fram í baráttunni að framboðslistinn verði samhentur og einbeittur í að afla flokknum stuðnings í kosningunum í september. Vilhjálmur Egilsson Pennagrein Glatvarmi – ónýttur virkjunarkostur Pennagrein Haraldur Benediktsson – endurnýjað traust Pennagrein Nú styttist í prófkjör okkar Sjálfstæð- ismanna í Norðvesturkjördæmi og vonandi verður þátttaka í prófkjörinu góð því það er upptaktur að kosninga- baráttunni fyrir Alþingiskosningarnar í haust. góð þátttaka í prófkjörinu og öflugur framboðslisti sendir skýr skila- boð til annarra flokka um styrk Sjálf- stæðisflokksins í kjördæminu og gefur fyrirheit um góða uppskeru í komandi kosningum. Hópurinn sem býður fram krafta sína til næstu fjögurra ára er í senn sterkur og fjölbreyttur en engum dylst að hjá okkur eru mjög öflugir kandíd- atar sem gera tilkall til oddvitasætisins. Í þeirri baráttu er viðbúið að hart verði glímt og kastljósið verði að mestu á oddvitabaráttunni. Hætta er á að aðr- ir frambjóðendur falli í skuggann og gefist lítið svigrúm til að kynna sig og sín áherslumál, verði jafnvel dregnir í dilka með oddvitunum. Í þeirri bar- áttu megum við ekki missa sjónar á því að velja okkur sigurstranglegt lið sem tryggir okkur gott veganesti inn í komandi kosningabaráttu. Að því sögðu langar mig langar til að deila með ykkur kynnum mín- um af frambjóðandanum Örvari má marteinssyni sem tekið hefur þeirri áskorun að gefa kost á sér í annað sæti listans. Örvari má kynntist ég í gegnum sameiginlega setu okkar í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins sem spannar nú rúmlega sex ára tímabil, en þar vakti hann strax athygli mína fyrir dugnað, skelegga framgöngu og gott innsæi í málefni landsbyggðar- innar, jafnvel niður í fjármál og fjár- hagsstöðu einstakra sveitarfélaga. Þeir sem þekkja Örvar vita að hann brennur fyrir öllu sem við kemur útgerð og fiskvinnslu enda starfað sem sjómaður og við sjávarútveg frá blautu barnsbeini. Í dag er hann skip- stjóri og rekur smábátaútgerð í Snæ- fellsbæ með myndarbrag ásamt konu sinni Hörpu Björnsdóttur. Aðr- ir málaflokkar sem eru Örvari hug- leiknir eru atvinnumál á breiðum grunni og því tengt rekstrarskilyrði sveitarfélaga, bætt heilbrigðisþjón- usta á landsbyggðinni, alvarleg staða hjúkrunarheimila sem og samgöngu- mál svo helstu dæmi séu tekin. Þetta eru allt mála- flokkar sem skipta okkur kjósendur í Norðvesturkjör- dæmi miklu máli. Örvar hefur í gegnum tíðina sinnt mörgum trúnaðarstörfum fyrir Sjálf- stæðisflokkinn og er í dag varabæjar- fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Snæ- fellsbæ auk þess að vera formaður fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna og sitja í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins. Örvar er maður sem liggur ekki á skoðunum sínum en er ávallt tilbúinn að hlusta og greiða götu góðra hug- mynda. Hann er frambjóðandi sem ég vil tefla fram í okkar liði í næstu alþingiskosningum og því hvet ég þig lesandi góður til að kynna þér hvað Örvar már marteinsson hefur fram að færa fyrir kjördæmið okkar og til landsmálanna – þar fer að mínu mati frambjóðandi sem á skýrt erindi. Ólafur Adolfsson, lyfsali Að eiga erindi

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.