Skessuhorn


Skessuhorn - 09.06.2021, Síða 31

Skessuhorn - 09.06.2021, Síða 31
miðVikUdAgUR 9. júNÍ 2021 31 Hjólreiðadeild Breiðabliks stóð fyrir hjólreiðakeppni á Snæfellsnesi laugardaginn 5. júní síðastliðinn. Þar var keppt í fjórum flokkum og var byrjað að ræsa klukkan 10 um morguninn. A-Flokkur karla hjól- aði 161 km og voru þeir ræstir út kl. 10:00. B-Flokkur karla, junior karla og masters karla hjóluðu 108 km og voru ræstir út klukkan 10:50. A-Flokkur kvenna hjóluðu 108 km og voru þær ræstar út klukkan 10:10 og að lokum B-Flokkur kvenna, junior kvenna, masters kvenna og U15 karla hjóluðu 72 km og voru þau ræst út klukkan 10:15. Það var Hafsteinn Ægir geirs- son sem sigraði A flokk karla á tím- anum 4:11:00.53 en Óskar Ómars- son og Eyjólfur guðgeirsson voru nokkrum sekúndubrotum á eftir honum. mikil spenna. Í A flokki kvenna sigraði Bríet kristý gunn- arsdóttir á tímanum 3:29:27.92 en Hafdís Sigurðardóttir og Silja Rún- arsdóttir kom rétt á eftir henni yfir línuna. Heimamaðurinn Þorsteinn Bárðarson frá Rifi sigraði í masters- flokki karla á tímanum 03:05:30.16 en hann var rúmum tveimur sek- úndum á undan Sigurði Hansen og Steinari Þorbjörnssyni. Veðrið var ágætt á norðanverðu nesinu en keppendur lentu í töluverðum mót- vindi á sunnanverðu nesinu. kepp- endur voru 119 sem hjóluðu þenn- an dag og mikil og góð stemning í hópnum. tfk knattspyrnufélagið kári sem leikur í 2. deild karla í knattspyrnu fór aust- ur á Fáskrúðsfjörð á sunnudaginn og lék við lið Leiknis í Fjarðabyggð- arhöllinni. Eina mark leiksins kom strax á sjöttu mínútu þegar Björgvin Stefán Pétursson hamraði boltann í netið fyrir heimamenn. káramenn fengu dauðafæri skömmu síðar til að jafna leikinn en boltinn fór rétt fram hjá. Andri júlíusson, leikmað- ur kára, skallaði boltann yfir markið eftir hornspyrnu í seinni hálfleik og undir lok leiks fékk kári aftur gott færi þegar Ármann ingi Finnboga- son átti gott skot sem markvörður Leiknis varði vel og lokatölur 1-0 fyrir Leiknismenn. Hart var barist í leiknum og alls fengu átta leikmenn gul spjöld í leiknum. Þá fékk fyrrnefndur Andri rautt spjald skömmu fyrir leikslok eftir glæfralega tæklingu og er kom- inn í tveggja leikja bann eftir að hafa fengið rautt spjald fyrr í sumar. Ekki er það til að bæta ástandið að alls eru um tíu leikmenn kára að glíma við meiðsli þessa dagana og því þunn- skipaður hópurinn. Þess má geta að meðalaldur káraliðsins í þessum leik var rétt í kringum 20 ár sem gerir það líklega að yngsta liði í sögu 2. deildar. kári situr nú á botni deild- arinnar með aðeins eitt stig eftir fimm umferðir en næsti leikur liðs- ins er gegn Fjarðabyggð sem er einu sæti ofar í deildinni með tvö stig og því ljóst að um svokallaðan sex stiga leik er að ræða. Leikurinn fer fram í Akraneshöllinni næsta laugardag og hefst klukkan 14. vaks Reynismenn léku gegn liði Ýmis úr kópavogi í B-Riðli 4. deildar karla í knattspyrnu í Ólafsvík á sunnudaginn. Skemmst er frá því að segja að Reynir þurfti að sætta sig við stórtap, lokatöl- ur 2-6. Eiður gauti Sæbjörnsson kom Ými yfir snemma leiks en Heimir Þór Ásgeirsson jafnaði rétt fyrir hálfleik og staðan 1-1. Eiður var aftur á ferðinni fyrir gestina eftir rúmlega klukkutíma leik og síðan bættu þeir Fannar gauti gissurarson og Valdimar Ármann Sigurðsson tveimur mörkum við skömmu síðar fyrir Ými. Eiður gauti bætti við tveimur mörkum á lokamín- útunum en í millitíðinni hafði Heim- ir Þór minnkað muninn fyrir heima- menn með sínu öðru marki í leiknum. Slæmt tap Reynismanna staðreynd og eru þeir með þrjú stig eftir fjórar um- ferðir í sínum riðli í deildinni. Næsti leikur Reynismanna er gegn Herði frá Ísafirði á Ólafsvíkurvelli föstudaginn 11. júní og hefst klukkan 20. vaks Skallagrímsmenn gerðu góða ferð á Stokkseyri síðastliðið miðvikudags- kvöld þegar þeir léku við heima- menn og unnu nauman en sterk- an sigur, 3-2. Sigurjón Ari guð- mundsson kom Skallagrími yfir eftir 18 mínútna leik og þar við sat í hálfleik. Stokkseyringar jöfn- uðu í byrjun síðari hálfleiks en sú sæla stóð ekki lengi yfir því (Super) mario miguel Pascual skoraði einni mínútu síðar og var aftur á ferðinni fyrir Skallagrím á 53. mínútu með sitt fjórða mark í deildinni í sumar og staðan orðin 3-1. Trausti Eiríks- son hleypti smá spennu í leikinn rétt fyrir leikslok þegar hann skor- aði fyrir Stokkseyringa en lengra komust heimamenn ekki og sigur Skallagríms staðreynd, 3-2. Skallagrímur situr nú í 3.-4. sæti B-riðils 4. deildar ásamt SR eftir að hafa lokið þremur leikjum. Næsti leikur liðsins var í gær í Fagralundi í kópavogi við lið Smára en var ekki hafinn þegar Skessuhorn fór í prentun. vaks Víkingur Ólafsvík gerði jafntefli við lið Þórs frá Akureyri í 1. deild karla, Lengjudeildinni í Ólafsvík á laug- ardaginn. gestirnir í Þór komust yfir á tíundu mínútu leiksins með marki Orra Sigurjónssonar áður en kareem isiaka jafnaði metin fyrir heimamenn skömmu fyrir leikhlé. Í uppbótartíma fyrri hálfleiks náðu Þórsarar hins vegar aftur forystunni þegar jakob Snær Árnason skoraði og staðan í hálfleik 1-2. Enn seig á ógæfuhliðina hjá Vík- ingi snemma í síðari hálfleik þegar Emmanuel Eli keke fékk dæmda á sig vítaspyrnu sem aftasti maður og fékk því beint rautt spjald. mar- vin darri Steinarsson, markvörð- ur Víkings, gerði hins vegar vel og varði vítaspyrnu Alvaro montejo. Á 72. mínútu fékk markaskorari Vík- ings, kareem isiaka, beint rautt spjald fyrir að slá í andlit varnar- manns Þórs en tveimur færri jöfn- uðu heimamenn hins vegar met- in. Var þar að verki varamaðurinn marteinnTheodórsson með mark tíu mínútum fyrir leikslok og og héldu heimamenn það út og náðu í sitt fyrsta stig í sumar. Víkingur situr þó enn á botni Lengjudeild- arinnar með eitt stig eftir fimm umferðir en næsti leikur liðsins er gegn Fjölni á Extra vellinum í grafarvogi fimmtudaginn 10. júní og hefst klukkan 19.15. vaks kvennalið ÍA, sem leikur í Lengju- deildinni í knattspyrnu, lék gegn liði FH á Akranesvelli á sunnu- dagskvöldið. Fyrirfram var búist við hörkuleik enda liðin jöfn með sex stig eftir fjórar umferðir en það fór ekki alveg svo. Skagastúlkur voru reyndar mjög öflugar fyrstu 25 mínútur leiksins og hefðu átt að minnsta kosti að gera eitt mark eða tvö en lukkan var ekki með þeim í liði. Þegar líða tók á fyrri hálfleik- inn náðu gestirnir öllum tökum á leiknum og skoruðu fyrsta mark leiksins rétt fyrir hálfleik þegar Þóra Hreggviðsdóttir skoraði fyrir FH og staðan 0-1. Í seinni hálfleik höfðu gestirn- ir enn meiri yfirburði og bættu tveimur mörkum við. Fyrst var það Brittney Lawrence sem skoraði skömmu eftir hálfleik og það var síðan katrín S. Vilhjálmsdóttir sem gulltryggði sigur FH tólf mínútum fyrir leikslok og lokastaðan því 3-0 fyrir FH. Næsti leikur ÍA er gegn liði grindavíkur á grindavíkur- velli þriðjudaginn 15. júní og hefst klukkan 19.15. vaks Hjólreiðamaður fer yfir endamarkið eftir erfiðan dag á fararskjótanum. Bikarmót Breiðabliks í Grundarfirði Svipmynd úr leiknum. Ljósm. af. Reynir Hellissandi tapaði stórt gegn Ými Úr leik Skallagríms gegn KM síðasta sumar. Ljósm. Ottó Ólafsson. Skallagrímur vann Stokkseyri Kári tapaði þriðja leiknum í röð Byrjunarlið Kára gegn Leikni F í leiknum á sunnudaginn. Mynd: Sveinbjörn Geir Hlöðversson. Víkingur Ó. náði í sitt fyrsta stig Úr leik Víkings og Þórs á laugardaginn. Ljósm. af Ósigur hjá Skagastúlkum gegn FH

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.