Morgunblaðið - 02.01.2021, Page 10

Morgunblaðið - 02.01.2021, Page 10
ÚR BÆJARLÍFINU Margrét Þóra Þórsdóttir Eyjafjörður Akureyringar og Eyfirðingar al- mennt hafa náð góðum árangri í flokkun og endurvinnslu, en eitt af því sem safnað er saman norðan heiða er úrgangsolía og fita af heimilum. Sér- stökt trekt, græna trektin, stendur íbúum til boða til að auðvelda söfnun olíunnar á heimilunum. Hver og einn íbúi sem safnar og skilar afgangsolíu og fitu er í raun eigin olíuframleið- andi, því einn lítri af olíu sem skilað er til endurvinnslu verður með íblöndun metanóls að einum lítra að lífdísil.    Æ fleiri heimili kjósa að safna fitunni saman enda er ávinningur þess mikill; fita sem fer í fráveitukerf- ið getur valdið tjóni, m.a. stíflum sem fara illa með dælur og búnað. Þá er verðmæt vara búin til úr þeim úr- gangi sem safnast með grænu trekt- inni, en hjá félaginu Orkey er búinn til lífdísill sem nýtist sem orkugjafi og hefur þannig í för með sér minni inn- flutning á jarðefnaeldsneyti.    Græna trektin hefur verið í boði á Akureyri frá því síðla árs 2015. Undanfarin ár hafa heimilin safnað og skilað inn um sex tonnum af úr- gangsolíu og fitu á ári. Veitingahús og mötuneyti skila um tífalt meira magni eða um 60 tonnum árlega, þannig safnast 70 tonn af olíu og fitu árlega í gegnum fitusöfnunarkerfið sem Norðurorka, Orkey, Terra og Ak- ureyrarbær hafa byggt upp.    Akureyrarbær hvetur íbúa bæj- arins til að hreinsa til nú þegar hátíð- arhöldum lýkur senn. Jólatrén hafa þá lokið sínu hlutverki og eru íbúar beðnir að koma þeim í réttan farveg, í gáma sem komið hefur verið fyrir við helstu verslanir bæjarins. Þá fellur mikið rusl til um áramót þegar flug- eldum er skotið á loft og hefur ruslið legið á víð og dreif um bæinn eftir flugeldaskotin. Nú eru bæði íbúar og fyrirtæki beðin að taka til eftir ára- mótagleðina í sínu nærumhverfi. Von- andi taka allir vel í þessi tilmæli.    Nú í byrjun nýs árs verður hafist handa við að safna saman myndum sem til eru af Svalbarðseyrarvita. Fjöldi mynda er til af vitanum sem teknar hafa verið í áranna rás. Sval- barðseyrarviti var byggður árið 1920 og varð því 100 ára á nýliðnu ári. Lag- að hefur verið til umhverfis vitann og þegar lagfæringum á varnargörðum lýkur næsta vor eða sumar verða lagðar hellur við hann. Einnig á að setja upp skilti með upplýsingum um vitann og dýralífið í kringum Sval- barðstjörn. Sveitarfélög við fjörðinn kost- uðu byggingu vitans að hluta til á sín- um tíma, en bróðurpartur kostnaðar- ins var greiddur úr ríkissjóði. Vitinn er byggður eftir sömu teikningu og vitarnir í Hrísey og Papey. Árið 1933 var byggt steinsteypt anddyri við Svalbarðseyrarvita en hönnuðir vit- ans voru þeir Thorvald Krabbe og Guðmundur J. Hlíðar verkfræðingur og hönnuður anddyris Benedikt Jón- asson verkfræðingur.    Íbúum í Hörgársveit heldur áfram að fjölga. Þeir eru nú um 650 talsins. Nýtt íbúðahverfi er í bygg- ingu við Lónsbakka og gera áætlanir ráð fyrir að íbúum muni fjölga um 200 til 250 á næstu árum. Einnig er verið að byggja á öðrum svæðum í sveitar- félaginu og segir í áramótapistli Snorra Finnlaugssonar sveitarstjóra að líklega verði íbúar Hörgársveitar um 900 innan fárra ára. „Þessari fjölgun þarf að mæta með uppbyggingu innviða og er stækkun leikskólans Álfasteins dæmi þess. Nú eru 45 börn í leikskólanum og strax í vor verða þau komin yfir 50 og mun fjölga jafnt og þétt. Leikskól- inn er fullsetinn og verður það þar til byggingu nýrrar deildar verður lokið í mars en með henni getum við mætt fjölguninni sem fram undan er,“ segir Snorri, sem fagnar hverjum nýjum íbúa.    Þá nefnir hann að ánægjulegt sé að verða vitni að ásókn í nýjar og glæsilegar íbúðir sem til sölu eru í sveitarfélaginu. „Fólk kann að meta umhverfið og orðsporið um gott sam- félag, sem hlúir vel að menntun og uppeldismálum,“ segir hann enn fremur. Í Þelamerkurskóla eru nú 67 nemendur og mun þeim fjölga tals- vert frá og með árinu 2023 og jafnt og þétt eftir það gangi áætlanir eftir. „Skólastarf Álfasteins og Þelamerk- urskóla er hjartað í samfélaginu, öfl- ugt og gott og mörgum öðrum til eft- irbreytni,“ segir Snorri. Eyfirðingar duglegir að safna fitu  Hundrað ára viti á Svalbarðseyri  Góður árangur náðst í flokkun og endurvinnslu í Eyjafirði  Sex tonn af úrgangsolíu á ári  Íbúum fjölgar hratt í Hörgársveit og stækka þarf leikskólann Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson Akureyri Líkt og aðrir landsmenn voru Akureyringar duglegir að skjóta upp flugeldum núna á gamlárskvöld. Morgunblaðið/Margrét Þóra Hörgársveit Íbúum hefur fjölgað og mikið er byggt í sveitarfélaginu 10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JANÚAR 2021 Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is Komdu í BÍLÓ! Mercedes Benz C300e 4matic AMG line 2020 Erummeð glæsileg eintök af þessum stórskemmtilega bíl til sýnis og sölu. Eknir frá 5-15 þkm. Bensín og rafmagn (plug in hybrid), drægni 50 km. Sjálfskiptir, fjórhjóladrifnir (4matic). AMG line innan og utan. Stafræntmælaborð, leiðsögukerfi o.fl. Nokkrir litir í boði. VERÐ frá 7.990.000 Audi A3 E-tron Design 2018 Erummeð glæsileg eintök af þessum vinsæla bíl til sýnis og sölu. Eknir frá 8-31þkm. Bensín og rafmagn (plug in hybrid), drægni 44 km. Sjálfskiptir, framdrifnir. Stafræntmælaborð, leiðsögukerfi, 18“ álfelgur o.fl. Nokkrir litir í boði. VERÐ frá 4.390.000 Sjón er sögu ríkari, sýningarbílar á staðnumog reynsluakstur í boði. Sigurgeir Guðmanns- son, fyrrverandi fram- kvæmdastjóri Íþrótta- bandalags Reykjavíkur, andaðist á Vífilsstöðum miðvikudaginn 30. des- ember síðastliðinn, 93 ára að aldri. Foreldrar Sigurgeirs voru Guðmann Hró- bjartsson vélstjóri og Þorgerður Sigurgeirs- dóttir. Hann var elstur sjö systkina, fæddur í Reykjavík 2. maí 1927. Að loknu stúdents- prófi frá Menntaskólanum í Reykja- vík 1947 stundaði Sigurgeir nám í skipaverkfræði í Glasgow í Skotlandi í einn vetur, en hugurinn var við íþróttirnar heima og eftir það helgaði hann þeim líf sitt. Sigurgeir var framkvæmdastjóri ÍBR í 42 ár, 1954-1996, og sinnti síð- an ýmsum verkefnum fyrir banda- lagið þar til fyrir nokkrum árum. Hann var jafnframt fyrsti fram- kvæmdastjóri Laugardalshallar, 1965-1969, og framkvæmdastjóri Ís- lenskra getrauna 1969-1984. Faðir hans var einn af stofnendum Hamp- iðjunnar og stjórnarmaður í á fjórða áratug. Sigurgeir tók við af honum og hætti þar í stjórn 2013. Knattspyrnufélag Reykjavíkur naut krafta Sigurgeirs nánast allt hans líf. Eftir að hafa leikið fótbolta með yngri flokkum KR sneri hann sér að þjálf- un 1951 og var þjálfari yngri flokka félagsins í áratugi. Hann þjálfaði líka meistaraflokk, sem vann til allra verðlauna sem í boði voru með hann sem þjálfara og varð til dæmis Íslands- og bikarmeistari 1963. Auk þjálfarastarfa tók Sigurgeir að sér ýmis verkefni fyrir KR. Hann var stjórnar- maður í nokkrum deild- um, formaður knattspyrnudeildar, formaður handknattleiksdeildar og fararstjóri í mörgum ferðum flokka innanlands og utan, m.a. til Liverpool þegar lið félaganna tóku í fyrsta sinn þátt í Evrópukeppni og mættust á Anfield 1964. Sigurgeir var sæmdur ýmsum við- urkenningum. Hann var meðal ann- ars heiðursfélagi KR og ÍSÍ, fékk gullstjörnu ÍBR, gullmerki KSÍ og Knattspyrnuþjálfarafélags Íslands og var sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir störf á vett- vangi íslenskrar íþróttahreyfingar. Sigurgeir var ókvæntur, en eign- aðist Rannveigu með Maríu Hildi Guðmundsdóttur og lifir hún for- eldra sína. Útförin verður í kyrrþey að ósk hins látna. Andlát Sigurgeir Guðmannsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.