Morgunblaðið - 02.01.2021, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 02.01.2021, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JANÚAR 2021 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Við höfum varla þurft aðkveikja á sjónvarpinu yfirjólin, því þessi ást á millidýranna hefur skemmt okkur mannfólkinu svo mikið. Það er gaman að fylgjast með þessu óvænta ástarsambandi stóra kattarins og litla hvolpsins,“ segir Sif Mekkin sem dvaldi í sumarbústað í Eyjafirði yfir hátíðirnar ásamt tveimur dætrum sín- um og tengdasonum. Með þeim í bú- staðnum voru fjögur gæludýr, kött- urinn Louis Vuitton, hundurinn Leó og kötturinn Óliver, en sú þrenning býr að jafnaði saman á heimili Sifjar og Sögu yngri dóttur hennar. Hvolp- urinn Esja bættist í hópinn þegar Kristín eldri dóttir hennar og tengda- sonurinn Kristinn komu norður til að halda jól með þeim í Eyjafirðinum. Dýrin fjögur dvöldu því í fyrsta skipti saman í heila viku yfir hátíðirnar. „Við héldum að hvolpalætin í Esju myndu fara í taugarnar á kett- inum, því Esja er mjög ofvirk og rosa- leg læti í henni. Okkur datt ekki í hug að þau gætu virkað saman. En þetta reyndist ást við fyrstu sýn, sem kom okkur rosalega á óvart.“ Lætur klærnar aldrei út Louis er mjög stór, enda er hann af Maine Coon-tegund og hann er 18 kíló. Hann er eldri en Esja, orðinn fullorðinn, þriggja ára, og Sif segir hann með mjög sterka sjálfsmynd. „Ég held hann upplifi sig sem ljón. Hann er kóngurinn í fjölskyld- unni og hagar sér samkvæmt því, við öll hin, bæði fólk og dýr, erum bara peð í hans augum,“ segir Sif og hlær. „Af einhverjum ástæðum tókst Esju litlu að bræða hjarta hans og komast inn fyrir hans stóra egó. Esja er ekki fullvaxin, hún er aðeins þriggja mánaða, en hún hafði strax mikinn áhuga á kettinum, sem er eins og ljón í samanburði við hana. Hún lét stærð- armuninn ekkert á sig fá og sótti strax fast að honum með látum. Hann lét sér vel líka, hörfaði ekki undan þrátt fyrir ágeng hvolpalætin. Esja eltir köttinn út um allt og hoppar á hann með látum, en hann bregst bara yfir- vegaður við, enda er kötturinn er með stóra áru sem Esja skynjar og virðir. Kötturinn sækir líka mikið í félags- skap Esju og er mjög góður við hana, hann sleikir hana og hugsar mjög vel um hana. Hann finnur að hún þarfnast verndar og er eins og pabbi að passa ungann sinn. Hann agar hana líka vel, lætur hana ekki komast upp með neitt, slær til hennar ef hún gengur of langt í látunum. Hann passar að láta klærnar aldrei út heldur notar loppu- slátt sem viðvörun og Esja var fljót að læra hver hefur yfirburðina,“ segir Sif og bætir við að hún hafi alls ekki búist við að kötturinn myndi sækja svo í hvolpinn sem raun ber vitni og leika pabbahlutverkið við hana. „Hann er mjög ábyrgur pabbi og vill ekki að hún fari úr augsýn hans, hann er alveg friðlaus nema hann sjái hana og geti fylgst með hvað hún er að gera, ef þau eru ekki að leika sér sam- an eða kúra saman. Hann vill hafa yfirsýn, eins og ljóna er háttur.“ Snýr hana niður þegar þarf Sif segir virkilega fallegt og skemmtilegt að verða vitni að þessari miklu ást á milli hundsins og katt- arins. „Tengingin á milli þeirra er sterk, þetta er greinilega djúp vinátta. Þau sjá ekki sólina hvort fyrir öðru, þetta stóra ljón og litla músin. Þau kúra saman þegar þau hvíla sig og sýna hvort öðru mikla hlýju. Esja sleikir á milli þófanna á kettinum þeg- ar hún vill gera vel við hann. Ég hef átt hunda og ketti alla mína ævi og ég hef unnið á dýralæknastofu en ég hef aldrei séð svona mikla ást milli kattar og hunds. Yfirleitt þola hundar ekki ketti og öfugt, en það er eitthvert pabbaeðli sem hvolpurinn Esja kallar fram í kettinum Louis. Esja bítur hann stundum með litlu beittu tönn- unum sínum en Louis kvartar aldrei undan því, heldur siðar hana bara til með því að taka utan um hana og snúa hana niður. Hann er aldrei vondur við hana. Esja er mjög ofvirk og skemmti- lega lík eiganda sínum, Kristínu dótt- ur minni, því þegar hún var lítil var hún líka alltaf á fullu, hoppandi út um allt,“ segir Sif og hlær. Eftir að Esja fór heim til sín suð- ur til Reykjavíkur milli jóla og nýárs með Kristínu dóttur Sifjar og Kristni tengdasyni hennar vældi hvolpurinn ámátlega fyrstu dagana. Eigendur hennar gera fastlega ráð fyrir að hún hafi saknað sárt síns hvíta loðna vinar sem hún lék við og hnoðaðist með, milli þess sem hún hvíldi í fangi hans. Gera má ráð fyrir fagnaðarfundum næst þegar þau tvö hittast. Óvænt vinátta hunds og kattar „Ég hef átt hunda og ketti alla mína ævi og ég hef unnið á dýralæknastofu, en ég hef aldrei séð svona mikla ást milli kattar og hunds. Yfirleitt þola hundar ekki ketti og öfugt en það er eitthvert pabbaeðli sem hvolpurinn Esja kallar fram í kettinum Louis,“ segir Sif Mekkin um djúpa vináttu kattar og hvolps. Alltaf saman Esja virðist líta á Louis sem pabba sinn. Kóngur Sif í bústaðnum með köttinn Louis Vuitton, sem lítur á sig sem konung ljónanna. Esja ekki langt undan. Kúr og faðmlag Louis passar vel upp á Esju sína, líka í kúri. Leikur Kötturinn hangir hér bókstaflega á Esju í stóru knúsi. VERIÐ VELKOMIN Í SJÓNMÆLINGU Hamraborg 10, Kópavogi, sími 554 3200 Opið: Virka daga 9.30–18, laugardaga 11-14

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.