Morgunblaðið - 15.01.2021, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 15.01.2021, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 2021 Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Joe Biden, verðandi Bandaríkja- forseti, setti í gær fram áætlun sína um endurreisn efnahagsins og bar- áttuna við kórónuveiruna sem hann hyggst fylgja á fyrstu hundrað dög- um sínum í embætti. Nokkur óvissa ríkir hins vegar um hvernig muni ganga, þar sem yfirvofandi réttarhöld í öldunga- deildinni gegn Donald Trump, frá- farandi forseta, munu taka nokkurn tíma frá störfum deildarinnar, en meðal annars á hún eftir að sam- þykkja ráðherralista Bidens. Þriðji neyðarpakkinn Meðal þess sem Biden leggur til er að Bandaríkjaþing samþykki þriðja neyðarpakkann á innan við ári, sem meðal annars muni fela í sér að hver Bandaríkjamaður fái ávísun upp á 2.000 bandaríkjadali, eða um 258.000 íslenskar krónur, en tekist var á um slíka áætlun í öldunga- deildinni fyrir áramót. Þá vill Biden setja aukinn kraft í bólusetningarherferð Bandaríkja- manna, en hún hefur farið nokkuð brösuglega af stað, þar sem tafir við afhendingu á bóluefni og önnur vandamál við skipulagningu hafa sett strik í reikninginn. Er stefnt að því að 100 milljón bólusetningar fari fram á fyrstu hundrað dögum Bidens í embætti, en mikil óvissa ríkir um hvort sú tala geti gengið eftir. Réttarhöld ekki haldin í flýti Ákæran til embættissviptingar á hendur Trump var samþykkt í full- trúadeildinni í fyrrinótt með 232 at- kvæðum gegn 197 og ákváðu tíu þingmenn repúblikana að greiða at- kvæði með ákærunni, en í henni er Trump sakaður um að hafa ýtt undir árásina á þinghúsið í síðustu viku. Chuck Schumer, leiðtogi demó- krata í öldungadeildinni, vildi að réttarhöldin yfir Trump gætu hafist sem fyrst, svo hægt yrði að svipta hann embætti, en Mitch McConnell, leiðtogi repúblikana, sló á allar slík- ar hugmyndir, þar sem ekki yrði hægt að halda sanngjörn réttarhöld á þeim stutta tíma sem eftir lifir af valdatíð Trumps. McConnell lýsti því hins vegar einnig yfir að hann hefði ekki gert upp hug sinn um hvort sakfella ætti Trump fyrir að hafa ýtt undir áhlaupið á þinghúsið í síðustu viku. Sú yfirlýsing þykir ekki lofa góðu fyrir Trump, þar sem McConnell hefur þá ráð hans í hendi sér. Fordæmi frá 19. öld Áhöld hafa verið um hvort hægt sé að halda málinu áfram eftir að Trump lætur af embætti, en bent hefur verið á fordæmi frá 1876, en þá sagði William Belknap, þáverandi stríðsmálaráðherra, af sér embætti örstuttu áður en fulltrúadeildin sam- þykkti að ákæra hann. Efri deildin samþykkti þá eftir umræðu að hún hefði vald til að rétta yfir Belknap, með vísan til þess að yrði hann sakfelldur yrði einnig að svara spurningunni hvort það ætti að meina honum að gegna embætti aftur á vegum Bandaríkjanna. Til þess kom ekki, þar sem öldunga- deildin sýknaði Belknap. Tilgangur réttarhalda yfir Trump yrði þá fyrst og síðast til þess að svara þeirri spurningu hvort rétt sé að meina honum að bjóða sig aftur fram til forseta árið 2024. Embættistaka í skugga réttarhalda  Biden setur fram áætlun sína um endurreisn efnahagsins  Ákæran á hendur Trump skyggir á skipun ráðherra  McConnell opinn fyrir því að sakfella Trump  Spurning um framboð 2024 AFP Gaddavír Mikill viðbúnaður er í Washington fyrir embættistöku Bidens í næstu viku, og er bandaríska þinghúsið nú umkringt með gaddavír. Bresk stjórnvöld greindu frá því í gær að þau hygðust banna komu allra farþega frá Suður-Ameríku og Portúgal, vegna nýs afbrigðis kórónuveirunnar sem komið hefur fram í Brasilíu. Ákvörðunin nær ekki til breskra ríkisborgara eða fólks með fasta búsetu í Bretlandi, en þeim verður gert að sitja í sóttkví í tíu daga eftir heimkomu. Ákvörðun breskra stjórnvalda kom sama dag og neyðarnefnd Al- þjóðaheilbrigðisstofnunarinnar WHO fundaði í Genf til þess að ræða þróunina í kórónuveirufaraldrinum, en nokkur ný afbrigði hafa komið fram sem hafa ýtt undir frekari bylgjur. Tedros Adhanom Ghebreyesus, framkvæmdastjóri WHO, sagði að ein helsta áskorunin framundan væri að tryggja að öll ríki gætu fengið að- gang að bóluefnum gegn veirunni, þar sem bólusetningar væru helsta vonin um að hægt yrði að binda enda á faraldurinn. Byrjað að rannsaka upptökin Nú hafa 92,5 milljónir manna smitast af veirunni frá því að farald- urinn kom fyrst upp, og nærri því tvær milljónir hafa látist af völdum hennar samkvæmt opinberum töl- um, en talið er að þær séu nokkuð lægri en raunin er. Tíu manna rannsóknarteymi frá WHO kom til Wuhan-borgar í gær, þar sem faraldurinn átti upptök sín. Þarf hópurinn nú að sæta sóttkví í tvær vikur, en mun svo hefjast handa við að rannsaka upphaf far- aldursins. Ferðabann á Suður-Am- eríku vegna afbrigðis AFP Framleiðsla Mikil áhersla er lögð á framleiðslu bóluefnis gegn veirunni.  WHO heldur neyðarfund um stöðuna í heimsfaraldrinum Þessir veitingamenn í Stokkhólmi, höfuðborg Svíþjóðar, börðu saman pottum og pönnum til þess að mótmæla nýjum og hertum sóttvarna- aðgerðum stjórnvalda. Veitingahúsum er nú meðal annars meinað að veita áfengi eftir kl. 8 á kvöldin, og mest fjórir gestir mega sitja saman. Greint var frá því í gær að meira en 10.000 Svíar hefðu látist af völdum kórónuveirunnar, en óttast er að þeim muni enn fjölga á næstunni. AFP Mótmæla sóttvarnaaðgerðum stjórnvalda Giuseppe Conte, forsætisráðherra Ítalíu, átti í vök að verjast í gær eftir að Matteo Renzi, fyrrverandi for- sætisráðherra og formaður Italia Viva-flokksins, dró stuðning sinn við ríkisstjórnina til baka. Stjórnin nýtur nú ekki stuðnings meirihluta þingmanna í efri deild ítalska þingsins, og mun Conte því að óbreyttu þurfa að biðjast lausnar fyr- ir sig og ríkisstjórnina. Stjórnarflokkarnir sem eftir sitja, Fimmstjörnuhreyfingin og Demó- krataflokkurinn, lýstu í gær yfir vilja sínum til þess að fylla í skarðið með stuðningi þingmanna stjórnar- andstöðunnar, en ekki var víst að nokkur þeirra hefði áhuga á því. Þá útilokuðu flokkarnir að þeir myndu vinna með Renzi aftur eftir brottför hans. Stjórnar- kreppa á Ítalíu  Conte leitar að nýjum meirihluta Guiseppe Conte Fangelsismálayfirvöld í Rússlandi sögðu í gær að þeim væri skylt að láta handtaka rússneska stjórnar- andstæðinginn Alexei Navalní við heimkomu sína. Navalní hyggst snúa aftur á sunnudaginn til Rússlands frá Þýskalandi, þar sem hann hefur verið frá því að hann hneig niður í miðri flugferð frá Síberíu til Moskvu í ágúst síðastliðnum. Þýsk stjórnvöld segja að eitrað hafi verið fyrir hann með taugaeitrinu Novi- chok. Í yfirlýsingu fangelsismála- yfirvalda segir að þeim beri að hafa Navalní í haldi á meðan dómari íhugi beiðni stjórnvalda, sem lögð var fram fyrr í vikunni, um að breyta skilorðsbundnum dómi sem hann hlaut árið 2014 í fangelsisvist, þar sem Navalní hafi rofið skilorð sitt. Settu á viðskiptaþvinganir Navalní hefur sakað rússnesku leyniþjónustuna FSB um að hafa eitrað fyrir sig að undirlagi Vladim- írs Pútín Rússlandsforseta, en rúss- nesk stjórnvöld hafa hafnað öllum ásökunum um að vera viðriðin málið. Evrópusambandið ákvað hins vegar að setja flugbann á nokkra rússneska embættismenn, þar á meðal yfirmann FSB, auk þess sem bankareikningar þeirra innan sam- bandsins voru frystir. Verður fangelsaður við heimkomuna  Navalní vill snúa aftur á sunnudag Alexei Navalní

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.