Morgunblaðið - 15.01.2021, Page 17

Morgunblaðið - 15.01.2021, Page 17
17 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 2021 Hinn frjálsi heimur er alls ekki gefinn og sjálfsagður. Sá er þetta rit- ar ólst upp þar sem hinn frjálsi heim- ur var allur í litlum hluta veraldar. Leiðtogar hins frjálsa heims voru þrír, hershöfðinginn Dwight D. Ei- senhower og stjórnmálamennirnir Harold Macmillan í Bretlandi og Konrad Adenauer í Vestur- Þýskalandi. Þeir voru heimilisvinir í útvarpinu. Orð þeirra og gerðir voru í útvarpinu frá því snemma á morgn- ana. Skömmu síðar kom Charles de Gaulle, eftir endurkomu til valda, þegar hershöfðinginn hafði kallað landa sína til hlýðni við sig. Þessu til viðbótar fylgdi oftar en ekki hvað var helst í Lundúna- fréttum þennan morgun, eftir að leikinn hafði verið „Menuit“ eftir Boccherini. Þessir fjórir heiðursmenn tóku sér það hlutverk að byggja upp Evrópu með stuðningi Marshall-áætlunar- innar, sem nefnd hefur verið „horn- steinn hagsældar“ í Evrópu. Áætl- unin er nefnd eftir bandaríska hershöfðingjanum og utanríkis- ráðherranum George C. Marshall, sett fram til að koma í veg fyrir að öfgaöfl næðu fótfestu í Evrópu að lokinni styrjöldinni. Viet-Nam Utan hins frjálsa heims í Evrópu voru nýlendur Breta og Frakka í Afríku og Asíu. Þegar þær fengu frelsi varð til stjórnarfar af öllu tagi. Frakkland var nýlenduveldi. Ein ný- lenda varð þeim óleysanlegt vanda- mál. Það var sá hluti Indo-Kína sem hét Viet-Nam. Með samkomulagi kenndu við Genf frá 1954 var Viet-Nam skipt í tvo hluta, Norður-Viet-Nam og Suð- ur-Viet-Nam. Kambodía og Laos fengu sjálfstæði en áttu í ýmsum erf- iðleikum. Frakkar gáfu Indo-Kína eftir en „vandamálið“ var alls ekki úr sögunni. Afskipti Bandaríkjanna af Viet-Nam eru talin hafa hafist af al- vöru 1955, afskipti sem stigmögn- uðust í Viet-Nam-stríðinu, allt þar til yfir lauk 1975. Fyrir utan fimm forseta Banda- ríkjanna stjórnuðu hershöfðingjarnir Maxwell Taylor og William West- moreland styrjaldarrekstri á staðn- um. Sendiherra Bandaríkjanna í Sai- gon var lengst af Henry Cabot Lodge, reyndur stjórnmálamaður. Varnarmálaráðherra Kennedy forseta, Robert McNamara, sá er endurreisti Ford-bifreiðaframleið- andann, viðurkenndi síðar að styrj- aldarreksturinn hafi verið vonlaus frá upphafi. Styrjaldarrekstrinum lauk með því að síðustu Bandaríkjamennirnir, ásamt sendiherranum, Graham Martin, komust undan með þyrlum af þaki bandaríska sendiráðsins í Sai- gon, um borð í flugmóðurskip á Tonkin-flóa. Þyrlum var hent í sjóinn til að sú næsta gæti lent. Útvarp Reykjavík tilkynnti snemma morguns í lok apríl 1975, „Viet Nam-stríðinu lauk í nótt“. Upplifun greinarhöfundar Greinarhöfundur kom til Hanoi um miðja nótt haustið 2016. Á leið frá flugvelli til hótels, sem stóð af sér styrjöldina, var myrkur svo langt sem augað eygði. Í huga kom: „Hvað voru Bandaríkjamenn að gera hér?“ „Hvert voru þeir komnir?“ „Hvað vissu þeir 58.209 hermenn, sem féllu í Viet-Nam-stríðinu um tilgang stríðsins?“ Stigmögnun: „Við höfum misst 40.000 unga menn, við verðum að klára stríðið.“ Perdue! Stríðið tap- að! Áhrif ljósmynda Stríð var rekið í „beinni útsend- ingu“. Sjónvarpsstöðvar lýstu at- burðum. Fréttaljósmyndarar voru nærri vígvellinum. Fréttamyndir breyttu almenningsálitinu í hinum frjálsa heimi. Bandarískri millistétt var nóg boðið. Þessar ljósmyndir bættust við her- afla bændaþjóðar í Viet-Nam. Nakta stúlkan á myndinni, Phan Thi Kim Phuc, lifði styrjöldina af. Hún er nú velgjörðarsendiherra UNESCO. Nguyen Ngoc Loan gerðist veit- ingamaður í Bandaríkjunum eftir að hafa skotið Viet Cong-liðann Nguyen Van Lem. Ekki er vitað um örlög þess, sem bíður yfirheyrslu. Ljósmyndir voru áhrifameiri en allur herafli Bandaríkjamanna. Viet- Nam stefnir hratt í að verða iðn- aðarveldi, með verulegan greiðslu- afgang og fjárhagslegt sjálfstæði. Skáld orti Þá er forsætisráðherra lagði blóm- sveig við grafhýsi Ho frænda orti ís- lenskt skáld; Hverfull og skrítinn er heimurinn, hugsjónir ganga úr skorðum. Heiðrar nú Davíð Ho Chi Minh. Hver hefði trúað því forðum? (Stefán Vilhjálmsson) Eftir Vilhjálm Bjarnason Vilhjálmur Bjarnason með blómum skreyttum Ho Chi Minh í Hanoi. Höfundur var alþingismaður. Viet Nam, Perdue Viet Nam-stríðinu lokið. Síðustu Bandaríkjamennirnir komnir frá Saigon um borð í flugvélamóðurskip. Mynd af nakinni stúlku að flýja napalmárás hafði mikil áhrif. Hún heitir Phan Thi Kim Phuc og varð velgjörðarsendiherra UNESCO. Viet Cong-liði bíður yfirheyrslu fullur skelfingar. Ekki er vitað hvað varð um hann. Nguyen Ngoc Loan lögregluforingi skýtur Viet Cong-liðann Nguyen Van Lém. Loan varð veitingamaður í Virginíu. Á gangi í nýja miðbænum Þessar tvær konur, sem ljósmyndari Morgunblaðsins náði á mynd, muna eflaust þá tíð þegar einungis var bílastæði þar sem hið nýja Hafnartorg stendur nú. Í stað bíla- stæðis eru nú verslanir, veitingastaðir, fyrirtæki og íbúðir ásamt því að nýjar höfuðstöðvar Landsbankans rísa hinum megin við Geirsgötuna og nýtt Marriot-hótel, á svokölluðum Hörpureit. Eggert

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.