Morgunblaðið - 18.01.2021, Page 1
M Á N U D A G U R 1 8. J A N Ú A R 2 0 2 1
Stofnað 1913 14. tölublað 109. árgangur
POPPSAGA ÍS-
LANDS GEFIN
ÚT Í KÍNA
ÆTLAR AÐ
GANGA Á FIMM-
VÖRÐUHÁLS
VILL HALDA Í
KYRRÐ OG TIGN
ÖRÆFANNA
EIRÚN FIMMTUG 24 GUÐRÚN SVANHVÍT 10DR. GUNNI SÁTTUR 11
„Kostir núverandi
endurgreiðslu-
kerfis eru margir,
og það er minn
vilji að endur-
greiðsluhlutfallið
verði hækkað, upp
í 35%. Það eru ein-
mitt núna kjör-
aðstæður til þess
að styrkja enn
betur við kvik-
myndagerðina, og í því fælust stór
tækifæri. Við gætum auðveldlega gert
kvikmyndaiðnað að fjórðu útflutnings-
stoð Íslands, laðað hingað til lands
fleiri ferðamenn og skapað miklar
gjaldeyristekjur,“ segir Lilja Alfreðs-
dóttir, mennta- og menningar-
málaráðherra.
Samtök iðnaðarins og Samband ís-
lenskra kvikmyndaframleiðenda hafa
lagt fram hugmyndir þess efnis að
endurgreiðsla vegna kvikmyndagerð-
ar verði tímabundið hækkuð til að laða
stór erlend kvikmyndaverkefni hingað
til lands. Viðræður hafa staðið yfir við
atvinnuvega- og nýsköpunarráðu-
neytið síðustu mánuði, síðast á fundi í
desember. Hugmyndirnar gera ráð
fyrir því að stór verkefni sem kosta á
milli 1-2 milljarða í framkvæmd geti
fengið endurgreiðslu á 30% kostnaðar
en verkefni yfir 2 milljörðum gætu
fengið endurgreiðslu á 35% kostnaðar.
„Við þurfum að fjölga störfum og
slík verkefni örva eftirspurn, ekki síst
hjá ferðaþjónustufyrirtækjum,“ segir
Sigríður Mogensen, sviðsstjóri hug-
verkasviðs Samtaka iðnaðarins. »14
Ræða hækkun
endurgreiðslna
Kjöraðstæður fyrir kvikmyndagerð
Lilja
Alfreðsdóttir
Björt borgarljósin skinu fallega og spegluðu sig í Reykjavík-
urtjörn þegar ljósmyndari Morgunblaðsins átti þar leið um.
Stórir kranar gnæfa yfir byggingasvæðum enda er þess
vænst að athafnalíf landans komist fljótlega aftur á snúning,
enda fer vonandi að sjá fyrir endann á kórónufaraldrinum. Þá
vekur ekki síður bjartsýni og gleði meðal landans að daginn
er farið vel að lengja, eða um nærri klukkustund samanlagt
frá vetrarsólstöðum. Ágætt veður var á landinu í gær, en
kuldi er í kortunum og búast má við snjókomu á Norðurlandi.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Björt eru borgarljósin en kuldinn er kominn í kortin
Alþingismenn, sem koma saman til
funda að nýju í dag eftir jólaleyfi Al-
þingis, búast við líflegum umræðum
á næstunni. Meðal stórmála sem
koma til umfjöllunar þingsins á
næstunni eru frumvarp forsætisráð-
herra til breytinga á nokkrum
ákvæðum stjórnarskrárinnar og svo
fyrirhuguð sala á eignarhlut ríkisins
í Íslandsbanka.
Væntanleg bankasala verður til
umfjöllunar á Alþingi strax í dag
þegar Bjarni Benediktsson fjár-
málaherra flytur Alþingi munnlega
skýrslu um málið og stöðu þess.
Oddný G. Harðardóttir þingmaður
Samfylkingar telur ríkisstjórnina
þurfa að undirbúa söluna á bankan-
um betur áður en haldið verður af
stað. Mikilvægt sé að verja almanna-
hag í ferlinu öllu. Sama máli gegni
um atvinnumálin, þar sem nú sé þörf
á uppbyggingu og nýsköpun eftir
Covid-faraldurinn.
Á næstunni mun Katrín Jakobs-
dóttir forsætisráðherra leggja fram
frumvarp á Alþingi til breytinga á
stjórnarskrá, það er ákvæði sem lúta
að auðlindum í þjóðareign, umhverf-
is- og náttúrumálum, þjóðtungunni
og ýmsum atriðum varðandi fram-
kvæmdarvaldið og embætti forseta
Íslands.
„Ég tel brýnt að að stjórnarskrár-
frumvarpið verði að lögum nú á vor-
þingi. Að undanförnu hefur farið
mikil vinna í málið og ég vona að okk-
ur auðnist að ná samstöðu um nauð-
synlegar breytingar,“ segir Kol-
beinn Óttarsson Proppé þingmaður
VG. Hann telur að umræður á þingi
á næstunni verði líflegar enda séu í
deiglunni málefni þar sem átakalínur
séu skarpar. sbs@mbl.is
Bankasala og stjórnar-
skrá stórmál vorþingsins
Salan verði undirbúin betur Kallað er eftir samstöðu
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Alþingi Kemur aftur saman til
funda í dag eftir jólaleyfi.
MÁtakalínurnar... » 4