Morgunblaðið - 18.01.2021, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JANÚAR 2021
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Uppselt var eftir hádegi í gær á
skíðasvæðið í Bláfjöllum, á fyrsta
degi skíðavetrarins. Magnús Árna-
son, framkvæmdastjóri Skíða-
svæða höfuðborgarsvæðisins, segir
að vel hafi gengið að fylgja sótt-
varnaráðstöfunum og að dagurinn
hafi verið góður.
„Við erum glaðir með þetta.
Þetta var eiginlega framar vonum
hvernig þetta gekk og hvað fólk
var jákvætt. Það voru margir með
grímu og það lagðist vel í fólk að
það þurfti að skipta upp í holl.
Eins og með annað í þessu kófi
þarf maður oftar að panta sér
tíma en þar sem maður kemst að
hefur maður líka meira pláss,“
segir Magnús, en skíðakappar
þurfa nú að kaupa miða ann-
aðhvort fyrri eða seinni hluta
dagsins og er deginum þannig
skipt í tvennt.
Fyrsti
skíðadagur
vetrarins
Morgunblaðið/Íris Jóhannsdóttir
Konan, sem var í bifreiðinni sem
hafnaði í sjónum við Djúpveg í vest-
anverðum Skötufirði á laugardag,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans
síðar sama kvöld. Hún hét Kamila
Majewska og var á þrítugsaldri. Eig-
inmaður hennar og ungt barn voru
einnig í bílnum og njóta þau lækn-
isaðstoðar en frekari upplýsingar
um líðan þeirra hafa ekki verið gefn-
ar út.
Fjölskyldan var nýkomin heim frá
Póllandi og var á leiðinni á Flateyri
þar sem þau höfðu búið sér heimili. Í
gærkvöldi lá ekki fyrir hver tildrög
slyssins voru.
„Áður hefur verið upplýst um al-
varlegt umferðarslys sem varð í
gærmorgun þegar bifreið fór út af
veginum í Skötufirði og hafnaði í
sjónum, með þremur manneskjum
innanborðs. Fjölskyldan sem í bíln-
um var, hjón með ungt barn, var flutt
til frekari læknismeðferðar í Reykja-
vík með þyrlum Landhelgisgæslunn-
ar,“ sagði í tilkynningu frá lögregl-
unni á Vestfjörðum.
Fyrstir til að reyna björgun voru
vegfarendur en fjölmennt lið lög-
reglu, sjúkraflutningafólks og
lækna, slökkviliðs og björgunar-
sveita var sent á vettvang auk þess
sem tvær þyrlur Landhelgisgæsl-
unnar voru kallaðar út og sendar á
vettvang. Fyrstu viðbragðsaðilar
voru komnir á vettvang um 11:16,
klukkustund eftir að tilkynning um
slysið barst.
Á annan tug viðbragðsaðila sem
komu að björgun fjölskyldunnar
voru sendir í sóttkví þar sem fjöl-
skyldan var nýkomin frá Póllandi og
var á leið í sóttkví fram að síðari
sýnatöku.
Lést á gjörgæsludeild
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Banaslys Kona á þrítugsaldri, Kamila Majewska, lést á spítala eftir slysið.
Hjón og ungt barn voru í bifreið sem hafnaði í sjónum í
Skötufirði Á annan tug viðbragðsaðila sendir í sóttkví
Áætlaður kostnaður Reykjavíkur-
borgar vegna styttingar vinnuvikunn-
ar á árinu 2021 er samtals 519,3 millj-
ónir króna vegna A-hluta. Þetta
kemur fram í svari mannauðs- og
starfsumhverfissviðs Reykjavíkur-
borgar sem lagt var fram á fundi
borgarráðs fimmtudaginn 14. janúar
við fyrirspurn sem borgarfulltrúi
Miðflokksins lagði fram á fundi borg-
arráðs í nóvember á síðasta ári.
Stærsti hluti kostnaðarins verður
til á velferðarsviði borgarinnar en
áætlað er að hann verði um 473 millj-
ónir króna. Kostnaðurinn á íþrótta-
og tómstundasviði verður tæpar 45
milljónir króna og tæplega tvær millj-
ónir á umhverfis- og skipulagssviði.
Í svarinu segir að stytting vinnu-
skyldu vaktavinnufólks úr 40 í 36
virkar stundir, muni að óbreyttu hafa
veruleg áhrif á starfsemi starfsstaða
og svokallað mönnunargat muni
myndast. „Við því þarf að bregðast og
í kostnaðarmati er gert ráð fyrir að
kostnaður vegna yfirvinnu lækki og
að mönnunargatinu verði mætt á dag-
vinnutíma.“
Þá kom fram í svari mannauðs- og
starfsumhverfissviðs við fyrirspurn
borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins
að hjá Reykjavíkurborg starfi ríflega
10 þúsund starfsmenn í um 7.500
stöðugildum. Borgarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins voru ósáttir með óná-
kvæmni í svarinu og létu bóka að það
væri til marks um að borgin hefði
misst yfirsýn yfir stöðugildin hjá
borginni. thor@mbl.is
Stytting vinnuvikunnar
kostar borgina 520 milljónir
Ríflega 10 þúsund starfa hjá borginni í um 7.500 stöðugildum
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Ráðhús Upplýst var um kostnaðinn
á fundi borgarráðs í síðustu viku.
Þór Steinarsson
thor@mbl.is
Þrjú skip voru send frá Austfjörðum
síðdegis í gær á Seyðisfjarðardýpi til
að leita loðnu eftir að þær fréttir bár-
ust frá togurum að þar væri talsvert
af loðnu á ferðinni. Hafrannsókna-
stofnun bað áhöfn Víkings, sem var
þá á leið til löndunar á Vopnafirði, að
fara yfir svæðið og staðfesta fregn-
irnar. Niðurstaðan var sú að töluvert
af loðnu væri að finna í kantinum á
um 50 mílna kafla frá Hvalbakshalla
og norður. Í ljósi þeirra upplýsinga
tók Hafrannsóknastofnun þá
ákvörðun að ástæða væri til að ráð-
ast í leitina. Þetta segir Sigurður
Guðjónsson, forstjóri Hafrann-
sóknastofnunar, í samtali við Morg-
unblaðið. Hann tekur þó fram að
ekki sé hægt að fagna fundinum enn
sem komið er.
„Það er allt of snemmt að segja til.
Við vitum meira eftir 2-3 daga en það
er alla vega eitthvert líf í þessu.
Veðurglugginn fyrir næstu brælu
er 2-3 dagar og er það of skammur
tími til að sigla rannsóknarskipinu
Árna Friðrikssyni austur. Hafrann-
sóknastofnun sendi tvö teymi austur
til að manna tvö af þremur skipum,
þ.e. Polar Amoroq og Ásgrím Hall-
dórsson, og þau fóru í gær til mæl-
inga en þriðja skipið verður notað til
að afmarka útbreiðsluna til að spara
tíma,“ bætir Sigurður við.
Getur verið viðbót
Loðnuleit fimm skipa lauk mánu-
daginn 11. janúar. Loðna fannst
meðfram landgrunnskantinum norð-
an Íslands allt austur að Langanes-
dýpi. Fjarlægðin frá Langanesi að
Seyðisfjarðardýpi er slík að það get-
ur verið að skipin fimm hafi farið á
mis við loðnuna sem fannst nú um
helgina og að hún sé viðbót við það
sem fannst á Langanesi. Eftir leitina
fyrr í mánuðinum var ekki tilefni til
að auka útgefna ráðgjöf fyrir loðnu
að mati Hafrannsóknastofnunar og
stendur hún því óbreytt frá því í des-
ember í 22 tonnum. Á meðan leitinni
stóð náði hafís yfir stóran hluta
rannsóknarsvæðis sem hafði áhrif á
leitina.
Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson,
framkvæmdastjóri Vinnslustöðvar-
innar, sagði í samtali við mbl.is fyrir
helgi að loðnuskorturinn væri gríð-
arleg vonbrigði sem myndi hafa í för
með sér mikið tjón fyrir sjávarútveg-
inn til framtíðar.
Fréttir af loðnu á
stóru svæði eystra
Þrjú skip send út til að mæla magnið