Morgunblaðið - 18.01.2021, Side 4

Morgunblaðið - 18.01.2021, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JANÚAR 2021 Rafstilling ehf Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14 Hröð og góð þjónusta um allt land Áratug a reynsla Startar bíllinn ekki? Við hjá Rafstillingu leysum málið Fæst í verslunum okkar á Selfossi og í Ármúla 42 BANVÆN MISTÖK í íslenska heilbrigðiskerfinu Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Skýr afstaða og fumlausar ákvarð- anir skosku heimastjórnarinnar í sóttvarnamálum munu efalítið leiða til þess að þeim Skotum sem vilja fullt sjálfstæði þjóðarinnar frá Bretum muni fjölga. Um 58% aðspurðra sögð- ust vilja skv. ný- legri könnun, að Skotland segði sig úr breska sam- veldinu og senni- legt er, miðað við umræðuna á líðandi stundu, að sá hópur fari stækkandi. Samfélag í fjötrum Þetta segir Ólafur Oddgeirsson, dýralæknir í Edinborg, sem búið hef- ur í Bretlandi sl. tuttugu ár. Strax á vormánuðum í fyrra voru settar margvíslegar harðar ráðstaf- anir í Skotlandi til þess að hamla út- breiðslu kórónuveirunnar. Ástandið er því að nokkru leyti farið að venj- ast, þótt ráðstafanir hafi aldrei verið eins róttækar og nú. „Útgöngubannið er ekki alveg bók- staflegt, fólk má hreyfa sig og fara um nærumhverfi sitt séu fjarlægð- artakmörk og sóttvarnir í lagi. Ég fór hér um hverfið mitt um helgina og þar var mikill fjöldi fólks úti að ganga eða á hjólum. En vissulega er stemn- ingin í samfélaginu allt önnur en maður á að venjast, rólegra yfir öllu og allar búðir, aðrar en apótek og matvöruverslanir, eru lokaðar,“ segir Ólafur. „Væntanlega verður samfélagið í þessum fjötrum einhverjar vikur enn um sinn. Við hjónin erum heimavinn- andi og í sjálfu sér hefur þetta lítil áhrif á líf okkar og störf, en fyrir til dæmis barnafjölskyldur er þetta mjög þrúgandi og skapar mikið and- legt álag. Núna um helgina kom fram í fréttum BBC að búið væri að bólu- setja um 2,8 milljónir Breta sem alls eru 65 milljónir. Skotar eru inni í þeirri tölu og sennilega líður eitthvað fram á sumar uns ástandið í landinu verði eðlilegt að nýju.“ Langt gengið í sóttvörnum Heimastjórnin í Skotlandi hefur gengið nokkuð langt í öllum ráðstöf- unum vegna sóttvarna, svo sem lokun landamæra. Áherslur annars staðar á Bretlandseyjum hafa verið svipaðar. „Englendingar hafa farið sér hægar en önnur ríki Stóra-Bretlands enda hefur Covid verið í miklum vexti þar á síðustu vikum, segir Ólafur. „Nicola Sturgeon ráðherra heimastjórn- arinnar í Skotlandi hefur komið vel út úr þessari baráttu; verið hreinskilin og komið sér beint að hlutunum. Breska stjórnin hefur hins vegar, að mínu mati, verið tvístígandi og oft gert of lítið of seint.“ Á fyrstu dögum nýhafins árs sagði Boris Johnson forsætisráðherra Breta að ekki yrði efnt til þjóð- aratkvæðagreiðslu um sjálfstæði Skotlands fyrr en ný kynslóð tæki við stjórnartaumum í Bretlandi. Stur- geon forsætisráðherra Skota hefur á hinn bóginn sagt að Skotar vilji sjálf- stæði sem fyrst til að komast að nýju inn í Evrópusambandið. Breska stjórnin telur sig hafa úrslitavald um hvort þjóðaratkvæðagreiðsla um sjálfstæði Skota fari fram, en um það eru skiptar skoðanir í Skotlandi. Afdráttarleysi Skotum að skapi „Afdráttarlaus afstaða skosku heimastjórnarinnar er Skotum að skapi og sjálfstæðismál verða aftur í deiglunni innan tíðar. Veiran hefur haft áhrif á allt, meðal annars stjórn- málin,“ segir Ólafur sem hefur mikið sinnt verkefnum á sviði matvæla- og fæðuöryggis, starfað víða um veröld, en gert út frá Skotlandi. AFP Bretland Strangar reglur um útgöngubann gilda í landinu, enda þótt fólki sé gefið svigrúm til útiveru í nærumhverfi. Krafan um sjálfstæði þyngist með Covid  Skorður í Skotlandi  Andlegt álag  Stjórnmál breytt Ólafur Oddgeirsson Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Ætla má að nálægð kosninga og úr- lausn á ýmsum málefnum sem tengj- ast kórónaveirufaraldrinum muni setja svip sinn á störf Alþingis, sem kemur saman til fundar að nýju eftir jólahlé í dag, 18. janúar. Þetta segja þingmenn sem Morgunblaðið ræddi við í gær. Ríkisfjármálaáætlun til næstu fimm ára þurfi að afgreiða nú á vorþingi. Í þeirri áætlun sem starfað sé eftir nú – og afgreidd var á haust- dögum – sé tillit tekið til ýmissa þátta í þjóðgarbúskapnum sem breyttust vegna farsóttarinnar. Hugsanlega þurfi málin frekari endurskoðunar við, enda breytist forsendur hratt. Þingstörfin í dag hefjast með fjar- fundum í fastanefndum. Kl. 15 er svo fundur í þingsal, sem byrjar með óundirbúnum fyrirspurnum og svo verður kynnt ósk Pírata og fleiri um að Ríkisendurskoðun geri úttekt á starfsemi Vegagerðarinnar. Þriðja mál á dagskrá er svo skýrsla fjár- málaráðherra um fyrirhugaða sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka. Hafi áhrif í nefndastarfi Ýmis stór mál sem koma til um- fjöllunar og afgreiðslu Alþingis hafa verið í vinnslu að undanförnu og verður reynt að ljúka þeim nú á vor- þinginu. Vilhjálmur Árnason, þing- maður Sjálfstæðisflokksins, nefnir þar endurskoðun útlendinga- og mannanafnalaga, sem heyra undir dómsmálaráðherra. Hugsanlega verði svo tekin heildstæð endur- skoðun á sótt- varnalögum. Lög um fjölmiðla og heildstæð endur- skoðun á lögum um málefni barna og ungmenna frá félagsmálaráð- herra verði sömu- leiðis væntanlega stór mál á vorþinginu. Óvíst sé hver verði afdrif frumvarps umhverfisráð- herra um hálendisþjóðgarð. „Ég geri ráð fyrir að stjórnarand- staðan geri sig gildandi og reyni í gegnum nefndastarfið að hafa áhrif á gang mála. Oft hvessir líka hressilega í pólitíkinni þegar dregur að lokum vorþings,“ segir Vilhjálmur. Mæta verður heimilunum Oddný G. Harðardóttir þingmaður Samfylkingar segir að á vorþingi verði áhersla lögð á grundvallarmál- in, sem hún kallar svo; það er jöfnuð, almannatryggingar og svo heilbrigð- is-, mennta- og auðlindamál. „Mæta verður heimilum þeirra sem misst hafa vinnuna enn betur en gert hefur verið og augljóslega verður að gera slíkt ef faraldurinn dregst á langinn,“ segir Oddný. Hún telur sömuleiðis þörf á að ræða stórar áskoranir í loftslagsmálum. Þar þurfi flokkarnir að tefla fram sínum grænu lausnum í brýnu viðfangsefni. „Uppbygging eftir Covid á at- vinnumarkaði, nýsköpun og hvernig renna á fleiri stoðum undir atvinnu- lífið. Fyrirséð er að bankasala muni valda deilum og það mun stjórnar- skrárfrumvarp forsætisráðherra gera líka. Þá verður fyrirhuguð sala á hlut ríkisins í Íslandsbanka deilumál og ef ríkisstjórnin vill verja almanna- hag í því ferli þá vinnur hún heima- vinnuna betur áður en farið er af stað,“ segir Oddný sem kveðst ekki geta sagt neitt um hvernig þingstörf muni litast af uppstillingum á lista og prófkjörum, sem geti hins vegar vald- ið deilum innan flokka. Auðnist að ná samstöðu Katrín Jakobsdóttir forsætisráð- herra ætlar, sem fyrr segir, á vor- þingi, að flytja ein frumvarp með til- lögu til breytinga á stjórnarskrá. Tillögurnar víkja að auðlindum í þjóðareign, umhverfis- og náttúru- vernd, íslenskri tungu og breytingum á 2. kafla stjórnarskrárinnar sem er um framkvæmdarvaldið og forseta- embættið. „Ég tel brýnt að að stjórnarskrár- frumvarið verði að lögum nú á vor- þingi. Að undanförnu hefur farið mik- il vinna í málið og ég vona að okkur auðnist að ná samstöðu um nauðsyn- legar breytingar,“ segir Kolbeinn Óttarsson Proppé þingmaður VG. „Það verða fjölmörg stórmál á vor- þinginu þar sem stóru átakalínurnar koma væntanlega fram. Þær verða gjarnan skarpar í aðdraganda kosn- inga.“ Átakalínurnar koma fram á vorþingi  Alþingi kemur saman til funda í dag  Bankasalan verður í brennidepli  Farsóttin breytir forsend- unum hratt  Þingmaður VG segir brýnt að frumvarp forsætisráðherra um stjórnarskrármál náist í gegn Kolbeinn Óttarsson Proppé Oddný G. Harðardóttir Vilhjálmur Árnason Sóttvarnareglur sem voru í gildi yfir jól og áramót höfðu minni áhrif á jólahald landsmanna en þeir töldu fyrir fram að þær myndu gera. Þetta kemur fram í nýjum þjóðarpúlsi Gallup. Fyrir jól töldu nær þrír af hverj- um fimm landsmönnum að sótt- varnareglur myndu hafa mikil áhrif á jólahald þeirra, en eftir á telja aðeins tæplega 46% að þær hafi haft mikil áhrif. Einn af hverj- um fimm taldi fyrir fram að regl- urnar hefðu lítil áhrif á jólahaldið, en eftir á telja 37% að þær hafi haft lítil áhrif. Fólk sem hefur meiri menntun og hærri fjölskyldutekjur er lík- legra til að telja að sóttvarnareglur hafi haft mikil áhrif á jólahald sitt. Þá telja íbúar höfuðborgarsvæð- isins frekar en íbúar landsbyggð- arinnar að sóttvarnareglur hafi haft áhrif á jólahald sitt. Í þjóðarpúlsinum segir að hátt í þrír af hverjum tíu segi að þótt það hefði ekki haft nein áhrif á smit- hættu eða útbreiðslu kórónuveir- unnar hefðu þeir kosið að halda jólin samkvæmt þeim reglum sem voru í gildi frekar en að hitta fleira fólk um jólin. Þetta sé hærra hlut- fall en þegar spurt var fyrir jól, þegar rúmlega tveir af hverjum tíu sögðust kjósa það. alexander@mbl.is Minni áhrif á jól- in en talið var  46% segja reglur hafa haft mikil áhrif

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.