Morgunblaðið - 18.01.2021, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 18.01.2021, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JANÚAR 2021 Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is Vefverslunin alltaf opinwww.listverslun.is Verkfæralagerinn án.-m. kl. 9-18, fs. kl. 9-180, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-1 Kolibri trnur í miklu úrvali, gæða- vara á góðu verði Kolibri penslar Handgerðir þýskir penslar í hæsta gæðaokki á afar hagstæðu verði Ennþá meira úrval af listavrum WorkPlus Strigar frá kr. 195 Oddur Þórðarson Snorri Másson Guðrún Hálfdánardóttir Ekkert kórónuveirusmit greindist innanlands á föstudag og aðeins eitt á laugardag. Sá sem þá greindist var í sóttkví. Er föstudagurinn fyrsti dagur þar sem ekkert smit greinist innanlands frá því í september. Enn greinist þó fjöldi smita við landamærin, en á laugardag voru þau 14. Fyllt í skarð varnargarðsins Frá föstudegi hefur farþegum á leið til landsins ekki lengur staðið til boða að velja fjórtán daga sóttkví í stað tvöfaldrar skimunar á landa- mærum. Brögð eru að því að fólk hafi valið þá leið án þess að ætla sér að halda sóttkví. Sigurgeir Sigmundsson, yfirlög- regluþjónn hjá flugstöðvardeild lög- reglunnar á Suðurnesjum, segir að með nýju fyrirkomulagi á landamær- um hafi verið fyllt upp í skarð í varn- argarði Íslendinga við kórónuveir- unni. Hann segir lögreglumenn og aðra starfsmenn Keflavíkurflugvall- ar hafa þurft að standa í því frá því sýnatökur hófust í sumar að reyna að fá þá sem ekki vildu fara í sýna- töku til að gera það þó. Frá því í lok október hefur verið haldið sérstak- lega utan um fjölda þeirra sem vildu upphaflega ekki fara í sýnatöku, en létu þó til leiðast eftir fortölur, og telur sá hópur 210 manns. Neitaði skimun en gafst loks upp Hið nýja fyrirkomulag hefur að mestu gengið vel, að sögn Víðis Reynissonar, yfirlögregluþjóns hjá almannavörnum. Einn þeirra sem komu til landsins á laugardag neitaði þó að fara í skimun á Kefavíkurflug- velli og var því synjað um að fara inn í landið. Viðkomandi beið í nokkrar klukkustundir við sýnatökuhliðið þar til hann gafst að endingu upp og samþykkti að fara í sýnatöku. Víðir segir að starfsmenn hafi gert við- komandi grein fyrir því að hann fengi ekki að koma inn í landið án sýnatöku og gáfu honum kost á að hugsa málið. Sem hann og gerði í nokkrar klukkustundir áður en hann gaf sig. Yfirlæknir lætur af störfum Jón Magnús Kristjánsson, yfir- læknir bráðadeildar Landspítalans, greindi frá því í gær að hann hefði sagt upp störfum á spítalanum til að taka við stöðu framkvæmdastjóra lækninga hjá Heilsuvernd. Í samtali við mbl.is sagði Jón Magnús að aðal- ástæða þess að hann láti af störfum sé að honum hafi boðist annað spennandi tækifæri hjá Heilsuvernd þar sem hann muni taka við sem framkvæmdastjóri lækninga. Jón, sem hefur haft sig mikið í frammi í kórónuveirufaraldrinum, segir þó einnig að mikill „innlagning- arvandi“ sé á spítalanum sem leiði af sér mikið álag á bráðamóttöku spít- alans. Illa gangi að ráða bót á því vandamáli, þótt það hafi ekki verið aðalástæða uppsagnar hans. Jón hefur starfað á Landspítalan- um í 25 ár, og þar af verið yfirlæknir í fimm ár. Hann tilkynnti spítalanum um uppsögn sína í nóvember og vinnur nú þriggja mánaða uppsagn- arfrest. Guðlaug Rakel Guðjónsdótt- ir, framkvæmdastjóri meðferðasviðs Landspítalans, segir í samtali við Morgunblaðið að ekki sé búið að ráða í stöðuna en starfið hafi verið aug- lýst. Fyrsti smitlausi dag- urinn frá í september  Ekkert innanlandssmit á föstudag  Smit greinast í hrönnum á landamærum  Einn neitaði að fara í skimun Morgunblaðið/Íris Jóhannsdóttir Landamæraskimun Þorri þeirra smita sem greinst hafa að undanförnu hef- ur verið á landamærum. Þar er nú skylda að fara í sýnatöku. Jón Magnús Kristjánsson Sigurgeir Sigmundsson Efling starfsmenntunar og sterkari tengsl við atvinnulífið eru helstu rök- semdirnar fyrir því að starfsemi garðyrkjuskólans að Reykjum í Ölf- usi verður skilin frá Landbúnað- arháskóla Íslands. Þetta segir Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra í samtali við Morgunblaðið. Starfs- hópur sem hefur haft þessi mál til skoðunar að undanförnu skilaði til- lögum sínum á dögunum sem eru þær að garðyrkjumenntunin á Reykjum verði undir yfirstjórn og á ábyrgð Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi. Undirbúningur þessara breytinga hefst innan tíðar. „Ég tel mikilvægt að framtíð garð- yrkjumenntunar á Íslandi verði efld. Mikil tækifæri felast í garðyrkju og ræktun sem er okkur mikilvæg með tilliti til matvælaöryggis. Þá koma umhverfismálin sífellt sterkar inn í okkar daglega líf,“ segir mennta- málaráðherra. Ganga þurfi frá samningum um starfsemina á Reykjum, þar sem vísindamenn Landbúnaðarháskóla Íslands hafi unnið að ýmsum rannsóknum. Því akademíska verði vafalaust haldið áfram, þó svo kennsla og símenntun í grænum greinum færist yfir til Fjöl- brautaskóla Suðurlands, sem sé öfl- ugur í starfsmennt og verklegum greinum. Garðyrkjuskóli ríkisins að Reykj- um í Ölfusi var stofnaður1939 og var sjálfstæð stofnun fram yfir aldamót. Var þá með Bændaskólanum á Hvanneyri og Rannsóknarstofnun landbúnaðarins lagður til sameinaðs Landbúnaðarháskóla Íslands. Mörg- um hefur þótt sem sú sameining hafi ekki gengið upp og garðyrkjumennt- un sé afskipt þar. Þau sjónarmið hafa m.a. komið frá hagsmunaaðilum í garðyrkju sem kallað hafa eftir breytingum til einhvers í líkingu við fyrra horf og er því kalli svarað nú, segir ráðherra. sbs@mbl.is Starfsmenntun á Reykjum sé efld  Garðyrkjuskóli til FSU  Tækifæri og kallinu er svarað Garðyrkjuskóli Breytingar gerðar. Stjórn Sorpu bs. samþykkti í lok síð- asta árs að veita framkvæmdastjóra félagsins heimild til að undirrita viljayfirlýsingu um þróunarsam- starf við PVD ehf. vegna verkefnis um vinnslu olíu úr plasti. Samstarfið er hluti af því verkefni Sorpu að finna plasti, sem þangað er skilað, betri farveg og einn margra kosta við aðferðir og tækni sem PVD hefur fram að færa er að plastið þarf hvorki að vera sérvalið né hreint til að vera nothæft til olíuvinnslu. Tæknin hefur verið notuð erlendis þar sem hún hefur sannað gildi sitt og því ekki um til- raunaverkefni að ræða, segir Jón Viggó Gunnarsson, framkvæmda- stjóri Sorpu, í samtali við Morgun- blaðið. „Þetta yrði því mjög fjölhæf inn- lend leið til að endurnýta plast og styður við áherslu Sorpu á betri nýt- ingu á þeim efnum sem berast til okkar. PVD mun til dæmis geta unn- ið lífdísil úr plastinu sem kæmi þá í stað innflutts jarðefnaeldsneytis,“ út- skýrir Jón Viggó og bætir við: „Það að nýta plast í olíuframleiðslu með þessum hætti gerir Sorpu kleift að endurnýta plast sem ætti sér ann- ars ekki endurnýtingarfarveg nema í brennslu erlendis. Hlutur jarðefna- eldsneytis sem orkugjafa fer vonandi ört minnkandi á Íslandi á næstu ár- um en ólíklegt að því verði alfarið út- rýmt og því jákvætt að framleiða lífdísil innanlands.“ Viðræður Sorpu og PVD vegna verkefnisins hafa staðið yfir frá árinu 2016. Með undirritun viljayfirlýsing- arinnar skuldbindur Sorpa sig til að starfa ekki að þróunarsamstarfi um vinnslu á olíu úr plasti með öðrum að- ilum í 18 mánuði frá undirritun og til að sjá PVD fyrir allt að 6 þúsund tonnum af plasti á því tímabili. Í vilja- yfirlýsingunni eru ákvæði sem gera Sorpu kleift að losna undan þeirri skuldbindingu sem í henni felast við tilteknar aðstæður en Sorpa tekur ekki á sig fjárhagslegar skuldbind- ingar með undirritun viljayfirlýsing- arinnar. Samstarfið er á frumstigi og nú stendur yfir forhönnun verksmiðj- unnar með tilliti til samsetningar og orkuinnihalds þess plasts sem kemur til Sorpu. Áætlað er að sú vinna taki að minnsta kosti sex mánuði og hluti af þeirri vinnu er að finna verksmiðj- unni staðsetningu. Stefnt að því að vinnsla hefjist eftir 18 til 24 mánuði. thor@mbl.is Morgunblaðið/Styrmir Kári Sorpa Plastið sem PVD fær til olíuvinnslu yrði annars urðað eða brennt. Olía verði unnin úr plasti frá Sorpu bs.  Vinnsla hefjist innan 24 mánaða Jón Viggó Gunnarsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.