Morgunblaðið - 18.01.2021, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 18.01.2021, Blaðsíða 11
VIÐTAL Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Það er gaman að sjá þessa bók komna út en ég hef nú sjálfur mest lít- ið þurft að gera,“ segir Gunnar Lárus Hjálmarsson, betur þekktur sem tón- listarmaðurinn og poppfræðingurinn Dr. Gunni. Nýverið kom út á kínversku þar- lend útgáfa bókar Dr. Gunna, Blue Eyed Pop, sem fjallar um íslenska tónlist og menningu. Bókin kom út hér á landi árið 2012 og er ensk útgáfa fyrri bóka hans um íslenska tónlist- arsögu, ætluð fyrir ferðamenn. „Ég var bara að vinna í Fjallakof- anum á Laugavegi þegar þar birtist Kínverji sem hafði keypt Blue Eyed Pop í Lucky Records. Honum var sagt að ég ynni þarna og leitaði mig uppi. Við ræddum saman og hann sagðist óður og uppvægur vilja taka upp sam- starf á grundvelli tónlistarmenningar Íslands og Kína. Hann vildi sem sagt fá að þýða bókina á kínversku og skrifa sjálfur kafla í hana. Ég var auð- vitað til í þetta og hér erum við,“ segir Gunni. Bókin kom út í lok árs 2020 og kallast „Dægurtónlist frá landi elds og ísa“. Í henni er meðal annars að finna inngangskafla sem Guðni Th. Jóhann- esson, forseti Íslands, skrifaði. Lítil bók á risamarkaði Meðhöfundur Gunna heitir Zhang Changxiao en kallar sig Sean White. Útgáfufyrirtæki bókarinnar heitir CI- TIC Press Group og er fyrsta upplag hennar 5.000 eintök. Það hljómar ágætlega á íslenskan mælikvarða en Gunni bendir á að stærð markaðarins í Kína sé slík að það jafnist um það bil á við að tvö eintök væru gefin út hér. Gunni segir að meðhöfundur sinn hafi kynnt sig sem „menningarlegan Marco Polo“, mann sem vilji kynna Kínverjum menningu annarra landa. „Hann býr hálft árið í Mílanó og hefur áður skrifað bók um ítalska tónlist. Svo fékk hann augastað á Íslandi og var að flækjast hér. Eftir að þetta var ákveðið árið 2017 kom hann nokkrum sinnum aftur og ég leiddi hann undir Megas, Bubba og allskonar lið. Hann var líka á Airwaves eitt árið.“ Sjálfur fór Gunni til Kína árið 2018 við vinnslu bókarinnar. „Það var alveg stórkostleg ferð og þá upplifði ég í fyrsta skipti þetta menningarsjokk sem fólk talar oft um. Maður gerir það ekkert í Bandaríkjunum eða Evrópu. Þarna var ég kynntur fyrir ýmsum borgarstarfsmönnum og borgar- fulltrúum og hlaut ýmsar viðurkenn- ingar, var útnefndur vinur nokkurra borga,“ segir hann. Vill að forsetinn fái bókina Dr. Gunni segir aðspurður að nú standi yfir kynning á bókinni í Kína og líklegt sé að hann fari þangað síðar á árinu. „Þá verður eitthvert plögg í bókabúðum og fleira. Svo hefur Sean hug á að fá íslensk bönd til að fara til Kína og kínverskir listamenn komi hingað á móti. Annars vilja Kínverj- arnir alltaf blanda einhverjum fyrir- mennum í svona hluti og ætlunin mun vera að nýta sér 50 ára afmæli stjórn- málasambands Íslands og Kína á árinu. Sean á sér þann draum að Guðni forseti færi forseta Kína eintak af bókinni að gjöf. Það er þegar búið að senda kínverska sendiherranum hér eintök og hann er voða ánægður með bókina. Sendiráð Íslands í Peking er líka vel með á nótunum.“ Heimsókn Dr. Gunni í Kína árið 2018 við vinnslu bókarinnar. Viðtal Sean White meðhöfundur hitti Megas og fleiri íslenska listamenn. Poppsaga Íslands komin út á kínversku  Bók Dr. Gunna þýdd og staðfærð Útgáfa Poppsagan á kínversku. FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JANÚAR 2021 FASTEIGNASALA Nóatún 17 | 105 Reykjavík | valborg@valborgfs.is | Sími 419 7900 valborgfs.is Glæsilegar nýjar íbúðir í Fossvogsdal ogHraunbæ Óskumað ráða löggilta fasteignasala VERÐMETUM SAMDÆGURS ÓSKUMEFTIRÖLLUMGERÐUMEIGNAÁ SKRÁ FOSSVOGSDALUR HRAUNBÆR Tilbúnar til afhendingar! Örfáar íbúðir óseldar! Elvar Guðjónsson Viðskiptafræðingur Lögg. fasteignasali Sími 895 4000 elvar@valborgfs.is Þórður Heimir Sveinsson Lögmaður og lögg. fasteignasali Jónas Ólafsson Viðskiptafræðingur Sími 824 4320 jonas@valborgfs.is Gunnar Biering Agnarsson Nemi til löggildingar Sími 823 3300 gunnar@valborgfs.is María Sigurðardóttir Viðskiptafræðingur Lögg. fasteignasali Sími 820 1780 maria@valborgfs.is Allar upplýsingar veita: Skattfrjáls söluhagnaður SUMARHÚSAEIGENDUR Frá 1. janúar 2021 er hagnaður af sölu sumarhúsa skattfrjáls.* Hafðu samband við okkur og fáðu frekari upplýsingar. Skógarvegur 6-8 Íbúðakjarni með 69 íbúðum á 4 hæðum auk bílakjallara. Hraunbær 103 A, B og C Nýjar íbúðir fyrir 60+ Valborg óskar eftir að ráða löggilta fasteignasala. Frábær vinnuaðstaða og góður vinnuandi. Nánari upplýsingar veitir Elvar Guðjónsson, elvar@valborgfs.is *að ákveðnum skilyrðum uppfylltum Kolbrún Baldursdóttir, borgar- fulltrúi Flokks fólksins, vill að sál- fræðingar skólaþjónustu borgarinn- ar hafi aðsetur í þeim skólum sem þeir sinna í stað þjónustumiðstöðva. Hún leggur á þriðjudag fram tillögu þess efnis í borgarstjórn. Þá er lagt til að skólasálfræðing- arnir heyri beint undir skólastjórn- endur sem ákvarði í samráði við nemendaverndarráð verkefnalista sálfræðings án miðlægra afskipta. Alls eru 837 börn á biðlista eftir þjónustu fagfólks í skólum Reykja- víkur, einkum þjónustu sálfræðinga. Er það mat Kol- brúnar, sem sjálf er sálfræðingur að mennt, að með því að færa aðset- ur sálfræðinga til skólanna væru þeir í daglegri tengingu við börn og kennara og yrðu hluti af skólasamfélag- inu. Með núverandi fyrirkomulagi þekki börn ekki skólasálfræðing sinn og foreldrar viti upp til hópa ekki af úrræðinu. Þá telur hún að skilvirkni yrði meiri og þjónusta við börnin betri með því að færa þjónustuna nær börnunum. Vill fjölga sálfræðingum Flokkur fólksins hefur áður lagt fram tillögur í borgarráði um að skólasálfræðingum verði fjölgað, en í greinargerð segir að öðruvísi verði ekki tekið á biðlistum. Tillaga flokks- ins um að fjölga stöðugildum skóla- sálfræðinga um þrjú og talmeina- fræðinga um tvö var felld í desember. alexander@mbl.is Vill sálfræðinga í skólana  837 börn á biðlista eftir þjónustu í skólum borgarinnar Kolbrún Baldursdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.