Morgunblaðið - 18.01.2021, Qupperneq 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JANÚAR 2021
Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Heimili í Evrópu og Norður-
Ameríku eru á góðri leið með að yf-
irfylla heimshöfin af plastmengun
sem verður til er þau þvo fötin sín, að
sögn vísindamanna sem leitt hafa í
ljós með rannsóknum, að mestur
hluti örplastsmengunar í sjó á norð-
urskautssvæðinu sé pólýester-
þræðir.
Örplastið hefur smokrað sér inn á
sum afskekktustu og að því er virðist
ósnortnustu svæði heims. Þessar
agnarsmáu flygsur hafa greinst í iðr-
um fisks í dýpstu afkimum hafanna, í
Mariana-djúpálnum, í sjávarís í
Norðuríshafinu og reynst þekja snjó
í Pýreneafjöllum á landamærum
Spánar og Frakklands.
Spurningin er akkúrat hvaðan
þessi plastmengun er komin. Í nýrri
rannsókn vistverndarsamtakanna
Ocean Wise og sjávarútvegsráðu-
neytis Kanada tóku vísindamenn
sjávarsýni víða á norðurskautssvæð-
inu. Komust þeir að því, að 92% ör-
plastsmengunarinnar væru gerviefn-
isþræðir.
Reyndust 73 prósent þessa vera
fjölester sem svipaði að eiginleikum
og efnasamsetningu til vefnaðar úr
gerviefnum, sér í lagi úr fatnaði.
„Hinar sláandi niðurstöður eru
þær að við erum með sterkar sann-
anir fyrir því að heimili í Evrópu og
Norður-Ameríku menga norð-
urskautssvæðið beint með örþráðum
úr tauþvotti (við skolun),“ segir aðal-
höfundur rannsóknarskýrslunnar,
Peter Ross frá Ocean Wise og Brit-
ish Columbia-háskólanum. Áfram er
gangvirki þessarar mengunar óljóst,
segir hann, en bætir við að haf-
straumar virðist gegna lykilhlutverki
í flutningi trefjaþráðanna norður á
bóginn, svo og loftslagsþættir.
„Við erum umvafin plasti á alla
vegu og þótt verulega ósanngjarnt
væri að skella skuldinni sérstaklega
á vefnað sem uppsprettu örplasts til
heimshafanna höfum við engu að síð-
ur áberandi fótspor pólýestera sem
líklega eru að miklu leyti þangað
komnir úr fatnaði,“ segir Ross við
AFP-fréttaveituna.
Úr þvottavél í sjóinn
Vísindamennirnir söfnuðu upp-
sjávarsýnum eftir 19.000 kílómetra
ferli frá Tromsö í Noregi um Norð-
urpólinn til heimskautasvæða Kan-
ada og um þau niður í Beauforts-haf,
en úr því greindu þeir líka sýni sem
tekin voru á allt að þúsund metra
dýpi. „Örplast reyndist vera í öllum
sýnunum nema einu sem undir-
strikar víðtæka dreifingu þessa vax-
andi mengunarvalds,“ segir Ross.
Sveit hans brúkaði smásjár og inn-
rauða greiningu til að finna örflygs-
urnar og mæla þær, en samkvæmt
skilgreiningu eru þær innan við fimm
millimetrar að stærð.
Þrisvar sinnum meira örplast
mældist í austurhluta norðurskauts-
svæðisins en vesturhlutanum og álíta
vísindamennirnir að nýmyndun
plastsins streymi til austurhlutans
um Norður-Atlantshafið.
Ocean Wise hefur gert prófanir á
þvottavélum og líkt eftir venjulegum
heimilisþvotti. Niðurstaða þess er að
ein flík geti losað milljónir trefja
meðan á þvottinum stendur.
Samtökin hafa einnig bent á að
skolphreinsistöðvar fangi oftast ekki
plastþræðina, en reiknað hefur verið
út að heimili í Bandaríkjunum og
Kanada gætu sín á milli losað um 878
tonn af örtrefjum árlega.
„Vefnaðargeirinn gæti heilmikið
gert í því að hanna og þróa öllu sjálf-
bærari fatnað, þar á meðal föt sem
losa frá sér minna örplast,“ segir
Ross og bætir við að ríkisstjórnir
gætu með eftirfylgni séð til þess að
hreinsistöðvarnar séu búnar tækjum
til að skilja örplastið frá skólpinu.
Heimilin geta einnig komið að mál-
inu, að hluta til með því að velja vörur
sem búnar eru til úr vistvænum voð-
um og svo látið koma línskafsgildrum
í heimilisþvottavélina, að sögn Ross.
Í rannsóknargrein í tímaritinu
Science Advances árið 2019 var kom-
ist að þeirri niðurstöðu að gríðarlegt
magn örplastsagna og trefjaþráða
bærust með vindum inn á norð-
urskautssvæðið og tækju sér síðan
far með snjókornum niður á yfirborð
jarðar.
Margar milljónir tonna rata árlega
beinustu leið út í höfin þar sem þau
brotna með tímanum niður í smásæj-
ar agnir sem ósýnilegar eru berum
augum.
Síðustu tvo áratugina hefur verið
framleitt meira plast um heims-
byggðina en öll árhundruðin þar á
undan. Áætlað er að plastfram-
leiðslan aukist um fjögur prósent á
ári fram til 2025, samkvæmt grein-
ingu hugveitunnar Grand View Rese-
arch í fyrra.
Þvotturinn til norðurskautsins
Stór hluti örplasts í Norður-Íshafi kemur úr fatnaði Heimilin geta komið að málinu með
því að velja vörur úr vistvænum voðum og láta útbúa heimilisþvottavélina línskafsgildrum
Um 70% af örplasti í sýnum úr Íshafinu var pólíester
Örplast úr fatnaði á heimskautasvæðinu
Heimild: Nature
A
TL
A
N
TS
-
H
A
F
Norðurpóll
Beaufort-haf
KYRRA
-
H
A
F
RÚSSLAND
GRÆNLAND
ALASKA
KANADA
Örplast fannst á
1.015 metra dýpi
Stærð örvanna
er í hlutfalli við
magn sjávar
sem streymir
á svæðið
Sýnatökustaðir
AFP
Örplast Örplastflygsur sem fundust í sjávardýrum í Miðjarðarhafi.
Örplast í hafinu
» Plasteindir sem eru minni
en 5 mm nefnast örplast
» Örplastagnir í sjó myndast
ýmist við niðurbrot plasts í
sjónum eða berast þangað frá
landi
» Hér á landi eru hjólbarðar
taldir langstærsta uppspretta
örplasts í sjó eða um 75%.
» Einhver mesti þéttleiki ör-
plastagna sem fundist hefur á
hafsbotni var við Svalbarða á
2,5 km dýpi
Alexander Kristjánsson
alexander@mbl.is
Alexei Navalní, helsti stjórnarand-
stæðingur Rússlands, var handtek-
inn í gærkvöldi er hann sneri aftur
til landsins í fyrsta sinn frá í ágúst.
Fjölmennt lið lögreglu beið Na-
valní þegar hann lenti á flugvelli í
Moskvu og var hann handtekinn við
vegabréfaeftirlit. Stjórnvöld höfðu
þegar gefið út að hans biði hand-
taka, að sögn fyrir að brjóta skilorð.
Flugvélin átti upphaflega að
lenda á Vnukovo-flugvellinum í
Moskvu, þar sem fjöldi stuðnings-
manna hans hafði safnast saman, en
vélinni var síðan snúið að öðrum
flugvelli í borginni.
Hvergi banginn
Navalní hefur dvalið í Þýskalandi
síðustu mánuði en hann var fluttur
þangað meðvitundarlaus á sjúkra-
hús eftir að hafa orðið fyrir eitur-
efnaárás í ágúst þegar hann var um
borð í flugvél á leið frá Síberíu til
Moskvu. Rannsókn hefur leitt í ljós
að eitrað hafi verið fyrir honum
með novichok-eitri, en það var búið
til af rússneskum vísindamönnum á
tímum kalda stríðsins. Talið er
næsta víst að stjórnvöld beri
ábyrgð á árásinni en Evrópusam-
bandið hefur meðal annars beitt
Rússa efnahagsþvingunum vegna
þessa.
Þrátt fyrir að eiga yfir höfði sér
handtöku fór Navalní síður en svo
leynt með fyrirætlun sína að snúa
aftur til heimalandsins. Í ávarpi
sem hann gaf út í síðustu viku
greindi Navalní frá því að hann
hefði að mestu jafnað sig á árásinni
og bókað flug til Moskvu. „Þeir
gerðu allt til að hræða mig. Það
eina sem Pútín átti eftir var að
hengja stærðarinnar skilti á Kreml-
ín þar sem á stæði: Alexei, gerðu
það ekki koma heim undir nokkrum
kringumstæðum,“ segir Navalní í
myndbandinu. Þá segist hann ekki
hafa farið til Þýskalands að eigin
ósk heldur vegna þess að reynt var
að drepa hann. Hann ætli ekki að
gera andstæðingum sínum þann
greiða að ílengjast þar.
Pólitísk réttarhöld
Opinber ástæða handtökunnar er
sem fyrr segir að Navalní hafi rofið
skilorð. Það gerði hann með því að
mæta ekki til skýrslutöku hjá lög-
reglu í Moskvu í desember, eins og
honum bar. Navalní sætir skilorðs-
bundnu fangelsi í Rússlandi en
hann hefur tvívegis, árin 2013 og
2014, verði fundinn sekur um fjár-
drátt. Dómsmálin þykja af pólitísk-
um meiði og hefur Mannréttinda-
dómstóll Evrópu til að mynda
komist að þeirri niðurstöðu að hann
hafi ekki notið sanngjarnra réttar-
halda.
Navalní handtekinn
við komuna til Moskvu
Sneri heim frá Þýskalandi í fyrsta sinn eftir eiturefnaárás
AFP
Handtekinn Navalní vissi í hvað
stefndi þegar hann lenti í Moskvu.
Harðar samkomutakmarkanir, sem gilt hafa í Danmörku frá því fyrir jól,
hafa verið framlengdar til 7. febrúar. Segja má að nær allt sé lokað í landinu,
nema matvöruverslanir, apótek og önnur grunnþjónusta. Til skoðunar er að
skylda farþega sem koma til landsins í tíu daga sóttkví en heilbrigð-
isráðherra landsins hefur tekið vel í hugmyndir stjórnarandstöðu þess efnis.
Morgunblaðið/Alexander
Danir framlengja lokun