Morgunblaðið - 18.01.2021, Side 16

Morgunblaðið - 18.01.2021, Side 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JANÚAR 2021 Í fyrri grein minni um galla í nýbygg- ingum á Íslandi sagði svo m.a.: Ef ekki er safnað upplýsingum um tíðni, alvarleika og ástæður mistaka og gripið til fyrirbyggj- andi aðgerða þá halda mistökin áfram að birt- ast á sama hátt og áður, eins og gerst hefur varðandi galla í nýbyggingum á Ís- landi. Hönnuðir mæla fyrir um bygging- arefni og byggingaraðferðir, verk- taki vinnur verkið í samræmi við þau gögn sem hönnuðir mæla fyrir um og hafa verið samþykkt af bygging- aryfirvöldum og byggingarstjóri fylgist með að byggt sé í samræmi við hönnunargögn, mannvirkjalög og byggingarreglugerð. Hönnuðir Hönnuðurinn ber ábyrgð á því að það efni sem hann mælir fyrir um standist kröfur, eins og kemur fram í byggingarreglugerð, svo sem hvort þau skuli vera CE-merkt. Í nýlegri umfjöllun kom fram efi um að CE- merkingin dygði vegna íslenskra að- stæðna. Varla er hægt að ætlast til þess að hver og einn hönnuður hafi næga þekkingu til að meta það í öllum tilvikum og spurt er um það hvort staðlaráð, sem ber ábyrgð á merkinu hér á landi, búi yfir henni. Það gæti m.a. verið hlutverk úrskurð- arnefndar HMS að úr- skurða og svara slík- um fyrirspurnum hönnuða, en þekkingin væri m.a. byggð á þeirri starfsemi sem flutt væri frá Nýsköp- unarmiðstöð til HMS. Verktakar Oftast er það verktakinn sem fær skömm í hattinn ef gallar koma fram í byggingu og því miður er ábyrgðin á þeim oft hjá honum. Dæmi var t.d. nefnt í umfjölluninni um vitlausan halla á gólfi þar sem vatnshalli átti að vera, ónýtt parket sem var of snemma lagt og að verktaki hafi ver- ið gjaldþrota þegar átti að sækja til hans bætur. Verktakinn ber ábyrgð á því að byggt sé samkvæmt teikningum, lögum og reglugerðum og það á ekki að vera þörf á því að kaupandinn leggi í mikinn kostnað og tíma til að sækja bætur vegna galla sem selj- andi (verktaki) ber augljóslega ábyrgð á. Hér er því aftur vísað til stofnunar úrskurðarnefndar HMS sem hefði það hlutverk að úrskurða um galla og hver beri ábyrgð á þeim og einnig að aðstoða hinn almenna íbúðar- kaupanda í nýbyggingum við að leita réttar síns. Byggingarstjórar Við allar leyfisskyldar fram- kvæmdir er byggingarstjóri og er hans hlutverk samkv. 27. gr. mann- virkjalaga nr. 160/2010 eftirfarandi: „Byggingarstjóri er faglegur fulltrúi eiganda við mannvirkjagerð og starfar í umboði hans samkvæmt skriflegum ráðningar- eða verk- samningi við eiganda. Bygging- arstjóri skal gæta réttmætra hags- muna eigenda gagnvart byggingaryfirvöldum, hönnuðum, iðnmeisturum og öðrum sem að mannvirkjagerðinni koma.“ Og í 29 gr. má m.a. lesa: „Byggingarstjóri skal hafa virkt eftirlit með því að þeir sem koma að byggingu mannvirkis fylgi sam- þykktum hönnunargögnum, verk- lýsingum og ákvæðum laga þessara (laga um byggingarvörur) og reglu- gerða sem settar eru á grundvelli þeirra.“ Ekki ætti að vera vafi á stöðu og skyldum byggingarstjóra sam- kvæmt þessu og ætti það að tryggja gallalausar eða gallalitlar nýbygg- ingar. En svo er greinilega ekki. Hvorki opinberir aðilar né aðrir fara eftir þessum lögum. Byggingarstjór- inn sem á að starfa í umboði eiganda er iðulega starfsmaður verktakans þar sem eigandinn og verktakinn eru sinn hvor aðilinn og einnig þar sem þeir eru sami aðilinn. Í báðum tilvikum er bygging- arstjórinn í þeirri stöðu að hafa eft- irlit með vinnuveitanda sínum og það setur hann í ómögulega stöðu gagnvart honum. Ef opinberir aðilar fara ekki að lögum, hvernig geta þeir þá gert kröfu um að aðrir geri það? Aðgerðir til að koma í veg fyrir galla í nýbyggingum o.fl.  Tryggja samræmi á kröfum um gæði og eftirlit á öllum stöðum á landinu.  Tryggja gæði byggingarefna t.d. með því að hönnuðir geti beint fyrirspurnum til HMS um þau, eftir sameiningu HMS og Nýsköp- unarmiðstöðvar (um CE-merkingu og mat vegna ísl. séraðstæðna).  Tryggja gjaldfrjálsan aðgang allra framkvæmdaraðila í bygg- ingum að íslenskum bygging- arstöðlum til að auðvelda þeim að fylgja og fara eftir þeim, einnig litlu framkvæmdaraðilunum.  Tryggja hæfilegt lóðaframboð hagstæðra lóða (lagabreytingar).  Að koma á fót starfsemi með hag hins almenna íbúðarkaupanda í huga, sem væri úrskurðarefnd MVS sem úrskurði um ábyrgðir á göllum í nýbyggingum. Þessi nefnd fylgdi þessum kröfum eftir fyrir íbúðareig- endur eða vísaði þeim í réttan farveg í samræmi við sinn úrskurð.  Úrskurðarnefndin skrái alla til- kynnta galla, birti reglulega yfirlit yfir þá (mánaðarlega/jafnóðum) og tillögur til yfirvalda út frá því um að- gerðir til að koma í veg fyrir að þeir endurtaki sig (minnst árlega).  Breyta mannvirkjalögum þann- ig að byggingarstjóri verði á vegum sjálfstæðs aðila (eða HMS), til að tryggja óvilhallt eftirlit, þar sem eig- andi og verktaki eru sami aðilinn.  Hönnuðir – Skráning HMS á hönnunargöllum, greining og mat HMS og fyrirbyggjandi aðgerðir.  Verktakar – Skráning bygging- arstjóra á göllum, greining og mat HMS og fyrirbyggjandi aðgerðir.  Fylgja því eftir að staða bygg- ingarstjóra sé virt og virk sam- kvæmt 27. gr. mannvirkjalaga. Eftir Sigurð Ingólfsson » Spurningin er hvort mannvirkjalögin þurfi frekari endur- skoðunar við eða hvort gallar í nýbyggingum séu vegna þess að lög- unum sé ekki fylgt. Sigurður Ingólfsson Höfundur er framkvæmdastjóri Hannars ehf. Gallar í nýbyggingum á Íslandi Ef þú lesandi góður hefur ekki áttað þig á hvað upplýs- ingaóreiða er, þá er einfaldast að benda þér á hérlendar og er- lendar fregnir af bólu- efni gegn Covid-19. Í gleði sinni yfir því að tekizt hefur að búa til nothæft bóluefni gegn veiruskömminni hafa sumir aðeins misst sig í fréttaflutn- ingi, jafnvel ábyrg stjórnvöld. Öll met sló Svíinn í Sviss sem sagður var ábyrgur fyrir dreifingu bólu- efnisins á norðurslóðum ESB. Hann sagði að búið væri tryggja Ís- landi meira en milljón skammta af bóluefninu. Sá þyrfti sannarlega að endurtelja á annexíunni. Einhvern veginn hefur mörgum yfirsézt að nægjanlegt magn af bóluefni verður ekki til á einni nóttu. Þríeykinu okkar var þetta þó ljóst enda fagfólk í fremstu víglínu og flokkaði þjóðina í forgangshópa. Það var vissulega mjög mikilvægt þótt seint verði gert svo öllum líki. Þó má ætla að sátt sé að mestu um þá tillögu þríeykisins eins og um flest annað sem frá því kemur. Í fyrsta hópi voru íbúar hjúkr- unarheimilanna sem var mjög mik- ilvægt. En svo kom fregn af því að forgangsröðun hefði verið breytt um framhaldið á þann veg að starfsfólk á hjúkrunarheimilum hefði verið sett aftur fyrir þá sem eru komnir yfir sjötugt og enn á frjálsum fæti. Þessi breyting leggst ekki vel í undirritaðan. Þetta þýðir að bólusetning starfs- fólksins tefst um ein- hverjar vikur sem mögulega getur seink- að afléttingu heim- sóknartakmarkana til íbúa hjúkrunarheim- ilanna að einhverju leyti. Þær takmarkanir hafa verið óhjákvæmi- legar hvað sem fólki kann að finnast um þær eða framkvæmd þeirra. Þær hafa dugað vel en eru komnar að þolmörkum gagnvart íbúunum. Þær eru ein- angrandi og skerða mjög lífgæði íbúanna, fólks sem ekki hefur mik- inn tíma upp á að hlaupa, á fæsta möguleikana til að bæta sér upp skert lífgæði síðar en bíður í hljóðri von. Fram hjá því má ekki horfa. Þess vegna hugnast mér ekki hin breytta forgangsröðun en við- urkenni að ég þekki ekki rökin fyrir þeirri ákvörðun. En það væri ekki gott að missa starfsfólkið í veikindi nú þegar það er mögulegt að fyr- irbyggja slíkt og í augsýn er betra líf á hjúkrunarheimilunum. Breytt forgangs- röðum á hjúkrun- arheimilunum Eftir Jón G. Guðbjörnsson Jón G. Guðbjörnsson » Þetta þýðir að bólu- setning starfsfólks- ins tefst um einhverjar vikur sem mögulega getur seinkað afléttingu heimsóknartakmarkana til íbúa Höfundur er stjórnarformaður Brákarhlíðar og í flokki 70+. Í tveimur fyrri greinum mínum hér á síðum Morgunblaðsins hef ég fjallað nokkuð um um tengsl Egypta- lands hins forna og Biblíunnar. Verður nú fram haldið þessari umfjöllun. Það er reyndar erfitt að segja hvenær nákvæmlega saga Egypta og Ísraels tengjast. Það eru nefnilega engar heimildir til utan Biblíunnar um þau Abraham, Söru, Ísak, Ísmael, Jak- ob, Jósef, Móse, Davíð, Sál eða Sal- ómon. Hvað þá heldur sögulegar frásagnir Mósebókanna af flótt- anum frá Egyptalandi, göngunni í gegnum Rauðahafið, innrásinni í Landið helga og átökunum við Fíl- istea. Samt telja sumir sig geta lesið sögulegar staðreyndir út frá frá- sögnum Gamla testamentisins. Hvert er eiginlega heimildagildi þeirra? Til að svara þessari spurningu og öðrum um frásögur Gamla testa- mentisins verðum við að snúa aug- unum frá Egyptalandi um stund og horfa austur fyrir eyðimörkina miklu sem skilur að Ísrael og Persa- flóa. Þar ríkti annað mikið stórveldi fornaldarinnar sem einnig markaði spor í sögu Biblíunnar. Það var stór- veldi Assýríumanna og Súmera. Það mikla heimsveldi reis og hneig og átti sér mörg birtingarform og heiti, en var til í einni eða annarri mynd allt frá árinu 2000 fyrir okkar tíma- tal og fram undir árið 600 fyrir Krist. Assýringar voru herveldi og í raun miklu hernaðarsinnaðri en Egyptar nokkurn tímann. Annað heiti þessa landsvæðis er þeir ríktu yfir er Mesópótamía á grísku, eða landið milli fljótanna. Fljótin eru Efrat og Tígris. Þar byrjuðu menn snemma að rækta landið, byggja borgir og skipa lög. Þar varð til fyrsta skráða skáldsaga sem við þekkjum, Gilgameskviða, skrifuð með letri sem kallast fleygrúnir. Assýringar voru ekki aðeins fræknir og miskunnarlausir hermenn, þeir voru líka dugmiklir stjórnendur. Þeir komu á fót miklu skrif- ræði. Og þeir héldu skrá yfir ekki aðeins skatta og skyldur, heldur líka orustur, sóknir og sigra. Eitt af því sem þeir gerðu var að halda annála yfir at- burði ársins og skrá þá á lista. Listarnir fengu síðan heiti eftir stjórn- anda nýárshátíðar hvers árs. Og árið var líka nefnt í höfuðið á honum. En árið tengdist gangi himintunglanna. Þannig get- um við auðveldlega rakið hvaða ár hvaða stjórnandi sat við völd og hvað gerðist þá í ríkinu. Og út frá þessum listum getum við ákveðið ár- töl ýmissa atburða sem getið er um á listunum, innan og utan ríkisins. Hvernig kemur þetta heimild- argildi Biblíunnar við? Jú, nú fer þetta að verða spennandi. Það er nefnilega þannig að á árinu „Daian- Assur“, sem er árið 853 fyrir Krist, háði Salmanassar III konungur Assyríumanna mikla orustu við Karkar, sem var kastali í norður- hluta þess sem nú er kallað Sýrland. Þar börðust herdeildir hans við sameinaðan her ellefu konunga sem höfðu smalað liði til að stoppa fram- rás Assyríumanna niður á sléttur Sýrlands, Líbanons og Ísraels. Einn þeirra hét „Ahabbu Sirilaa“. Hafði hann meðferðis til orrustunnar 10.000 hermenn. Allt er þetta sam- viskusamlega skráð á einsteinung sem fannst í tyrkneska hluta Kúr- distan árið 1861. Ahabbu Sirilaa er öðru nafni Ahab frá Ísrael. Á öðrum einsteinungi sem fannst þar sem nú er Írak segir frá því að hinn sami Salmanassar III hafi á sínu 18. stjórnarári, sem var árið 841 f. Kr., tekið á móti gjöfum frá konungi sem hét „Iaua mar Huumri“ eða öðru nafni „Jehu konungur af ætt Omri“. Bæði Jehu og Omri voru kon- ungar í Ísrael og frá þeim segir í Biblíunni. Þannig að niðurstaða alls þessa er að það virðast vera til kirfilegar heimildir utan Biblíunnar um kon- unga Ísraels hins forna til allt frá því á áttundu öld f.Kr. Svo nú getum við leikið okkur að því að búa til reiknidæmi. Gamla testamentið segir sögu ísraelsku konunganna frá Sál, Davíð og Sal- ómon. Nú höfum við nákvæma heimild frá Assýríu, upp á dag, hve- nær orustan við Karkar átti sér stað eins og ég sagði frá hér fyrr. Það var árið 853 f.Kr. og það ár var einn- ig síðasta stjórnarár Ahabs konungs í Ísrael sem tók þátt í orustunni. Með sínum 10.000 hermönnum. Og tapaði. Svo er bara að reikna aftur á bak frá 853, mínus stjórnarár Ahabs, mínus stjórnarár þeirra kon- unga sem komu á undan honum samkvæmt Konungabókum og Krönikubókunum í Gamla testa- mentinu og til Salómons konungs. Og þá fáum við út að stjórnartíð Sal- ómons konungs hafi verið árin 970 til 931 f.Kr. og að á þeim árum hafi musterið mikla verið byggt. Gamla testamentið segir að hafist hafi ver- ið handa um að reisa það á „fjórða stjórnarári Salómons konungs“, sem er þá árið 966 f.Kr. Síðar segir að það hafi verið 480 árum eftir að Ísr- aelsmenn héldu burt úr Egypta- landi. Eða með öðrum orðum: flóttinn frá Egyptalandi hófst árið 1446 f.Kr. En fjölskylda Jósefs kom til Egyptalands 430 árum fyrir það, segir Gamla testamentið, eða árið 1876 fyrir Krist. Sem er einmitt um það leyti sem hirðingjar frá Asíu koma yfir eyðimörkina og byrja að herja á Egyptalandi og leggja það undir sig samkvæmt egypskum heimildum. En nánar verður sagt frá þeirri sögu allri í næstu og síðustu grein minni um þessar vangaveltur allar. Enn um egypskar heimildir Biblíunnar Eftir Þórhall Heimisson » Það virðast vera til kirfilegar heimildir utan Biblíunnar um konunga Ísraels hins forna allt frá því á átt- undu öld f. Kr. Þórhallur Heimisson Höfundur er prestur og rithöfundur. thorhallur33@gmail.com Atvinna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.