Morgunblaðið - 18.01.2021, Side 19

Morgunblaðið - 18.01.2021, Side 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JANÚAR 2021 ✝ Sigurður HelgiValgarðsson, (Siggi) fæddist á Siglufirði 11. ágúst 1933. Hann lést þ. 10. janúar 2021 á líknardeildinni í Kópavogi. Foreldrar hans voru hjónin Fann- ey Björnsdóttir, f. 1904, frá Göngu- staðakoti í Svarf- aðardal og Valgarður Þorkels- son, f. 1905, frá Húnstöðum í Fljótum. Hann var elstur 5 barna þeirra sem eru: Óskar Henning, f. 1935, Anna Sigríður, f. 1936, Valgarður, f. 1945, og Fanney, f. 1948, og er einstaklega fal- legt samband á milli þeirra systkina. Sigurður kvæntist Kristjönu Kjartansdóttur, f. 1937, leiðir þeirra skildi. Börn þeirra eru Valgarður, f. 1956, Fanney, f. 1957, Kjartan, f. 1962, Dröfn, f. 1965, Kolbrún, f. 1970. Barna- og barnabarnabörn eru 31. Bróðir sam- mæðra er Þórður Jóhann, f. 1978. Sigurður stund- aði sjómennsku frá unga aldri og fór sína fyrstu sjóferð 6 ára gamall með föður sínum. Hann lærði til vélstjóra og sigldi víða um heim. Síðustu ár- in var hann vaktmaður á varð- skipum frá Hafrannsóknastofn- un. Hann var handverksmaður góður og hafði gaman af að smíða úr hvaða efnivið sem er. Útförin fer fram frá kirkju Óháða safnaðarins í dag, 18. janúar 2021, klukkan 15. Vegna samkomutakmarkana verða aðeins nánasta fjölskylda og vinir viðstödd. Nú, þegar komið er að leiðar- lokum, langar mig að minnast vin- ar míns, Sigurðar Valgarðssonar, í nokkrum orðum. Sigurður var afi sonar míns, sem heitir einmitt Sigurður í höf- uðið á báðum öfum sínum. Siggi, eins og hann var jafnan kallaður, tók mér vel frá fyrsta degi og mér þótti hann skemmti- legur, afburðavel gefinn, fróður, víðsýnn og með einstaklega skemmtilega lífssýn. Húmorinn var grásvartur og Siggi sagði skemmtilega frá. Ég fékk fréttir af börnum og barna- börnum, nágrönnum, systkinum og fjölskyldum þeirra en aldrei þó neinar langlokur heldur allt á skemmtilegum nótum. Á árum áður kom ég við hjá Sigga á Þorláksmessu og við stungum úr nokkrum kaffibollum og röbbuðum um heima og geima. Hann reykti pípuna sína en ég gerði konfektbirgðum heimilisins góð skil. Siggi hafði lúmskt gaman af að ýja að því að ég væri nú ekki tággrönn en á svo skemmtilegan máta að ég bara hló og fékk mér annan mola. Að lokum rétti hann mér seðil til að kaupa jólagjöf fyrir sonarsoninn og sagði alltaf: „þús- undkall á kjaft“ og átti þar við öll ófermd barnabörn. Og þegar þetta tiltekna barnabarn hefði átt að fermast, en fermdist ekki, þá rétti hann mér samt fimmþúsund- kall því allir fengu jafnt! Hófgerði er vel skipulagt heim- ili þar sem munir sem Siggi smíð- aði úr kopar prýddu hillur í eld- húsinu, svefnherbergið var fullt af bókum af öllu tagi og gamlar saumavélar voru þar einnig í röð- um. Það var alltaf gestkvæmt í Hóf- gerði. Þegar ég kom við var iðu- lega einn nýfarinn eða annar rétt ókominn. Þarna gerði líka köttur úr nágrenninu sig heimakominn og fékk fisk hjá Sigga. Ég var í þeim hópi sem naut þeirrar virðingar að taka við bók- um sem Siggi hafði keypt í Góða hirðinum og þær komu sannar- lega úr ólíkum áttum, og fjölluðu um allt milli himins og jarðar að ég held. Hann valdi bækurnar fyrir mig af kostgæfni en bækurnar voru tíndar ein í senn í tvo bunka. Ég fékk ævintýri, glæpasögur, ein- staka bók um raungreinar og ást- arsögur (sem hann hafði auðvitað ekki lesið en sagði: „Þú hefur gaman af þessu.“). Bækur um tækni, sjómennsku og heimsstyrj- öldina síðari, frá sjónarhorni Sov- étríkjanna, sem ég myndi ekki hafa vit á eða gaman af, voru sett- ar í hinn bunkann. Flestar enduðu þessar bækur aftur í Góða hirðinum, ekki lús- lesnar allar af minni hálfu, en þetta var skemmtilegur siður og minningar sem mér þykir vænt um. Nú sit ég uppi með tvær bæk- ur um Frímúrarahreyfinguna sem Siggi sagði mér að lesa og skila sér svo til baka. Það verður víst ekki af því en bækurnar skal ég lesa áður en yfir lýkur, honum til heiðurs. Ég er þakklát fyrir að hafa kynnst Sigurði Valgarðssyni og kveð nú þennan heiðursmann með virðingu. Aðstandendum votta ég einlæga samúð. Ragnheiður Sigurðardóttir. Sigurður Helgi Valgarðsson Hafsteinn tengdapabbi var níutíu og þriggja ára þegar hann dó. Ég kynntist honum þegar hann var um fimmtugt. Þá var hann búinn að koma undir sig fótum eins og sagt er og var önnum kafinn við uppbyggingu vélsmiðjunnar og virkur í félagslífi með Kiwanis- hreyfingunni og fjölskyldu sinni. Hafsteinn lærði snemma að það er gott að vera duglegur og standa sig. Hann talaði með hlýju um mömmu sína og Friðrik Hafsteinn Guðjónsson ✝ Friðrik Haf-steinn Guð- jónsson fæddist 8. febrúar 1927. Hann andaðist 20. desem- ber 2020. Útför Hafsteins fór fram 5. janúar 2021. hvernig hann gerði sitt til að hjálpa til heima. Hann var yngstur af systkinun- um og bar systrum sínum alltaf vel sög- una, þær hefðu verið honum góðar. Hann var af kynslóð sem þurfti að vinna mikið og var stoltur af verkum sínum. Haf- steinn var glaðsinna og hafði gaman af spjalli og dansi en rekstur vélsmiðjunnar var í raun bæði starf og áhuga- mál. Þegar starfsorkan dvínaði og Hafsteinn var meira heima við kynntist ég betur mjúku hlið- inni á honum. Eins og mönnum er stundum tamt var hann ekk- ert að bera tilfinningar sínar á torg. Hann fór þó ekki varhluta af áföllum á lífsleiðinni. Þegar við spjölluðum saman síðustu árin minntist hann oft á að hann hefði verið duglegur að byggja hús. Hann teiknaði og byggði hús að Melabraut 2 á Seltjarn- arnesi, nú Skólabraut 2, og bjó þar. Hann byggði einnig Skálat- ún á Hrólfskálareit fyrir Sig- urdísi systur sína og Pétur Guð- mundsson. Þeir Pétur og Hafsteinn voru góðir vinir, stofnfélagar í Kiwanisklúbbnum Nesi, unnu af alúð fyrir klúbb- inn og áttu mörg góð ár saman á fiskeríi í frístundum á trill- unni Hrólfi HF 106. Trillan var Hafsteini kær og eftir að Pétur komst ekki lengur með fór Haf- steinn oft á sjóinn með góðum félögum, bæði til fiskveiða og til að ná í svartfugl. Hafsteinn byggði nýtt húsnæði fyrir Vél- smiðju Jens Árnasonar og einn- ig heimili sitt að Vesturbergi 155. Þetta er lýsandi fyrir dugn- aðarforkinn Hafstein sem vildi búa vel og gera sem mest sjálf- ur af meðfæddri útsjónarsemi. Hafsteinn var rausnarlegur og hjálpsamur. Hann studdi við okkur Jens þegar við byggðum okkur hús að Reynibergi 9 Hafnarfirði. „Hvernig ferðu að þessu?“ spurðu nágrannarnir þegar voldugir timburbjálkar voru sveigðir mjúklega í girð- ingu um lóðina. Það var verk Hafsteins sem var lærður skipa- smiður og kunni að móta við- arborð í eikarbáta. Þeir feðgar skemmtu sér vel við þetta verk. Þeir voru vinnufélagar því að Jens lærði vélvirkjun hjá Jens Árnasyni hf. og starfaði þar alla tíð. Hafsteinn missti mikið þeg- ar Jens dó aðeins fjörutíu og níu ára og rekstur verkstæð- isins lagðist fljótlega af upp úr því þó að fyrirtækið sé enn í rekstri. Eftirlifandi sambýliskona Hafsteins er Guðbjörg Sigríður Kristjónsdóttir. Þau eiga að baki um tuttugu ára sambúð. Hafsteinn mat Gígí sína mikils og ég er þakklát henni og fjöl- skyldu hennar fyrir góð kynni og umhyggju þeirra. Ég á góðar minningar um samverustundir með Hafsteini og kveð hann, sannfærð um að hann var sáttur við ævistarfið og tilbúinn að fara. Guðríður Óskarsdóttir. Það er ekki hægt að segja frá Tómasi í þátíð, hvað þá skrifa um hann, en ég verð að gera þetta, til að heiðra minningu elskulegs eigin- manns míns. Eiginmaðurinn minn Tómas Reynir Hauksson lést af völdum krabbameins í Helsinki í Finn- landi. Tómas barðist fyrir lífi sínu eins og hann gat. Hann var sann- ur baráttumaður, og hann lang- aði mikið til þess að lifa. Ég studdi Tómas á margan hátt og blés honum trú í brjóst, að okkur myndi takast það saman að lengja líf hans. Við trúðum bæði, að við hefð- Tómas Reynir Hauksson ✝ Tómas ReynirHauksson fæddist 10. janúar 1957. Hann lést 11. desember 2020. Útför Tómasar fór fram 9. janúar 2021. um enn tíma og að við saman myndum sigrast á erfiðleik- unum dag eftir dag, klukkutíma eftir klukkutíma; við trúðum á krafta- verk. Við trúðum, að við myndum halda jól saman, kveikja á kertum og opna gjafir. Við lét- um okkur dreyma og bjuggum til áætlanir, við grétum saman og glöddumst saman jafnvel yfir minnstu heilsufarsbetrun hjá Tómasi. En Guð réð þó öðruvísi, og þann 11. desember 2020 klukkan 23:25 stöðvaðist hjartað í elskaða eiginmanninum mínum fyrir fullt og allt. En bestu minningarnar verða þó alltaf til í mínu brostna hjarta. 24. febrúar er dagur okkar Tómasar. Þetta er dagur þegar við hittumst og urðum ástfangin af hvort öðru. Samveran okkar varð stutt, enda var samlífið ein- ungis 6,5 ára langt. Samt voru þessi ár þau eftirminnilegustu, viðburðaríkustu og hamingju- sömustu æviár okkar. Tómas var besti, blíðasti, traustasti og elskulegasti eigin- maðurinn. Hann var bæði vinur og kennari minn. Hann var rómantískur og fannst gaman að koma mér skemmtilega á óvart. Hann leiddi allt til lykta, sem hann byrjaði á, og frestaði sjald- an hlutum til morguns. Einu sinni hermdi Tómas mér, að það hefði breytt lífi hans, þeg- ar hann hitti mig. Eftir þetta fór hann að trúa á styrk sinn, öðl- aðist sjálfstraust og fékk að vita hvað það þýddi að elska og vera elskaður. Tómas kunni vel að meta, að ég tók honum eins og hann var, og að ég varðveitti heilleika hans með ást og skiln- ingi mínum og gerði honum kleift að þroskast sem einstak- lingur. Á kvöldin spjölluðum við oft saman um alls kyns efni. Ég man þegar Tómas sagði: Þegar maður elskar einhvern, þá finnur maður fyrir samein- ingu við þann sem maður elskar, fullkomið traust gagnvart hon- um, ósjálfráðan djúpan skilning á sál hans, hugsunum, upplifun- um, óskum, af gleði hans og sárs- auka, ótta og löngunum. Og við vorum í raun og veru eins og tveir hlutar af einni og sömu heild. Við skildum hvort annað án orða. Nokkrum vikum fyrir andlát sitt pantaði Tómas handa mér stóran vönd af rauðum rósum, og honum fylgdi miði með þakklæt- isorðum: Þakka þér, elskan mín, fyrir að hafa verið hjá mér á þessum erfiðustu stundum ævi minnar. – Tómas kunni að þakka og að vera þakklátur. Ég votta innilega mína samúð öllum nánustu vegna fráfalls ást- kæra Tómasar okkar sem hefur látist fyrir aldur fram. Það er mjög erfitt að finna huggunar- orð. Megi Drottinn blessa og hugga ykkur á þessum erfiðu sorgartímum. Mig langar einnig að þakka fjölskyldu og foreldrum Tómasar fyrir að hafa alið upp svo virðing- arverðan og hugrakkan mann. Innilegar þakkir! Það er hvorki hægt að gleyma því, trúa því né taka við því. Sofðu rótt, mest elskaði mað- urinn minn! Ég mun koma öllum okkar áætlunum í framkvæmd; þú veist, að ég get það. Elskandi eiginkonan þín, Sofia Hauksson, Finnlandi. Afi, ég elska þig og ég sakna þín. Ég vona að þér líði vel og ég elska þig að eilífu. Kveðja, besti afastrákur, Guðbjörn Kári Kristjánsson, sex ára. Elsku afi okkar, við erum svo þakklátar fyrir að hafa haft þig í lífi okkar og fengið að kalla þig afa. Munum mjög vel eftir öllum ferðunum sem við fengum að koma með ykkur ömmu á Laug- arvatn í hjólhýsið ykkar sem þið áttuð einu sinni og þegar þú varst alltaf að gefa okkur nammi þegar við komum í heim- sókn til þín. Eyjólfur Kristjánsson ✝ EyjólfurKristjánsson fæddist 6. maí 1943. Hann lést 16. desember 2020. Eyjólfur var jarðsunginn 22. desember 2020. Trúum því varla að þú sért farinn frá okkur en eftir mikil veikindi líður þér mun betur. Maður gat alltaf leitað til afa þegar eitthvað var að; sama hvað það var varstu alltaf tilbú- inn að hjálpa. Sökn- um þín og elskum þig af öllu hjarta. Hvíldu í friði engillinn okkar. Þótt döpur sé nú sálin, þó mörg hér renni tárin, mikla hlýju enn ég finn þú verður alltaf afi minn. (Höf. ók.) Þínar Eyrún Elín og Kristrún María. Hæ afi. Ég elska þig að eilífu. Hvar ertu í alvörunni sko? Ég vona að þú hittir Blíðu. Ég sakna þín núna. Bæ. Þinn Eyjólfur Máni Kristjánsson, sex ára. Elsku faðir, sonur og bróðir, GRÉTAR RAFNSSON, varð bráðkvaddur á Kanaríeyjum. Kveðjustund verður tilkynnt síðar. Gyða Dröfn Grétarsdóttir Ísfold Rán Grétarsdóttir Valur Örn Vífilsson Rafn Sigurbergsson Rún Rafnsdóttir Páll Rafnsson barnabörn og aðrir aðstandendur Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HILMAR ÁRNASON, Holtabyggð 1, Hafnarfirði, áður Hólum 15, Patreksfirði, lést föstudaginn 8. janúar á heimili sínu. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 22. janúar kl. 13:00. Vegna fjöldatakmarkana verður útförinni streymt á https://youtu.be/kp8Sutvinbg Heimir Hilmarsson Kristjana Magnea Hilmarsd. Sylvía Hilmarsdóttir Per Larsson Ragnar Borgþór, Helena Rós Hilmar, Jessica Emelía, Soffía Benjamín, Patrick Arnar Elisabeth Mist og barnabarnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, SIGRÍÐUR BENEDIKTSDÓTTIR frá Bakka í Bjarnarfirði, síðast til heimilis að Eyjaholti 10a, Garði, lést á Hrafnistu í Hafnarfirði þriðjudaginn 12. janúar. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju miðvikudaginn 20. janúar kl. 13. Í ljósi aðstæðna verða einungis nánustu aðstandendur viðstaddir athöfnina. Athöfninni verður streymt á www.facebook.com/groups/ sigridurbenediktsdottir/ Ólafur Einarsson Anna Magnúsdóttir Hannes Ólafsson Guðveig Einarsdóttir Árni Pétursson Jóhann Karl Einarsson Ásrún Guðmundsdóttir barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.