Morgunblaðið - 18.01.2021, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 18.01.2021, Qupperneq 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JANÚAR 2021 vötn í kringum höfuðborgina og ég er búin að ákveða fluguna og staðinn sem ég ætla að byrja á þegar vorar. Það verða eitthvað lágstemmd há- tíðahöldin vegna afmælisins en með öll þessi 50 ár á bakinu ætla ég yfir Fimmvörðuháls í sumar, vonandi í góðu veðri en alla vega með góðu fólki, þá er allt hægt.“ Fjölskylda Eiginmaður Eirúnar er Magnús Þór Þorbergsson, f. 1.4. 1971, leik- listarfræðingur. Þau eru búsett í 101 Reykjavík. Foreldrar Magnúsar eru Anna Magnúsdóttir, f. 9.5. 1952, bókasafnsfræðingur, búsett í Reykjavík, og Þorbergur Karlsson, f. 23.6. 1951, verkfræðingur, búsett- ur í Garðabæ ásamt seinni konu sinni, Jónínu A. Sanders, f. 23.12. 1955, viðskiptafræðingi. Börn Eirúnar og Magnúsar eru 1) Anna Magnúsdóttir Eirúnardóttir, f. 7.11. 2000, háskólanemi í heima- húsum; 2) Hildur Magnúsdóttir Eir- únardóttir, f. 30.9. 2005, grunn- skólanemi í heimahúsum. Alsystur Eirúnar eru Vaka Sig- urðardóttir, f. 7.5. 1974, kúabóndi á Dagverðareyri í Hörgársveit; Tinna Sigurðardóttir, f. 28.6. 1979, leik- skólakennari í Noregi. Sammæðra bróðir er Teitur Magnússon, f. 14.1. 1987, tónlistarmaður í Reykjavík. Samfeðra systkin eru Ása Sigurð- ardóttir, f. 3.12. 1969, búsett í Nor- egi, og Gideon Einarsson, f. 25.8. 2002, nemi í Berlín. Stjúpsystir er Berglind Rós Magnúsdóttir, f. 20.5. 1973, háskólakennari í Reykjavík. Foreldrar Eirúnar eru Hildur Skarphéðinsdóttir, f. 4.7. 1951, leik- skólakennari, -stjóri og síðar skrif- stofustjóri hjá Reykjavíkurborg, og Sigurður Einarsson, f. 23.9. 1949, húsa- og húsgagnasmiður í Reykja- vík nú búsettur í Berlín ásamt seinni konu sinni, Sabine Einarsson. Stjúp- faðir Eirúnar er Magnús Hjartar- son, f. 4.8. 1948, byggingatæknifræð- ingur, búsettur í Reykjavík. Eirún Sigurðardóttir Jón Ólafsson kennari í Vík í Mýrdal Sigríður Einarsdóttir húsfreyja í Vík í Mýrdal Einar Jónsson gjaldkeri hjá SÍS í Reykjavík Sigrún Þórðardóttir húsfreyja í Reykjavík Sigurður Einarsson húsa- og húsgagnasmiður búsettur í Berlín Þórður Jóhannsson starfsmaður hjá Pósti og síma í Reykjavík Jóhanna Eiríksdóttir húsfreyja í Reykjavík Pétur Zóphóníasson ættfræðingur í Reykjavík Guðrún Jónsdóttir húsfreyja í Reykjavík Skarphéðinn Pétursson prestur í Bjarnanesi Sigurlaug Guðjónsdóttir prestsfrú í Bjarnanesi í Hornafirði Guðjón Hallgrímsson bóndi í Hvammi og Marðarnúpi Rósa Ívarsdóttir húsfreyja í Hvammi og Marðarnúpi í Vatnsdal Úr frændgarði Eirúnar Sigurðardóttur Hildur Skarphéðinsdóttir skrifstofustjóri hjá skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar „ÓKEI… SVO ÞETTA ER EKKI DANSNÁMSKEIÐ?” „GETURÐU STAÐIÐ KYRR?!” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að fagna saman. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ÉG SETTIST OG KLÆDDI MIG Í VINSTRI SOKKINN … ÉG VISSI AÐ ÞETTA VAR SÁ VINSTRI … VEGNA ÞESS AÐ ÉG ER BÚINN AÐ SAUMA „vinstri” og „hægri” inn í þá ÞVÍ MIÐUR SATT GEFSTU UPP EÐA HLJÓTTU VERRA AF, RIDDARI! HA! GLEYMDU ÞVÍ! EKKERT GETUR SÆRT MIG Í ÞESSARI BRYNJU! ÉG KJAFTA Í KÆRUSTUNA ÞÍNA HVAÐ ÞÚ ERT BÚINN AÐ VERA AÐ GERA! ÞETTA AFVOPNAÐI HANN! TÓLF SPOR Helgi R. Einarsson sendi mérpóst á miðvikudag, sagði að nú væru strákarnir okkar komnir til Egyptalands og veitti ekki af smá stuðningi. Hann fór síðan með „Íþróttaferðabæn“: „Heyrðu mig heilagur andi svo handboltapiltar sig standi, verndaðu þá vonbrigðum frá og veirum í Egyptalandi.“ Guðbjartur Sturluson segist hafa gaman af að fylgjast með Vísna- horni og séð þar vísu um hann Grím, sem var að gifta sig en kvæntist þó ekki! Hjá frændfólki sínu á Kirkjubóli í Bjarnadal í Ön- undarfirði lærði hann í gamla daga aðra vísu um Grím, sem þá var á leið heim af engjum: Nú er úti veður vott, vökna skór með þvengjum, ekki fær hann Grímur gott, að ganga heim af engjum. Ólafur Stefánsson segir að sam- kvæmt fréttum séu bæði fiskifræð- ingar og sjómenn rasandi og ráð- þrota gagnvart framferði loðnunnar, sem ekki sé á réttu róli og lætur ekki ná í sig frekar en embættismaður í helgarfríi. Óvíst sé að loðnan sinni þessu kvabbi, og hvað verður þá um alla milljarðana sem búið var að reikna inn í þjóð- arbúið? Úthaldið gengur út á það, að ösla og stíma, og veiða loðnu á vitlausum stað, og vondum tíma. Fía á Sandi tekur undir með sín- um hætti: Vont er ef ekki veiðist þá veltur allt kerfið á slig. Ætli loðnunni leiðist að láta menn veiða sig? Stefán Vilhjálmsson segir: Góð spurning, Fía. Í hugann kom versið um grásleppuna sem ég lærði á kennarastofu MA forðum. Prófaði að gúgla og viti menn, það birtist svona í vísnaþætti Torfa Jónssonar í Dagblaðinu-Vísi árið 1990, – göm- ul kosningavísa eftir Freystein Gunnarsson skólastjóra: Grásleppan veiðist suður með sjó, það sýnir hvað hún er gáfnasljó að alltaf fiskast þar nægtanóg í netin á hverjum vetri, – en aðrir fiskar í öðrum sjó eru víst lítið betri. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Stingur í hjartað og loðna á vitlausum stað

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.