Morgunblaðið - 18.01.2021, Síða 27

Morgunblaðið - 18.01.2021, Síða 27
ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JANÚAR 2021 HM 2021 Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Guðmundur Þ. Guðmundsson lands- liðsþjálfari í handknattleik er ekki með það í forgangi að dreifa álaginu á sína menn þegar Ísland mætir Marokkó í lokaleik F-riðils heims- meistaramótsins í Egyptalandi í kvöld. Íslenska liðinu nægir jafntefli til að gulltryggja stöðu sína og fara áfram með tvö stig og fimmtán mörk í plús úr sigurleiknum gegn Alsír í milliriðlakeppni mótsins. Leikurinn má alls ekki tapast því þá kæmist Marokkó í milliriðil og Ísland færi áfram án stiga. „Þeir eru sýnd veiði en ekki gefin, og svo er staðan þannig hjá okkur að við verðum að vinna leikinn til þess að fara með stigin með okkur inn í milliriðilinn, sem er mjög mikils virði. Það er því allt undir í þessum leik og ekki hægt að slaka neitt á,“ sagði Guðmundur við Morgunblaðið í gær en ítarlegt viðtal við hann er á HM-vefnum á mbl.is/sport. Eftir leiki laugardagsins í E- og F-riðlum blasir það við að Ísland leiki gegn Sviss á miðvikudaginn, gegn Frakklandi á föstudaginn og gegn Noregi á sunnudaginn. Ís- lenska liðið þarf að fá að lágmarki fjögur stig úr þessum þremur leikj- um til að eiga möguleika á að ná öðru sæti milliriðilsins og komast í átta liða úrslit mótsins. Íslenska liðið átti stórgóðan leik gegn Alsír í fyrrakvöld og vann 39:24 eftir 22:10 í hálfleik þar sem Ísland skoraði úr 22 skotum af 23. „Þessi fyrri hálfleikur fer nú nánast í sögubækurnar fyrir nýtingu. Ég man bara ekki eftir svona tölum og held að þetta hafi aldrei gerst áður,“ sagði Guðmundur. Janus ekki meira með Bjarki Már Elísson skoraði 12 mörk, Björgvin Páll Gústavsson varði 15 skot og Gísli Þorgeir Krist- jánsson var að margra mati besti leikmaður íslenska liðsins. Janus Daði Smárason leikur ekki meira með íslenska liðinu á þessu móti. Hann er á heimleið vegna meiðsla öxl og ekki lá fyrir í gær- kvöld hvort nýr leikmaður yrði kall- aður í hópinn í hans stað. Allt undir gegn Marokkó  Ekkert hægt að slaka á, segir Guð- mundur um lokaleik riðilsins í kvöld AFP Mark Elliði Snær Viðarsson skorar í stórsigrinum gegn Alsír í fyrrakvöld. Alfreð Gíslason og hans menn í þýska landsliðinu í handknattleik þurftu ekki að spila á heimsmeist- aramóti karla í Egyptalandi í gær til að vinna sér sæti í milliriðli. Nokkrum tímum áður en leikur þeirra við Grænhöfðaeyjar átti að hefjast kom á daginn að Afr- íkuþjóðin gæti ekki mætt til leiks vegna kórónuveirusmita. Aðeins níu leikmenn af 22 voru leikfærir en lágmark er að vera með tíu leik- menn á skýrslu á mótinu. Þýska- landi var því úrskurðaður 10:0 sig- ur í leiknum. Þrettán smit og leikur tapaður AFP Frí Alfreð Gíslason þurfti ekki að mæta til leiks á HM í gær. Handknattleiksþjálfararnir Dagur Sigurðsson og Halldór Jóhann Sig- fússon eru á leið með landslið Jap- ans og Barein í hreina úrslitaleiki um sæti í milliriðlum HM í Egypta- landi á morgun. Dagur var hárs- breidd frá öðrum óvæntum úrslit- um þegar Japan tapaði fyrir Katar, 29:31, eftir að hafa verið yfir af og til í leiknum og unnið upp sex marka forystu í seinni hálfleik. Jap- an mætir Angóla í úrslitaleik. Hall- dór og hans menn í Barein töpuðu 24:21 fyrir Argentínu og mæta Kongó í úrslitaleik á morgun. Dagur og Halldór í úrslitaleiki AFP Barein Halldór Jóhann Sigfússon á hliðarlínunni gegn Argentínu. HM karla í Egyptalandi A-RIÐILL: Grænhöfðaeyjar – Þýskaland.............. 0:10  Alfreð Gíslason þjálfar Þýskaland. Ungverjaland – Úrúgvæ...................... 44:18 Staðan: Þýskaland 2 2 0 0 53:14 4 Ungverjaland 2 2 0 0 78:45 4 Grænhöfðaeyjar 2 0 0 2 27:44 0 Úrúgvæ 2 0 0 2 32:87 0  Þýskaland og Ungverjaland eru komin í milliriðil. B-RIÐILL: Túnis – Brasilía..................................... 32:32 Pólland – Spánn.................................... 26:27 Staðan: Spánn 2 1 1 0 56:55 3 Pólland 2 1 0 1 56:55 2 Brasilía 2 0 2 0 61:61 2 Túnis 2 0 1 1 60:62 1  Ekkert liðanna er komið áfram og öll geta komist í milliriðilinn. C-RIÐILL: Katar – Japan....................................... 31:29  Dagur Sigurðsson þjálfar Japan. Angóla – Króatía .................................. 20:28 Staðan: Katar 2 2 0 0 61:54 4 Króatía 2 1 1 0 57:49 3 Japan 2 0 1 1 58:60 1 Angóla 2 0 0 2 45:58 0  Katar og Króatía eru komin í milliriðil. D-RIÐILL: Argentína – Barein ............................. 24:21  Halldór J. Sigfússon þjálfar Barein. Kongó – Danmörk ................................ 19:39 Staðan: Danmörk 2 2 0 0 73:39 4 Argentína 2 2 0 0 52:43 4 Barein 2 0 0 2 41:58 0 Kongó 2 0 0 2 41:67 0  Danmörk og Argentína eru komin í milli- riðil. E-RIÐILL: Austurríki – Frakkland ....................... 28:35 Sviss – Noregur .................................... 25:31 Staðan: Frakkland 2 2 0 0 63:52 4 Noregur 2 1 0 1 55:53 2 Sviss 2 1 0 1 53:56 2 Austurríki 2 0 0 2 53:63 0  Frakkland er komið í milliriðil. F-RIÐILL: Marokkó – Portúgal ............................. 20:33 Alsír – Ísland......................................... 24:39 Staðan: Portúgal 2 2 0 0 58:43 4 Ísland 2 1 0 1 62:49 2 Alsír 2 1 0 1 48:62 2 Marokkó 2 0 0 2 43:57 0  Portúgal er komið í milliriðil. G-RIÐILL: Egyptaland – N-Makedónía................ 38:19 Síle – Svíþjóð......................................... 26:41 Staðan: Svíþjóð 2 2 0 0 73:46 4 Egyptaland 2 2 0 0 73:48 4 Síle 2 0 0 2 55:76 0 N-Makedónía 2 0 0 2 39:70 0  Svíþjóð og Egyptaland eru komin í milli- riðil. H-RIÐILL: Hvíta-Rússland – Suður-Kórea .......... 32:24 Rússland – Slóvenía ............................. 31:25 Staðan: Hvíta-Rússland 2 1 1 0 64:56 3 Rússland 2 1 1 0 63:57 3 Slóvenía 2 1 0 1 76:60 2 Suður-Kórea 2 0 0 2 53:83 0  Hvíta-Rússland, Rússland og Slóvenía eru komin í milliriðil. Leikir í dag: 14.30 Norður-Makedónía – Síle................. G 14.30 Suður-Kórea – Rússland ................. H 17.00 Frakkland – Sviss............................. E 17.00 Portúgal – Alsír................................. F 17.00 Svíþjóð – Egyptaland ....................... G 17.00 Slóvenía – Hvíta-Rússland .............. H 19.30 Noregur – Austurríki ....................... E 19.30 Marokkó – Ísland.............................. F Olísdeild kvenna Valur – Stjarnan ................................... 28:21 HK – FH ............................................... 33:21 Haukar – KA/Þór ................................. 20:21 Fram – ÍBV........................................... 26:25 Staðan: Valur 4 3 0 1 109:91 6 Fram 4 3 0 1 107:100 6 ÍBV 4 2 1 1 94:90 5 KA/Þór 4 2 1 1 84:83 5 HK 4 2 0 2 103:94 4 Stjarnan 4 2 0 2 96:95 4 Haukar 4 1 0 3 92:109 2 FH 4 0 0 4 86:109 0 Grill 66-deild kvenna Selfoss – Fjölnir/Fylkir ....................... 30:23 HK U – Víkingur .................................. 26:24 Afturelding – Fram U.......................... 22:25 Valur U – Grótta................................... 28:18 Þýskaland Oldenburg – Leverkusen.................... 26:22  Hildigunnur Einarsdóttir skoraði 2 mörk fyrir Leverkusen.   Nýja höfuðborgin, HM karla, F-riðill, laugardag 16. janúar 2021. Gangur leiksins: 3:3, 3:6, 5:11, 9:19, 10:22, 15:27, 17:32, 20:36, 24:39. Mörk Íslands: Bjarki Már Elísson 12/7, Ólafur Guðmundsson 6, Alex- ander Petersson 4, Gísli Þorgeir Kristjánsson 3, Viggó Kristjánsson 3, ALSÍR – ÍSLAND 24:39 Oddur Gretarsson 3, Sigvaldi Björn Guðjónsson 2, Elliði Snær Viðarsson 2, Arnór Þór Gunnarsson 2, Arnar Freyr Arnarsson 1, Björgvin Páll Gústavsson 1. Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 15. Utan vallar: 10 mínútur. Keflavík er áfram eina taplausa lið- ið í úrvalsdeild kvenna í körfu- knattleik, Dominos-deildinni, eftir sigur á Fjölni, 72:60, á laugardag- inn. Nýliðar Fjölnis töpuðu öðrum leiknum í röð eftir að hafa unnið fyrstu þrjá í haust. Katla Rún Garðarsdóttir skoraði 18 stig fyrir Keflavík og Ariel Hearn 17 fyrir Fjölni.  Isabella Ósk Sigurðardóttir tók 22 fráköst fyrir Breiðablik sem fékk sín fyrstu stig með sigri á KR í Vesturbænum, 73:58. Annika Holo- painen skoraði 20 stig fyrir KR og tók 17 fráköst.  Keira Robinson skoraði 30 stig fyrir Skallagrím og Sanja Orozovic 26 í sigri gegn Snæfelli, 85:80, í Vesturlandsslag í Borgarnesi. Haiden Palmer var með 29 stig og þrefalda tvennu fyrir Snæfell.  Helena Sverrisdóttir skoraði 20 stig og tók 12 fráköst fyrir Val á sínum gamla heimavelli þegar Hlíð- arendaliðið vann Hauka, 74:64, á Ásvöllum þegar umferðinni lauk í fyrrakvöld. vs@mbl.is Morgunblaðið/Íris Öflug Isabella Ósk Sigurðardóttir, fyrir miðju, tók 22 fráköst fyrir Blika. Keflavíkurkonur eru einar með fullt hús Fram lagði ÍBV að velli, 26:25, í æsispennandi toppslag í úrvalsdeild kvenna í handknattleik, Olísdeild- inni, í Safamýri í gær, eftir að leikn- um hafði verið frestað um sólar- hring vegna vandræða Eyjakvenna með að komast með Herjólfi til Reykjavíkur. Fram náði Val að stigum á toppn- um en ÍBV sem var eina taplausa liðið eftir þrjár umferðir situr eftir í þriðja sæti. Steinunn Björnsdóttir skoraði sigurmark Fram en vítakast geig- aði hjá Eyjakonum þegar mínúta var eftir og ekkert var skorað eftir það. Ragnheiður Júlíusdóttir skoraði 12 mörk fyrir Fram en Sunna Jóns- dóttir gerði 7 mörk fyrir ÍBV og Marta Wawrzynkowska varði 14 skot í marki Eyjakvenna, tíu þeirra í fyrri hálfleik.  Valur var ekki í teljandi vand- ræðum með Stjörnuna á Hlíð- arenda á laugardag og vann 28:21. Lovísa Thompson skoraði 10 mörk fyrir Val og Ragnhildur Edda Þórð- ardóttir 7 en Eva Björk Davíðs- dóttir skoraði 11 mörk fyrir Stjörn- una.  HK skoraði 19 mörk gegn 6 í seinni hálfleik og vann FH, 33:21, í Kórnum á laugardag eftir að hafa verið undir í hálfleik, 14:15. Díana Kristín Sigmarsdóttir skoraði 7 mörk fyrir HK, Kristín Guðmunds- dóttir 6 og Sigríður Hauksdóttir 6. Emilía Ósk Steinarsdóttir skoraði 10 mörk fyrir FH.  Rut Jónsdóttir skoraði 9 mörk fyrir KA/Þór sem lagði Hauka á Ásvöllum, 21:20. Sara Odden og Birta Lind Jóhannsdóttir gerðu 5 mörk hvor fyrir Hauka. vs@mbl.is Sigurmark Stein- unnar gegn ÍBV Morgunblaðið/Íris Jóhannsdóttir Safamýri Steinunn Björnsdóttir skorar fyrir Fram gegn ÍBV. KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Dominos-deildin: Ásvellir: Haukar – Keflavík................. 18.15 Origo-höll: Valur – KR......................... 20.15 Í KVÖLD!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.