Morgunblaðið - 18.01.2021, Page 32

Morgunblaðið - 18.01.2021, Page 32
Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Á liðnu ári var þess minnst að 150 ár voru liðin frá því Íslendingar, fjórir ungir menn frá Eyrarbakka, settust fyrst að á Washington-eyju í Michigan-vatni í Wisconsin í Banda- ríkjunum. Af því tilefni var sleginn sérstakur minningarpeningur og í liðinni viku fékk forseti Íslands slík- an pening afhentan frá 25 afkom- endum fjórmenninganna vestra. Mappa með upplýsingum um gef- endur og persónulegum kveðjum þeirra fylgdi sem og bókin Thordar- son and Rock Island eftir Richard Purinton, forystumann hópsins. Almar Grímsson, fyrrverandi for- maður Þjóðræknisfélags Íslendinga, og Lýður Pálsson, forstöðumaður Byggðasafns Árnesinga – Hússins á Eyrarbakka, afhentu Guðna Th. Jó- hannessyni gripina fyrir hönd gef- enda. Til stóð að hópurinn kæmi til landsins í júní í fyrra vegna þessara tímamóta en kórónuveirufaraldur- inn kom í veg fyrir það. „Ég kom fyrst út í Washington-eyju 2017 og kynntist þessu fólki eftir að hafa heimsótt nánast allar nýlendur Ís- lendinga í Vesturheimi,“ segir Al- mar, en hann og Lýður fóru síðan þangað árið eftir og treystu böndin. Löng ferð Daninn William Wickmann flutti til Wisconsin 1865 eftir að hafa ver- ið verslunarþjónn á Eyrarbakka. Í bréfi til Guðmundar Thorgrímsen, faktors í verslun Lefolii, dásamaði hann landkosti á svæðinu og meðal annars á Washington-eyju. Guð- mundur sýndi starfsmönnum sínum bréfið og einum þeirra, Jóni Gísla- syni, verslunarþjóni og bróður lang- afa Almars, var ekki til setunnar boðið enda hafði hann lengi hugsað sér að flytja af landi brott. Árni Guðmundsson, Jón Einarsson og Guðmundur Guðmundsson slógust í för með honum og héldu þeir frá Reykjavík með skipi til Kaup- mannahafnar 12. maí 1870. Þaðan sigldu þeir til Hull á Englandi, frá Liverpool til Quebec í Kanada og komu til Milwaukee í Wisconsin 27. júní sama ár, en Washington-eyja er um 300 km fyrir norðan Milwau- kee. Skipulagðar ferðir Íslendinga til Vesturheims hófust 1855, þegar hjónin Samúel Bjarnason og Mar- grét Gísladóttir í Vestmannaeyjum ásamt Helgu Jónsdóttur í Land- eyjum fluttu til Utah. Á árunum 1863 til 1873 fór hópur fólks til Brasilíu. Íslendingar settust fyrst að á Nýja-Íslandi norðan við Winni- peg í Kanada 1875 og fjöldaflutn- ingar til Norður-Ameríku stóðu yfir til 1914. Áætlaður fjöldi íslenskra vesturfara er um 15.000 – 20.000 á tímabilinu. Washington-eyja hefur ætíð verið fámenn og búa þar innan við 1.000 manns. Almar bendir á að Íslend- ingar og afkomendur þeirra hafi verið um 30% eyjarskeggja um aldamótin 1900 og verið áberandi í samfélaginu, sem einnig hafi eink- um samanstaðið af Norðmönnum, Dönum og Þjóðverjum. „Þeir hafa verið mjög ræktarsamir við upprun- ann og menningararfinn, haldið gögnum og gömlum munum til haga auk þess sem þeir hafa alla tíð haft mjög sterk tengsl við Eyrarbakka.“ Tímamót í sögu íslenskra vesturfara Gjöfin afhent á Bessastöðum Lýður Pálsson, Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, með peninginn og Almar Grímsson til hægri.  Fjórir menn settust að í Washington-eyju fyrir um 150 árum Minningarpeningurinn Frá Íslandi til Washington-eyju 1870. Picasso rmúla 24 • S. 585 2800 Berliner Philharmoniker-hljómsveitin í Berlín, undir stjórn Kirill Petrenko, mun 29. janúar næstkomandi frumflytja nýtt hljómsveitarverk eftir Önnu Þorvalds- dóttur tónskáld. Um heimsfrumflutning er að ræða en hljómsveitin pantaði verkið af Önnu í samvinnu við Sin- fóníuhljómsveit Íslands, Fílharmóníuhljómsveit New York-borgar og Sinfóníuhljómsveit Birmingham-borgar, með stuðningi Vinafélags Berlínarhljómsveitarinnar. Verkið nefnist Catamorphosis og verður unnt að fylgj- ast með frumflutningnum í streymi á netinu. Nýtt tónverk Önnu verður frumflutt af Fílharmóníuhljómsveit Berlínar MÁNUDAGUR 18. JANÚAR 18. DAGUR ÁRSINS 2021 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 697 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. Manchesterliðin United og City eru í tveimur efstu sæt- um ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu eftir leiki gærdagsins þar sem United gerði markalaust jafntefli við Liverpool á Anfield og City vann sannfærandi sigur á Crystal Palace. Englandsmeistarar Liverpool hafa hins vegar aðeins skorað eitt mark í fjórum síðustu leikjum og eru dottnir niður í fjórða sætið. »26 Manchesterliðin eru í efstu sætunum á Englandi ÍÞRÓTTIR MENNING

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.