Morgunblaðið - 29.01.2021, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 29.01.2021, Qupperneq 1
F Ö S T U D A G U R 2 9. J A N Ú A R 2 0 2 1 Stofnað 1913  24. tölublað  109. árgangur  BREYTTI AF- STÖÐUNNI TIL NÁTTÚRUNNAR ÞJÁLFAR YFIR 200 KONUR MÁNAÐARLEGA HEILSA OG ÚTIVIST 32 SÍÐURSÍÐUSTU VERKIN 36 Omeprazol Actavis 20mg14 og 28 stk. Magasýruþolin hylki sem innihalda 20 mg af virka efninu Omeprazol og eru ætluð fullorðnum til skammtímameðferðar við einkennum bakflæðis (t.d. brjóstsviða og nábít). Gleypið hylkin í heilu lagi með hálfu glasi af vatni með mat eða á fast- andi maga. Kynnið ykkur notkunarleiðbeiningar, varnaðarorð og frábendingar áður en lyfið er notað. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgi- seðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is. Markaðsleyfishafi: Actavis Group PTC ehf. T ev a 0 2 8 0 6 2 Hreinsunarstarf á skíðasvæðinu í Skarðsdal við Siglufjörð var í fullum gangi þegar ljós- myndara og blaðamann Morgunblaðsins bar að garði í gær. Snjóflóð féll á skíðasvæðið í síðustu viku og hreif með sér aðstöðu skíðasvæðisins, bæði miðasölu og skíðaleigu, sem og einn troðara, og gjöreyðilagði. Að sögn Egils Rögnvalds- sonar, forstöðumanns skíðasvæðisins, er áætl- að að hreinsa til á svæðinu og koma húsa- og gámarústum á brott áður en reistir verða gám- ar svo koma megi starfsemi skíðasvæðisins aftur af stað. Búið er að aflétta hættustigi vegna snjó- flóðahættu á svæðinu, en Egill segir þó að meðan sé verið að vinna vilji þeir hafa sem minnsta umferð við skíðasvæðið. Lögreglan fylgdist vel með og elti bifreið blaðamanns og ljósmyndara upp á svæðið til að kanna hvort ekki væri allt með felldu. „Það er búið að vera að taka þetta allt út hérna í gær og í dag og þetta er orðið stöðugt. Það er engin snjóflóðahætta hérna núna en við viljum hafa sem minnsta umferð hérna,“ segir Egill. Mildi þykir að skíðalyftur svæðisins hafi sloppið við flóðið, en flóðið fór nánast alveg að neðstu lyftunni sem flytur skíðaiðkendur upp á svæðið. »4 Undirbúa opnun skíðasvæðisins Morgunblaðið/Eggert Skíðasvæði Í Skarðsdal í gær. Búið er að aflétta hættustigi vegna snjóflóðahættu á svæðinu, en Egill segir þó að meðan sé verið að vinna vilji þeir hafa sem minnsta umferð við skíðasvæðið.  Snjóflóðið hreif með sér miðasölu og skíðaleigu  Mildi þykir að skíðalyftur svæðisins hafi sloppið Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Mikill meirihluti starfsfólks leik- skóla Hafnarfjarðar hefur undir- ritað mótmæli gegn ákvörðun bæj- arins um að hafa leikskólana opna 12 mánuði ársins. Hingað til hafa þeir verið lokaðir í fjórar vikur yfir sumartímann. Haraldur Freyr Gíslason, formaður Félags leik- skólakennara, segir að mikil óánægja sé með ákvörðunina. Þá hugsi margir starfsmenn sér nú til hreyfings. Í nýlegri grein í bæj- arblaðinu Hafnfirðingi sögðu tveir bæjarfulltrúar Samfylkingarinn- ar, sem er í minnihluta í bæj- arstjórn, að ákvörðun þessari hafi verið „þröngvað fram af full- komnu skilningsleysi á grundvall- arstarfi leikskólans sem er að mennta og efla þroska barnanna okkar“. Rósa Guðbjartsdóttir bæjar- stjóri Hafnarfjarðar segir að fyr- irkomulagið hafi gefist vel í ná- grannasveitarfélögum. Þá segir Rósa að unnið sé að útfærslu þessa nýja fyrirkomulags. Rósa kveðst hafa skilning á því að fólk hafi uppi efasemdir um ágæti þessara hug- mynda, slíkt sé eðlilegt og algengt þegar gera eigi breytingar. „Þetta er þó það sem hefur verið kallað eftir í gegnum árin. Það hef- ur gengið mjög vel í Garðabæ og nú hefur Reykjavík tekið þetta upp sömuleiðis. Það er til mikils að vinna að prófa þetta.“ Starfsfólk leikskóla mótmælir lengri opnun  Bæjarstjórinn kveðst skilja efasemdir starfsfólksins MLeikskólinn … »2 Brynja Baldurs- dóttir fram- kvæmdastjóri Creditinfo segir að grípa þurfi til aðgerða til að jafna kynja- hlutföll í fram- kvæmdastjórn- um fyrirtækja. Ný samantekt Creditinfo leiðir í ljós að konur eru framkvæmda- stjórar um 18% fyrirtækja. Sé að- eins horft á þúsund tekjuhæstu fyrirtækin er talan 13%. „Mark- miðasetning er ekki næg ein og sér, aðgerðir þurfa að fylgja. Það þarf hreinlega að ráða fleiri konur til að stýra fyrirtækjum svo það blasir við að það eru stjórnir fyrirtækja sem þurfa að stíga upp.“ »12 Aðgerðir þarf til að jafna kynjahlutföll Brynja Baldursdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.