Morgunblaðið - 29.01.2021, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 2021
Opið mán - fim 8:30 – 17:00, fös 8:30 – 16:15
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is
ÖFLUGAR
ÞVOTTAVÉLAR OG ÞURRKARAR
Verkstæði Heilbrigðis-stofnanir
Fiskvinnslu-
fyrirtæki
Hótel og
gistiheimili
Leikskólar
og skólar
Íþróttafélög
og sundlaugar
Efnalaugar
og þvottahús
Björn Bjarnason fjallar um for-ystumenn í verkalýðshreyfing-
unni undir fyrirsögninni Öfgafólk í
ógöngum, sem á vel við. Vegna orða
Ragnars Þórs Ingólfssonar, for-
manns VR, um nauð-
syn þess að verka-
lýðshreyfingin „geri
sig gildandi“ fyrir
komandi kosningar
rifjar Björn upp um-
mæli Ragnars Þórs í
nóvember 2019.
Þá sagði RagnarÞór um hug-
myndir um að verka-
lýðshreyfingin tæki
þátt í þingkosn-
ingum með eigin
framboði: „Ég er
ekki kominn langt
og þetta hefur ekk-
ert verið formlega rætt innan okkar
raða. Ég er að þreifa fyrir mér
svona maður á mann. Ég er líka að
ræða við fólk úr öðrum flokkum sem
er orðið langþreytt á því sama og
við. Það kemur væntanlega í ljós
fljótlega hvort einhver flötur er á
þessu en eitt er víst að ég hef aldrei
fengið önnur eins viðbrögð við neinu
sem ég hef gert. Það er hvatningu
og jákvæð viðbrögð. Mér finnst
greinilegt að fólk sé að kalla eftir
einhverju svona. Svo verður að
koma í ljós hvað gerist.“
Björn bendir á að nýlega hafiRagnar Þór gert sig gildandi
„gagnvart stjórn Lífeyrissjóðs versl-
unarmanna og beitti sér gegn því að
sjóðurinn keypti hlutabréf í Ice-
landair í fyrra. Framkvæmd krafna
hans um það efni hafa ekki reynst
sjóðnum arðbærar.“
Það er mjög umhugsunarvert fyr-ir þá sem greiða til VR hversu
langt núverandi forysta er reiðubúin
að ganga til að knýja fram skoðanir
sínar, alveg óháð hagsmunum fé-
lagsmannanna.
Björn
Bjarnason
Gera sig gildandi
á annarra kostnað
STAKSTEINAR
Ragnar Þór
Ingólfsson
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri á Seltjarn-
arnesi ætlar ekki að gefa kost á sér til áframhald-
andi starfa að sveitarstjórnarmálum þegar yfir-
standandi kjörtímabili lýkur á næsta ári. Frá
þessu greinir hún í viðtali í Nesfréttum.
Ásgerður segir í viðtalinu að hún muni ljúka
sínu þriðja kjörtímabili sem bæjarstjóri vorið 2022
og setja þar endapunkt eftir 12 ára setu í stól bæj-
arstjóra. Hún kveðst telja það farsælast að Sjálf-
stæðisflokkurinn á Seltjarnarnesi hafi tíma til
þess að fylkja liði að nýju. „Ég hef það líka sem
fyrirmynd að svona gerði Sigurgeir Sigurðsson
þetta þegar hann hætti eftir
sinn langa bæjarstjóraferil.“
Það hefur gustað um Ásgerði
á síðustu misserum. Margir
hafa lýst óánægju með fjár-
málastjórn bæjarins og fylgið
minnkað. Ásgerður hafnar því
þó í viðtalinu að staðan í skoð-
anakönnunum sé ástæða brott-
hvarfsins, ekki sé um skyndi-
ákvörðun að ræða. Ásgerður
segir að 12 ár verði að teljast
nokkurt langlífi í bæjarstjórastól á okkar tímum.
Flokkar og frambjóðendur eiga ekkert fylgi víst
og fyrir því verði að berjast með því að skora mörk
og vinna leiki. Samstaðan skipti mestu máli og sín
helsta ósk sé að sjálfstæðismenn á Nesinu gangi
sameinaðir til næstu kosninga.
„Seltjarnarnesbær er með eitt allra lægsta
skuldahlutfall allra sveitarfélaga landsins þó að
skattar á íbúa séu óvíða lægri. Þessi staða gefur
bæjarfélaginu svigrúm til þess að laga sig að nýj-
um aðstæðum. Það hefur einnig mikil sóknarfæri,“
segir Ásgerður.
Ásgerður hættir eftir kjörtímabilið
Bæjarstjóraskipti fyrir höndum á Seltjarnarnesi Engin skyndiákvörðun
Ásgerður
Halldórsdóttir
Meint brot á sóttvarnalögum á
blaðamannafundinum þar sem
bóluefnið frá Pfizer var kynnt hér
á landi er til skoðunar hjá lögregl-
unni á höfuðborgarsvæðinu. Frum-
athugun er í gangi hjá lögreglunni
í Hafnarfirði sem fer með forræði
málsins þar sem bóluefnið var
kynnt í húsakynnum Distica í
Garðabæ. Þetta kemur fram í svari
við fyrirspurn Morgunblaðsins til
lögreglunnar á höfuðborgarsvæð-
inu um málið.
Heilbrigðisráðuneytið boðaði til
fundarins sem haldinn var 28. des-
ember síðastliðinn. Þar voru
fulltrúar fjölmiðla minntir á þágild-
andi sóttvarnareglur.
Fram kom í máli Þórólfs Guðna-
sonar sóttvarnalæknis og Rögn-
valdar Ólafssonar, aðstoðaryfirlög-
regluþjóns hjá almannavarnardeild
ríkislögreglustjóra, eftir fundinn
að of margir hafi verið inni í frétta-
mannahólfi miðað við þágildandi
sóttvarnareglur. vidar@mbl.is
Skoða meint lögbrot
á bóluefnafundi
Sagði of marga í fréttamannahólfi
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Fundur Frá fundinum sem var haldinn í húsakynnum Distica fyrir áramót.