Morgunblaðið - 29.01.2021, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 29.01.2021, Qupperneq 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 2021 ✝ Stefán Karls-son fæddist í Reykjavík 17. sept- ember 1979. Hann lést á heimili sínu 19. janúar 2021. Faðir hans er Karl Stefánsson, f. 22. júní 1944 og maki hans er Auður H. Hafsteinsdóttir, f. 20. júlí 1947. Móðir Stefáns er Valborg Ísleifsdóttir, f. 28. febrúar 1945 og maki hennar er Guðjón Herj- ólfsson, f. 23. mars 1941. Stefán er yngstur fjögurra systkina en elst er Guðrún Karlsdóttir, f. 21. janúar 1965, maki Guðjón Helgason, f. 13. desember 1957 og eiga þau þrjú börn, Hönnu Valdísi, Helga Karl og Maríu. Herdís Karlsdóttir, f. 17. september 1966, maki Árni Arnarson, f. 2. nóvember 1962 og eiga þau þrjár dætur, Rakel, aðsfræðum frá Niels Brock árið 2002. Hann lauk BS-gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum á Bifröst árið 2006 og MBA- gráðu frá Háskólanum í Reykja- vík árið 2018. Stefán hóf störf hjá Vinnufötum ehf. eftir að hann kom frá námi í Danmörku og vann þar með hléum stóran hluta ævi sinnar. Stefán vann í rúmlega 20 ár í kringum Knatt- spyrnufélagið Val í mörgum lykilhlutverkum. Hann var m.a. formaður handknattleiksdeildar og á árunum 2008-2009 starfaði hann fyrst sem fjármálastjóri og svo sem framkvæmdastjóri fé- lagsins. Stefán var einn stofn- enda Controlant hf. og starfaði hann þar sem framkvæmda- stjóri rekstrarsviðs síðustu ár. Útförin fer fram frá Linda- kirkju 29. janúar 2021 klukkan 13. Vegna aðstæðna í þjóðfélag- inu verður boðið í útförina. At- höfninni verður streymt á: https://www.sonik.is/stefan virkan hlekk á steymi má finna á: https://www.mbl.is/andlat Ernu og Hrafnhildi. Ísleifur Heiðar Karlsson, f. 26. júlí 1972, d. 21. júlí 1996, eftirlifandi maki Heiður Hjalta- dóttir og eiga þau einn son, Hjalta Þór. Núverandi maki Heiðar er Arnar Már Sigurðs- son og eiga þau eina dóttur, Sól- veigu. Eftirlifandi eiginkona Stefáns er Sigurlaug Rúna Rúnarsdótt- ir, f. 31. janúar 1979. Synir Sig- urlaugar og Stefáns eru Krist- ófer, f. 20. apríl 2005, Rúnar, f. 18. desember 2007, og Ingimar, f. 17. desember 2009. Stefán út- skrifaðist úr Verslunar- skólanum árið 1999 og eftir það lá leið þeirra Sigurlaugar til Danmerkur þar sem hann út- skrifaðist með diplóma í mark- Elsku Stebbi minn er látinn. Þetta er það sárasta sem ég hef lent í vegna þess að hann var svo einstakur. Ég veit ekki hver á núna að taka vel í allar klikkuðu hugmyndirnar sem ég fæ og allt sem mér dettur í hug. Hann var alltaf tilbúinn að gera næstum allt sem mér í datt í hug. Það skipti engu máli hvort það voru dansmyndbönd, syngja Hatara- lagið eða eitthvað annað. Hann færði það yfir á næsta stig. Hann var alltaf svo spenntur fyrir því sem ég var búin að skipuleggja fyrir okkur. Fyrir nákvæmlega tveimur vikum fórum við í mat til vina þar sem við áttum að koma með rétt sem tengdist kvikmynd. Við völdum Eat, love and pray og hann samdi ljóð sem tengdist pray-hlutanum. Ljóðið hljóðar svona: Við saman erum hér og gleðjumst og tökumst á við lífsins sjó. Um okkar hugarheima ferðumst og leitum þar að innri ró. Ef hugur leitar til þinna niðja er gott að eiga góðan forða. Að elska af hjarta og biðja og alls ekki gleyma að borða. Það sem okkur langar að segja hljómar eins og gömul lumma. Af lífsins braut þú ert að beygja er besta lausnin alltaf að humma. Ég mun geyma allar minning- ar okkar í hjarta mínu og minn- ing hans lifir í gegnum okkur öll. Ég passa strákana okkar. Við ætlum ekki að reyna að skilja allt, en við fyrirgefum. Stebbi var ekki bara eiginmaður minn held- ur líka minn besti vinur og sálu- félagi. Ég er einstaklega þakklát fyrir þessi 23 ár sem við fengum saman. Ég þarf að læra að lifa með því að elsku Stebbi minn sé farinn. Ég get ekki orða bundist hversu mikið ég sakna hans og mig verkjar í hjartað að vita til þess að hann muni aldrei halda utan um mig aftur, hlæja að bröndurunum mínum eða elda fyrir mig lund og béarnaise. Stebbi var frábær pabbi, eigin- maður, félagi og vinur í blíðu og stríðu. Takk fyrir allt ástin mín og einn daginn munu leiðir okkar liggja saman aftur en þangað til sé ég um strákana. Orð eru fátækleg í sorginni, en eftirfarandi orð úr Spámanninum eru okkur ofarlega í huga: „Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá aftur huga þinn, og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess, sem var gleði þín.“ Þín Sigurlaug (Silla). Elsku pabbi, þú varst fyndinn, góður, duglegur og skemmtileg- ur. Við munum sakna hláturs þíns og hversu góður þú varst. Við munum sakna þess þegar þú söngst Dengsa-lögin hans Hemma. Þú varst alltaf til í að gera allt með okkur, hvort sem það var að leika hákarl í sund- lauginni, spila FIFA eða hvað sem er. Við munum alltaf elska þig og hugsum fallega til þín. Kristófer, Rúnar og Ingimar. Elsku Stebbi litli bróðir minn. Það er svo nístingssárt að setjast niður og skrifa um þig minningarorð. Ég fékk þig í af- mælisgjöf á þrettán ára afmæl- isdaginn minn. Það var svo sann- arlega besta afmælisgjöf sem ég hef fengið. Fljótlega kom í ljós að þú hafðir einstaklega létta lund og leyfðir okkur vinkonunum að hnoðast með þig á allan hátt. Varst til dæmis notaður sem hárgreiðslumódel ef því var að skipta og alltaf brostir þú bara breitt. Þrátt fyrir að eiga sama af- mælisdag vorum við að mörgu leyti ólík. Við vorum þó bæði skapmikil og áttum til að rjúka upp. En við vorum fljót aftur nið- ur og á milli okkar ríkti þegjandi samkomulag um að hafa allt í góðu okkar í milli. Það bárum við gæfu til að gera. Við brölluðum margt saman í gegnum tíðina. Árið 2002 komst þú í vinnu til okkar í Vinnuföt sem var mikið gæfuspor fyrir okkur. Varst hjá okkur með hléum til ársins 2018. Þú varst einstaklega klár en með mikla fullkomnunaráráttu sem var þér stundum fjötur um fót. Þú hafðir mikla útgeislun og áttir auðvelt með að laða að þér fólk. Þú varst mikill stemnings- maður og ræðuskörungur og hélst flottar veislur. Þú varst mikill fjölskyldumað- ur og duglegur að skipuleggja samverustundir. Síðasta ferðin okkar fyrir rúmu ári til London var einstök. Það er svo margt sem verður aldrei eins. Gamlárs- kvöld, út að borða saman og allar skemmtilegu samverustundirn- ar. Þú varst svo stoltur af Sillu þinni og drengjunum þínum. Síð- ustu daga höfum við fengið að kynnast því hversu mikil ofur- kona Silla þín er. Hún hefur látið okkur öllum líða aðeins skár. Þú varst þannig að maður ef- aðist aldrei um væntumþykju þína. Það er svo sárt að geta ekki sagt þér hversu undurvænt okk- ur þótti um þig. Við ætlum að gera allt sem við getum til að létta undir með Sillu og drengj- unum þínum. Elsku Silla, Kristófer, Rúnar, Ingimar og við öll. Megi Guð gefa okkur styrk á þessum erfiðu tímum. Stebbi, þú varst sko bestur. Þín systir og mágur, Herdís (Dísa) og Árni. Í ljóði Þórarins Eldjárns um sálartýruna segir: Það skín með skini hljóðu og skynjar hulin mál ljósið inni í okkur sem oft er kallað sál Það lýsir okkur einum svo áttum við getum náð en glampar gegnum augun sem geislandi augnaráð Sálartýran hans Stebba bróð- ur skein skært, frá henni stafaði birtu og yl. Hann hafði mikla út- geislun og var einstaklega hlýr. Og nú hefur slokknað á sálartýr- unni hans, allt of snemma. Hann lenti í krísu fyrir nokkrum árum og svo aftur núna, það reyndist of mikið. Kannski áminning um það í hvaða ógöngur álag og streita geta leitt okkur, þegar ljósið innra með okkur hættir að lýsa okkur leið. Eftir sitjum við hníp- in, í djúpri sorg og söknuði. Stebbi var á margan hátt ein- stakur persónuleiki, alltumvefj- andi og gefandi. Alltaf til í tuskið, stutt í brosið og húmorinn, já- kvæður, gleðigjafi. Gott að leita til hans, gott að eiga við hann spjall um lífið og tilveruna, gott að vera með honum. Minningarn- ar eru ótalmargar, fyrst og fremst skemmtilegar. Þær ylja okkur núna og munu gera um ókomna tíð. Hann skilur eftir sig dýrmæt- an fjársjóð í sinni yndislegu fjöl- skyldu, klettinum henni Sillu og strákunum. Við munum gera okkar besta til að hlúa að þeim. Guðrún (Rúna) og Guðjón. Í dag kveð ég Stefán tengda- son minn með miklum trega og sorg í hjarta. Hann var einstak- ur, lífsglaður og góður drengur. Ekki var nú verra að hann hélt með réttu liði, Liverpool, og var ég svo lánsamur að fara á Anfield og sjá leik með Liverpool og Ful- ham með þeim feðgum, Stefáni og Kristófer. Þar áttum við góðar stundir saman. Sá Stefán um all- an undirbúning ferðarinnar eins og honum var einum lagið. Svo vinur kæri vertu sæll, nú vegir skilja að sinni. Þín geta máttug verndarvöld á vegferð nýrri þinni. Með heitu bljúgu þeli þér ég þakka kynninguna, um göfugan og góðan dreng ég geymi minninguna. (Sigfús Sig.) Rúnar Sigurðsson. Elsku Stebbi okkar, Stebbi frændi. Að setjast niður og skrifa minningarorð um þig er óraun- verulegt og tilhugsunin um að þú sért búinn að kveðja þetta líf er óbærileg. Söknuðurinn er sár en minningin um yndislega frænda okkar mun lifa í hjarta okkar um ókomna tíð. Þú varst alla tíð svo ótrúlega áhugasamur og hvetjandi í öllu því sem við litlu frænkur þínar tókum okkur fyrir hendur, áhugasamur um hversdagsleik- ann og lífið almennt. Þetta hefur verið okkur afskaplega dýrmætt og til marks um væntumþykju þína sem skein í gegn. Þú varst alltaf reiðubúinn að leggja fram hjálparhönd sem við systur nutum ósjaldan góðs af. Þau voru nú alls konar, verkefnin sem við systur leituðum til þín eftir aðstoð með. Misgáfuleg og allt það en alltaf gátum við treyst á að Stebbi frændi myndi leggja sitt af mörkum. Fyrir það verð- um við ævinlega þakklátar. Þú varst mikill stemningsmað- ur og áttir auðvelt með að hrífa fólk með þér. Að ná að draga mömmu á Hlíðarenda á hand- boltaleik hjá Sillu þinni (þann fyrsta og eina sem hún hefur far- ið á) er skemmtileg minning og staðfesting á því. Allar samverustundirnar, í Köben og London, í fjölskyldu- boðum og í Vinnufötum, eiga sér- stakan stað í hjarta okkar. Þú varst svo ómissandi hluti af fjöl- skyldunni og það er svo margt sem verður aldrei eins án þín. Elsku Silla, Kristófer, Rúnar, Ingimar, amma og Guðjón, afi og Auður, mamma og pabbi, Rúna og Guðjón, fjölskyldan öll og kæru vinir Stebba, við biðjum Guð að gefa okkur styrk á þess- um erfiðu tímum. Þínar frænkur, Rakel, Erna og Hrafnhildur. Það var mér mikið áfall að frétta að Stebbi, föðurbróðir minn, væri látinn. Við höfðum síðast hist í árlega jóladagsboð- inu hjá ömmu og þá hvarflaði ekki að mér að það yrðu okkar hinstu fundir. Stebbi hefur alla tíð verið mér afar kær. Þegar ég var lítill polli og bjó á Akureyri var það alltaf mikið tilhlökkunarefni að fá hann í heimsókn norður og eins að hitta hann þegar ég fór suður, því hann gaf sér ávallt tíma til að gera eitthvað skemmtilegt með mér. Í seinni tíð höfum við æv- inlega spjallað mikið þegar við hittumst. Það var gott að tala við hann því hann var jafnan hress en gaf sig í senn allan að sam- ræðunum. Ég leit mjög upp til hans og hann var mér sérlega mikilvægur sem fyrirmynd því hann veitti mér oft góða leiðsögn og talaði jafnvel um fyrir mér ef svo bar undir. Orð fá ekki lýst hve sárt mér þykir að þú sért nú farinn, elsku Stebbi. Ég vildi að þú vissir hve dýrmætur þú varst fólkinu þínu og hve mikið þú glæddir líf þess. Með fráfalli þínu er nú stórt skarð höggvið í tilveru margra sem verður ekki fyllt. Mér er hugsað til Sillu og strákanna ykkar sem fara nú út í lífið án þín. Eins er mér hugsað til ömmu og afa sem nú syrgja annan son sinn. Það á enginn að þurfa að ganga í gegnum. Ljóst er að þér hefur liðið hræðilega en þetta var ekki rétta lausnin á vandamálum þínum, hve stór sem þau kunna að hafa virst þér. Ég vona þó að þú hafir fundið frið og þér líði betur núna. Vertu sæll, elsku frændi. Hjalti Þór Ísleifsson. Stebbi mágur okkar kom 19 ára í fjölskylduna þegar þau Silla urðu kærustupar og tryggði sér strax sess í hjarta okkar enda hvers manns hugljúfi. Stebbi var miklum mannkostum búinn, skarpgreindur, traustur og skemmtilegur en umfram allt var hann algjört góðmenni og þegar Stebbi brosti náði brosið svo fal- lega til augnanna. Þau Silla eign- uðust þrjá yndislega drengi og naut Stebbi sín í foreldrahlut- verkinu. Ýmislegt var brallað með þeim Stebba, Sillu og strák- unum í gegnum árin. Eitt sinn í göngu á Fjallabaksleið brast á með mikilli blíðu og Stebbi fann engar stuttbuxur í bakpokanum svo hann brá á það ráð að ganga í síðbrókinni einni fata, rúllaði upp skálmunum og sagði að þetta þætti mjög flott í Frakklandi. Við erum Stebba þakklát fyrir allar þær góðu minningar sem við eig- um um hann en það voru forrétt- indi að hafa hann í fjölskyldunni. Með þessum hugljúfu minning- um kveðjum við Stebba okkar. Minning þín lifir að eilífu. Hörður, Laufey og fjölskyldur. Elsku, elsku Stebbi minn. Mikið rosalega var sárt að fá símtalið frá Arnari mínum þann 19. janúar sl. þar sem hann sagði mér að þú hefðir kvatt skömmu áður. Mikið ofboðslega hefur mér alltaf þótt vænt um þig, en ég er búin að þekkja þig síðan þú varst 14 ára gamall, þegar ég fór að vera með Ísleifi bróður þínum. Þú og Silla þín voruð dugleg að heimsækja okkur Hjalta Þór norður til Akureyrar og það sem Hjalti Þór var alltaf glaður þegar þið komuð og hvað hann leit upp til Stebba föðurbróður síns og mikið rosalega varstu alltaf góð- ur við hann elsku Stebbi minn. Þú sást til þess að Hjalti héldi með Breiðabliki löngu áður en við fluttum suður og kunni að syngja Breiðablikslagið þegar hann var enn í leikskóla. Mikið þótti mér vænt um að þú og Silla þín komuð norður þegar ég hélt upp á þrítugsafmælið mitt hérna um árið og sáuð til þess að partý- ið varð enn betra. Eins þegar þið komuð norður til okkar með Kristófer tæplega tveggja mán- aða og gistuð á leið ykkar um hringveginn. Eftir að við fjölskyldan flutt- um í Kópavoginn hittumst við reglulega í barnaafmælum, stór- afmælum, jólaboðum og útskrift- um og við fleiri tilefni og alltaf var Stebbi hress og kátur með fallega brosið sitt. Sólveig okkar og Kristófer ykkar voru saman í bekk fyrstu fjögur árin sín og með þeim hefur alltaf verið góður vinskapur. Fertugsafmælið, sem þið hjónin hélduð í maí 2019, var eftirminnilegt, þar sem þið fóruð á kostum. Stebbi var alltaf svo glaður og hress og alltaf bros- andi, ég man hann ekki öðruvísi. En elsku Stebbi minn, þú barst það svo sannarlega ekki utan á þér að þér leið ekki alltaf vel. Það er svakalega sárt að þurfa að kveðja þig núna eftir að þú ákvaðst að fara sömu leið og hann Ísleifur minn, bróðir þinn, valdi fyrir tæpum 25 árum. Eftir sitja fjölskylda og vinir í sárum, en ég trúi því og veit að Ísleifur tekur vel á móti þér og mun leiða þig og styðja. Við sem eftir erum munum gera allt sem við getum til að hlúa sem best að Sillu þinni, Kristófer, Rúnari, Ingimari, for- eldrum þínum og þeirra mökum, systrum og okkur öllum sem að þér stóðum og elskuðum þig. Minningin um góðan og falleg- an dreng mun lifa. Heiður Hjaltadóttir. Einn okkar allra besti maður er fallinn frá og það allt of snemma. Þvílíkt þakmenni, öð- lingur, leikmaður og vinur. Það er erfitt að koma orðum að þessu öllu og því sem mig langar að segja um hann. Hann hafði svo hlýja og trausta nærveru; var skarpur, agaður og nálgaðist hlutina af yfirvegun. Stebbi Karls var ekki bara ein- stakur vinur heldur frábær pabbi og fjölskyldumaður. Þau Silla voru svo ótrúlega samstiga, al- gjör fyrirmyndarhjón og lifðu fyrir strákana sína þrjá. Við vinirnir áttum margar minnisstæðar stundir saman. Bæði bara við tveir og svo með konunum okkar og börnum. Ég gleymi aldrei þegar við Stebbi vorum að kynnast hve fljótt ég áttaði mig á hvað hann var magn- aður náungi. Hann hafði mikla yfirsýn og ráð hans voru örugg og yfirveguð. Þótt hann hafi sjaldan eða nánast aldrei skipt skapi var hann með gríðarlegt keppnisskap. Það var sama hvort það var í vinnu, boltanum eða hreinlega í öllu. Handboltaferðir til útlanda, fjölskylduferðir og svo útilegurn- ar allar. Ferðin til Tenerife með fjölskyldurnar var stórkostleg og við skemmtum okkur konung- lega. Eins skíðaferðin í hittifyrra til Austurríkis yfir jólin. Ógleyman- legt frí þar sem við skíðuðum með okkar fólki á daginn og svo tók alltaf við okkar stund; stöðu- fundur á svölunum á meðan krakkarnir og konurnar slökuðu á. Við ræddum alla hluti og trúð- um alltaf og treystum hvor öðr- um fyrir okkar málum. Traustið á milli okkar var mikið og sterkt. Góð saga úr skíðaferðinni frægu var að á hverjum morgni hjálpaði Stebbi strákunum sínum í skíðaklossana. Ég gat ómögu- lega beygt mig niður eða bara yf- ir höfuð komist í klossana og því sá hann um mig líka alla morgn- ana; strákana sína þrjá og svo Þykka. Svipurinn á hótelgestum sem sáu Stebba á fjórum fótum að troða mér í klossana var óborg- anlegur. En þetta var dæmigert fyrir Stebba, hann gerði allt fyrir alla og fannst þetta ekki mikið mál. Ég hef sagt frá fyrsta degi eft- ir að ég kynntist Stebba - sagði þetta við hann margoft og við aðra - að hann væri klárasti mað- ur sem ég hefði kynnst. Hann var ótrúlega sjálfsöruggur og um leið nálgaðist hann hlutina af mikilli skynsemi og ró. Alltaf þegar ég hef þurft að taka erfiðar ákvarð- anir eða verið tvístígandi með einhverja hluti leitaði ég til hans. Stebbi hafði alveg ótrúlega mikla yfirsýn, yfirvegun og gott skyn- bragð á hlutina, ráðlagði mér og um leið studdi mig alltaf á þeirri leið sem ég var á. Elsku vinur! Þetta er eitt það erfiðasta sem ég hef þurft að skrifa og vildi ekki þurfa að gera það. En staðan er þessi og ég reyni að komast í gegnum þetta og lifa með þessu. Ég á frábærar minningar sem ég mun rifja reglulega upp og segja fólki sög- ur af þér, hve einstök og góð per- sóna þú varst. Ég vona að þér líði vel elsku vinur. Ég mun gera allt til að aðstoða Sillu og strákana þrjá. Ég verð til staðar. Elsku Silla, Kristófer, Rúnar og Ingimar, missir ykkar er mestur. Minningin um frábæran pabba og eiginmann mun lifa með ykk- ur og vonandi styrkja í sorginni. Elsku Stebbi Karls. Ég gleymi þér aldrei, elsku vinur. Ágúst Jóhannsson. Stebbi vinur minn er fallinn frá, langt fyrir aldur fram. Við vorum nágrannar í Víðigrundinni og lékum okkur saman frá því að við vorum smápollar. Við geng- um í Snælandsskóla sem var ör- stutt frá heimilum okkar og vor- um alltaf í sama bekk. Við sátum oftast hlið við hlið og það var merkilegt að fylgjast með því hvað Stebbi var fljótur að til- einka sér allt nám. Við félagarn- ir, ég, Stebbi og Gummi bróðir, vorum saman öllum stundum. Við vorum saman í skólanum, í íþróttunum og lékum okkur í hverfinu og vorum því oft kall- aðir þríburarnir. Íþróttirnar sameinuðu okkur. Ef við vorum ekki að spila fót- bolta eða skjóta á körfu vorum við oft heima í Víðigrundinni að horfa á fótbolta eða NBA en einnig tókum við í spil og spjöll- uðum fram eftir nóttu. Stebbi var alltaf jákvæður og glaðlyndur, hann hafði lausnir við öllu og vandamál voru ein- ungis til þess að leysa þau. Hann var góður hlustandi, hvatti mann áfram og var alltaf til staðar. Stebbi var metnaðarfullur í öllu sem hann tók sér fyrir hendur og gerði kröfur til sjálfs sín. Hann Stefán Karlsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.