Morgunblaðið - 29.01.2021, Síða 35
ÍÞRÓTTIR 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 2021
Landsliðskonan Dagný Brynj-
arsdóttir er gengin til liðs við enska
knattspyrnufélagið West Ham og
skrifaði hún eins og háls árs samning
við úrvalsdeildarliðið. Dagný kemur til
félagsins frá Selfossi þar sem hún lék
á síðustu leiktíð. Miðjukonan, sem er
29 ára gömul, er uppalin á Hellu hjá
KFR en hún á að baki 118 leiki í efstu
deild með Selfossi og Val þar sem hún
hefur skorað 44 mörk. Þá á hún að
baki farsælan atvinnumannsferil með
bæði Bayern München í Þýskalandi og
Portland Thorns í Bandaríkj-
unum.Dagný varð Þýskalandsmeistari
með Bayern árið 2015, deildarmeistari
með Portland Thorns 2016 og meist-
ari með liðinu 2017. Hún er á meðal
leikjahæstu landsliðskvenna Íslands
frá upphafi en hún hefur leikið 90 A-
landsleiki og skorað í þeim 29 mörk.
West Ham er í tíunda sæti ensku úr-
valsdeildarinnar með 7 stig en tólf lið
leika í deildinni. Liðið er fimm stigum
frá fallsæti eftir tíu spilaða leiki.
KSÍ staðfesti í gær að Guðni
Bergsson formaður sambandsins
myndi bjóða sig fram að nýju til
tveggja ára á ársþinginu sem haldið
verður 27. febrúar. Hann var kjörinn til
tveggja ára árið 2019 og hefur gegnt
starfinu í fjögur ár. Allt það stjórn-
arfólk sambandsins sem var kjörið til
tveggja ára árið 2019 gefur kost á sér
til endurkjörs.
Ísland verður í riðli með Portúgal,
Grikklandi, Hvíta-Rússlandi, Kýpur og
Liechtenstein í undankeppni Evr-
ópumóts 21-árs landsliða karla í fót-
bolta. Sú undankeppni hefst í haust
og leikið er um sæti í lokakeppninni
sem haldin verður í Georgíu og Rúm-
eníu sumarið 2023. Núverandi 21-árs
lið er hins vegar á leið til Ungverja-
lands í lok mars þar sem það leikur í
úrslitakeppni EM 2021 og mætir
Rússlandi, Danmörku og Frakklandi.
Davíð Snorri Jónasson var á dög-
unum ráðinn þjálfari 21-árs landsliðs-
ins í stað Arnars Þórs Viðarssonar.
Norska knattspyrnufélagið Molde
staðfesti í gær að ekki væri öruggt að
félagið myndi kaupa Björn Bergmann
Sigurðarson af Lilleström. Björn sagði
í fyrradag að hann væri á leið til
Molde en norski fjölmiðillinn VG
fjallaði um málið í gær
og upplýsti að hann
væri mögulega of dýr
fyrir félagið. Molde
fengi hann ekki
eins ódýrt og talið
hefði verið í fyrstu
en Björn er samn-
ingsbundinn Lille-
ström út þetta ár.
Félögin stað-
festu bæði við
VG að við-
ræður þeirra á
milli væru í
gangi.
Eitt
ogannað
fimmtán hafa því verið á aldrinum
30 til 40 ára þegar þeir voru ráðnir
til starfa.
Ekki fyrstur Norðfirðinga
Þorsteinn er borinn og barnfædd-
ur Norðfirðingur og lék sjálfur með
Þrótti í Neskaupstað á árum áður.
Hann er þó ekki fyrsti Norðfirðing-
urinn sem þjálfar liðið því Helena
Ólafsdóttir, sem stýrði því árin 2003
og 2004, er frá Neskaupstað og bjó
þar til ellefu ára aldurs. Hún og Þor-
steinn léku einmitt nokkra leiki
saman með yngri flokkum Þróttar.
Rætt er við Þorstein og fjallað
nánar um ráðningu hans á mbl.is/
sport/fotbolti.
ÞJÁLFARAMÁL
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Þorsteinn Halldórsson er elsti og
reyndasti þjálfari sem KSÍ hefur
ráðið til starfa sem landsliðsþjálfari
kvenna í sögu íslenska kvennalands-
liðsins. Ráðning hans sem tilkynnt
var í gær er því til marks um
ákveðna stefnubreytingu í þjálfara-
málum liðsins.
Þorsteinn er 53 ára gamall og
þjálfaði fyrst meistaraflokkslið fyrir
28 árum, kvennalið Fram, en hefur í
seinni tíð þjálfað karlalið Hauka og
Þróttar í Reykjavík, og verið sig-
ursæll þjálfari kvennaliðs Breiða-
bliks frá árinu 2015.
Þetta er í fyrsta sinn frá aldamót-
um sem þjálfari yfir fertugu tekur
við kvennalandsliðinu, en frá 2001
hafa þjálfarar liðsins aðeins verið 30
til 34 ára gamlir þegar þeir hafa
tekið við því. Jörundur Áki Sveins-
son, Helena Ólafsdóttir, Sigurður
Ragnar Eyjólfsson og Freyr Alex-
andersson voru öll á þeim aldri. Jón
Þór Hauksson, forveri Þorsteins,
var fertugur þegar hann tók við ár-
ið 2018 en hafði þá aldrei verið aðal-
þjálfari meistaraflokksliðs, nema til
bráðabirgða.
Einu þjálfararnir í sögu landsliðs-
ins sem hafa verið komnir yfir fer-
tugt þegar þeir tóku við því eru
Þórður Georg Lárusson sem þjálf-
aði liðið árið 1999 og Logi Ólafsson
sem tók við því í annað skipti árið
2000.
Þorsteinn er fimmtándi þjálfari
landsliðsins frá því Guðmundur
Þórðarson og Sigurður Hannesson
stýrðu liðinu í fyrstu leikjunum á ár-
unum 1981 til 1983. Tólf af þessum
Stefnubreyting
með ráðningu
Þorsteins
Morgunblaðið/Kris
Ráðnir Ásmundur Guðni Haraldsson aðstoðarþjálfari, Þorsteinn
Halldórsson landsliðsþjálfari og Guðni Bergsson formaður KSÍ.
ÞÝSKALAND
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Knattspyrnukonan Alexandra Jóhannsdóttir hélt
út í atvinnumennsku á dögunum til Þýskalands en
hún lagði ríka áherslu á að skrifa undir hjá félagi
þar sem hún fengi að spila reglulega.
Hafnfirðingurinn, sem er einungis tvítug að ár-
um, skrifaði undir tveggja og hálfs árs samning
við Eintracht Frankfurt en liðið er eitt sigursæl-
asta lið Þýskalands.
Sjö sinnum hefur það orðið Þýskalandsmeist-
ari, síðast árið 2007, og þá hefur félagið orðið oft-
ast bikarmeistari allra liða eða níu sinnum, síðast
árið 2014.
Miðjukonan er uppalin hjá Haukum í Hafn-
arfirði en gekk til liðs við Breiðablik eftir tímabilið
2017 og varð tvívegis Íslandsmeistari og einu
sinni bikarmeistari á tíma sínum í Kópavoginum.
„Þetta er auðvitað allt rosalega nýtt fyrir manni
og það er erfitt að skilja ekki tungumálið á æfing-
um,“ sagði Alexandra í samtali við Morgunblaðið
en hún flaug til Þýskalands í síðustu viku og er nú
komin á fulla ferð með þýska félaginu.
„ Fótboltalega séð er þetta algjörlega geggjað
og hraðinn og ákafinn á æfingum er frábær. Ég er
búin að spila í tveimur æfingaleikjum gegn Wolfs-
burg síðan ég kom og þótt úrslitin hafi ekki verið
okkur í hag fannst mér við spila ágætlega. Það var
virkilega gott að fá þessa leiki til að koma sér að-
eins inn í hlutina.
Það var einhver áhugi annars staðar frá en mig
langaði fyrst og fremst að spila í þýsku 1. deild-
inni. Þýska deildin hefur alltaf heillað mig og
þetta er gott fyrsta skref fyrir mig persónulega á
mínum atvinnumannsferli. Eintracht Frankfurt
var á höttunum eftir miðjumanni og ég vil fyrst og
fremst spila fótbolta. Ég geri mér grein fyrir því
að ég er ekki að fara að fá gefins sæti í byrj-
unarliðinu og ég þarf að vinna fyrir mínu sæti en
ég er enn þá bara tvítug og það mikilvægasta fyrir
mig núna er að spila.
Ég horfði mest til þess þegar ég tók ákvörðun
um að skrifa undir hjá félaginu,“ bætti Alexandra
við sem á að baki 67 leiki í efstu deild fyrir Hauka
og Breiðablik.
Félag í uppbyggingu
Þrátt fyrir mikla yfirburði Wolfsburg og Bay-
ern München í Þýskalandi á undanförnum árum
hefur Eintracht Frankfurt unnið fleiri landstitla í
gegnum tíðina.
„Leikmannahópurinn hérna er mjög ungur og
félagið er í ákveðinni uppbyggingu um þessar
mundir. Það er mikið um yngri landsliðsleikmenn
í bland við eldri landsliðsmenn þannig að það er
engin pressa frá félaginu á þessari leiktíð að gera
einhverja atlögu að titlinum sem dæmi.
Það er verið að byggja til framtíðar og á næstu
leiktíð vill félagið blanda sér í baráttu um Evr-
ópusæti. Þeir vildu til dæmis fá mig út núna en
mér stóð líka til boða að taka eitt tímabil í viðbót
heima á Íslandi og fara svo til þeirra í Þýskalandi.
Mig langaði bara að koma fyrr út, læra tungu-
málið og reyna að koma mér inn í liðið á þessari
leiktíð til þess að auka möguleika mína á byrj-
unarliðssæti þegar næsta tímabil hefst.“
Góður grunnur fyrir EM
Alexandra hefur verið á meðal bestu leikmanna
úrvalsdeildarinnar undanfarin ár en hún var valin
efnilegasti leikmaður úrvalsdeildarinnar eftir
tímabilið 2018.
„Ég vonast að sjálfsögðu til þess að fá að spila
eitthvað á EM 2022 með landsliðinu og ég leit líka
á skrefið til Þýskalands, á þessum tiltekna tíma-
punkti, sem góðan grunn fyrir lokakeppnina á
Englandi. Tímabilið á Íslandi hefst náttúrulega
ekki fyrir alvöru fyrr en í sumar á meðan tímabilið
er í fullum gangi hérna úti núna.
Eins eru æfingarnar hérna meira krefjandi en
heima og ég sé þess vegna fram á að bæta mig
meira sem leikmaður hérna úti en ég hefði gert
heima á Íslandi. Ég er bara búin að taka þátt í
þremur æfingum síðan ég kom en það er æft allt
upp í tvisvar á dag hérna úti, nokkra daga vik-
unnar, og ég fann alveg fyrir lærunum á mér eftir
fyrstu dagana.
Ég var fljót að átta mig á því að ég þarf að vera
miklu fljótari að hugsa með boltann, frekar en að
vera í meiri hlaupum, og boltaþátturinn er eitt-
hvað sem ég þarf að bæta mig í. Ég tel mig vera í
góðu formi og ég hef ekki áhyggjur af því að það
verði hlaupið yfir mig þegar keppni í deildinni
hefst á nýjan leik.“
Reynsla sem nýtist vel
Eintracht Frankfurt hefur verið um miðja deild
undanfarin ár en Alexandra þekkir mótlæti vel
eftir að hafa fallið úr efstu deild með uppeldis-
félagi sínu Haukum haustið 2017.
„Ég kann að vinna og þótt maður venjist því
seint að tapa þá hefur maður þurft að ganga í
gegnum það líka. Ég hef þurft að stíga upp á mín-
um ferli, þrátt fyrir ungan aldur, og ég held að
reynsla mín með Haukum til dæmis muni nýtast
mér vel hérna. Ég veit hvað það er að ganga í
gegnum mótlæti enda fór maður í gegnum heilt
sumar í miklu mótlæti en eftir á að hyggja kom
maður bara sterkari út úr því fyrir vikið.
Það var erfitt að fara frá öllum heima á Íslandi
og það mun taka einhvern tíma að venjast því. Það
hefur alveg tekið á að vera ein núna, sérstaklega
þar sem það er nánast allt lokað hérna í Þýska-
landi vegna kórónuveirunnar, og maður getur því
lítið farið út og gert eitthvað til þess að dreifa hug-
anum. Við erum þrír liðsfélagar sem búum saman
í íbúð á vegum Frankfurt og það er gott að vera
með einhvern félagsskap á þessum tímum. Planið
er svo bara að drífa sig á þýskunámskeið svo mað-
ur geti tekið þátt í samræðum og skilið það sem
fólkið í kringum mann er að segja.“
Bjartir tímar fram undan
Alexandra á að baki 10 A-landsleiki en Þor-
steinn Halldórsson, fyrrverandi þjálfari hennar
hjá Breiðabliki, tók við þjálfun íslenska kvenna-
landsliðsins í gær.
„Þegar ég gekk til Breiðabliks var ég leikmaður
sem var búinn að spila eitt tímabil í efstu deild og
tapa öllum leikjunum mínum nema tveimur. Hann
treysti mér strax frá fyrsta degi og gaf mér strax
tækifæri í liði sem ætlaði sér Íslandsmeistaratit-
ilinn. Hann Steini er frábær þjálfari og ég er
virkilega glöð yfir að hann sé að taka við þessu.
Hann tekur við liðinu núna á góðum stað og það
eru flottir hlutir í gangi hjá landsliðinu um þessar
mundir. Ég held að hann geti gert mjög góða hluti
með liðið þar sem hann þekkir flesta leikmenn
liðsins og hvernig þeir spila. Hann þarf ekki að
kynnast þeim, hann veit að hverju hann gengur,
og hann hefur þjálfað stelpur undanfarin sex ár og
þekkir kvennaboltann því mjög vel.
Það eru ákveðin kynslóðaskipti í gangi hjá
landsliðinu og það er mjög góð blanda af bæði
yngri og eldri leikmönnum í hópnum núna. Það er
alveg raunhæft markmið hjá liðinu að setja stefn-
una á lokakeppni HM 2023,“ bætti Alexandra við.
Mikilvægt að spila þegar
maður er ungur að árum
Alexandra Jóhannsdóttir skrifaði undir langtímasamning við Eintracht Frankfurt
Ljósmynd/@eintracht_eng
Frankfurt Alexandra Jóhannsdóttir hefur fylgst
vel með gangi mála í Þýskalandi undanfarin ár.
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Dominos-deildin:
Hertz-hellir: ÍR – Haukar ................... 18.15
MG-höllin: Stjarnan – Keflavík........... 20.15
1. deild karla:
Dalhús: Fjölnir – Vestri ....................... 19.15
Flúðir: Hrunamenn – Álftanes............ 19.15
Hveragerði: Hamar – Breiðablik........ 19.15
Ice Lagoon-höll: Sindri – Skallagr...... 19.15
HANDKNATTLEIKUR
1. deild karla:
Víkin: Víkingur – Vængir Júpíters .......... 19
Í KVÖLD!