Morgunblaðið - 15.01.2021, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 15.01.2021, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 2021 Gítarar í miklu úrvali Verð við allra hæ Kassagítarar á tilboði Gítarinn ehf. Stórhöfði 27 - Sími 552 2125 www.gitarinn.is A uður Arna er eins og svo margir að reyna að skilja betur hvaða áhrif kórónuveiran hefur í för með sér. „Ég er að reyna að bregðast við þeim síbreytilegu og óvæntu tak- mörkunum og tækifærum sem kórónuveiran skapar í kennslu, rekstri og persónulega lífinu. Allt háskólanám hérlendis sem erlendis hefur á skömmum tíma þurft að aðlagast þeim nýja veruleika að nám fari fram ýmist rafrænt eða á svokölluðu blönduðu formi, þar sem nemend- um er kennt samtímis í kennslustofu eða heima fyrir. Slíkt getur reynst krefjandi en jafnframt lærdómsríkt fyrir nemendur, kenn- ara, sem og þá sem stýra námi. Raunin er sú að aðstæður hafa fleygt okkur af stað í notkun nýrrar kennslutækni sem rafræn kennsla kall- ar eftir. En þessar sérstöku aðstæður hafa ekki síður leitt til þess að gerðar eru dýpri greiningar og tekin eru mörg gefandi samtöl við ólíka haghafa um hvaða nálgun skilar góð- um námsárangri og ánægjulegri upplifun fyrir okkar nemendur. Þetta hefur verið lærdóms- ferli sem ég veit að gerir sterkt nám enn betra og mun hafa áhrif á væntingar nemenda til náms til frambúðar.“ Árið 2020 hefur sýnt aðlögunarhæfni manneskjunnar Hvað hefur árið 2020 kennt þér og hvaða væntingar ertu með fyrir nýtt ár? „Árið 2020 var sérstakt og fól í sér ótal lífs- lexíur að mínu mati. Ætli stóri lærdómurinn sé ekki aðlögunarhæfni manneskjunnar og geta hennar til að prófa sig áfram og finna lausnir. En líka hversu mjög félagslegt samneyti og stuðningur skiptir fyrir vellíðan okkar hverju sinni. Árið 2020 fól í sér áskoranir og juku per- sónulegan skilning minn á hvað í raun skiptir máli. Lífið er hverfult. Það sem maður áður tók sem gefnum hlut, svo sem samneyti við vini og fjölskyldu, tíð ferðalög, að sækja tón- leika og skemmtanir eða að geta átt í inni- haldsríku samtali við stóran hóp nemenda í kennslustund eða við kaffivélina, eru í raun tækifæri sem aðstæður hverju sinni skapa og við getum verið lánsöm að njóta. Ég vona að mér beri gæfa til að halda í þær lífslexíur og nýta í þeim vonandi nýja veruleika sem árið 2021 felur í sér, þar sem mótefni gerir okkur vonandi aftur kleift að vera í auknu samneyti hvort við annað.“ Eftir að Auður Arna lauk námi við Mennta- skólann í Reykjavík hóf hún nám í sálfræði við Háskóla Íslands. „Ég lauk þaðan grunngráðu sem ég byggði svo ofan á með MS- og Ph.D.-gráðu í ráðgjaf- arsálfræði frá VCU í Bandaríkjunum. Nokkr- um árum síðar lauk ég PLD-gráðu í stjórn- arfræðum frá IESE-viðskiptaskólanum í Barcelona. En líkt og margir þá lít ég svo á að hollt sé að læra út lífið, og því hafa ótal ólík námskeið bæst við í gegnum árin. Samnefnari þeirra hefur ekki alltaf verið skýr, en það er samt svo gaman að sjá hvernig þekkingar- púslin raðast saman og í raun gefa manni oft ólíkt sjónarhorn á sama viðfangsefni. Að mínu mati er nauðsynlegt fyrir okkur öll að staðna ekki, heldur sífellt leitast við að fræðast um nýja hluti. Slíkt hefur ávallt opnað augu mín fyrir einhverju nýju og gefið mér aukinn styrk og gleði í leik og starfi.“ Hvað áherslur eru í MBA-náminu í dag? „Í tæp 20 ár hefur viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík útskrifað MBA-nemendur sem nýtt hafa krefjandi, fjölbreytt og alþjóðlega vottað stjórnunarnám sem stökkpall til spenn- andi starfa og persónulegs vaxtar. MBA- námið við skólann er alþjóðlegt stjórnunarnám sem veitir nemendum þjálfun á öllum megin- sviðum stjórnunar- og viðskiptafræða og legg- ur sérstaka áherslu á ábyrga stjórnun, sjálf- bærni og samfélagslega ábyrgð, mikilvægi nýsköpunar og að nemendur skilji áhrif al- þjóðasamfélagsins og síbreyttrar tækni á rekstur fyrirtækja. Þessar áherslur eru sýni- legar í leiðarljósum námsins, stjórnun-nýsköp- un-þroski, og falla vel að stefnu Háskólans í Reykjavík. MBA-námið er ætlað einstaklingum með há- skólapróf af mismunandi fagsviðum sem eru einnig með viðamikla reynslu úr atvinnulífinu. Í námið sækir fjölbreyttur hópur einstaklinga sem allir eru að leita að því að efla eigin leið- togahæfni, auka við þekkingu sína og færni og efla persónulegan þroska. Námið er hlutanám með vinnu og stendur yfir í fjórar annir. Nám okkar fer fram á ensku í skólastofunni og verk- efnaskilum. Þetta hefur reynst okkar nem- endum ómetanlegur styrkur í sínum störfum sem sífellt eru í alþjóðlegri tengslum þar sem gott vald á enskri tungu er nauðsyn. En ensk- an er jafnframt mikilvægt tól í íslensku at- vinnulífi þar sem fjölbreytileiki vinnuafls hefur aukist mjög á undanförnum árum. Styrkleiki MBA-námsins er fjölbreytileiki hóps MBA-nemenda sem hefur nám hjá okkur á hverju hausti. Við viljum fjölbreytileika til að skapa dýnamík í kennslustundum sem á að vera kröftug, frjó og leitandi og þar sem ein- staklingar tala út frá sjónarhornum sem aðrir síður sjá eða skilja. Við höfum líka séð að þessi fjölbreytileiki hjálpar nemendum til þess að mynda víðfeðmt tengslanet til framtíðar. Sérstaða MBA-námsins í Háksólanum í Reykjavík er alþjóðleiki þess og sterk tengsl við atvinnulíf. Kennarar námsins eru fjöl- breyttur hópur fólks: Reyndir akademískir kennarar við háskólann og erlendir kennarar frá mörgum bestu viðskiptaskólum heimsins auk sterkra aðila úr íslensku atvinnulífi. Erlendir kennarar námsins koma beggja vegna Atlantshafsins frá; til dæmis frá IESE og IE á Spáni, London Business School í Bret- landi, BI í Noregi og MIT og UVA í Banda- ríkjunum, UBS, Rotham og University of To- ronto í Kanada. Þessi fjölbreytta flóra kennara hjálpar nemendum okkar að skilja bæði sér- stakar íslenskar aðstæður en jafnframt skilja alþjóðlegar áherslur í viðskiptum. Árið 2019 hófst samstarf MBA-námsins við bæði tækniháskólann MIT í Boston og við flóru ís- lenskra sprotafyrirtækja. Í lokaverkefnum nemenda okkar vinna þeir að greiningu ís- lenskra sprotafyrirtækja og nota til þess með- al annars vinnustofur MIT sem kallast De- signX. Þetta samstarf hefur verið einstaklega ánægjulegt. Í MBA-námi okkar er lögð bæði rík áhersla á fjölbreyttar kennsluaðferðir, það er meðal annars kennt með notkun raundæma, raun- verkefna meðal fyrirtækja og í auknum mæli með hermileikjum, sem og öflugum tengslum við atvinnulíf. Kennsluaðferðir í MBA-námi veita nemendum tækifæri til mjög mikillar þátttöku í tímum. Hún krefst þess að nem- endur geti greint og rætt af skynsemi krefj- andi viðfangsefni í rekstri og eflir ábyrga ákvarðanatöku.“ Nám er alltaf fjárfesting Hverjir eru kostir þess að fara í MBA-nám? „Nám er ávallt dýrmæt persónuleg fjárfesting og því mikilvægt að hver einstak- lingur finni nám við hæfi. Það er fjöldinn all- ur af áhugaverðum og góðum kostum í boði og því mikilvægt að fólk kynni sér vel þær megináherslur sem lagðar eru í nám sem skoðað er hverju sinni, og hugleiði hvort það styðji við þá framtíðarsýn sem stefnt er að. Í MBA-nám sækja einstaklingar sem vilja breytingar. Einstaklingar sem oft hafa það að markmiði í upphafi náms að vaxa sem ein- staklingar, fá aukna ábyrgð á sínum vinnustað eða þeir sem vilja skapa sér önnur og betri at- vinnutækifæri. Sumir búa jafnvel yfir nýsköp- unarhugmynd sem þeir vilja sjá hvort raun- hæft sé að efla. Allir eiga nemendurnir það sammerkt að sækja í persónulegan vöxt, vilja verða skilvirkari greinendur, liprari í lausn vandamála, betri í að takast á við og leiða breytingar. MBA-námið í Háskólanum í Reykjavík er alþjóðlega vottað stjórnendanám sem hefur gæði kennslu, alþjóðlega sýn, ábyrga stjórnun og eflingu einstaklinga að leiðar- ljósi. Námið veitir nemendum aukinn sjálfs- skilning, skarpari framtíðarsýn og skapar einstaklingum oft spennandi tækifæri á vinnumarkaði. Við erum stolt af því góða námi sem við bjóðum og gætum að því að leitast sífellt eftir því að styrkja það enn frekar. Ég hvet alla til að skoða nám okkar enn frekar og meta hvort þessi góði val- kostur sé kannski sá rétti til að efla þig í leik og starfi.“ Ótal tækifæri fólgin í námi Auður Arna Arnardóttir, forstöðumaður MBA-náms Háskól- ans í Reykjavík og dósent í viðskiptadeild Háskólans í Reykja- vík, er á því að með námi megi ná fram auknum þroska. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Ljósmynd/Háskólinn í Reykjavík Árið 2020 fól í sér áskor- anir og juku persónulegan skilning minn á hvað í raun skiptir máli. Lífið er hverfult. Það sem maður áður tók sem gefnum hlut, svo sem samneyti við vini og fjölskyldu, tíð ferðalög, að sækja tónleika og skemmtanir eða að geta átt í innihaldsríku samtali við stóran hóp nemenda í kennslustund. Auður Arna var í Háskóla Íslands en hún stundaði líka nám í Banda- ríkjunum og á Spáni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.