Morgunblaðið - 15.01.2021, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 2021
Gítarar
í miklu úrvali
Verð við allra hæ
Kassagítarar
á tilboði
Gítarinn ehf.
Stórhöfði 27 - Sími 552 2125
www.gitarinn.is
A
uður Arna er eins og svo margir að
reyna að skilja betur hvaða áhrif
kórónuveiran hefur í för með sér.
„Ég er að reyna að bregðast við
þeim síbreytilegu og óvæntu tak-
mörkunum og tækifærum sem kórónuveiran
skapar í kennslu, rekstri og persónulega lífinu.
Allt háskólanám hérlendis sem erlendis hefur
á skömmum tíma þurft að aðlagast þeim nýja
veruleika að nám fari fram ýmist rafrænt eða á
svokölluðu blönduðu formi, þar sem nemend-
um er kennt samtímis í kennslustofu eða
heima fyrir. Slíkt getur reynst krefjandi en
jafnframt lærdómsríkt fyrir nemendur, kenn-
ara, sem og þá sem stýra námi. Raunin er sú
að aðstæður hafa fleygt okkur af stað í notkun
nýrrar kennslutækni sem rafræn kennsla kall-
ar eftir. En þessar sérstöku aðstæður hafa
ekki síður leitt til þess að gerðar eru dýpri
greiningar og tekin eru mörg gefandi samtöl
við ólíka haghafa um hvaða nálgun skilar góð-
um námsárangri og ánægjulegri upplifun fyrir
okkar nemendur. Þetta hefur verið lærdóms-
ferli sem ég veit að gerir sterkt nám enn betra
og mun hafa áhrif á væntingar nemenda til
náms til frambúðar.“
Árið 2020 hefur sýnt aðlögunarhæfni
manneskjunnar
Hvað hefur árið 2020 kennt þér og hvaða
væntingar ertu með fyrir nýtt ár?
„Árið 2020 var sérstakt og fól í sér ótal lífs-
lexíur að mínu mati. Ætli stóri lærdómurinn sé
ekki aðlögunarhæfni manneskjunnar og geta
hennar til að prófa sig áfram og finna lausnir.
En líka hversu mjög félagslegt samneyti og
stuðningur skiptir fyrir vellíðan okkar hverju
sinni. Árið 2020 fól í sér áskoranir og juku per-
sónulegan skilning minn á hvað í raun skiptir
máli. Lífið er hverfult. Það sem maður áður
tók sem gefnum hlut, svo sem samneyti við
vini og fjölskyldu, tíð ferðalög, að sækja tón-
leika og skemmtanir eða að geta átt í inni-
haldsríku samtali við stóran hóp nemenda í
kennslustund eða við kaffivélina, eru í raun
tækifæri sem aðstæður hverju sinni skapa og
við getum verið lánsöm að njóta. Ég vona að
mér beri gæfa til að halda í þær lífslexíur og
nýta í þeim vonandi nýja veruleika sem árið
2021 felur í sér, þar sem mótefni gerir okkur
vonandi aftur kleift að vera í auknu samneyti
hvort við annað.“
Eftir að Auður Arna lauk námi við Mennta-
skólann í Reykjavík hóf hún nám í sálfræði við
Háskóla Íslands.
„Ég lauk þaðan grunngráðu sem ég byggði
svo ofan á með MS- og Ph.D.-gráðu í ráðgjaf-
arsálfræði frá VCU í Bandaríkjunum. Nokkr-
um árum síðar lauk ég PLD-gráðu í stjórn-
arfræðum frá IESE-viðskiptaskólanum í
Barcelona. En líkt og margir þá lít ég svo á að
hollt sé að læra út lífið, og því hafa ótal ólík
námskeið bæst við í gegnum árin. Samnefnari
þeirra hefur ekki alltaf verið skýr, en það er
samt svo gaman að sjá hvernig þekkingar-
púslin raðast saman og í raun gefa manni oft
ólíkt sjónarhorn á sama viðfangsefni. Að mínu
mati er nauðsynlegt fyrir okkur öll að staðna
ekki, heldur sífellt leitast við að fræðast um
nýja hluti. Slíkt hefur ávallt opnað augu mín
fyrir einhverju nýju og gefið mér aukinn styrk
og gleði í leik og starfi.“
Hvað áherslur eru í MBA-náminu í dag?
„Í tæp 20 ár hefur viðskiptadeild Háskólans
í Reykjavík útskrifað MBA-nemendur sem
nýtt hafa krefjandi, fjölbreytt og alþjóðlega
vottað stjórnunarnám sem stökkpall til spenn-
andi starfa og persónulegs vaxtar. MBA-
námið við skólann er alþjóðlegt stjórnunarnám
sem veitir nemendum þjálfun á öllum megin-
sviðum stjórnunar- og viðskiptafræða og legg-
ur sérstaka áherslu á ábyrga stjórnun, sjálf-
bærni og samfélagslega ábyrgð, mikilvægi
nýsköpunar og að nemendur skilji áhrif al-
þjóðasamfélagsins og síbreyttrar tækni á
rekstur fyrirtækja. Þessar áherslur eru sýni-
legar í leiðarljósum námsins, stjórnun-nýsköp-
un-þroski, og falla vel að stefnu Háskólans í
Reykjavík.
MBA-námið er ætlað einstaklingum með há-
skólapróf af mismunandi fagsviðum sem eru
einnig með viðamikla reynslu úr atvinnulífinu.
Í námið sækir fjölbreyttur hópur einstaklinga
sem allir eru að leita að því að efla eigin leið-
togahæfni, auka við þekkingu sína og færni og
efla persónulegan þroska. Námið er hlutanám
með vinnu og stendur yfir í fjórar annir. Nám
okkar fer fram á ensku í skólastofunni og verk-
efnaskilum. Þetta hefur reynst okkar nem-
endum ómetanlegur styrkur í sínum störfum
sem sífellt eru í alþjóðlegri tengslum þar sem
gott vald á enskri tungu er nauðsyn. En ensk-
an er jafnframt mikilvægt tól í íslensku at-
vinnulífi þar sem fjölbreytileiki vinnuafls hefur
aukist mjög á undanförnum árum.
Styrkleiki MBA-námsins er fjölbreytileiki
hóps MBA-nemenda sem hefur nám hjá okkur
á hverju hausti. Við viljum fjölbreytileika til að
skapa dýnamík í kennslustundum sem á að
vera kröftug, frjó og leitandi og þar sem ein-
staklingar tala út frá sjónarhornum sem aðrir
síður sjá eða skilja. Við höfum líka séð að þessi
fjölbreytileiki hjálpar nemendum til þess að
mynda víðfeðmt tengslanet til framtíðar.
Sérstaða MBA-námsins í Háksólanum í
Reykjavík er alþjóðleiki þess og sterk tengsl
við atvinnulíf. Kennarar námsins eru fjöl-
breyttur hópur fólks: Reyndir akademískir
kennarar við háskólann og erlendir kennarar
frá mörgum bestu viðskiptaskólum heimsins
auk sterkra aðila úr íslensku atvinnulífi.
Erlendir kennarar námsins koma beggja
vegna Atlantshafsins frá; til dæmis frá IESE
og IE á Spáni, London Business School í Bret-
landi, BI í Noregi og MIT og UVA í Banda-
ríkjunum, UBS, Rotham og University of To-
ronto í Kanada. Þessi fjölbreytta flóra kennara
hjálpar nemendum okkar að skilja bæði sér-
stakar íslenskar aðstæður en jafnframt skilja
alþjóðlegar áherslur í viðskiptum. Árið 2019
hófst samstarf MBA-námsins við bæði
tækniháskólann MIT í Boston og við flóru ís-
lenskra sprotafyrirtækja. Í lokaverkefnum
nemenda okkar vinna þeir að greiningu ís-
lenskra sprotafyrirtækja og nota til þess með-
al annars vinnustofur MIT sem kallast De-
signX. Þetta samstarf hefur verið einstaklega
ánægjulegt.
Í MBA-námi okkar er lögð bæði rík áhersla
á fjölbreyttar kennsluaðferðir, það er meðal
annars kennt með notkun raundæma, raun-
verkefna meðal fyrirtækja og í auknum mæli
með hermileikjum, sem og öflugum tengslum
við atvinnulíf. Kennsluaðferðir í MBA-námi
veita nemendum tækifæri til mjög mikillar
þátttöku í tímum. Hún krefst þess að nem-
endur geti greint og rætt af skynsemi krefj-
andi viðfangsefni í rekstri og eflir ábyrga
ákvarðanatöku.“
Nám er alltaf fjárfesting
Hverjir eru kostir þess að fara í MBA-nám?
„Nám er ávallt dýrmæt persónuleg
fjárfesting og því mikilvægt að hver einstak-
lingur finni nám við hæfi. Það er fjöldinn all-
ur af áhugaverðum og góðum kostum í boði
og því mikilvægt að fólk kynni sér vel þær
megináherslur sem lagðar eru í nám sem
skoðað er hverju sinni, og hugleiði hvort það
styðji við þá framtíðarsýn sem stefnt er að.
Í MBA-nám sækja einstaklingar sem vilja
breytingar. Einstaklingar sem oft hafa það að
markmiði í upphafi náms að vaxa sem ein-
staklingar, fá aukna ábyrgð á sínum vinnustað
eða þeir sem vilja skapa sér önnur og betri at-
vinnutækifæri. Sumir búa jafnvel yfir nýsköp-
unarhugmynd sem þeir vilja sjá hvort raun-
hæft sé að efla. Allir eiga nemendurnir það
sammerkt að sækja í persónulegan vöxt, vilja
verða skilvirkari greinendur, liprari í lausn
vandamála, betri í að takast á við og leiða
breytingar.
MBA-námið í Háskólanum í Reykjavík er
alþjóðlega vottað stjórnendanám sem hefur
gæði kennslu, alþjóðlega sýn, ábyrga
stjórnun og eflingu einstaklinga að leiðar-
ljósi. Námið veitir nemendum aukinn sjálfs-
skilning, skarpari framtíðarsýn og skapar
einstaklingum oft spennandi tækifæri á
vinnumarkaði. Við erum stolt af því góða
námi sem við bjóðum og gætum að því að
leitast sífellt eftir því að styrkja það enn
frekar. Ég hvet alla til að skoða nám okkar
enn frekar og meta hvort þessi góði val-
kostur sé kannski sá rétti til að efla þig í leik
og starfi.“
Ótal tækifæri
fólgin í námi
Auður Arna Arnardóttir, forstöðumaður MBA-náms Háskól-
ans í Reykjavík og dósent í viðskiptadeild Háskólans í Reykja-
vík, er á því að með námi megi ná fram auknum þroska.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Ljósmynd/Háskólinn í Reykjavík
Árið 2020 fól í sér áskor-
anir og juku persónulegan
skilning minn á hvað í
raun skiptir máli. Lífið er
hverfult. Það sem maður
áður tók sem gefnum hlut,
svo sem samneyti við vini
og fjölskyldu, tíð ferðalög,
að sækja tónleika og
skemmtanir eða að geta
átt í innihaldsríku samtali
við stóran hóp nemenda í
kennslustund.
Auður Arna var í Háskóla
Íslands en hún stundaði
líka nám í Banda-
ríkjunum og á Spáni.