Morgunblaðið - 15.01.2021, Síða 12
yngri. Ég hafði
unnið sem dyravörð-
ur á skemmtistöðum á Ak-
ureyri með seinni hluta Mennta-
skólans og meðfram Háskólanum og
var orðinn mjög vanur að eiga við
fólk í misjöfnu ástandi. Ég hafði
einnig gaman af samskiptum við fólk
og að leysa úr vandamálum sem
komu upp. Ég taldi lögregluna vera
gott tækifæri til að fá einstaka
reynslu og sló til. Ég fékk svo fram-
lengingu eftir sumarið og sótti um í
lögregluskólanum árið 2002.“
Hvernig lýsir þú starfinu þínu?
„Kennari í lögregluskólanum árið
2002 sagði eftirminnilega að maður
er ekki að velja bara starf maður er
að velja sér lífsstíl og það er mikið til
í því að mínu mati. Starfið er gríð-
arlega fjölbreytt og krefjandi. Það
er auðvelt að þykja vænt um þetta
starf en stundum getur það haft
mjög djúp áhrif á mann. Því er mik-
ilvægt að menn fái þekkingu og
reynslu til að leysa hvert viðfangs-
efni á sem bestan hátt. Þar kemur
H
araldur Logi, lögreglu-
fulltrúi hjá lögreglunni
á Norðurlandi eystra,
sinnir skipulagningu á
þjálfun og bún-
aðarmálum hjá því embætti. Hann
er einnig hluti af aðgerðastjórn á
Norðurlandi eystra þar sem hann
sinnir upplýsingagjöf og tækni-
málum.
Hann er búsettur á Akureyri,
kvæntur Ingibjörg Elínu Halldórs-
dóttur og á 21 árs dóttur og 15 ára
gamlan son. Hann lauk námi í Lög-
regluskóla ríkisins árið 2002 og hef-
ur starfað í lögreglunni í tæp 20 ár.
Hann var í fyrsta hópnum sem út-
skrifaðist frá Háskólanum á Ak-
ureyri með BA í lögreglu- og lög-
gæslufræði árið 2019 en
lögreglunám á Íslandi var fært upp á
háskólastig árið 2016. Hann er sá
eini sem lokið hefur BA-gráðu í lög-
reglu- og löggæslufræði við Háskól-
ann á Akureyri og námi frá Lög-
regluskóla ríkisins. BA-ritgerð
Haraldar Loga fjallaði um skaðavísa
eða Crime Harm Index en það var
þróað í Cambridge-háskólanum og
fjallar um að meta brot út frá alvar-
leika þeirra en ekki einungis fjölda
þeirra. Að loknu BA-náminu hóf
hann MBA-nám við Háskóla Íslands
og er byrja á lokaönninni í náminu
meðfram fullri vinnu.
„Ég er alinn upp á Svalbarðseyri
skammt frá Akureyri. Fór í Mennta-
skólann á Akureyri. Var mikið í
íþróttum á yngri árum og með gríð-
arlegt keppnisskap. Það mátti lítið
fara út fyrir reglur í leikjum og lét
ég oft vel í mér heyra ef einhver fór
ekki eftir reglunum, þótt það væri
jafnvel bara í fótbolta úti á lóð. Í
MBA-náminu vorum við látin taka
persónuleikaprófið Myers-Briggs
Type Indicator
þar sem kom í ljós að
ég er innhverfur (e. intro-
vert), hagnýtur, rökvís og með
ákveðna stefnu. Ég held að þetta sé
bara ágætislýsing á mér. Fólk eins
og ég á það víst til að velja sér lög-
regluna, svo kannski hefur val mitt á
starfsgrein ekki komið svo mikið á
óvart.“
Alltaf þótt lögreglustarfið
áhugavert
Hvers vegna valdir þú þér að vera
lögregla?
„Þegar ég kom út úr menntaskóla
tók ég eitt ár í tölvu- og upplýsinga-
tækni í Háskólanum á Akureyri en
fannst það nám ekki vera fastmótað
og var ekki viss um hvað það væri
sem mig langaði almennilega að
gera. Þá sá ég auglýst eftir sumar-
afleysingamönnum í lögreglunni á
Akureyri en mér hefur alltaf fundist
það starf áhugavert en faðir minn
vann sem héraðslögreglumaður á
Húsavík á ballvöktum þegar ég var
Haraldur Logi Hringsson lögreglufulltrúi segir mikilvægt að vera góður í samskiptum í
vinnunni. Hann er í MBA-námi við Háskóla Íslands og segir það góða viðbót við menntun sína.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
þjálfun og fræðsla sterkt inn í, en ég
sinni því hlutverki innan lögregl-
unnar í dag.“
Finnst MBA-námið nýtast vel
Haraldur Logi hafði heyrt af
MBA-náminu við Háskóla Íslands
en óraði ekki fyrir því að hann færi í
það sjálfur.
„Að ljúka BA-gráðu í lögreglu-
fræðinni gaf mér það tækifæri og
eftir hvatningu frá konunni minni
ákvað ég að sækja um. Það var stökk
langt út fyrir þægindarammann og
ljóst að þetta yrði mikil áskorun.
Móttökurnar inn í námið voru mjög
góðar og fagmannlega staðið að öllu.
Strax eftir fyrstu kennslustundirnar
kom í ljós einn besti hlutinn við nám-
ið en það er hópurinn sem maður nú
tilheyrir. Það er mikil hópavinna í
náminu og að vinna með svona flottu
fólki hefur reynst mjög lærdómsríkt
og gefandi. Umræður og umfjöllun
ýmissa mála í tímum þar sem meðal
annars reynsla einstaklinga innan
hópsins fær að njóta sín meðfram
kennsluefninu gerir þetta nám mjög
öflugt. Námið er tvö ár þannig að
það er hægt að sinna því meðfram
starfi. Kennsla er aðra hverja helgi á
föstudegi og laugardegi. Maður öðl-
ast mikla persónulega færni og fær
þjálfun á sviði rekstrar og viðskipta
undir leiðsögn reynslumikilla kenn-
ara og heimsóknir gestafyrirlesara
víðs vegar að úr atvinnulífinu gera
þetta nám mjög innihaldsríkt.“
Hvernig mun námið nýtast þér í
framtíðinni?
„Námið hefur hjálpað manni að
átta sig betur á eigin styrkleikum og
veikleikum sem skiptir miklu máli í
réttri ákvarðanatöku. Það hefur
hjálpað mér mikið í að vinna í ólíkum
Lögreglufulltrúi í MBA-námi sem
trúir að jafnrétti sé besta leiðin
Haraldur Logi er í
MBA-námi um
þessar mundir.
Haraldur Logi lögreglu-
fulltrúi segir samskipti
skipta miklu máli í vinnunni.
12 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 2021
Átt þú rétt
á styrk ?
Sjómennt er fræðslusjóður sjómanna og útgerðarfélaga
Sjómennt styrkir starfsmenntun sjómanna beint til
fyrirtækja í útgerð.
Sjóðurinn veitir styrki í fræðsluverkefni á vegum
stéttarfélaganna.
Sjóðurinn veitir styrki til einstaklinga og sjá stéttarfélögin
um afgreiðslu þeirra í umboði Sjómenntar
Kynntu þér rétt þinn á www.sjomennt.is
Sjómennt