Morgunblaðið - 15.01.2021, Qupperneq 13
Háskólanum á Akureyri á sendifull-
trúanámskeiði Rauða krossins sem
hann og lauk.
„Mig hefur lengi langað að komast
utan í sérverkefni sem tengjast
þessari menntun minni.“
Mikið álag í vinnunni vegna veir-
unnar
Hvernig var árið 2020 fyrir þig
persónulega?
„Árið 2020 einkenndist af verk-
efnum sem tengd eru kórónuveiru-
faraldrinum. Í upphafi faraldurs var
farið í að yfirfara áætlanir og sjá til
þess að við yrðum eins reiðubúnir og
hægt er að takast á við þetta óvissu-
verkefni.
Mitt hlutverk innan aðgerða-
stjórnar á Norðurlandi eystra var að
miðla upplýsingum út til fólks um
fjölda tilfella á okkar svæði og um
þær sóttvarnaaðgerðir sem verið var
að grípa til vegna ástandsins. Við
fengum fjöldann allan af smitum
seinni part sumars og tók það mikið
á. Vinnustaðnum var skipt upp og
mikið álag var á fólki, sem hefur
staðið sig frábærlega vel.
Það er ekki auðvelt að vera í fullri
vinnu og í meistaranámi í Háskól-
anum en með stuðningi fjölskyld-
unnar og yfirmanna gengur það upp
og er ég mjög þakklátur fyrir það.“
Hvað vonarðu að árið 2021 beri í
skauti sér?
„Ég vona eins og flestir að við
verðum laus við þessa veiru og drög-
um ákveðinn lærdóm af þessu
ástandi sem búið er að ríkja.“
hópum og styrkt mig í lausnamiðaðri
hugsun. Að nýta sér upplýsingar og
gögn til að greina vandamál og finna
lausnir er stór hluti af náminu og
það mun nýtast vel í leik og starfi.
Vonandi verður það til þess að mað-
ur fái spennandi verkefni og tæki-
færi til að láta gott af sér leiða.“
Haraldur Logi segir lögreglu-
störfin gefa ákveðna sýn á lífið og til-
veruna.
„Mannleg samskipti eru stærsti
hluti af þessu starfi og ef samskipti
eru góð hvar svo sem sá vettvangur
er þá ganga hlutir oft best.“
Haraldur Logi er með sterk gildi í
lífinu og er fjölskyldan þar í fyrir-
rúmi.
„Í MBA-náminu fengum við verk-
efni að greina hópafélaga okkar og
leggja fyrir spurningar til að finna
út gildi viðkomandi. Atriðin sem
hópafélagarnir mínir fundu út hjá
mér voru áreiðanleiki og öryggi auk
þess að vera mikill fjölskyldumað-
ur.“
Mikilvægt að lögreglan taki réttar
ákvarðanir í aðstæðum
Nú eru margir hræddir við lög-
regluna, hvernig getum við með við-
talinu brúað þetta bil á milli ykkar
og almennings?
„Lögreglan á Íslandi nýtur mikils
traust samkvæmt könnunum og við
eigum að keppast við að halda því
þannig. Það er mikilvægt að lög-
reglumenn átti sig strax á er þeir
byrja í þessu starfi að okkur er falin
ábyrgð á gríðarlegu valdi í lögregl-
unni. Við verðum að bera virðingu
fyrir því sem við erum að gera og
fyrir því fólki sem við eigum í sam-
skiptum við.
Ég hef trú á að flestir sem velja að
sinna þessu starfi vilji að allir séu
sem öruggastir. Ég kynntist því
fljótlega að þeir sem töldust harð-
astir í þessu starfi voru miklir fjöl-
skyldumenn og hinir ljúfustu þótt
þeir virkuðu eflaust á köflum eins og
vélmenni.
Frá því ég byrjaði í lögreglunni
hefur orðið mikil breyting og fleiri
konur komnar inn í starfi sem er
fagnaðarefni og góð þróun.“
Haraldur Logi segir að sem þjálf-
ari lögreglumanna sjálfur hafi hann
það alltaf að markmiði að þjálfa fólk
þannig að það taki réttar ákvarðanir
á því augnbliki sem ákvörðunin er
tekin.
„Aðstæður eru breytilegar og við
verðum að vera fagmannleg í öllum
aðstæðum. Það getur verið allt frá
smávægilegum afskiptum upp í stór-
ar ákvarðanir þar sem beiting valds
er nauðsynleg.
Það er mikilvægt að notuð verði
þekkingarmiðuð löggæsla til að
vinnan verði hnitmiðaðri og vand-
aðri.“
Ef þú gætir breytt einhverju einu
í heiminum, hvað væri það?
„Á þessari stundu að við myndum
ráða niðurlögum þessarar veiru en
almennt hugsa ég mikið um mikil-
vægi þess að auka jafnrétti í heim-
inum.“
Haraldur var meðfram námi sínu í
Að ljúka BA-
gráðu í lög-
reglufræðinni
gaf mér það
tækifæri og eftir
hvatningu frá
konunni minni
ákvað ég að
sækja um.
FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 2021 MORGUNBLAÐIÐ 13
Er kominn tími til
að gera eitthvað?
Styrkleikar
Þátttakendur fá tækifæri til að greina helstu styrkleika sína
og skoða leiðir til að nýta þá betur í daglegu lífi.
Rannsóknir benda til þess að aukin meðvitund um helstu
styrkleika okkar auki vellíðan okkar.
Bókhald, Excel og tölvubókhald
Farið er yfir grundvallaratriði og hugtök í bókfærslu og bókhaldi
fyrirtækja og einstaklinga. Þátttakendur læra færslu bókhalds
frá grunni og því ekki gert ráð fyrir forþekkingu og námskeiðið
nýtist einnig þeim sem hafa ákveðinn grunn fyrir.
ÚFF - Úr frestun í framkvæmd
Farið yfir ástæður frestunar, einkenni og afleiðingar. Fyrir
þá sem vilja hætta að fresta og fara að ná árangri í lífinu.
Jákvæð sálfræði
Almenn umfjöllun um jákvæða sálfræði og hvernig hún tengist
andlegri heilsu og vellíðan.
Í fókus - að ná fram því besta með
ADHD
Eykur skilning á ADHD (athyglisbresti/ofvirkni) og hvernig er
hægt að ná betri tökum á einkennum ADHD í daglegu lífi.
Næstu námskeið í boði hjá Hringsjá
Ég heiti
Svala Breiðfjörð
Arnardóttir
Ég er löggiltur bókari
hjá Hringsjá náms-
og starfsendur-
hæfingu.
Ég var nemandi í
Hringsjá náms- og
starfsendurhæfingu.
„Hringsjá breytti lífinu til hins betra.
Í dag er ég í draumastarfi og elska
að vakna á morgnana.“
Hringsjá býður úrval af öðru-
vísi og spennandi námskeiðum
sem hafa hjálpað mörgum að
komast aftur eða í fyrsta sinn
af stað til meiri virkni, meiri
lífsgæða og fleiri valkosta í
námi eða starfi.