Morgunblaðið - 15.01.2021, Page 17

Morgunblaðið - 15.01.2021, Page 17
FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 2021 MORGUNBLAÐIÐ 17 stuðningi frá skólanum, foreldrum og mikilli skuldsetningu og kom síðan heim og ákvað að ég þyrfti að skilja fjármál betur. Ég tók þess vegna grunn í hagfræði og endaði á að klára meistaragráðu í fjármálum fyrirtækja frá Há- skóla Íslands. Ég þurfti hins vegar að gera þetta í tveimur atrennum vegna þess að ég varð fyrir miklu áfalli þegar ég hóf nám í Háskóla Ís- lands eftir samanburð við FÍV og Embry Riddle. Mér fannst flestir kennarar mínir í há- skólanum mest uppteknir af pólitík á þeirri stundu. Þetta er á tíma þar sem stjórnlaga- þingskosningar vegna mögulegrar endurskoð- unar nýrrar stjórnarskrár voru í gangi og mikl- ar umræður um ESB-aðild höfðu verið í gangi. Margir kennarar voru uppteknir af þessu og létu nemendur finna fyrir því ef þeir voru ekki sammála. Ég man þegar ég ákvað að hætta í há- skólanum, það var eftir að einn kennarinn sendi póst á alla nemendur sína að segja þeim að kjósa bróður sinn til stjórnlagaþings. Ég fór í millitíðinni í nám í Lögregluskóla ríkisins sem mér þótti vera algjört toppnám og þegar ég var hálfnaður þar hélt ég áfram með námið við Há- skóla Íslands og að þessu sinni með minni vænt- ingar. Ég kláraði síðan hvort tveggja. Ég vil þó taka fram að ég tel ekki að þessi reynsla mín sé algild fyrir Háskóla Íslands eða kennara þar, heldur tel ég að ég hafi verið óheppinn og tekið nám þegar samfélagið var á óvenjulegum stað. Nokkrir af kennurunum við Háskóla Íslands eru þeir bestu sem ég hef fengið þannig að lit- rófið var breitt.“ Sér ekki eftir því að hafa farið í nám erlendis Hvers vegna ákvaðstu að fara utan í nám? „Ég geng í gegnum grunnskóla og fram- haldsskóla þegar það eru miklir kraftar að fara í gegnum skólakerfið á Íslandi um að passa upp á að enginn skari fram úr og lægsti samnefnari ráði ferðinni á menntun bekkjarins hverju sinni. Það mátti aldrei segja hverjir stóðu sig best og það mátti ekki fara á undan og það var eytt löngum stundum í að fara yfir heimanám og þetta voru þættir sem mér líkaði ekki. Ég kvart- aði og kvartaði yfir þessu heima hjá mér og á endanum sagði pabbi við mig að ef ég vildi kom- ast í svona samkeppnisumhverfi yrði ég að flytja til Bandaríkjanna. Ég tók karlinn á orð- inu, enda veit hann yfirleitt hvað hann syngur, og fór til Bandaríkjanna í grunnnám. Þetta var allt hárrétt hjá honum og það var reglulega til- kynnt hverjir væru efstir þarna úti og þeir fengu sem dæmi fundi með toppfyrirtækjum og -stofnunum sem leituðu til skólanna og spurðu um bestu nemendurna. Í gegnum slíkar teng- ingar var ég kominn með nokkrar áhugaverðar brautir fyrir framan mig eftir útskrift sem ég hefði líklega nýtt ef það hefði ekki orðið hrun á Íslandi og mér runnið blóðið til skyldunnar að fara heim og reyna að verða að einhverju liði í endurreisninni. Besta afrekskerfi sem ég hef þó fengið að taka þátt í var Bandaríkjaher. Allt sem þú gerðir var mælt og mælingarnar hengdar upp í herstöðinni hverju sinni. Þetta var hreinasta svokallaða umb- unarkerfi (e. meritocracy) sem ég hef nokkurn tímann fyrr eða síðar komist í. Þannig vissi maður alltaf hvar maður var staddur og við hvern maður var að keppa og hvað maður þyrfti að gera til að komast ofar. Tækifærum og aðgangi að störfum, styrkjum, leiðtogahlutverkum og fleiru var síðan úthlutað eftir skori og þess vegna virkilega gegn- sætt og skýrt hvernig maður stóð sig og gat kom- ist áfram. Sem ungum karlmanni á þessum tíma fannst mér þetta vera það besta sem hafði verið gert síðan brauðið var fyrst skorið. Mér var boðið 100 þúsund dollara bónus og ríkisborgararéttur við útskrift ef ég var tilbúinn að taka að mér ákveðið verkefni hjá þeim og það byggðist á skráðum árangri síðustu ára. Ég vildi ekki bjóða Guðnýju, sem þá var orðin eiginkona mín, upp á það líf að vera kona hermanns en það hefur alltaf setið í mér síðan ýmislegt sem ég lærði úr þessu afrekskerfi Bandaríkjahers. Staða drengja í ís- lenska menntakerfinu í dag er mjög veik, 34% þeirra útskrifast úr grunnskóla án þess að geta lesið sér til gagns og við höfum eitt lægsta hlutfall OECD á nýskráningum drengja í háskólanám og ég hef stundum hugsað til lærdómsins hjá Banda- ríkjaher þegar ég velti fyrir mér vandamálum drengja í skólakerfinu á Íslandi.“ Ýmislegt hægt að kenna í gegnum skólakerfið Tryggvi segir einnig áhugavert að kenna fólki í gegnum skóla að vera hreyfarar í samfélaginu. „Mér finnst áhugaverð sú fullvissa að þú get- ur breytt heiminum sem var hamrað inn í nem- endur, auðmýktin gagnvart því að gera sitt besta í að hjálpa öðrum að ná árangri og að- ferðafræðin að finna alltaf 20% sem munu hreyfa 80% sem hefur verið mantra í mínu lífi síðan. Gæðin á kennurunum voru líka mikil enda voru þeir metnir af nemendum og sam- kennurum á hverri önn í mjög umfangsmiklu ferli. Það er þó ákveðin hætta á einkunnaverð- bólgu í slíku kerfi en hún virðist þó eiga sér stað þegar þetta er ekki gert líka þannig að ef til vill er sú hætta ofmetin.“ Er menntun máttur? „Ekki spurning, en ég tel þó að í dag þurfi líka að bera meiri virðingu fyrir menntun sem á sér stað utan menntastofnana. Við lifum á þeim ótrúlegu tímum þar sem ég get ákveðið að læra að forrita tölvuleik og get fengið allar lexíur og leiðbeiningu sem ég þarf frítt í gegnum miðla eins og YouTube. Ef ég hef sjálfsaga, tíma og metnað get ég náð mér í heimsklassamenntun og reynslu án þess að ná mér í formlega framhaldsmenntun. Háskólagráða færir manni hins vegar annan mikilvægan ábata en bara gráðuna sjálfa og menntunina, sem er tengls- anetið. Í háskólanámi kynnistu fólki á svipuðum stað og þú í lífinu með svipuð áhugamál sem fer oft í svipuð verkefni. Slíkt tengslanet leiðir síðan hjá mörgum til vináttu og þá ertu heldur betur farin/n að uppskera fyrir lífstíð. Rétta mennt- unin á réttum tíma er að sjálfsögðu ómetanleg en hana getur þó verið að finna víðar en bara í skólastofu eins og við erum að læra hratt þessi misserin.“ Hvers vegna er mikilvægt að skilja það hvernig manneskjan hegðar sér að þínu mati? „Það gefur þér stórkostlegt forskot í lífinu að skilja hvernig aðrir og þú sjálfur stýrast af til- finningum, hafa það grunndrif að þjóna sjálfum sér umfram aðra og hvað það þýðir með tilliti til samkenndar, auðmýktar og sjálfsfórnar og að við höfum ekki heila sem kann vel að reikna töl- fræði með tilliti til svokallaðra hugsanahneigða og styttri leiða sem heilinn hefur í úrvinnslu- kerfum okkar. Án þess að hafa ágætis yfirgripsþekkingu í þessum efnum myndi ég telja að það væri tals- verð hætta á dýrum yfirsjónum í mannlegum samskiptum og mati á gæðum í eigin ákvarð- anatöku hverju sinni.“ Er ekki fullkominn frekar en annað fólk Er ekki aðeins öðruvísi fyrir þig að umgang- ast fólk eftir námið? „Fyrst þegar ég fór að máta fólk inn í þessa hegðunarferla alla sem námið lagði grunnskiln- ing að varð ég hræddur þegar ég sá hversu oft þetta reyndist gera fólk fyrirsjáanlegt en með tíma og því að kynnast fleiri einstaklingum sem eru þroskaðri en ég hef ég lært að lykilatriðið er að nálgast einstakling sem einstaka sköpun af auðmýkt, með samkennd og í kærleika og þá í raun skipta öll þessi varnarviðbrögð okkar og reiknikerfi svo litlu máli. Ég er samt sjálfur stórkostlega ófullkominn í þessu ferðalagi og ennþá algjört barn í þessum efnum. Þess vegna eru það svo mikil forréttindi að fá að fylgjast með og læra af öðrum og það er ekki hægt að gera af einlægni með árangri ef maður ætlar sér að ramma alla einstaklinga inn í einhver fyrir- frammótuð hegðunarmynstur því þau grípa bara þinn takmarkaða skilning hverju sinni. Það var í raun ekki fyrr en ég tók öll þessi verkfæri sem ég fékk í náminu og notaði þau til að lesa Biblíuna upp á nýtt og þá sérstaklega fjallræðu Jesú Krists í fimmta kafla Mattheus- arguðsjalls sem ég skildi hvað ég var hroka- fullur og blindur í bróðurparti af nálgun minni á náunga minn. Ég var alltaf voða duglegur að setja fólk í flokka og ákveða fyrirfram að þessi og hinn væru vitleysingar sem væru ekki virði þess að gefa tíma. Það var algjör rassskelling fyrir mig þegar ég áttaði mig á að þessi afstaða gerði mig minnstan meðal bræðra minna og systra.“ Nú veit ég að þú ert mjög listrænn líka, tak- ast þessi öfl á í þér eða lifa í sátt og samlyndi? „Ég uppgötvaði á síðasta ári að ég naut þess ekki lengur að semja tónlist eins og ég hafði áð- ur gert. Ég hætti þess vegna að semja tónlist og velti þessu fyrir mér í marga mánuði. Ég áttaði mig síðan á því að ég samdi oft út frá þeim vinkli að þegar ég gæfi þetta út myndi þetta láta mig líta vel út. Það er ekki lengur nærandi fyrir mig, þvert á móti. Þannig að núna er ég að reyna að skilja hvernig maður semur tónlist í auðmýkt. Vá hvað það er margt sem ég kann ekki. Ég óska eftir hjálp í þessum efnum.“ Árið aðeins öðruvísi en hann hélt það yrði Hvernig er árið 2020 búið að vera? „Ég sá frábæra tilvitnun um daginn sem lýsir því vel: „Árið 2020 var árið sem ég ætlaði að ná ár- angri á fullt af nýjum sviðum en endaði á að vera árið þar sem ég lærði að vera þakklátari fyrir allt sem ég á nú þegar Ég hef aldrei verið jafn mikið með börnunum mínum með einbeittari athygli en árið 2020. Í gegnum það ferli skildi ég enn betur að það er afskaplega lítið í lífinu sem er betri notkun á tíma mínum.“ Hvaða væntingar ertu með til ársins 2021? „Yfirskrift ársins í markmiðaskjalinu mínu fyrir árið er: verði þinn vilji og gæði. Ég ætla að gefa mér betri tíma í að hlusta á Guð og svo ætla ég að taka að mér færri verkefni en gera þau betur.“ Ef þú ættir eina ósk fyrir mannkynið – hver væri hún? „Að hver og einn einstaklingur fyndi ofur- kraftinn auðmýkt virka í lífi sínu og lifði í henni og færi í kjölfarið að lifa í græðandi samfélagi við kærleiksríkan Guð og skildi þar með af hverju við erum smíðuð eins og við erum smíðuð og uppskæri þannig djúpan frið, óslökkvandi gleði og tilgangsríkt sjálfsfórnandi líf fyrir aðra.“ Tryggvi fór í Lögreglu- skólann og hefur starfað í lögreglunni í Vestmannaeyjum. Tryggvi fór í ferðalag um Bandaríkin til að finna rétta háskólann fyrir sig. Tryggvi og Guðný eiginkona hans á 12 ára brúðkaupsafmæli sínu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.