Morgunblaðið - 15.01.2021, Page 19

Morgunblaðið - 15.01.2021, Page 19
FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 2021 MORGUNBLAÐIÐ 19 www.gilbert.is Hjá Gilbert úrsmið sérhæfum við okkur í úrsmíði, hönnun og framleiðslu úra Gítarinn ehf. Stórhöfði 27 - Sími 552 2125 www.gitarinn.is Verð við allra hæ Mikið úrval Hljómborð á tilboði alkann sinn sem sjúkan einstakling, en ekki eins og drullusokk.“ Björk segist ekki muna eftir að hafa hitt neinn Al-Anon-karl í starfi sínu og það hafi gert hana forvitna að fara að rannsaka þessi mál betur. „Þetta er upphafið á því að eftir að ég fór á eftirlaun hóf ég nám í mann- fræði þar sem ég skoðaði þessi mál ofan í kjölinn. Það sem ég komst að út frá bandarískum rannsóknum og gögnum er að 85% þeirra sem stunda Al-Anon í Bandaríkjunum eru konur. Það eru ekki gerðar at- huganir á þessu hér heima en ég er nokkuð viss um að hlutföllin séu svipuð hér og þar. Að sjálfsögðu hitti ég alveg ynd- islega menn sem studdu konurnar sínar, en mér fannst öðruvísi að mæta konum í áfengisvanda en körl- um. Þær voru með meiri skömm og þessa hugmynd að konur ættu ekki að vera með þetta vandamál. Þær komu seinna en karlarnir og virtust ekki ná bata að sama marki og þeir. Ég fann svo til með mörgum af þess- um konum, sem voru með sjálfs- myndina sína í kjallaranum. Þetta sat í mér og því var ég með rann- sóknarspurningu í kollinum þegar ég skráði mig í mannfræði sem mig langaði að svara sem var: Af hverju gengur konunum svona illa að ná edrúmennsku miðað við karlana?“ Vildi skilja betur hvernig konur komust í bata Björk segir lokaverkefni sitt í BA- náminu hafa fjallað um konur sem höfðu náð árangri frá alkóhólisma. Hún fann þessar konur í Háskóla Ís- lands og gerði eigindlega rannsókn þar sem hún spurði þær út í bata- gönguna þeirra. „Þessar konur byrjuðu ungar, en fundu að það var ekkert líf að lifa í virkri fíkn. Þær komust í gegnum grunnskóla, menntaskóla og áfram í háskóla og fannst það fínt því þær gátu drukkið með náminu sínu. Þær fundu leið til að hætta, fóru í AA og héldu sér edrú þannig. Ég komst að því að mörgum þeirra þótti erfitt að vera í AA, en það ku vera búið að opna fleiri kvennadeildir þar, sem ég held að geri konunum gott. Ég var alltaf með þá hugmynd í kollinum að móðurtilfinningin væri sterkari en fíknin, en þær sögðu ekki svo vera. Að þær hefðu bara komið börnunum fyrir í pössun og svo dott- ið í það. Ég ákvað svo að skoða að- standendur alkóhólista í meistara- verkefninu mínu, þar eð stúlkurnar sem ólust upp með foreldrum í virkri fíkn. Það sem ég komst að í þeirri rann- sókn var að þeim stúlkum sem fóru í Al-Anon vegnaði betur í lífinu en öðrum.“ Björk segir að Al-Anon-konurnar séu ótrúlega sjálfstæðar og sterkar og þær séu höfuð fjölskyldu sinnar. Þær sem halda fjölskyldunni saman og gefa bata sinn áfram til barnanna sinna. „Í doktorsverkefninu mínu skoð- aði ég hvernig sýndi ég fram á hvernig þær breyta persónuleika sínum hægt og rólega með 12 spor- unum og verða æðislega flottar og raunsæjar og það sem heillaði mig svo mikið var hvað þær voru rólegar. 12 sporin kenna fólki að tala og tjá sig en kenna fólki einnig að hlusta. Ég upplifi þessar konur með báða fæturna á jörðinni, þær verða svaka- lega flottir yfirmenn og ná langt í líf- inu, svo framarlega sem þær halda sér í prógramminu.“ Al-Anon-konurnar heilluðu Björk segir að það séu allskonar leiðir fyrir aðstandendur að ná sér í bata, hugræn atferlismeðferð sé ein þeirra en það sé í skamman tíma, en Al-Anon sé langtímaleið. „Ég talaði við eldri konur í Al- Anon og þær yngri líka. Það sem heillaði mig mest við að tala við þessa einstaklinga sem voru að vinna í sér í 12 sporunum var hvað þau komu batanum sínum áfram á komandi kynslóðir innan fjölskyldunnar. Einnig náðu þær að koma batanum sínum stundum á aðra einstaklinga í samfélaginu, svo hægt og rólega færist meðalið út á meðal fólks.“ Sjálf hefur Björk aldrei verið í 12 sporunum og fjallar um viðfangs- efnið út frá fræðilegum grunni. Nú eru mismunandi kenningar um alkóhólisma og vilja sumir meina að það sé sjúkdómur á meðan aðrir segja að stjórnleysið megi rekja til áfalla. Hverju trúir þú? „Ég held að það sé nauðsynlegt að setja þetta undir flokk með sjúk- dómum, út frá praktískum sjónar- miðum, þar sem þá er auðveldara að fá fjármagn í málaflokkinn. Ég trúi því að þetta sé bæði sjúkdómur en einnig áföll og tel ég ekki eitt útiloka annað. Ég hef átt samtal um þetta við Kára Stefánsson sem sagði mér að hann ætlaði að finna fíknigenið. Ég held að það hafi reynst honum erfitt, en ég tel stöðuga framþróun og vangaveltur um leiðir í bata mik- ilvægar. Það sem við verðum einnig að muna er að ef við setjum þetta undir sjúkdóm, þá getum við auð- veldara breytt viðhorfi fólks til málaflokksins. Sjúklingarnir sem ég sinnti alla mína starfsævi voru ekki drullusokkar, heldur veikt fólk sem var að gera sitt allra besta. Það voru allir með sína sögu, en ég get skrifað undir að það var enginn vondur í eðli sínu eða vildi vera veikur af því sem þeir voru að fást við.“ Björk segist aðhyllast kenningar um að samfélagið skipti máli þegar kemur að veiku fólki. Þá langar hana að minnast á mikilvægi þess að við sem samfélag samþykkjum að konur geti veikst af alkóhólisma og þurfum við að hlúa að þeim og vera með jákvætt viðhorf til þeirra svo þær komist betur í bata. „Konur eiga að vera svo heilagar. Þær eiga ekki að vera fyllibyttur, sem er ástæðan fyrir því að ég held að þær komi of seint og allt of marg- ar konur deyja úr sjúkdóminum. Eins hlýtur að skipta máli að karlar leiti sér aðstoðar í Al-Anon líkt og konur gera. Ef það eykur líkurnar á bata fyrir alkóhólistann og fjölskyld- una. Al-Anon-konurnar þorðu að hafa skoðun og að rökræða í stað þess að halda kjafti og ég held að það sé jákvætt inn í svona flóknar aðstæður. Eins fannst mér gaman að fylgj- ast með því hvað Al-Anon-konurnar voru fjárhagslega sjálfstæðar og flottar.“ Er að syrgja manninn sinn sem dó á síðasta ári Björk varði doktorsritgerðina sína 78 ára að aldri og því er áhuga- vert að vita hvaða skoðun hún hef- ur á menntun fyrir fólk á sínum aldri. „Já mér finnst æðislegt að læra á öllum aldri og mér finnst fólk ekkert þurfa að drífa sig í þessum málum. Ef maður ætlar að gera hlutina vel þá er í lagi að þeir taki svolítinn tíma. Svo má maður aldrei gleyma að njóta hlutanna líka.“ Árið 2020 hefur reynt meira en mörg ár á Björk þar sem hún missti eiginmann sinn, Jón Hall Jóhannsson, í maímánuði úr alz- heimer. Hún er dugleg að fara út að ganga og huga að sjálfri sér en saknar ástarinnar sinnar mikið og er að gefa sér tíma í að syrgja hann. „Ég fer í sorgargöngutúra dag- lega og er að bíða eftir því að komast að hjá Sorgarmiðstöðinni. Því þær geta ekki byrjað þar vegna kórónu- veirunnar. Ég er að hlúa að mér og mig langar að taka minn tíma til þess, svo þegar ég hef náð mér á strik aftur, þá ætla ég að taka ákvörðun um hvað ég geri við lífið mitt og hvernig ég fer inn í framtíð- ina.“ Björk segir að starfið sem hún til- einkaði því að hjálpa öðrum hafi gef- ið henni margfalt til baka. Að hún hefði aldrei kunnað að sinna mann- inum sínum svona veikum ef henni hefði ekki hlotnast það að vinna við það sem hún gerði. „Vegna sjúkdómsins var mað- urinn minn hættur að geta talað. Við áttum innilegt samband fram á síð- asta dag og þó hann gæti ekki talað við mig alltaf, þá talaði ég við hann rétt eins og hann væri ekki veikur. Ætli það sé ekki þjálfunin sem ég fékk í gegnum starfið mitt, að sjá það heila og fallega í hverri per- sónu.“ Hún segir lykilinn að góðu ást- arsambandi það að vanda valið á makanum sínum. „Að elska einstakling eins og hann er og að vera elskaður fyrir hvað maður er, er ást í mínum huga. Ég og maðurinn minn vorum ekki endi- lega alltaf á sömu skoðun, en við vor- um með sömu gildi og kunnum að meta hvort annað.“ Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson Ég fer í sorgargöngu- túra daglega og er að bíða eftir því að kom- ast að hjá Sorgarmið- stöðinni. Því þær geta ekki byrjað þar vegna kórónuveirunnar. Ég er að hlúa að mér og mig langar að taka minn tíma til þess, svo þegar ég hef náð mér á strik aftur, þá ætla ég að taka ákvörðun um hvað ég geri við lífið mitt og hvernig ég fer inn í framtíðina. „Kjarkur til að breyta“, er nafnið á ritgerð Bjarkar Guðjóns- dóttur í doktorsnámi sínu í mannfræði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.