Morgunblaðið - 15.01.2021, Síða 19
FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 2021 MORGUNBLAÐIÐ 19
www.gilbert.is
Hjá Gilbert úrsmið sérhæfum
við okkur í úrsmíði, hönnun
og framleiðslu úra
Gítarinn ehf.
Stórhöfði 27 - Sími 552 2125
www.gitarinn.is
Verð við allra hæ
Mikið úrval
Hljómborð
á tilboði
alkann sinn sem sjúkan einstakling,
en ekki eins og drullusokk.“
Björk segist ekki muna eftir að
hafa hitt neinn Al-Anon-karl í starfi
sínu og það hafi gert hana forvitna
að fara að rannsaka þessi mál betur.
„Þetta er upphafið á því að eftir að
ég fór á eftirlaun hóf ég nám í mann-
fræði þar sem ég skoðaði þessi mál
ofan í kjölinn. Það sem ég komst að
út frá bandarískum rannsóknum og
gögnum er að 85% þeirra sem
stunda Al-Anon í Bandaríkjunum
eru konur. Það eru ekki gerðar at-
huganir á þessu hér heima en ég er
nokkuð viss um að hlutföllin séu
svipuð hér og þar.
Að sjálfsögðu hitti ég alveg ynd-
islega menn sem studdu konurnar
sínar, en mér fannst öðruvísi að
mæta konum í áfengisvanda en körl-
um. Þær voru með meiri skömm og
þessa hugmynd að konur ættu ekki
að vera með þetta vandamál. Þær
komu seinna en karlarnir og virtust
ekki ná bata að sama marki og þeir.
Ég fann svo til með mörgum af þess-
um konum, sem voru með sjálfs-
myndina sína í kjallaranum. Þetta
sat í mér og því var ég með rann-
sóknarspurningu í kollinum þegar
ég skráði mig í mannfræði sem mig
langaði að svara sem var:
Af hverju gengur konunum svona
illa að ná edrúmennsku miðað við
karlana?“
Vildi skilja betur hvernig
konur komust í bata
Björk segir lokaverkefni sitt í BA-
náminu hafa fjallað um konur sem
höfðu náð árangri frá alkóhólisma.
Hún fann þessar konur í Háskóla Ís-
lands og gerði eigindlega rannsókn
þar sem hún spurði þær út í bata-
gönguna þeirra.
„Þessar konur byrjuðu ungar, en
fundu að það var ekkert líf að lifa í
virkri fíkn. Þær komust í gegnum
grunnskóla, menntaskóla og áfram í
háskóla og fannst það fínt því þær
gátu drukkið með náminu sínu. Þær
fundu leið til að hætta, fóru í AA og
héldu sér edrú þannig. Ég komst að
því að mörgum þeirra þótti erfitt að
vera í AA, en það ku vera búið að
opna fleiri kvennadeildir þar, sem ég
held að geri konunum gott.
Ég var alltaf með þá hugmynd í
kollinum að móðurtilfinningin væri
sterkari en fíknin, en þær sögðu ekki
svo vera. Að þær hefðu bara komið
börnunum fyrir í pössun og svo dott-
ið í það. Ég ákvað svo að skoða að-
standendur alkóhólista í meistara-
verkefninu mínu, þar eð stúlkurnar
sem ólust upp með foreldrum í virkri
fíkn.
Það sem ég komst að í þeirri rann-
sókn var að þeim stúlkum sem fóru í
Al-Anon vegnaði betur í lífinu en
öðrum.“
Björk segir að Al-Anon-konurnar
séu ótrúlega sjálfstæðar og sterkar
og þær séu höfuð fjölskyldu sinnar.
Þær sem halda fjölskyldunni saman
og gefa bata sinn áfram til barnanna
sinna.
„Í doktorsverkefninu mínu skoð-
aði ég hvernig sýndi ég fram á
hvernig þær breyta persónuleika
sínum hægt og rólega með 12 spor-
unum og verða æðislega flottar og
raunsæjar og það sem heillaði mig
svo mikið var hvað þær voru rólegar.
12 sporin kenna fólki að tala og tjá
sig en kenna fólki einnig að hlusta.
Ég upplifi þessar konur með báða
fæturna á jörðinni, þær verða svaka-
lega flottir yfirmenn og ná langt í líf-
inu, svo framarlega sem þær halda
sér í prógramminu.“
Al-Anon-konurnar heilluðu
Björk segir að það séu allskonar
leiðir fyrir aðstandendur að ná sér í
bata, hugræn atferlismeðferð sé ein
þeirra en það sé í skamman tíma, en
Al-Anon sé langtímaleið.
„Ég talaði við eldri konur í Al-
Anon og þær yngri líka.
Það sem heillaði mig mest við að
tala við þessa einstaklinga sem voru
að vinna í sér í 12 sporunum var
hvað þau komu batanum sínum
áfram á komandi kynslóðir innan
fjölskyldunnar. Einnig náðu þær að
koma batanum sínum stundum á
aðra einstaklinga í samfélaginu, svo
hægt og rólega færist meðalið út á
meðal fólks.“
Sjálf hefur Björk aldrei verið í 12
sporunum og fjallar um viðfangs-
efnið út frá fræðilegum grunni.
Nú eru mismunandi kenningar
um alkóhólisma og vilja sumir meina
að það sé sjúkdómur á meðan aðrir
segja að stjórnleysið megi rekja til
áfalla. Hverju trúir þú?
„Ég held að það sé nauðsynlegt að
setja þetta undir flokk með sjúk-
dómum, út frá praktískum sjónar-
miðum, þar sem þá er auðveldara að
fá fjármagn í málaflokkinn. Ég trúi
því að þetta sé bæði sjúkdómur en
einnig áföll og tel ég ekki eitt útiloka
annað. Ég hef átt samtal um þetta
við Kára Stefánsson sem sagði mér
að hann ætlaði að finna fíknigenið.
Ég held að það hafi reynst honum
erfitt, en ég tel stöðuga framþróun
og vangaveltur um leiðir í bata mik-
ilvægar. Það sem við verðum einnig
að muna er að ef við setjum þetta
undir sjúkdóm, þá getum við auð-
veldara breytt viðhorfi fólks til
málaflokksins. Sjúklingarnir sem ég
sinnti alla mína starfsævi voru ekki
drullusokkar, heldur veikt fólk sem
var að gera sitt allra besta. Það voru
allir með sína sögu, en ég get skrifað
undir að það var enginn vondur í
eðli sínu eða vildi vera veikur af því
sem þeir voru að fást við.“
Björk segist aðhyllast kenningar
um að samfélagið skipti máli þegar
kemur að veiku fólki.
Þá langar hana að minnast á
mikilvægi þess að við sem samfélag
samþykkjum að konur geti veikst af
alkóhólisma og þurfum við að hlúa
að þeim og vera með jákvætt viðhorf
til þeirra svo þær komist betur í
bata.
„Konur eiga að vera svo heilagar.
Þær eiga ekki að vera fyllibyttur,
sem er ástæðan fyrir því að ég held
að þær komi of seint og allt of marg-
ar konur deyja úr sjúkdóminum.
Eins hlýtur að skipta máli að karlar
leiti sér aðstoðar í Al-Anon líkt og
konur gera. Ef það eykur líkurnar á
bata fyrir alkóhólistann og fjölskyld-
una. Al-Anon-konurnar þorðu að
hafa skoðun og að rökræða í stað
þess að halda kjafti og ég held að
það sé jákvætt inn í svona flóknar
aðstæður.
Eins fannst mér gaman að fylgj-
ast með því hvað Al-Anon-konurnar
voru fjárhagslega sjálfstæðar og
flottar.“
Er að syrgja manninn sinn
sem dó á síðasta ári
Björk varði doktorsritgerðina
sína 78 ára að aldri og því er áhuga-
vert að vita hvaða skoðun hún hef-
ur á menntun fyrir fólk á sínum
aldri.
„Já mér finnst æðislegt að læra á
öllum aldri og mér finnst fólk ekkert
þurfa að drífa sig í þessum málum.
Ef maður ætlar að gera hlutina
vel þá er í lagi að þeir taki svolítinn
tíma.
Svo má maður aldrei gleyma að
njóta hlutanna líka.“
Árið 2020 hefur reynt meira en
mörg ár á Björk þar sem hún
missti eiginmann sinn, Jón Hall
Jóhannsson, í maímánuði úr alz-
heimer. Hún er dugleg að fara út
að ganga og huga að sjálfri sér en
saknar ástarinnar sinnar mikið og
er að gefa sér tíma í að syrgja
hann.
„Ég fer í sorgargöngutúra dag-
lega og er að bíða eftir því að komast
að hjá Sorgarmiðstöðinni. Því þær
geta ekki byrjað þar vegna kórónu-
veirunnar. Ég er að hlúa að mér og
mig langar að taka minn tíma til
þess, svo þegar ég hef náð mér á
strik aftur, þá ætla ég að taka
ákvörðun um hvað ég geri við lífið
mitt og hvernig ég fer inn í framtíð-
ina.“
Björk segir að starfið sem hún til-
einkaði því að hjálpa öðrum hafi gef-
ið henni margfalt til baka. Að hún
hefði aldrei kunnað að sinna mann-
inum sínum svona veikum ef henni
hefði ekki hlotnast það að vinna við
það sem hún gerði.
„Vegna sjúkdómsins var mað-
urinn minn hættur að geta talað. Við
áttum innilegt samband fram á síð-
asta dag og þó hann gæti ekki talað
við mig alltaf, þá talaði ég við hann
rétt eins og hann væri ekki veikur.
Ætli það sé ekki þjálfunin sem ég
fékk í gegnum starfið mitt, að sjá
það heila og fallega í hverri per-
sónu.“
Hún segir lykilinn að góðu ást-
arsambandi það að vanda valið á
makanum sínum.
„Að elska einstakling eins og hann
er og að vera elskaður fyrir hvað
maður er, er ást í mínum huga. Ég
og maðurinn minn vorum ekki endi-
lega alltaf á sömu skoðun, en við vor-
um með sömu gildi og kunnum að
meta hvort annað.“
Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson
Ég fer í sorgargöngu-
túra daglega og er að
bíða eftir því að kom-
ast að hjá Sorgarmið-
stöðinni. Því þær geta
ekki byrjað þar vegna
kórónuveirunnar. Ég
er að hlúa að mér og
mig langar að taka
minn tíma til þess,
svo þegar ég hef náð
mér á strik aftur, þá
ætla ég að taka
ákvörðun um hvað ég
geri við lífið mitt og
hvernig ég fer inn í
framtíðina.
„Kjarkur til að breyta“,
er nafnið á ritgerð
Bjarkar Guðjóns-
dóttur í doktorsnámi
sínu í mannfræði.