Morgunblaðið - 15.01.2021, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 15.01.2021, Qupperneq 20
H afa þarf í huga að háskólapróf í listum og skap- andi greinum er tiltölulega ungt fyrirbæri og ég held að það sé nú flestum ljóst að í listum skiptir meira máli hvað þú gerir en hvort þú hafir próf- gráðu. Þrátt fyrir að vera ekki ánægður með allt hef ég hins tekið fullan þátt í því að byggja upp og skapa list- nám á háskólastigi undanfarin 25 ár og það þýðir markviss rannsóknarvinna sem einkennir bæði vísindamenn og lista- menn sem skara fram úr. Sú rannsóknarvinna sem ég er að vinna að er íslensk myndmálssaga,“ segir Goddur. Á árinu 2020 og fram á þetta ár hefur námið að miklu leyti farið fram í fjarkennslu á netinu. Hvernig upplifir þú það? „Gott skólahald eins og ég hef upplifað það er hvorki fugl né fiskur þegar það fer fram í gegnum netið. Það má ekki gleyma því að svo stór partur af námi er að læra af skóla- félögum. Þegar ég var í námi lærði ég meira af skólafélögum mínum en kennurum eða alla vega í þessum tæknilegu fag- greinum. Við vorum ófeimin við að spyrja félaga okkar. Það eru kannski þrír kennarar af að minnsta kosti eitt hundrað kennurum sem standa upp úr en það voru kennarar sem kveiktu ljósið, veittu innblástur þegar þeir fóru á flug. Mesta nándin var samt ekki endilega í skólastofum heldur frekar á námsferðalögum, á kaffihúsum og svoleiðis,“ segir Goddur og hlær. Heiðarleikinn kemur fólki lengra Hann segir að bestu kennararnir hafi verið þeir sem höfðu eitthvað að gefa af sér og voru sannir. „Það finna allir fyrir tilgerð og uppskafningshætti. Það er ekki hægt að hafa einkarétt á hugmyndum en það er hægt að hafa einkarétt á útfærslum. Þeir sem eru sannir sjálfum sér og ná því að hafa það sem persónueinkenni verða þeir sem við köllum listamenn. Það góða við sannleikann er að maður þarf ekki að leggja hann á minnið. Það sem gerist ef fólk er heiðarlegt og trúverðugt er að það kveikir áhuga hjá öðrum. Listamenn, rithöfundar og ljóðskáld verða að hafa innstæðu. Ég á ekki við stórasannleika með prédikun, heldur þegar fólk talar út frá sjálfu sér, hjarta sínu, innsæi sínu og gefur af sér,“ segir hann. Nútímasamfélag breytist hratt þessa dagana vegna staf- rænnar þróunar. Goddur bendir á að það sé margt sem sé varla lengur til sem stofnanir í föstu formi í okkar samfélagi eins og til dæmis bankar. Nú sé hægt að ná sér í alla heimsins þekk- ingu í gegnum netið en það breyti því ekki að manneskjan er félagsvera sem þurfi and- rúmsloft samtals og nærveru í raunheimi. „Þetta andrúmsloft sem er svo hvetjandi og skapandi virkar ekki eins á tölvuskjám. Þegar skólarnir eru komnir á netið vakna spurningar eðlilega um hvort við höfum eitthvað með þá að gera í raunheimi,“ segir hann og nefnir að þegar fólk hittist í gegnum Teams eða eitthvað í þeim dúr fari fólk að velta fyrir sér öðrum hlutum eins og hvernig umhverfi fólks sé á þessum fundum. Hvernig er heima hjá fólki? Goddur seg- ist sakna þess að finna grúvið í samskiptum sem eiga sér stað maður á mann eða í hóp. Hann bendir líka á að skólar hafi orðið til á tímum Friðriks mikla Prússakeisara. Hann muni „Það er lágmenn- ing að snobba“ Guðmundur Oddur Magnússon eða Goddur eins og hann er yfirleitt kallaður er líklega eini rannsóknarprófessor í háskólasamfélaginu sem er ekki með há- skólapróf. Hann segir að allt grúv tapist í gegnum fjarkennslu og að fólk læri oft meira af skólafélögum sínum en kennurum. Marta María | mm@mbl.is Vandamálið við þetta er að þú getur bara mælt það sem er og var en ekki ófæddan mögulegan raunveru- leika. Við þurfum að endurvekja kvenlegt innsæi. Stýrið inn í framtíðina byggist á innsæi og tilfinninga- greind. Goddur hefur síðustu 25 ár starfað við Listaháskóla Íslands þótt hann sé ekki með háskólapróf sjálfur. 20 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 2021

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.