Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.01.2021, Síða 8

Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.01.2021, Síða 8
Ég geri það um hver áramót aðsetja mér markmið fyrir hiðnýja ár, skrifa þau niður og geng svo tryggilega frá blaðinu. Oftar en ekki týnast þau blöð, en sum hef ég fundið og það er magn- að að á þeim sem ég týni rætast öll markmið mín, minna á hinum sem ég finn,“ segir Gylfi Þór Þor- steinsson, forstöðumaður Farsótt- arhússins. „Eitt af markmiðum mínum á hverju ári er að vera duglegri; dug- legri í hestunum, duglegri að sinna vinunum eða duglegri að njóta þess sem lífið hefur upp á að bjóða. Hingað til hefur mér bara tekist að njóta lífsins,“ segir hann. „Eitt helsta markmið ársins er að loka farsóttarhúsum. Það er ekki alveg undir mér komið en sum markmið þurfa að vera þannig að maður þurfi að teygja sig til stjarn- anna. Svo er líka gott að teygja sig, það tekur spennu úr bakinu og er sú líkamsrækt sem ég stunda mest fyrir utan hestamennskuna. Það er fátt hollara en að moka skít, þar er önnur hreyfing sem heldur manni í formi og tæmir algerlega hugann.“ Spurður hvers vegna hann hafi þessi markmið á nýju ári svarar Gylfi: „Ef okkur tekst að loka farsóttarhúsum þýðir það að Covid hefur tapað og þar sem ég er mikill keppnismaður er það helsta mark- miðið, þýðir reyndar að ég þurfi að leita á önnur mið varðandi atvinnu en sem fyrrverandi hármódel kem- ur alltaf eitthvað nýtt og spennandi upp í hendurnar á manni.“ 500 sýktir í vinnunni Var eitthvað á kórónuárinu mikla 2020 sem fékk þig til að endur- skoða lífið eða markmið framtíð- arinnar? „Eftir að hafa umgengist um 500 Covid-sýkta einstaklinga á árinu og fáa aðra hef ég komist að því að vinir mínir, sem ég hef nánast ekk- ert séð, eru þrælskemmtilegt fólk og ætla ég því að láta verða af því að umgangast þá meira. En við það að vera svona mikið einn, sem er svo sem ágætt líka, þjálfast maður í að sýna þolinmæði sem og kynnast öllum hliðum sjálfs sín. Ég lærði fyrir þó nokkrum árum að lífið er hverfult, og því skal lifa hvern dag eins og hann sé sá dýrmætasti. Sú reynsla og sá lærdómur fær mig til að vakna hvern dag með bros á vör og sofna brosandi líka. Las það ein- hvern tíma á Smartlandinu að bros væri besta meðal við hrukkumynd- un, svo ég reyni að sofa brosandi á milli þess sem ég geri öndunar- æfingar í svefni, sem sumir kalla hrotur. Ég er ekki frá því að ég vakni unglegri á hverjum morgni.“ Gylfi fyllti fimmta tuginn á árinu og segir það hafa komið sér á óvart. „Ég er ekki mjög glöggur á tíma þótt ég sé stundvís engu að síður. Ég tók að mér verkefni sem er Farsóttarhús, það vissi enginn hvað eða hvernig það átti að vera svo ég hafði nokkuð frítt spil með það hvernig og hvaða aðferðum öðrum en sóttvörnum yrði háttað og það hefur gengið mjög vel. Ég hef opnað sex mismunandi hús á þremur stöðum á landinu og hjá okkur hafa verið um eitt þúsund manns, og eins og fyrr segir um helmingur þeirra sýktur af Covid-19. En starfið var líka erfitt. Það var erfitt að fara með unga ekkju upp í líkhús að kveðja unn- usta sinn, sýkta af veirunni, það er erfitt að hlúa að fólki sem veit ekk- ert um hvaða afleiðingar sjúkdóm- urinn hefur og það er erfitt að hafa fá svör til fólks sem er hrætt um heilsu sína og afleiðingar veikinda. Starfið var þó engu að síður mjög gefandi og skemmtilegt fyrir mig. Ég var á hillu sem ég kunni vel við mig á, þótt aldrei hafi ég unnið jafn margar vinnustundir eins og ein- mitt á árinu 2020 en skráðar vinnu- stundir nálgast fjórða þúsundið, allan sólarhringinn.“ Náðir mér ekki skratti Hvað er það fyrsta sem þú ætlar að gera þegar þú ert bólusettur? „Ég veit ekki hvenær ég verð bólusettur en þegar það gerist mun ég hugsa tvennt. Annars vegar: „þú náðir mér ekki skrattinn þinn“ og eins hitt að ég vona að ég sofni ekki og byrji að hrjóta þessar tutt- ugu mínútur sem ég þarf að sitja kyrr og láta fylgjast með mér.“ Gylfi er bjartsýnn á nýju ári. „Ef okkur tekst að útrýma Covid úr samfélaginu, loka farsóttar- húsum og getum tekið til við að tjútta þegar okkur langar til, þá verður þetta frábært ár. Það er reyndar þannig með tímann, það er undir okkur komið hvað við gerum við hann, hvernig við nýtum hann og hvernig við leyfum okkur að upplifa hann. Jafnvel á okkar verstu stundum er hægt að læra eitthvað jákvætt, brosa og minna okkur á að lífið er eins og við spil- um úr því, þrátt fyrir erfiðleika og mótbyr. Þetta verður gott og skemmtilegt ár.“ GYLFI ÞÓR ÞORSTEINSSON Fátt hollara en að moka skít NÝTT ÁR 8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.1. 2021 Áramótaheitin 2021! Nýtt ár er runnið upp og margir sem strengja áramótaheit eða setja sér ný markmið. Morgunblaðið bað nokkra þekkta Íslendinga að segja frá sínum heitum og markmiðum og um leið velta fyrir sér lífinu á þessum skrítnu tímum. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Það er svona upp og ofan hvort égstrengi áramótaheit eða ekki,en ég lít alltaf yfir farinn veg og skoða hvað ég gerði á árinu sem var að líða og hvað ég vil leggja áherslu á á því næsta,“ segir leik- og söngkonan Jóhanna Vigdís spurð hvort hún strengi áramótaheit. „Áramót fylla mig alltaf bjartsýni – nýtt upphaf og maður hefur alltaf möguleikann á að gera betur,“ segir hún. „Einhverju sinni strengdi ég ára- mótaheit um að minnka sjónvarpsgláp. Ég stóð svo sem alveg við það en jók bara samfélagsmiðlanotkun á móti, þannig að það féll eiginlega um sjálft sig.“ Að kæla og væla Hver eru markmiðin fyrir árið 2021? „Markmiðið í ár er að gera eitthvað nýtt í hverjum mánuði, eitthvað sem ég hef ekki gert áður. Við hjónin ætl- um að gera það saman. Við erum nú þegar búin að ákveða hvað við gerum í janúar, en það er „Hættu að væla komdu að kæla“-námskeið og ég er komin með kvíðahnút í magann! Spurning hvort maður megi væla á meðan maður er að kæla!“ Jóhanna segir ástæðuna fyrir þess- um markmiðum vera þá að hún eigi það til að vera frekar vanaföst og heimakær og þurfi stundum að skora sjálfa sig á hólm. Var eitthvað á árinu 2020 sem fékk þig til að endurskoða markmið fram- tíðarinnar? „Já, ég myndi segja að markmið mín fyrir árið 2021 séu engin tilviljun. Það hægðist svolítið á öllu á síðasta ári og það ýtti á mig að hafa það í huga að líf- ið er stórkostleg gjöf og maður á að njóta alls þess sem það hefur upp á að bjóða á meðan maður getur,“ segir hún og bætir við: „Það sem stendur upp úr frá 2020 er hvað við fjölskyldan erum orðin nánari og vorum við nú alveg ná- in fyrir. Mínar bestu stundir á árinu voru þegar við hjónin áttum í enda- lausum samræðum við syni okkar um allt og ekki neitt og öll hlátursköstin sem enduðu stundum í einhverri al- gjörri vitleysu. Ég er líka afskaplega stolt af því hvernig strákarnir mínir hafa höndlað þetta ár, sem hefur kennt þeim auðmýkt og þolinmæði. Árið hef- ur líka gert mig viðkvæmari, það er ansi stutt í kvikuna stundum og ég er haldin einhverjum kosmískum kær- leika, sem ég vissi ekki að ég ætti til.“ Ætla að knúsa mömmu Jóhanna veit nákvæmlega hvað hún ætlar að gera fyrst þegar hún fær bólusetningu. „Ég ætla að knúsa móður mína um leið og ég má!“ Hvernig verður 2021? „Ég held að 2021 verði gott ár, ég er svo mikil bjartsýnismanneskja. Það verður margt öðruvísi en áður og ég vona að við berum gæfu til að notfæra okkur það góða sem þetta ár færði okkur. Við þurfum ekki að fara á enda- lausar ráðstefnur og fundi til útlanda; við getum að minnsta kosti fækkað ferðunum talsvert. Ég held að síðasta ár hafi kennt okkur að kunna að meta betur fólkið okkar og vini. Ég ætla að reyna að sinna minni fjölskyldu og vin- um meira á næsta ári og segja oftar já við hugmyndum. Við vitum hvort eð er ekkert hvað framtíðin ber í skauti sér!“ JÓHANNA VIGDÍS ARNARDÓTTIR Kosmískur kærleikur Sendiherra Íslands í Kaupmanna-höfn, Helga Hauksdóttir, segistí raun ekki strengja áramóta- heit, þótt hún lofi sjálfri sér oft bót og betrun. „Það er alveg týpískt eftir hátíð- arnar, þegar maður er örmagna af áti á alls konar mat og góðgæti, að maður heitir sér því að hefja nýtt og betra líf við fyrsta tækifæri, líf með hollara mataræði og meiri hreyfingu. Slík áform halda yfirleitt hjá mér eitthvað fram eftir janúar og svo fer áherslan á eitthvað annað,“ segir hún. „Fyrir næstum áratug fór ég fyrir tilviljun á skriðsundsnámskeið og skömmu síðar og fyrir aðra tilviljun fór ég að mæta á sundæfingar hjá Sund- félagi Hafnarfjarðar. Ég verð að taka fram að ég hef aldrei verið nein íþróttatýpa, en hef stundað hreyfingu í heilsubótarskyni lengi. En þarna gekk ég skrefinu lengra og var orðin skráð- ur meðlimur í íþróttafélagi, sem út af fyrir sig var athyglisvert. Og sundið hef ég stundað síðan og sett mér alls konar markmið í því. Þarna leiddi ákveðin tilviljun mig að virkilega góð- um vana, en þetta hefði líka getað ver- ið háleitt markmið og áramótaheit,“ segir Helga. „Almennt er ég nokkuð sátt við hvernig ég haga mínu lífi og hef ekki fundið sérstaka þörf til að umbylta neinu þar. Árið 2020 var ekki öðruvísi fyrir mig að því leyti en flest önnur ár. Maður lærði kannski að njóta litlu hlutanna meira og veita þeim meiri at- hygli, það gladdi mig meira en í venju- legu ári þegar vorið kom og gróðurinn lifnaði við. Ég bætti mig talsvert í dönsku og danski orðaforðinn hefur nú að geyma alls konar orð tengd smit- sjúkdómum og heimsfaraldri. Og svo varð maður mjög meðvitaður um handþvott og að halda fjarlægð. En kannski er þyngsta lexían á árinu sú að persónulegt athafnafrelsi manns er mjög dýrmætt, það finnur maður þeg- ar það sætir takmörkunum, eins og sóttvarnaráðstafanir óneitanlega hafa ýtt undir,“ segir Helga og segir að ýmsum verkefnum og viðburðum sem átti að halda á árinu 2020 í sendiráðinu hafi þurft að fresta. Nóg að gera í sendiráðinu „Þótt kórónufaraldrinum sé ekki lokið og árið 2021 muni eflaust bera merki þess líka, þá er ýmislegt á stefnu- skránni í starfi sendiráðsins. Kórónu- faraldurinn gerir það að verkum að það er enn mikilvægara en áður að vinna að viðskiptatengdum mark- miðum, sérstaklega ferðaþjónustu, en Ísland verður án efa áfram áhugaverð- ur og eftirsóttur áfangastaður um leið og aðstæður til ferðalaga batna. Kynn- ing á íslenskum matvælum og hráefn- um til matvælaframleiðslu er einnig hluti af þessari mynd. Þá er jarðvegur fyrir frumkvöðlastarfsemi og nýsköp- un mjög frjór í Danmörku og margt áhugavert fyrir íslenska frumkvöðla að sækja þangað. Umhverfismál og grænar lausnir eru Dönum mikilvæg og þar getur Ísland miðlað af sinni þekkingu á notkun endurnýjanlegrar orku. Íslensk menning, sérstaklega bókmenntir, nýtur mikillar hylli í Dan- mörku og er áhrifarík leið til að styrkja ímynd og orðspor Íslands enn frekar. Sendiráðið mun á árinu vinna að marg- víslegum markmiðum á þessum svið- um með því að standa fyrir og taka þátt í ýmsum viðburðum,“ segir hún. „Líkt og með önnur ár held ég að ár- ið 2021 verði það sem maður gerir úr því, það verður fínt ár ef maður setur sér það sem markmið. Maður þarf að halda sínu striki, þótt ytri aðstæður séu öðruvísi og þyngri í bili en maður á að venjast. Ég býst ekki við að fá bólu- setningu fljótlega á árinu, en þegar það er frá hlakka ég til að komast heim til Íslands án skimunar og sóttkvíar.“ HELGA HAUKSDÓTTIR Lærði smitsjúkdómaorð á dönsku Ljósmynd/Hasse Ferrold

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.