Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.01.2021, Blaðsíða 10
NÝTT ÁR
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.1. 2021
Einar Bárðarson, fram-kvæmdastjóri votlend-issjóðs, er ekki mikið
fyrir að setja sér áramótaheit.
„Ég geri það ekki nú orðið
en í upphafi árs 2003 setti ég
mér það áramótaheit að ganga
á Esjuna það ár. Skemmst er
frá því að segja að það gleymd-
ist en rifjaðist upp í matarboði
á öðrum degi jóla. Þá varð
uppi fótur og fit og á sunnudag
á milli hátíða og í aftakaveðri
óð ég af stað en varð frá að
hverfa rétt ofan við stein,“ seg-
ir Einar sem segist nú ekki
hafa sett sér mælanleg mark-
mið fyrir árið 2021.
Betri tími með nánustu
„Ég strengdi þess þó heit að
halda áfram að sitja einbeittur
í núinu, halda föstum kúrs á
því sem skiptir mig og mína
nánustu mestu máli. Halda
áfram að beita mér af fullu að
starfinu mínu, sinna áhuga-
málum,“ segir hann.
Einar segist verða fimm-
tugur árið 2022 og er því hugsi
yfir hvort hann þurfi að klára
ákveðna hluti fyrir fimmtugt.
„En um leið verð ég að segja
að ég hef verið svo farsæll og
heppinn að það er ekkert sem
kallar í mig þannig að ef ég
klára það ekki fyrir fimmtugt
þá eru mér ekki öll sund lokuð.
Reyndar hef ég áorkað alveg
ótrúlega miklu og fátt sem
liggur á mér þannig,“ segir
Einar.
Bölvar ekki árinu 2020
Var eitthvað á kórónuárinu
mikla 2020 sem fékk þig til að
endurskoða lífið?
„Þetta var náttúrlega
lengsta fjarfundarkennsla um
það hvernig á að takast á við
mótlæti þetta blessaða ár sem
nú er að kveðja. En atvinnu-
öryggi mínu var ekki ógnað á
árinu sem er að líða og enginn
nátengdur mér smitaðist
þannig af veirunni að veikindi
yrðu alvarleg. Þannig hef ég
ekki yfir neinu að kvarta og
ætla ekki að bæta mér á vagn
þeirra sem bölva 2020. Mest
gaf það mér af tíma og fyrir
mann á mínum aldri er ekkert
eins verðmætt og tíminn,“ seg-
ir Einar og nefnir einnig að
upp úr standi ferð til Vest-
fjarða í tilefni af afmæli konu
hans.
Fór á Bubba
Hvað er það fyrsta sem þú
ætlar að gera þegar þú ert
bólusettur?
„Ég á ekki von á neinum
stórkostlegum breytingum
öðrum en þeim að ég mun
faðma nána vini og vanda-
menn af meiri innlifun og
þakklæti. Eina sem ég í raun
sakna er að fara á tónleika. Ég
var svo heppinn að vera einn
örfárra gesta hjá Bubba á Þor-
láksmessu með dóttur minni;
það voru nánast einka-
tónleikar en maður saknar
þess helst af því sem er á
bannlista vegna veirunnar.“
Einar segist vita innst inni
að árið 2021 verði stórkostlegt.
„Við losnum úr þessari
klakabindingu kófsins. Það er
einlæg von mín að við finnum
öll bæði andlega og veraldlega
fjársjóði á hverjum degi. Gildi
ársins verða gleði, hamingja
og góð heilsa!“
EINAR BÁRÐARSON
Saknar tónleika
Ríkissáttasemjarinn segir mik-ilvægt að staldra við reglu-lega, horfa í kringum sig og
meta hvar hann stendur bæði í einka-
lífi og vinnu.
„Áramótin eru frábær tími fyrir
sjálfsskoðun og ég reyni að nýta mér
það. Niðurstaðan er stundum sú að
ég staðfesti fyrri markmið en breyti
ef til vill aðferðum við að ná þeim og
yfirleitt set ég mér einhver ný mark-
mið,“ segir Aðalsteinn Leifsson.
Yfirvann lofthræðslu
„Á síðasta ári setti ég mér meðal ann-
ars markmið um að yfirvinna loft-
hræðslu, sem hefur hamlað mér í
fjallgöngum, og að læra almennilega
á skíði til að geta fylgt konunni minni,
Ágústu, upp kletta og niður gil á
fjallaskíðum. Ég fór í dáleiðslu til að
losna við lofthræðsluna, og það gekk
framar björtustu vonum. Við hjónin
höfum átt frábærar stundir á fjalla-
skíðunum saman. Yfirleitt hefur mér
tekist ágætlega að ná markmiðum
mínum, þótt stundum hafi þau ekki
náðst fyrr en tveimur til þremur ár-
um eftir að ég ætlaði að ná þeim. Mín
reynsla er að ef ég set mér mjög
„eigingjörn“ markmið, þá næ ég þeim
síður en ef ég set mér markmið sem
nýtast ekki aðeins mér heldur einnig
öðrum í kringum mig.“
Vera meira til staðar
Hver eru markmið fyrir árið 2021?
„Eitt af markmiðunum er mjög í
anda breytinga á íslenskum vinnu-
markaði, en það er að stytta vinnutím-
ann og vinna betur þann tíma sem ég
er í vinnunni. Annað markmið tengt
því er að vera meira til staðar fyrir
fjölskylduna þegar ég er heima, meðal
annars með því að leggja frá mér sím-
ann og beina athyglinni að sameig-
inlegum verkefnum með krökkunum.
Síðan er ég með nokkur minni mark-
mið, eins og að vera inni á baði á með-
an ég bursta í mér tennurnar!“
Af hverju þessi ákveðnu markmið?
„Mér finnst best þegar ég set mér
markmið að byrja á því að velta fyrir
mér hvað er mikilvægast fyrir mig og
fólkið í kringum mig. Síðan flæða
markmiðin eðlilega fram. Við erum
stór fjölskylda þar sem allir eru upp-
teknir við sitt og mig langar mikið að
synda á móti straumi snjalltækja og
24/7-aðgengis – þá með því að setja
meðvituð markmið um að gera hluti
með hverju og einu barnanna og að
við tökum frá tíma til að gera eitthvað
öll saman.“
Flutti heim frá Sviss
Var eitthvað á kórónuárinu mikla
2020 sem fékk þig til að endurskoða
lífið?
„Nei. Lífið er stutt og ég endur-
skoða reglulega lífið og markmið
framtíðarinnar. Það er ekki sjálfgefið
að vakna sprækur á morgnana og
dagar okkar allra eru taldir, þannig
að það er fyrir öllu að nýta stundirnar
sem okkur eru gefnar og reyna að
vera sæmilega trúr sjálfum sér,“ seg-
ir Aðalsteinn og segir flutninga til Ís-
lands og nýtt starf standa upp úr á
síðasta ári.
„Við fluttum á árinu frá Sviss til Ís-
lands og allir fóru í ný verkefni; störf
og skóla. Ég er sérstaklega stoltur af
krökkunum, sem tókust á við þá
áskorun að flytja í „nýtt“ land eftir
sex ára fjarveru og það mitt í heims-
faraldri. Ég mætti áskorunum frá
fyrsta degi í nýju starfi og hef notið
þess mjög að takast á við þær. Það
sem stendur upp úr í vinnunni er það
frábæra fólk sem ég hef kynnst,“ seg-
ir hann.
„Síðustu mánuði ársins var fjöl-
skyldan mjög upptekin við að styðja
við heimilishundinn, Kríu, sem missti
fót í kjölfar bílslyss. Hún hefur náð
sér ótrúlega hratt og er jafn fjörug og
glöð á þremur fótum.“
Tími uppbyggingar
Aðalsteinn segist hlakka mikið til að
fá bólusetningu, þótt það sé kannski
langt í það.
„Ég hef verið mjög varkár, meðal
annars vegna vinnunnar, til þess að
lágmarka líkur á að sóttkví eða ein-
angrun trufli samningaviðræður. Ég
mun setja upp dagskrá með heim-
sóknum til fólks sem ég hef lítið eða
ekkert getað umgengist og örugglega
skoða möguleika á að ferðast og fara á
stærri viðburði þegar þeir verða
heimilaðir,“ segir hann og er bjart-
sýnn á að 2021 verði frábært ár. „Sag-
an kennir okkur að eftir áföll og erf-
iðleika tekur við tími uppbyggingar
og gleði. Ísland er í sérstaklega góðri
stöðu og við getum átt sterka og góða
viðspyrnu þegar tekist hefur að bólu-
setja alla sem eru í viðkvæmum hóp-
um. Ég bjó í Genf og einkunnarorð
borgarinnar eru Post tenebras lux:
Eftir myrkur ljós. Ég bind vonir við
að þessi orð eigi vel við 2021.“
AÐALSTEINN LEIFSSON
Að bursta tennur inni á baði
Bæjarstjóri Akureyrar, Ásthild-ur Sturludóttir, segist alltafsetja sér ákveðin markmið en
um áramót verði þau gjarnan stærri í
sniðum. Það áramótaheit sem stend-
ur þó upp úr þegar hún horfir til baka
er klárlega áramótaheitið 2015/2016
en hún ákvað þá að hún skyldi eignast
barn.
Hver eru markmiðin fyrir árið
2021?
„Að læra á fjallaskíði. Setja skinnin
undir og arka upp í mót, taka skinnin
undan og bruna niður brekkurnar,“
segir Ásthildur og segir að á Akur-
eyri séu allir á skíðum, hjólum eða
hlaupandi.
„Bærinn og næsta nágrenni eru
mikil útivistarparadís. Mér finnst eitt-
hvað voðalega smart við það að labba
á fjöllin í kringum okkur og skíða nið-
ur. Kannski er þetta hjarðeðlið í mér
eða kannski er ég bara strax orðin
svona mikill Akureyringur!“
Njóta fegurðar hins smáa
Ásthildur segist hafa lært ýmislegt á
kórónuárinu mikla.
„Þetta furðulega ár hefur vonandi
kennt okkur öllum að taka engu sem
gefnu. Ég held að ég hafi í það
minnsta lært að gera minni kröfur og
njóta fegurðar hins smáa. Getur verið
að endalausar utanlandsferðir séu
bara „eitthvað svo mikið 2019?“ Ég
ætla að minnsta kosti að ferðast
sjaldnar og staldra þá frekar lengur
við á hverjum stað, læra að meta bet-
ur og njóta meira.“
Hvað varðar einkalífið segir Ást-
hildur:
„Þetta er alls ekki versta ár sem ég
hef upplifað en það var býsna undar-
legt. Það er undarlegt að vinna
heima. Það er undarlegt að hitta ekki
vini sína og geta ekki hitt alla fjöl-
skylduna í einu. Við hjónin komumst
þó í yndislegt frí saman síðasta sumar
með dótturinni Lilju sem fékk að
veiða fisk og upplifa fegurð óspilltrar
náttúru. Íslenska sumarið er stutt en
kannski kunnum við að meta dásemd-
ir þess betur en nokkru sinni fyrr. Við
fengum líka tvær dásamlegar au pair-
stúlkur til okkar á þessu ári, þó ekki
samtímis. Það var mikil og góð viðbót
við fjölskylduna.“
Hvað er það fyrsta sem þú ætlar að
gera þegar þú hefur verið bólusett?
„Brosa allan hringinn og kalla í boð
með systkinum mínum og fjöl-
skyldum þeirra og hitta svo vinkonur
mínar.“
Nú reynir á þolgæðið
Heldurðu að 2021 verði gott ár?
„Þetta verður erfitt ár. Nú fyrst
reynir á þolgæðið. Margir hafa vænt-
ingar um að allt verði eins og áður
var, en ég held að við þurfum að taka
með okkur inn í framtíðina það sem
Covid-19 hefur kennt okkur. Árið
2021 kallar á breyttan hugsunarhátt
hjá okkur öllum og öðruvísi lífsstíl.
En þegar allir varnaglar hafa verið
slegnir þá held ég að mér sé óhætt að
fullyrða að þetta verði þrátt fyrir allt
gott ár.“
ÁSTHILDUR STURLUDÓTTIR
Brosa allan hringinn
HeilsufrömuðurinnLukka Pálsdóttirsegist heldur betur
strengja áramótaheit.
„Í fyrra fannst mér stór-
sniðug hugmynd, þar sem ég
var að verða fimmtug á árinu,
að setja mér 50 markmið. Ég
settist við símann og byrjaði
að skrifa lista. Þar sem ég get
verið mikill sveimhugi hef ég
greinilega gleymt mér í
miðjum klíðum því ég skrifaði
ekki nema 22 atriði á listann!
Þannig að ég stóð ekki einu
sinni við markmiðið um að
setja mér markmið. Og
gleymdi svo alveg að skoða
listann reglulega svo ég hef
alls ekki uppfyllt öll þessi 22
markmið ennþá. Sum þeirra
hafa þó ræst,“ segir Lukka
sem segist ætla að endurtaka
leikinn fyrir árið 2021 og setja
sér fimmtíu markmið.
Hámarka heilsu
„Eitt af markmiðum ársins
2020 var að stofna fyrirtæki
sem stuðlar að því að hámarka
góða heilsu landsmanna og
hjálpa fólki að ná sem allra
bestum árangri í hreyfingu og
útivist. Greenfit varð að veru-
leika og formleg starfsemi hófst
1. mars. Það muna sennilega
margir hvað annað fór af stað
um þau mánaðamót en þrátt
fyrir Covid hefur Greenfit farið
gríðarlega vel af stað og er
langur biðlisti í ástandsskoðun
og frábært að sjá hve mikinn
áhuga fólk hefur á að bæta eig-
in heilsu með heilbrigðum leið-
um í næringu og þjálfun.
Greenfit hefur nú þegar hjálpað
fólki að snúa við langvinnum
sjúkdómum og bæta lífið til
muna. Við hlökkum til að halda
þeirri vegferð áfram á komandi
árum,“ segir hún.
Aukið æðruleysi
Var eitthvað á árinu 2020 sem
fékk þig til að endurskoða lífið
eða endurskoða markmið
framtíðarinnar?
„Það er eitthvað á hverju ári
sem fær mig til að staldra við
og endurmeta gildi mín og
venjur. Mér finnst lexía ársins
2020 felast í auknu æðruleysi,
sveigjanleika og því að treysta
lífinu. Vera meira í flæðinu og
minna í stjórninni og áhyggj-
um. Anda inn, anda út,“ segir
hún og segir að árið hafi verið
sér gott.
„Þetta var árið sem ég fór í
ævintýra-hjóla-kajakferð sem
endaði í neyðarskýli skjálfandi
af kulda og vosbúð um hásum-
ar og skellihló að því öllu með
góðum vinum. Þetta var árið
sem ég sá strákinn minn
blómstra í kvikmyndanámi.
Þetta var árið sem ég flaug í
fyrsta sinn í þyrlu. Þetta var
árið sem ég komst í drauma-
starfið mitt og missti ekki dag
úr vinnu. Þetta var árið sem
ég fékk að hafa mömmu og
pabba meira hjá mér. Þetta
var árið sem ég lokaði einum
kafla og hóf nýjan.“
Snerta og knúsa
Lukka veit nákvæmlega hvað
hún vill gera þegar hún er
komin með vörn við veirunni.
„Snerta og knúsa. Ég vona
að ég muni hvernig á að gera
það! Ég er alltaf sannfærð um
að árið fram undan verði
gott!“
LUKKA PÁLSDÓTTIR
Fimmtíu markmið