Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.01.2021, Side 12
ENSKA KNATTSPYRNAN
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.1. 2021
G
óðir hlutir gerast hægt, segir
spakmælið, og það getur verið
okkur mönnunum hollt og gott
að bíða. Spyrjið bara þá félaga
Vladimir og Estragon sem
brölluðu sitthvað meðan þeir biðu eftir Godot
nokkrum á sinni tíð. Sem kom svo aldrei.
Mögulega hefur hinum ástríðufullu áhangend-
um Liverpool verið farið að líða þannig meðan
þeir biðu eftir næsta Englandsmeistaratitli, að
þeir væru að bíða eftir einhverju sem aldrei
kæmi, en allt hafðist það nú á endanum – eins
og vera ber í ævintýrunum. Núna þegar menn
eru hættir að bíða eftir því að Liverpool verði
enskur meistari geta þeir byrjað að bíða eftir
ýmsu öðru sem ekki hefur gerst lengi – eða
jafnvel aldrei.
Til að hafa grunninn sem breiðastan við
upphaf þessarar vegferðar getum við byrjað á
því að bíða eftir því að Englendingur geri lið að
enskum meistara. „Hvað er karlinn nú að
rugla?“ spyrjið þið ykkur ábyggilega en það er
nú einu sinni svo að enskur knattspyrnustjóri
hefur aldrei unnið ensku úrvalsdeildina. Segi
ég og skrifa, aldrei! Howard Wilkinson hamp-
aði titlinum eftirsótta seinastur Englendinga
með Leeds United árið sem gamla fyrsta
deildin var lögð niður, 1992. Síðan hefur verið
dauður sjór. Og rúmlega það.
Skuldlaust hjá Skotunum
Skotinn Sir Alex Ferguson vann úrvalsdeild-
ina þrettán sinnum með Manchester United og
Kenny Dalglish einu sinni með Blackburn Ro-
vers en Skotar eru ekki Englendingar, allra
síst eftir að þeir síðarnefndu drógu frændur
sína á hárinu út úr Evrópu-
sambandinu. Þannig að sör-
inn og kóngurinn teljast
klárlega ekki með. Nicola
Sturgeon myndi aldrei sam-
þykkja það.
Þess má til gamans geta að
næstu fjórir titlar á undan
Wilkinson og Leeds höfnuðu líka í skauti Skota,
tveir hjá Dalglish og Liverpool og tveir hjá
George Graham og Arsenal. Næsti Englend-
ingurinn til að vinna gömlu fyrstu deildina á
undan Wilkinson var nafni hans, Kendall, sem
gerði það í tvígang með Everton, 1985 og 1987.
Þar á undan voru enskir stjórar á góðri sigl-
ingu, Bob Paisley og Joe Fagan með Liverpool,
Ron Saunders með Aston Villa og Brian Clough
með Derby County og Nottingham Forest, Don
Revie með Leeds og Bertie Mee með Arsenal.
Svo gerði Englendingur Everton að meistara
árið 1970. Ég skal persónulega skutla næsta
tölublaði Sunnudagsblaðsins heim til þeirra
sem muna hvað hann hét – án þess að gúgla.
Fyrst við erum komin í svona nördískan upp-
talningarham ber vitaskuld að geta þess að tveir
sigursælustu og frægustu knattspyrnu-
stjórarnir á kaldastríðstímanum voru Skotar,
Sir Matt Busby hjá Manchester United (fimm
titlar) og Bill Shankly hjá Liverpool (þrír titlar).
Nú spyrjið þið náttúrulega: Hvort hafa
enskir eða skoskir knattspyrnustjórar unnið
fleiri meistaratitla á Englandi frá lokum
seinna stríðs? Og jú, karlinn er með þær upp-
lýsingar handa ykkur. Englendingar hafa ör-
lítið betur, 32 titla á móti 28 hjá Skotunum.
Þar af Paisley flesta, sex. Stan Cullis landaði
þremur titlum með Úlfunum á sjötta áratugn-
um. Maður sem alltof sjaldan er nefndur á
nafn í seinni tíð. Frá upphafi hafa enskir stjór-
ar unnið deildina 58 sinnum en skoskir 37 sinn-
um. Ítalir eru í þriðja sæti með fjóra titla.
Fjórir ólíkir gaurar. Takið ykkur nú stutt hlé
frá lestrinum til að rifja upp hvaða kappar það
eru!
Frakki reið á vaðið
Velkomin aftur! Hvar vorum við stödd? Jú,
ætluðum við ekki að renna aðeins yfir það
hverjir hafa verið að vinna úrvalsdeildina fyrst
Englendingar koma hvergi þar nærri?
Fyrsti maðurinn til að gera enskt lið að
meistara og er ekki frá Bretlandseyjum er
Frakkinn Arsène Wenger. Hann leiddi Arsen-
al alla leið á toppinn 1998 og svo aftur 2002 og
2004. Portúgalinn José Mourinho á líka þrjá
titla, með Chelsea 2005, 2006 og 2015. Ítalirnir
fjórir, sem þið eruð nú með á hreinu, eru Carlo
Ancelotti með Chelsea 2010, Roberto Mancini
með Manchester City 2012, Claudio Ranieri
með Leicester City 2016 og Antonio Conte
með Chelsea 2017. Spánverji komst fyrst á
blað 2018, Pep Guardiola með Manchester
City en hann varði titilinn árið eftir. Jürgen
Klopp varð, merkilegt nokk, fyrsti Þjóðverjinn
til að leiða lið til sigurs á Englandsmótinu, Liv-
erpool á liðinni leiktíð.
Svo er þarna líka Chilemaður (hér á ég víst
að skrifa Síle en get það ekki
án þess að kasta upp),
Manuel Pellegrini, sem
stýrði Manchester City til
meistaratignar árið 2014.
Þá er aðeins eitt land
ótalið, eða tvö eftir því
hvernig á það er litið. Þá er-
um við að tala um frá upphafi. Þegar Bob Kyle
gerði Sunderland að meistara árið 1913 var
hann Íri en fæddist í Belfast og telst því vera
Norður-Íri í dag en löndunum var skipt upp
fyrir réttri öld, nokkrum árum áður en Kyle
hélt á fund feðra sinna. Með gildum rökum má
halda því fram að sá titill hafi því færst milli
landa. Brendan Rodgers var nálægt því að
bæta öðrum titli við fyrir Norður-Íra með Liv-
erpool 2014 og gæti enn átt eftir að komast á
blað en núverandi lið hans, Leicester City, er í
þriðja sæti úrvalsdeildarinnar, stigi á eftir
toppliðum Liverpool og Manchester United.
Reynslan hefur kennt manni að afskrifa ekki
Leicester.
Á Lampard möguleika?
En er einhver Englendingur í sjónmáli? Fyrir
jól hefðu einhverjir ugglaust rétt upp hönd og
mælt hátt og snjallt: Frank Lampard. Nú virð-
ist Chelsea-liðið hans hins vegar vera í frjálsu
falli og menn jafnvel farnir að ræða um að
koma honum frá borði. Kannski ekki sann-
gjarnt en á móti kemur að Roman Abramovich
býr að mörgum dygðum umfram gömlu góðu
þolinmæðina.
Dean Smith er raunar með Aston Villa í sæt-
inu fyrir ofan Chelsea, því áttunda, en þrátt
fyrir miklar framfarir hjá því fornfræga félagi
þá reiknar enginn með því að það vinni deild-
ina. Ekki í ár og ekki á næstu árum.
Hinir ensku stjórarnir í deildinni eru óra-
langt frá því að vera líklegir. Hvorki á þessu
ári né þessari öld.
Hvað segiði? Roy Hodgson? Bara létt yfir
ykkur! Hans tækifæri kom og fór í pönkuðu of-
boði fyrir réttum áratug.
Þá þurfum við klárlega að hugsa út fyrir
rammann. Til að eiga raunhæfa möguleika á
titlinum þurfa menn að komast að hjá einu af
stóru liðunum sex, Liverpool, Manchester
United, Arsenal, Tottenham Hotspur, Chelsea
eða Manchester City. Hvaða Englendingur,
fyrir utan Lampard, er líklegur til að landa
starfi hjá þessum liðum í bráð?
Það er raunar einn sem manni flýgur í hug –
Gareth Southgate, landsliðseinvaldur Eng-
lands. Hann hefur gert frábæra hluti með
landsliðið og er svo sem varla á förum þaðan
en myndi hann vilja spreyta sig á félagsliði er
ekki útilokað að eitt af stóru liðunum sex hefði
áhuga. Þó það sé svo sem ekki endilega líklegt.
Þið sjáið, við erum þarna.
Dettur Gerrard í lukkupottinn?
Til að kreista fram fleiri nöfn má alveg draga
Steven Gerrard inn í þessa jöfnu en hann stýr-
ir Rangers í Glasgow. Í sögulegu samhengi er
óvitlaust að mennta sig á Skotlandi. Alla Púl-
ara dreymir um að sjá hann taka við Rauða
hernum en það yrði aldrei fyrr en eftir daga
Klopps og allir Púlarar hugsa til þess með
hryllingi að hann hverfi á braut.
Beðið eftir
Englendingi
Heimamaður hefur ekki gert lið að Englandsmeistara í knatt-
spyrnu frá árinu 1992 og sú ótrúlega þrautaganga virðist engan
enda ætla að taka. Frank Lampard virðist næst því að vinna
björninn en samt svo langt frá því. Hverjir aðrir geta talist eiga
raunhæfan möguleika? Þeir eru hreint ekki margir og alls ekki
með lögheimili í ensku úrvalsdeildinni nú um stundir.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Bíddu nú við, Harry Kane.
Hvað er hann að gera hérna?
Tja, lestu bara greinina!
AFP
’Hinir ensku stjór-arnir í deildinni eruóralangt frá því að veralíklegir. Hvorki á þessu
ári né þessari öld.