Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.01.2021, Page 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.01.2021, Page 12
ENSKA KNATTSPYRNAN 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.1. 2021 G óðir hlutir gerast hægt, segir spakmælið, og það getur verið okkur mönnunum hollt og gott að bíða. Spyrjið bara þá félaga Vladimir og Estragon sem brölluðu sitthvað meðan þeir biðu eftir Godot nokkrum á sinni tíð. Sem kom svo aldrei. Mögulega hefur hinum ástríðufullu áhangend- um Liverpool verið farið að líða þannig meðan þeir biðu eftir næsta Englandsmeistaratitli, að þeir væru að bíða eftir einhverju sem aldrei kæmi, en allt hafðist það nú á endanum – eins og vera ber í ævintýrunum. Núna þegar menn eru hættir að bíða eftir því að Liverpool verði enskur meistari geta þeir byrjað að bíða eftir ýmsu öðru sem ekki hefur gerst lengi – eða jafnvel aldrei. Til að hafa grunninn sem breiðastan við upphaf þessarar vegferðar getum við byrjað á því að bíða eftir því að Englendingur geri lið að enskum meistara. „Hvað er karlinn nú að rugla?“ spyrjið þið ykkur ábyggilega en það er nú einu sinni svo að enskur knattspyrnustjóri hefur aldrei unnið ensku úrvalsdeildina. Segi ég og skrifa, aldrei! Howard Wilkinson hamp- aði titlinum eftirsótta seinastur Englendinga með Leeds United árið sem gamla fyrsta deildin var lögð niður, 1992. Síðan hefur verið dauður sjór. Og rúmlega það. Skuldlaust hjá Skotunum Skotinn Sir Alex Ferguson vann úrvalsdeild- ina þrettán sinnum með Manchester United og Kenny Dalglish einu sinni með Blackburn Ro- vers en Skotar eru ekki Englendingar, allra síst eftir að þeir síðarnefndu drógu frændur sína á hárinu út úr Evrópu- sambandinu. Þannig að sör- inn og kóngurinn teljast klárlega ekki með. Nicola Sturgeon myndi aldrei sam- þykkja það. Þess má til gamans geta að næstu fjórir titlar á undan Wilkinson og Leeds höfnuðu líka í skauti Skota, tveir hjá Dalglish og Liverpool og tveir hjá George Graham og Arsenal. Næsti Englend- ingurinn til að vinna gömlu fyrstu deildina á undan Wilkinson var nafni hans, Kendall, sem gerði það í tvígang með Everton, 1985 og 1987. Þar á undan voru enskir stjórar á góðri sigl- ingu, Bob Paisley og Joe Fagan með Liverpool, Ron Saunders með Aston Villa og Brian Clough með Derby County og Nottingham Forest, Don Revie með Leeds og Bertie Mee með Arsenal. Svo gerði Englendingur Everton að meistara árið 1970. Ég skal persónulega skutla næsta tölublaði Sunnudagsblaðsins heim til þeirra sem muna hvað hann hét – án þess að gúgla. Fyrst við erum komin í svona nördískan upp- talningarham ber vitaskuld að geta þess að tveir sigursælustu og frægustu knattspyrnu- stjórarnir á kaldastríðstímanum voru Skotar, Sir Matt Busby hjá Manchester United (fimm titlar) og Bill Shankly hjá Liverpool (þrír titlar). Nú spyrjið þið náttúrulega: Hvort hafa enskir eða skoskir knattspyrnustjórar unnið fleiri meistaratitla á Englandi frá lokum seinna stríðs? Og jú, karlinn er með þær upp- lýsingar handa ykkur. Englendingar hafa ör- lítið betur, 32 titla á móti 28 hjá Skotunum. Þar af Paisley flesta, sex. Stan Cullis landaði þremur titlum með Úlfunum á sjötta áratugn- um. Maður sem alltof sjaldan er nefndur á nafn í seinni tíð. Frá upphafi hafa enskir stjór- ar unnið deildina 58 sinnum en skoskir 37 sinn- um. Ítalir eru í þriðja sæti með fjóra titla. Fjórir ólíkir gaurar. Takið ykkur nú stutt hlé frá lestrinum til að rifja upp hvaða kappar það eru! Frakki reið á vaðið Velkomin aftur! Hvar vorum við stödd? Jú, ætluðum við ekki að renna aðeins yfir það hverjir hafa verið að vinna úrvalsdeildina fyrst Englendingar koma hvergi þar nærri? Fyrsti maðurinn til að gera enskt lið að meistara og er ekki frá Bretlandseyjum er Frakkinn Arsène Wenger. Hann leiddi Arsen- al alla leið á toppinn 1998 og svo aftur 2002 og 2004. Portúgalinn José Mourinho á líka þrjá titla, með Chelsea 2005, 2006 og 2015. Ítalirnir fjórir, sem þið eruð nú með á hreinu, eru Carlo Ancelotti með Chelsea 2010, Roberto Mancini með Manchester City 2012, Claudio Ranieri með Leicester City 2016 og Antonio Conte með Chelsea 2017. Spánverji komst fyrst á blað 2018, Pep Guardiola með Manchester City en hann varði titilinn árið eftir. Jürgen Klopp varð, merkilegt nokk, fyrsti Þjóðverjinn til að leiða lið til sigurs á Englandsmótinu, Liv- erpool á liðinni leiktíð. Svo er þarna líka Chilemaður (hér á ég víst að skrifa Síle en get það ekki án þess að kasta upp), Manuel Pellegrini, sem stýrði Manchester City til meistaratignar árið 2014. Þá er aðeins eitt land ótalið, eða tvö eftir því hvernig á það er litið. Þá er- um við að tala um frá upphafi. Þegar Bob Kyle gerði Sunderland að meistara árið 1913 var hann Íri en fæddist í Belfast og telst því vera Norður-Íri í dag en löndunum var skipt upp fyrir réttri öld, nokkrum árum áður en Kyle hélt á fund feðra sinna. Með gildum rökum má halda því fram að sá titill hafi því færst milli landa. Brendan Rodgers var nálægt því að bæta öðrum titli við fyrir Norður-Íra með Liv- erpool 2014 og gæti enn átt eftir að komast á blað en núverandi lið hans, Leicester City, er í þriðja sæti úrvalsdeildarinnar, stigi á eftir toppliðum Liverpool og Manchester United. Reynslan hefur kennt manni að afskrifa ekki Leicester. Á Lampard möguleika? En er einhver Englendingur í sjónmáli? Fyrir jól hefðu einhverjir ugglaust rétt upp hönd og mælt hátt og snjallt: Frank Lampard. Nú virð- ist Chelsea-liðið hans hins vegar vera í frjálsu falli og menn jafnvel farnir að ræða um að koma honum frá borði. Kannski ekki sann- gjarnt en á móti kemur að Roman Abramovich býr að mörgum dygðum umfram gömlu góðu þolinmæðina. Dean Smith er raunar með Aston Villa í sæt- inu fyrir ofan Chelsea, því áttunda, en þrátt fyrir miklar framfarir hjá því fornfræga félagi þá reiknar enginn með því að það vinni deild- ina. Ekki í ár og ekki á næstu árum. Hinir ensku stjórarnir í deildinni eru óra- langt frá því að vera líklegir. Hvorki á þessu ári né þessari öld. Hvað segiði? Roy Hodgson? Bara létt yfir ykkur! Hans tækifæri kom og fór í pönkuðu of- boði fyrir réttum áratug. Þá þurfum við klárlega að hugsa út fyrir rammann. Til að eiga raunhæfa möguleika á titlinum þurfa menn að komast að hjá einu af stóru liðunum sex, Liverpool, Manchester United, Arsenal, Tottenham Hotspur, Chelsea eða Manchester City. Hvaða Englendingur, fyrir utan Lampard, er líklegur til að landa starfi hjá þessum liðum í bráð? Það er raunar einn sem manni flýgur í hug – Gareth Southgate, landsliðseinvaldur Eng- lands. Hann hefur gert frábæra hluti með landsliðið og er svo sem varla á förum þaðan en myndi hann vilja spreyta sig á félagsliði er ekki útilokað að eitt af stóru liðunum sex hefði áhuga. Þó það sé svo sem ekki endilega líklegt. Þið sjáið, við erum þarna. Dettur Gerrard í lukkupottinn? Til að kreista fram fleiri nöfn má alveg draga Steven Gerrard inn í þessa jöfnu en hann stýr- ir Rangers í Glasgow. Í sögulegu samhengi er óvitlaust að mennta sig á Skotlandi. Alla Púl- ara dreymir um að sjá hann taka við Rauða hernum en það yrði aldrei fyrr en eftir daga Klopps og allir Púlarar hugsa til þess með hryllingi að hann hverfi á braut. Beðið eftir Englendingi Heimamaður hefur ekki gert lið að Englandsmeistara í knatt- spyrnu frá árinu 1992 og sú ótrúlega þrautaganga virðist engan enda ætla að taka. Frank Lampard virðist næst því að vinna björninn en samt svo langt frá því. Hverjir aðrir geta talist eiga raunhæfan möguleika? Þeir eru hreint ekki margir og alls ekki með lögheimili í ensku úrvalsdeildinni nú um stundir. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Bíddu nú við, Harry Kane. Hvað er hann að gera hérna? Tja, lestu bara greinina! AFP ’Hinir ensku stjór-arnir í deildinni eruóralangt frá því að veralíklegir. Hvorki á þessu ári né þessari öld.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.