Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.01.2021, Page 13

Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.01.2021, Page 13
10.1. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13 En annað stórlið? Myndi Chelsea til dæmis skoða Gerrard sem raunhæfan kost? Myndi Gerrard skoða Chelsea sem raunhæfan kost? Nú, eða Arsenal eða Tottenham? Fyrr færi hann að selja poppkorn í kvikmyndahúsi en að fara til Manchesster United. Það vitum við öll. John Terry er annar langsóttur möguleiki. Gamli Chelsea-fyrirliðinn er nú aðstoðar- maður Deans Smiths hjá Villa og hefur metnað til að stýra liði einn og óstuddur. Gæti Chelsea hugsað sér að skipta honum inn fyrir Lampard? Þarf hann ekki að setjast í (fun) heita sætið annars staðar fyrst? Að vísu veðjaði Arsenal á Mikel Arteta, blautan bak við bæði eyrun. Það hefur gengið upp og ofan. Og Manchester United á Ole Gunnar Sol- skjær án þess að hann hefði stýrt liði í alvöru deild – með fullri virðingu fyrir frændum vor- um í Noregi. Rokkað eins og Harry Kane Þannig að stjórar þriggja af sex stóru liðunum eru fyrrverandi leikmenn þeirra. Ef til vill gef- ur það mönnum á borð við Harry Kane von um að hann eigi dag einn eftir að taka við stjórn- velinum hjá Tottenham. Það er auðvitað al- gjörlega ótímabær pæling, maðurinn á hátindi ferils síns sem leikmaður. Kane býr á hinn bóginn að ofboðslegri sparkgreind sem hæg- lega gæti nýst honum áfram eftir að hann sjálfur leggur skóna á hilluna. Nú er ég auðvit- að bara að hugsa upphátt, neyðin kennir naktri konu að spinna og allt það, og þið segið auðvit- að ekki sálu frá þessu. Lásuð það samt fyrst hér! Talandi um langa bið þá er Tottenham eina af stóru liðunum sex sem aldrei hefur unnið úrvalsdeildina; raunar þarf að fara sextíu ár aftur í tímann til að grafa upp seinasta meist- aratitil félagsins. Það var á því herrans ári 1961, þegar Kennedy var forseti Bandaríkj- anna, Bítlarnir voru enn að troða upp í klúbb- um í Hamborg og við Íslendingar ókum á vinstri helmingi vegarins. Sigurinn, undir stjórn Englendingsins Bills Nicholsons, var að vísu óhemju sannfærandi og sætur og Tottenham gerði sér lítið fyrir og jafnaði stigamet nágranna sinna í Arsenal frá 1931, 66 stig. Nicholson keyrði liðið að lang- mestu á aðeins fjórtán mönnum sem væri með öllu óhugsandi í dag. Tottenham varð þetta sama ár fyrsta liðið á 20. öldinni til að vinna tvennuna og var fyrir vikið talað um „lið ald- arinnar“ í mörgum miðlum. Fleiri lið gerðu síðar tilkall til þeirrar nafnbótar. Sá harðasti og hugrakkasti Potturinn og pannan í þessu liði var Skotinn Dave Mackay sem sjálfur George Best sagði að hefði verið harðasti og hugrakkasti leik- maður sem hann hefði nokkru sinn mætt á velli. Mackay sneri sér síðar að knatt- spyrnustjórnun og gerði Derby County að enskum meistara árið 1975. Fínt fordæmi fyrir Harry Kane, ekki satt? Nema hvað hörðustu Spursarar hefðu ugg- laust engan húmor fyrir því að þeirra maður færi að marsera með Derby County í hæstu hæðir. Hrútarnir hafa ekki þurft að bíða ná- lægt því eins lengi eftir meistaratitli – bara 46 ár! Auðvitað er þetta aðeins hugarleikfimi en þið getið ekki neitað því að það er heilmikil rómantík í því að Tottenham Hotspur vinni enska meistaratitilinn undir stjórn Harrys Kane. Það yrði að vísu ekki fyrr en eftir svona tíu til fimmtán ár en er það ekki biðarinnar virði? Í öllu falli er ég ekki í vafa um að þeir fé- lagar Vladimir og Estragon myndu hinkra við. Sælir og glaðir. Howard Wilkinson heimsótti Vík- ina árið 2005 og hitti þar Sigurð Jónsson, sem lék undir hans stjórn hjá Sheffield Wednesday á níunda áratugnum. Wilkinson er síðasti Englendingurinn til að gera enskt lið að meistara, Leeds 1992. Morgunblaðið/ÞÖK Gareth Southgate er líklega stærsta nafnið í veröld enskra knatt- spyrnustjóra um þessar mundir. Og þarf raunar ekki mikið til. AFP Frank Lampard, knattspyrnustjóri Chelsea, er í bestri stöðu til að rjúfa þrautagöngu enskra stjóra. Hann hefur þó ekki átt sjö dagana sæla að undanförnu. AFP Bob Paisley er sigursælusti enski knattspyrnustjóri sögunnar, vann sex meistaratitla með Liverpool á átt- unda og níunda áratugnum. Marga dreymir um að Steven Gerrard taki við Liverpool í framtíðinni. Verður hann næsti enski knattspyrnustjórinn til að vinna ensku úrvalsdeildina? AFP Sir Alex Ferguson vann þrettán meistaratitla með Manchester Unit- ed, alla í úrvalsdeildinni. Hann er hins vegar Skoti en ekki Englendingur. Reuters Fréttavefur Sky Sports-sjónvarpsstöðv- arinnar var líka í biðstuði í vikunni og birti lista yfir það hversu lengi úrvals- deildarliðin tuttugu hafa þurft að bíða eftir stórum titli. Stóru liðin röðuðu sér að vonum í efstu eða neðstu sætin, eftir því hvernig á það er lítið. Þau hafa með öðrum orðum þurft að bíða styst. Liverpool (meistari), Arsenal (bikar- meistari) og Manchester City (deildar- bikarmeistari) unnu öll titil á nýliðnu ári. Chelsea vann Evrópudeildina 2019 og Manchester United sömu deild 2017. Það þýðir fjögurra ára bið sem þykir raunar langur tími í Leikhúsi draumanna. Tottenham hefur beðið lengst stóru liðanna sex en liðið vann síðast deildabik- arinn árið 2008, eða fyrir þrettán árum. Liðið er komið í úrslit sömu keppni nú. Af smærri liðunum er Leicester City auðvitað í sérflokki eftir óvæntasta meistaratitil sögunnar, myndu flestir lík- lega segja, árið 2016. Næstu félög á listanum hafa beðið mun lengur. Aston Villa vann deildabik- arinn fyrir 25 árum og Everton enska bik- arinn fyrir 26 árum. Skallinn frá Paul Ri- deout gegn Manchester United. Þá kemur Leeds með meistaratitilinn sinn 1992. West Ham hefur beðið í 41 ár frá bik- armeistaratitlinum 1980. Úlfarnir unnu deildabikarinn sama ár. Southampton varð bikarmeistari 1976 og Newcastle United vann borgarkeppni Evrópu sálugu 1969. West Bromwich Albion varð bik- armeistari 1968 og Burnley enskur meistari 1960. Þarna er biðin orðin lengri en sextíu ár. Það er þó hátíð frá sjónarhóli Sheffield United sem vann síð- ast bikarinn fyrir 96 árum, á því herrans ári 1925. Brighton and Hove Albion, Crystal Pa- lace og Fulham myndu þó glöð vilja vera í þeim sporum en þau ágætu félög eru enn að bíða eftir sínum fyrsta titli. Hafa sumsé aldrei unnið neitt. Þrjátíu ára bið Liverpool eftir meistaratitlinum lauk á síðasta ári. AFP Sum bíða lengur en önnur

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.