Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.01.2021, Page 22

Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.01.2021, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.1. 2021 MATUR Hringdu í síma 580 7000 eða farðu áwww.heimavorn.is HVARSEMÞÚERT Öryggiskerfi SAMSTARFSAÐILI 15:04 100% Heilsusamlegur matur oghollt líferni hefur ávalltfylgt Sigrúnu en hún er barnasálfræðingur hjá Barnaspítala Hringsins en einnig með menntun í heilsusálfræði. Hún heldur auk þess úti vefsíðunni cafesigrun.com þar sem hún deilir með lesendum upp- skriftum og fróðleik um hollan og bragðgóðan mat. Sigrún er með mörg góð ráð í pokahorninu. „Fólk á ekki að byrja of geyst heldur taka lítil skref. Mikilvægt er að fara ekki offari þegar maður er að breyta til í mataræðinu. Betra er að setja sér raunhæf markmið sem hægt er að fylgja en að ætla að taka allt með trompi.“ Hvað á fólk alveg að forðast? „Ég er ekki hrifin af boðum og bönnum og ekkert ætti í raun að vera bannað því það sem er bannað getur orðið sjálfkrafa meira spenn- andi. Ég forðast þó sælgæti, skyndibita og ruslfæði og hef alltaf gert enda líður mér ekki vel af því. Ég er líka mikið á móti gos- drykkjum enda sykurmagnið svim- andi, og ég kaupi þá ekki inn á heimilið. Við ættum kannski alltaf að forðast það sem fer ekki vel í okkur en mannskepnan hefur með tímanum því miður lært að hunsa ýmis skilaboð sem líkaminn sendir okkur, sem getur endað í ýmsum sjúkdómum og heilsuflækjum síð- ar.“ Að vera góð fyrirmynd Hvernig gerir þú holla matinn spennandi fyrir börnin? „Ég hef fylgt ráðleggingum Önnu Sigríðar Ólafsdóttur prófessors í næringarfræði og leiðbeinanda mín- um í doktorsnáminu um bragðlauka- þjálfun – matvendni barna. Hennar ráðleggingar eru að skipta mat ekki í hollt og óhollt því þá fara börn að aðgreina í flokka, eins og slæmt og gott. Sem heilsusálfræðingur er ég alveg sammála þessu og finnst gam- an að sjá hvað börnin mín almennt flokka ekki mat í flokkana hollt eða óhollt. Aftur á móti vita þau heilan helling um hvaða áhrif matur getur haft á okkur. Eins og Anna Sigríður er ég skrýtna mamman sem jafnvel ber nýbakaðar súkkulaðibitakökur á borð með salatinu og fyrir mín börn er jafn sjálfsagt að sjá hvort tveggja á borðinu. Að sjálfsögðu ekki á hverjum degi en það er þá engin sér- stök ástæða fyrir því að þau fá sæt- meti, það er bara stundum og stund- um ekki. Þau mega svo velja í hvaða röð þau borða það sem er á borðinu. Þannig verður sæti bitinn ekki að verðlaunum fyrir að klára matinn sinn, en það er mikilvægt að umbuna ekki með sætmeti því þannig gerum við ávanann sterkari,“ segir hún. „Börn eru forvitin að eðlisfari og það er upplagt að nýta það í að vekja forvitni þeirra um hráefni. Svo er upplagt að föndra með mat; börn elska það. Til að auka líkurnar á því að börn borði fjölbreytta fæðu þarf maður sjálfur að vera góð fyrirmynd því maður getur ekki ætlast til að þau borði eitthvað sem við borðum ekki. Mikilvægt er að pína börnin ekki í eitt eða neitt og þrýsta ekki á þau að borða eða smakka.“ Hlustar á líkamann Borðar þú hollan mat allan ársins hring eða þarftu að endurstilla þig í janúar eins og flestir? „Það má segja að ég borði það sama í desember og janúar og allan ársins hring. Ég hef lagt mig fram um að hlusta á líkamann og finna hvort hann sé að kalla í eitthvað sérstakt. Stund- um er það tiltekið grænmeti, stundum hreinn safi eða jafnvel fiskur. Og ef ég fæ brjálæðislega löngun í dökkt súkkulaði fæ ég mér svoleiðis.“ Hvað á fólk að fá sér þegar hungr- ið sverfur að á kvöldin eftir létta máltíð? „Ávextir og grænmeti væru alltaf góður kostur fyrir flesta.“ Hvað er uppáhaldsmaturinn á þínu heimili? „Hjá þeim níu ára er það hvít- lauksristaður humar og sushi sem er alltaf heimatilbúið. Hjá þeirri ellefu ára er það tómatsúpa eða gulrótar- og kókossúpa og sushi. Eiginmað- urinn er glaður með allt sem ég elda en er mjög hrifinn af grænmetis- borgara og sushi. Ég er svakalega hrifin af öllum miðausturlenskum mat sem og sjávarréttasúpum og ætli ég velji ekki sushi líka,“ segir Sigrún og segist eiga erfitt með að gera upp á milli. Ekki fá samviskubit Sigrún segir gott að setja sér skýr markmið ef breyta á mataræðinu, en þau þurfi einnig að vera raunhæf. Hún telur gott að læra um hráefnin og hvað þau gera fyrir líkamann og forðast eigi það sem kallast „krafta- verkalausnir“. „Góð heilsa er ævilangt verkefni. Mikilvægt er að hlusta á líkamann og þau skilaboð sem hann sendir okkur,“ segir Sigrún og segir fólk eiga að forðast að fá samviskubit ef illa gengur. „Samviskubit leiðir til verri líð- anar sem getur leitt til óheilbrigðs sambands við mat,“ segir hún. „Borðið ykkur til betri heilsu er góð lífsspeki sem kemur frá hinni frábæru Sólveigu Sigurðardóttur sem heldur úti síðunni Lífsstíll Sól- veigar en hennar speki snýr að því að hlúa að líkamanum með góðri næringu. Mér finnst að allir eigi að borða sig til betri heilsu!“ Borðið ykkur til betri heilsu! Mikilvægt er að fara ekki offari þeg- ar maður er að breyta til í mataræð- inu. Betra er að setja sér raunhæf markmið sem hægt er að fylgja en að ætla að taka allt með trompi. Á nýju ári vilja margir endurskoða mataræðið, ekki síst eftir allan hátíðarmat jólanna. Matgæð- ingurinn Sigrún Þorsteinsdóttir lætur sig heilsuna varða allan ársins hring og gefur hér lesendum bæði góð heilsuráð og girnilegar uppskriftir að dýrðlegum mat sem á að koma okkur vel í gegn- um þennan dimma og kalda mánuð. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Fyrir 4 1 stór laukur smá bútur ferskt engi- fer (álíka og vínber að stærð) 4 hvítlauksgeirar 300 g gulrætur 150 g sætar kartöflur 2 msk kókosolía 1 tsk karrí 2 gerlausir grænmetis- teningar 750 ml vatn 150 ml kókosmjólk 1 tsk salt (himalaja- eða sjávarsalt) ef þarf hvítur pipar, ef þarf smá klípa saffran (má sleppa) Afhýðið lauk, gulræt- ur, sæta kartöflu, engifer og hvítlauk og saxið gróft. Hitið kókosolíuna í potti og steikið lauk- inn þar til hann fer að linast. Ef vantar meiri vökva, notið þá vatn. Bætið hvítlauk og engiferi út í og steikið áfram. Bætið karríi út í og hrærið vel. Bætið helmingnum af vatninu út í og svo gulrótum og sætum kartöflum. Hitið þar til grænmetið fer að mýkjast. Bætið afganginum af vatninu ásamt grænmetistening- unum út í og hrærið vel. Látið malla í 15 mínútur eða þar til grænmetið er orðið mjúkt. Bætið kók- osmjólk út í. Bætið saffrani út í ásamt salti og pipar eins og þarf. Maukið súpuna með töfrasprota eða í matvinnsluvél. Berið fram með góðu brauði. Gulrótar- og kókossúpa frá Sansibar

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.