Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.01.2021, Qupperneq 28

Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.01.2021, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.1. 2021 LESBÓK VEIKINDI Spjallþáttastjórnandinn og raunveruleikastjarnan Sharon Osbourne ræddi veikindi sín í þætti sínum vestur í Bandaríkjunum í vikunni en hún greindist með kórónuveiru- sjúkdóminn fyrir rúmum mánuði. Kvaðst hún hafa fengið öll helstu einkennin, höfuðverk, beinverki, svima, ógleði og svo framvegis en sé orðin býsna brött í dag. Þó hafi hún hvorki endurheimt þrekið né bragðskynið að fullu. „Mér sígur í brjóst á undarlegustu tímum dagsins,“ sagði Sharon. Hún hélt sig að vonum fjarri bónda sínum, málmgoðinu Ozzy, meðan á veikindunum stóð enda er hann í áhættuhópi; greindist með langvinna lungna- þembu á síðasta ári. „Fái ég veiruna þá er úti um mig,“ sagði Ozzy, sem orðinn er 72 ára, við tímaritið GQ fyrir skemmstu. Sharon öll að koma til Sharon Osbourne er að hressast. AFP SEIGLA Ted gamli Danson ætlar að reynast al- veg ofboðslega slitgóður í sjónvarpi en nýir gam- anþættir, þar sem hann er í aðalhlutverki, voru frumsýndir í Bandaríkjunum í vikunni. Þeir kall- ast Mr Mayor eða Borgarstjórinn og fjalla um Neil Bremer, kaupsýslumann á eftirlaunum, sem býður sig í hálfkæringi fram til embættis borg- arstjóra í borg englanna. Þegar hann vinnur þarf okkar maður að átta sig á því fyrir hvaða pólitík hann stendur, með varaborgarstjórann, sem Holly Hunter leikur, andandi ofan í háls- málið á sér. Hún ber það skemmtilega nafn Arpi Meskimen. Þættirnir eru úr smiðju 30 Rock- höfundanna Tinu Fey og Roberts Carlocks. Enn dansar Danson Ted Danson gefur ekkert eftir. Aldrei einn á ferð Gerry Marsden, söngvari og gítarleikari Liverpool-sveitarinnar Gerry and the Pacemakers, lést á dögunum, 78 ára að aldri. Hans er fyrst og fremst minnst fyrir flutning sinn á smellinum ódauðlega, You’ll Never Walk Alone. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is You’ll Never Walk Alone hefur verið einkennislag knattspyrnufélagsins Liver- pool áratugum saman, sungið á hverjum einasta heimaleik liðsins sigursæla. AFP Rétt svar er Gerry and the Pace- makers en fyrstu þrjár smáskífur þeirrar ágætu sveitar fóru beinustu leið á toppinn, How Do You Do It?, I Like It og You’ll Never Walk Alone. Sá árangur var ekki jafnaður fyrr en 1984 þegar enn ein Liverpool-sveitin, ég veit! Bítlarnir, Bítlarnir ... En vit- iði hvað? Það er rangt hjá ykkur. Bítlarnir þustu að vísu fram á sjón- arsviðið á þessu sama ári en komu þó ekki lagi á topp breska vinsældalist- ans fyrr en í þriðju atrennu, From Me to You. Hvaða rokkhljómsveit frá Liver-pool kom þremur fyrstu smá-skífum sínum á topp breska vinsældalistans á því herrans ári 1963? Nú ryðjist þið auðvitað hvert fram fyrir annað þar sem þið eruð niður- komin og hrópið hástöfum: Ég veit, Málmheimar syrgja nú finnska söngvarann og gítarleikarann Alexi Laiho sem lést á dög- unum aðeins 41 árs að aldri. Laiho er þekkt- astur fyrir að hafa stofnað og starfrækt mel- ódíska dauðarokksbandið Children of Bodom en það leystist upp á nýliðnu ári. Naut bandið hylli víða um lönd. „Það var heiður að spila með þér, Alexi. Þú varst miklum hæfileikum gæddur, goðsögn sem skópst töfra og hækkaðir viðmiðið fyrir okkur hin,“ sagði gítarleikarinn Daniel Frey- berg sem var með Laiho í Children of Bodom. Laiho hafði nýverið sett saman nýtt band, Bodom After Midnight, og hermt er að til séu nokkur lög sem gefin verði út á næstunni. Ekki hefur komið fram hvert banamein Laihos var en fyrir liggur að hann hafði glímt við vanheilsu um skeið. Hann skilur eftir sig eiginkonu og stjúpbarn. Alexi Laiho látinn Alexi Laiho var aðeins 41 árs.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.