Morgunblaðið - 01.02.2021, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. FEBRÚAR 2021
Snorri Másson
snorrim@mbl.is
Þörfin fyrir þjónustu Píeta-samtak-
anna, sem sinna forvarnastarfi gegn
sjálfsvígum, er mikil og aðsókn er að
aukast verulega í þjónustuna, að
sögn Kristínar Ólafsdóttur, fram-
kvæmdastjóra samtakanna. Þeim
sem leita aðstoðar samtakanna fjölg-
ar verulega á milli ára og oft reynist
desembermánuður mörgum einkar
erfiður. Til marks um aukna aðsókn
er sú tölfræði að 537 einstaklingar
hringdu í hjálparsíma Píeta í desem-
ber 2020 en 194 í sama mánuði árið
áður. Það er um 176% aukning á milli
ára, en þar spilar einnig inn í að nú er
síminn opinn allan sólarhringinn.
„Við fögnum því að fólk virðist vilj-
ugra að leita sér hjálpar og gera það
og sömuleiðis vita fleiri af okkur en
það er samt svoleiðis að starfsemi
okkar hefur fimmfaldast. Í fyrra
voru samtals rúmlega 4.000 viðtals-
stundir hjá okkur, þannig að þetta er
mjög mikið, og nú í janúar eru viðtöl
yfir 500 talsins,“ segir Kristín í sam-
tali við Morgunblaðið. Píeta er með
aðstöðu á Baldursgötu í miðbæ
Reykjavíkur, en Kristín segir að
húsnæðið þar sé raunar löngu
sprungið vegna aukinna umsvifa.
„Hér er uppbókað frá morgni til
kvölds og nú höfum við bætt inn
laugardögum líka að hluta. Svo reyn-
um við að auka hópastarfið til að
koma fleirum að og erum með þá
stefnu að þú þurfir aldrei að bíða, því
að við trúum ekki á biðlista þegar
fólki líður það illa að það langar að
taka eigið líf. Hins vegar er komin
upp sú staða sem okkur finnst óvið-
unandi að sumir þurfa að bíða. En
aldrei lengi.“
Kristín ítrekar mikilvægi þeirra
skilaboða að sjálfsvíg sé aldrei nokk-
urn tímann lausn við neinum vanda,
heldur bara harmleikur sem skilur
eftir sig mörg sár. „Það eru alltaf til
lausnir og það er hægt að vinna í öllu.
Það á enginn að burðast einn með
sálrænan sársauka. Hjá okkur starf-
ar einstakur hópur fólks sem sér-
hæfir sig í þessum málaflokki,“ segir
hún. Í kjölfarið er hægt að fá stuðn-
ing eða heildræna meðferð og fyrsta
skrefið á eftir símtali er að mæta í
heimilislegt umhverfi á Baldursgötu,
fá sér kaffi og ræða við sérfræðing
hjá Píeta.
Endanleg tölfræði um fjölda
sjálfsvíga árið 2020 liggur ekki fyrir
en aðsókn í þjónustu Píeta og aðrir
þættir benda til þess að þau verði
fleiri talsins en þau voru árið 2019.
Þá voru þau 39, eins og var yfirskrift
herferðar frá Geðhjálp og Píeta, sem
vakti mikla athygli í vetur. Í ágúst
2020 höfðu 30 sjálfsvíg verið skráð
hjá lögreglu.
Uppbókað hjá Píeta
frá morgni til kvölds
Símtölum til Píeta fjölgaði um 176% á milli ára eftir að
opnað var fyrir sólarhringsþjónustu Sjálfsvíg er aldrei lausn
Ljósmynd/Aðsend
Samtök gegn sjálfsvígum Starf-
semi Píeta hófst 2017 hér á landi.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Svæði sem þegar hafa verið frið-
lýst eru nærri 27 þúsund ferkíló-
metrar að flatarmáli í heild og ná
því til 26% alls Íslands. Ef áform
um hálendisþjóðgarð verða að
veruleika, samkvæmt núverandi
áætlun, bætast um 15 þúsund fer-
kílómetrar við. Þá verða 40%
landsins friðlýst.
Friðlýsingar samkvæmt náttúru-
verndarlögum eru í mörgum mis-
munandi flokkum auk þess sem
svæði eru vernduð með sérstökum
lögum og virkjanakostir sem raðað
hefur verið í verndarflokk ramma-
áætlunar eru friðaðir sérstaklega.
Þessi svæði eru nú alls 122, sam-
kvæmt samantekt Hagstofu Ís-
lands.
Fleiri svæði friðlýst
Stærsti hluti friðaðs lands er
innan þjóðgarðanna þriggja,
Vatnajökulsþjóðgarðs, Þingvalla-
þjóðgarðs og þjóðgarðsins Snæ-
fellsjökuls. Þar munar mest um
Vatnajökulsþjóðgarð sem nær
yfir 14% landsins.
Fyrir liggur frumvarp á Al-
þingi um stofnun hálendis-
þjóðgarðs. Hann verður um 30
þúsund ferkílómetrar að stærð.
Vatnajökulsþjóðgarður lendir inn-
an hans og ýmis önnur friðlýst
svæði. Er því um helmingur
væntanlegs þjóðgarðs þegar frið-
lýstur. Viðbótin verður samt um
15 þúsund ferkílómetrar.
Auk þess vinna Umhverfis-
stofnun og umhverfisráðuneytið
að ýmsum öðrum friðlýsingum og
má áætla að 15-20 ný svæði verði
friðlýst á starfstíma núverandi
ríkisstjórnar, auk friðlýsinga
virkjanakosta í verndarflokki
rammaáætlunar. Hluti af þessum
viðbótum er kominn inn í tölur
Hagstofunnar. Meðal þeirra frið-
lýsinga sem unnið er að er stofn-
un nýs þjóðgarðs á sunnan-
verðum Vestfjörðum. Lendir
Dynjandi meðal annars innan
hans.
Fjórðungur er
þegar friðlýstur
Verði hálendisþjóðgarður stofnaður
munu friðlýst svæði þekja 40% Íslands
Fjöldi og stærð friðlýstra svæða árið 2020
Friðlýst svæði 2020
Hálendisþjóðgarður
– viðbót
Ekki friðlýst
Fjöldi Stærð (km2)
Þjóðgarðar 3 15.097
Náttúruvætti 44 129
Friðlönd 41 3.871
Friðlýst búsvæði 4 37
Fólkvangar 23 516
Svæði vernduð með sérlögum 2 2.996
Landslagsverndarsvæði 2 402
Friðlýsing svæða í verndar-
flokki rammans 3 3.629
Alls 122 26.677
Áætluð viðbót með hálendisþjóðgarði 15.000
Alls með hálendisþjóðgarði 41.677 Heimild: hagstofa.is, stjornarradid.is
Ísland allt
103.000
km2
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Umfjöllun umhverfis- og samgöngu-
nefndar um frumvarp umhverfisráð-
herra um hálendisþjóðgarð hefst
fyrir alvöru á næstunni. Frestur til
að skila inn umsögnum rennur út í
dag og fljótlega verður farið að kalla
gesti fyrir nefndina. Sú hugmynd
hefur einnig komið upp að fara í vett-
vangsferðir til að hitta fólk á áhrifa-
svæðum hugsanlegs þjóðgarðs en
þróun kórónuveirufaraldursins ræð-
ur þó för í því efni.
Borist höfðu 63 umsagnir um
frumvarp um hálendisþjóðgarð síð-
degis í gær. Einhverjar geta bæst
við í dag. Umsagnirnar eru fremur
neikvæðar, þegar á heildina er litið,
þótt einnig hafi borist umsagnir þar
sem lýst er yfir stuðningi við efni
frumvarpsins.
Nefndin mun nú fara yfir umsagn-
irnar og kalla gesti fyrir nefndina.
Kolbeinn Óttarsson Proppé, sem
kjörinn hefur verið framsögumaður
málsins við umfjöllun nefndarinnar,
reiknar með að margir gestir komi
fyrir nefndina. „Sjálfur hefði ég
gaman af því ef við gætum hreyft
okkur eitthvað og jafnvel farið í vett-
vangsferðir og það hefur aðeins ver-
ið rætt. Við myndum skoða einhver
svæði, ræða við heimafólk og kynna
okkur reynslu fólks og sveitarfélaga
af Vatnajökulsþjóðgarði. Við sjáum
hvað kórónuveiran leyfir,“ segir Kol-
beinn.
Togast á um röð verkefna?
Bergþór Ólason, fulltrúi Mið-
flokksins og formaður umhverfis- og
samgöngunefndar, segir að miklir
fyrirvarar samstarfsflokka VG í rík-
isstjórn veki athygli. „Ég velti því
fyrir mér hvaða áhrif það muni hafa
á þá miklu vinnu sem fram undan er í
nefndinni og málið í heild,“ segir
Bergþór. Nefnir hann í því sambandi
að mörg stór mál séu til umfjöllunar í
nefndinni, meðal annars þriðji áfangi
rammaáætlunar, og skoða þurfi í
hvaða röð eigi að vinna þau. Lýsir
Bergþór þeirri skoðun sinni að rétt
kunni að vera að ljúka umfjöllun um
rammaáætlun áður en tekið verði til
við hálendisþjóðgarð. Vísar hann til
þeirra takmarkana á orkunýtingu
sem felast í frumvarpinu um hálend-
isþjóðgarð og rétt sé að vinna grunn-
vinnuna, rammaáætlun, fyrst.
Kolbeinn segir að ekki sé farið að
ræða röð verkefna en bendir á að
venjan sé að taka mál fyrir eftir
þeirri röð sem þau berast úr þingsal.
Frumvarpi um hálendisþjóðgarð
hafi verið vísað til nefndarinnar í
desember og nú sé að ljúka umsagn-
arfresti en rammaáætlun hafi nýlega
verið vísað til nefndarinnar og sé
umsagnarfrestur þess máls að hefj-
ast.
Þingsályktunartillagan um vernd-
ar- og orkunýtingaráætlun, svo-
nefnda rammaáætlun, var fyrst lögð
fram á árinu 2016, þegar verkefn-
isstjórn þriðja áfanga hafði lokið
störfum, en er enn óafgreidd frá Al-
þingi. Tillagan sem núverandi ráð-
herra lagði fram er efnislega sam-
hljóða tillögu fyrri umhverfis-
ráðherra þannig að þingmenn
þekkja málið nokkuð vel.
Reynt að ná samkomulagi
Í stefnuyfirlýsingu núverandi rík-
isstjórnar er kveðið á um að stofn-
aður verði þjóðgarður á miðhálend-
inu og kveðið á um samráð án þess að
farið sé í efni frumvarps.
Einstakir þingmenn Sjálfstæðis-
flokksins lýstu yfir fyrirvörum við
efni frumvarpsins við umfjöllun
stjórnarflokkanna um frumvarpið og
þingflokkur Framsóknarflokksins í
heild gerði fyrirvara í tíu liðum.
Spurður um markmið sín við vinn-
una sem fram undan er segir Kol-
beinn: „Að við náum saman um að
málið verði að veruleika. Það er mitt
að sjá hvaða flöt er hægt að finna á
því, hlusta á ólík sjónarmið og hvað
hægt er að sætta sig við til þess að
málið nái í gegn.“
Umfjöllun um há-
lendisþjóðgarð hefst
Umsagnarfrestur rennur út í kvöld 63 athugasemdir borist
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Náttúruperla Dettifoss er innan Vatnajökulsþjóðgarðs og verður því hluti
af hinum nýja hálendisþjóðgarði, ef hann verður að veruleika.
Tveir hafa verið handteknir vegna
skotárásar sem gerð var á bíl
Dags B. Eggertssonar borgar-
stjóra og á skrifstofur stjórnmála-
flokka fyrir skemmstu. Annar
þeirra, karlmaður um sextugt,
hefur verið úrskurðaður í gæslu-
varðhald. Málið er nú til rann-
sóknar lögreglu, en Dagur segir
að fjölskylda hans taki atburð-
unum af æðruleysi og telur líklegt
að árásin hafi verið gerð aðfara-
nótt föstudags eða laugardags í
síðustu viku. Í Silfri RÚV sagðist
Dagur ekki vilja skapa slæmt for-
dæmi með því að hætta í pólitík.
Það að ógna einhverjum eða hóta
megi ekki hafa í för með sér að
viðkomandi hrekist úr stjórn-
málum. Hann segist ekki vilja
hrapa að neinu orsakasamhengi
milli árásarinnar og myndbands
sem birt var fyrir stuttu, þar sem
heimili Dags er sýnt.
Tveir í haldi lögreglu vegna skotárásanna