Morgunblaðið - 01.02.2021, Síða 18
18 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. FEBRÚAR 2021
✝ GuðmundurEinarsson
fæddist í Vest-
mannaeyjum 28.
september 1947.
Hann lést á Heil-
brigðisstofnun Suð-
urnesja 24. janúar
2021. Tveggja ára
flutti hann með
fjölskyldu sinni til
Grindavíkur og bjó
þar til æviloka.
Foreldrar hans voru Einar Sím-
onarson og Sólrún Guðmunds-
dóttir en þau eru bæði látin.
Systkini Guðmundar eru Hjál-
mey, Sigurpáll (látinn), Helgi og
Erling.
Eftirlifandi eiginkona Guð-
mundar er Guðrún H. Jóhann-
esdóttir, f. 5. júní
1948. Börn þeirra
eru Bjarki, f. 18.
janúar 1973, Víðir,
f. 13. ágúst 1977, og
Fríða Egilsdóttir, f.
26. ágúst 1966,
fósturdóttir Guð-
mundar.
Útför Guð-
mundar fer fram
frá Grindavík-
urkirkju í dag, 1.
febrúar 2021, klukkan 15, að
viðstöddum ættingjum og nán-
um vinum. Streymt verður frá
athöfninni á slóðinni:
https://youtu.be/EooqBf3zicU
Hlekk á streymi má einnig
finna á Andlátsvefnum:
https://www.mbl.is/andlat
Það er erfitt að koma á blað
þeim tilfinningum sem bærast í
brjósti mér við að skrifa þessi
minningarorð um þig, elsku
pabbi minn. Þú kenndir mér svo
að segja allt sem ég kann, ég
byrjaði að skera utan af skreið
um 10 ára aldur og vann hjá þér
öll sumur og skólafrí svo að
segja þangað til Hælsvíkin var
seld. Þú lagaðir alla mína bíla,
smíðaðir það sem smíða þurfti og
pípaðir, gerðir allt sem þurfti að
gera en ég varð alltaf að vera
með svo ég myndi læra hvernig
ætti að gera hlutina. Stundum
var maður alveg til í að þú mynd-
ir bara laga hlutina og ég þyrfti
ekkert endilega að vera með, en
þú tókst það aldrei í mál, ég
þyrfti að læra þetta.
Ég veit ekki hvert ég á að
leita ráða núna, þú varst ekki bú-
inn að kenna mér allt sem þú
kunnir. Ég á eftir að taka oft upp
símann eða ætla að kíkja í heim-
sókn til að spyrja þig ráða og
átta mig svo á því að þú ert far-
inn og ég þarf að finna út úr
hlutunum sjálfur.
þessa stundina er erfitt að
hugsa sér lífið án þín, en þá
hugsa ég um orðin þín sem voru
með þeim síðustu sem þú sagðir
við mig þegar ég sat með þér á
spítalanum: „Þetta er bara
svona…Þið haldið áfram.“ Það
munum við gera, við klárum pall-
inn uppi í bústað, ég kem vatni á
skálann í vor en umfram allt
munum við passa upp á mömmu
fyrir þig og halda minningu þinni
á lofti.
Horfið er nú sumarið og sólin,
í sálu minni hefur gríma völd.
Í æsku léttu ís og myrkur jólin;
nú einn ég sit um vetrarkvöld.
(Vilhjálmur Vilhjálmsson).
Elsku pabbi, ég á eftir að
sakna þín svo mikið, takk fyrir
allar dýrmætu stundirnar sem
við áttum saman.
Þinn sonur
Bjarki.
Hann Gummi er dáinn. Bara
það að setja það niður á blað
virðist óraunverulegt. Alltaf
koma endalokin okkur jafn mikið
á óvart þó svo að við vitum að
þetta bíði okkar allra.
Ég var einungis fjögurra ára
gömul þegar ég kynntist honum
Gumma fóstra mínum en ég
fylgdi í kaupbæti þegar hann og
mamma mín Gunna Dóra fóru að
slá sér upp. Alla mína tíð kallaði
ég hann Gumma fóstra minn en
líkt og ég sagði oft við hann leit
ég alltaf á hann sem pabba minn.
Það sýnir að ekki þarf blóðtengsl
til þess að standa undir heitinu
pabbi.
Í æsku minni vann Gummi
myrkranna á milli, fyrst á sjó og
síðan þegar hann kom í land og
gerðist verkstjóri í fyrirtæki
þeirra feðga Hælsvík. Vertíðirn-
ar sem voru í den í Hælsvík voru
erfiðar en skemmtilegar. Eina
leiðin fyrir Gumma og mömmu
til þess að slappa af í sumarfrí-
inu var að skreppa til Benidorm
en þangað voru ófáar ferðirnar
farnar.
Gummi var með eindæmum
stríðinn og með skemmtilegan
húmor. Í æsku minni áttum við
fjölskyldan ekki bíl en Gummi og
mamma leigðu bílaleigubíl í
nokkra daga á hverju sumri.
Vaninn var að tjalda við læk því
ekki voru skipulögð tjaldsvæði á
þessum tímum. Einhverju sinni í
einni útilegunni var Gummi að
bursta fölsku tennurnar sínar við
lækinn er hann kallar á okkur
mömmu: „Ég missti tennurnar í
lækinn!“ Að sjálfsögðu hlupum
við mamma langt niður eftir
læknum og óðum út í ef við sáum
eitthvað hvítt. Eftir þó nokkra
leit verður okkur litið upp og
sjáum þá Gumma skellihlæjandi
með tennurnar uppi í sér.
Gummi var handlaginn og
nostraði við þau verkefni sem
hann tók sér fyrir hendur. Alltaf
var hægt að leita ráða hjá honum
og hann var boðinn og búinn að
aðstoða eftir þörfum. Er ég og
eiginmaður minn hann Beggi
keyptum okkar fyrstu íbúð var
hann eins og grár köttur með
hamarinn, sögina og málningar-
pensilinn. Sama var upp á ten-
ingnum þegar við byggðum hús-
ið á Sólvöllunum, alltaf gátum
við leitað til hans Gumma.
En hann Gummi fóstri minn ól
ekki bara mig upp, maðurinn
minn hann Beggi kom inn í fjöl-
skylduna einungis fimmtán ára
gamall og því má segja að
Gummi og mamma hafi einnig
alið hann upp. Þegar barnabörn-
in fóru að mæta á svæðið var
Gummi í essinu sínu, hann tók
meiri þátt í lífi barnabarnanna
en kannski hjá okkur systkinun-
um þar sem hann vann myrkr-
anna á milli þegar við vorum að
alast upp.
Gummi hætti sextugur að
vinna og þau mamma fóru að
ferðast enn meira um heiminn og
einnig var meiri tími til þess að
dvelja í sumarbústaðnum þeirra
í Grímsnesinu. Þar var Gummi í
essinu sínu og maður minn hvað
vel var hugsað um bústaðinn.
Nú er ferðalagi hans Gumma
lokið hér á jörðinni en ég er þess
fullviss að hann fylgist með okk-
ur og passar upp á hana Gunnu
sínu og okkur hin. Elsku Gummi
takk fyrir allt, minningin þín lif-
ir.
Fríða Egilsdóttir.
Minningin um ljúfan dreng
situr eftir í hjörtum okkar, minn-
ing sem er dásamleg en óskap-
lega er þetta sárt. Ég kem í fjöl-
skylduna ykkar Gunnu fyrir 30
árum, þá aðeins 15 ára gömul
stelpuskjáta, og þið Gunna tókuð
mér opnum örmum og hefur mér
alltaf liðið eins og dóttur ykkar,
fann fyrir hlýju, gleði og sam-
heldni í fjölskyldunni.
Fyrir mig og mína varstu
ávallt til staðar; passa krakkana
þegar þau voru yngri, koma í
Efstahraunið til að laga, græja
og gera fyrir okkur, smíða eitt
stykki sólpall var ekkert stórmál
og yfirleitt komstu óumbeðinn.
Við fjölskyldan búum og líður vel
í húsinu sem þið Gunna byggðuð
fyrir 47 árum og hófuð ykkar bú-
skap. Var það ósjaldan sem
Bjarki minn hringdi í pabba þeg-
ar hann vantaði að vita eitthvað
um húsið, þá hlakkaði í þér því
þú vissir nákvæmlega hvar allar
lagnir og rafmagn voru og hafðir
gaman af að segja frá.
Kaffisopinn eftir að ganga síð-
asta spölinn með þér í dag verð-
ur í Efstahrauninu þér til heið-
urs og þar verður þú með okkur,
ég er nokkuð viss um það. Dugn-
aður og vinnusemi einkenndi þig
og sást langar leiðir, stundum
um of að okkur fannst, en þér
fannst ekkert stórmál enda
þekktur undir nafninu pískurinn.
Elsku Gummi, ég er nokkuð
viss um að þú sért verkstjóri
hvar sem þú ert núna og húm-
orinn þinn ekki langt undan. Við
fjölskyldan höldum áfram með
ljúfar minningar í hjarta okkar,
ég skal passa vel upp á litla-písk
og Gunnu okkar fyrir þig.
Þó að kali heitur hver,
hylji dali jökull ber,
steinar tali og allt, hvað er,
aldrei skal ég gleyma þér.
(Vatnsenda-Rósa)
Þín tengdadóttir,
Margrét (Magga)
Magnúsdóttir.
Þegar ég kveð vin minn og
tengdaföður Guðmund Einars-
son „Gumma“ er margs að minn-
ast. Fyrir 40 árum urðu okkar
kynni þegar ég kom inn á heimili
þeirra hjóna Gumma og Guðrún-
ar Jóhannesdóttur, Gunnu Dóru,
aðeins 15 ára að aldri þegar ég
var í tilhugalífinu með fóstur-
dóttur hans, Fríðu Egilsdóttur.
Fljótlega fór ég að vinna hjá
honum með skóla í útgerðar- og
fiskvinnslufyrirtæki þeirra
bræðra og feðga Hælsvík. Það
var mikið unnið á þessum árum,
öll kvöld og allar helgar. Gummi
var mikill verkstjóri og útsjón-
arsamur um að gera verkin létt-
ari fyrir starfsfólkið og þar var
alltaf mikil starfsgleði. Félags-
og bæjarmál lét Gummi sig mik-
ið varða og þar ber hæst upp-
byggingu Víðihlíðar, íbúða og
sjúkrastofnunar fyrir aldraða, og
uppbyggingu Saltfiskseturs Ís-
lands, nú Kvikan. Störf hans fyr-
ir Lions, þá sérstaklega
„sveinkastörfin“ fyrir jólin.
Gummi reyndist mér sannur vin-
ur og má segja að hann hafi ver-
ið mér sem faðir. Við brölluðum
margt saman; húsbyggingar,
veiðiferðir og ferðalög utan- og
innanlands. Gummi var ráðagóð-
ur maður og hafði sterkar skoð-
anir, hann naut efri áranna með
henni Gunnu Dóru sinni, börnum
og stolti hans, barnabörnunum,
alltaf var stutt í grínið og
gleðina. Gæfa þeirra hjóna hefur
mótast af ást, vináttu, dugnaði,
vinnusemi og samheldni.
Elsku vinur, þín verður sárt
saknað. Þökk sé þér fyrir góða
vináttu og ógleymanlegar stund-
ir. Blessuð sé minning þín
Gummi.
Bergsteinn Ólafsson.
Í dag kveðjum við elsku afa
okkar með söknuði og hlýju. Við
erum ótrúlega leið að þú sért
farinn en á sama tíma glöð að
þér líður betur núna þar sem þú
ert. Við minnumst allra góðu
stundanna sem við áttum svo
margar með þér. Við yljum okk-
ur við allar dýrmætu minning-
arnar um þig sem munu lifa
sterkt í hjörtum okkar alla ævi.
Við erum einstaklega heppin að
hafa átt þig sem afa og munum
vera ævinlega þakklát fyrir það.
Það var svo gaman alltaf uppi í
sumarbústað hjá þér og ömmu
þar sem þú varst í essinu þínu
hvort sem það var að smíða pall
eða setja upp körfuboltakörfu
fyrir okkur krakkana. Þú vissir
allt og nutum við þess að spyrja
þig út í allt milli himins og jarð-
ar því alltaf gafstu eitthvað
merkilegt frá þér. Þú mundir þó
ekki alveg allt, og það helst hvað
við hétum, svo við vorum vön því
að þú kallaðir okkur „þú“ til að
þú myndir græða tíma í stað
þess að reyna að muna nöfn á
öllu fólkinu. Þú varst mikill
húmoristi og naust þess að búa
til grín úr öllu, og hlóst svo
manna mest. Það verður skrýtið
að hafa þig ekki hjá okkur leng-
ur en við vitum að þú vakir yfir
okkur þangað til við hittumst
næst. Takk fyrir allt elsku afi,
við elskum þig.
Telma Lind, Veigar
Gauti og Arnþór Logi
Bjarkabörn.
Í ágúst 2019 var ég staddur á
spítalanum við Hringbraut
ásamt nokkrum úr stórfjölskyld-
unni minni og sjúkrahúsprest-
inum. Afi minn var látinn. Prest-
urinn spurði um afa og talið
barst meðal annars að því hvað
hann hefði átt mörg barnabarna-
börn. Ég notaði tækifærið og til-
kynnti þeim að það væri reyndar
von á einu til viðbótar í mars. Ég
hafði ætlað að flytja ömmu og
afa fréttirnar fyrst en það var
víst orðið of seint núna.
Rúmu hálfu ári síðar fæddist
hún Lóa mín og þótt það væri
sárt að hugsa til þess að hún
fengi aldrei að hitta langafa sinn
var ákveðin huggun í því að vita
að hún væri svo rík að eiga
ennþá tvo langafa mömmu sinn-
ar megin og það var nú alls ekki
amalegt. Annar þeirra er sá sem
hér er um skrifað – afi Gummi.
Hann var hlýr, alúðlegur, glett-
inn, hjálpsamur og góður maður.
Gummi var hafsjór fróðleiks
og notaði hvert tækifæri til að
kenna, fræða og ræða málin. Við
ræddum pólitík þótt ég hafi
mjög takmarkaðan áhuga á
henni og ekkert til málanna að
leggja. Við ræddum líka bæjar-
skipulag, burðarþol, pípulagnir,
bíla og byggingarframkvæmdir
svo fátt eitt sé nefnt. Við disk-
úteruðum meira að segja þriðja
orkupakkann þótt það væru
liðnir margir mánuðir síðan
hann var samþykktur. Ég hef að
vísu ekki minnsta vit á neinu af
þessu en ég hlustaði alltaf af at-
hygli og reyndi að virðast spek-
ingslegur því maður hlustaði
þegar afi Gummi talaði. Hann
vissi allt og kunni allt og það er
alls ekkert grín.
Ég sé hvernig börnin hans,
tengdabörn og barnabörn líta
upp til hans og veit að hann var
mikils metinn og elskaður. Ég
samgleðst þeim að hafa átt hann
að. Ég er þakklátur fyrir að
dóttir mín fékk tækifæri til að
hitta langafa sinn og eyða tíma
með honum og ég er stoltur af
að hafa kynnst honum sjálfur.
Núna er hann eflaust kominn á
góðan stað, eitthvað að gera og
græja.
Egill Halldórsson.
Það var í sumarbústaðnum
Skansinum fyrir nokkuð mörg-
um árum sem afi spurði mig
heimspekingslega hver tilgang-
ur lífsins væri. Ég man ekki
hverju ég svaraði en hann var
fljótur að leiðrétta svar mitt.
Hann sagði mér þá að tilgang-
urinn væri að fjölga sér. Á sín-
um tíma fannst mér þetta nú
heldur gamaldags viðhorf hjá
afa mínum og hló bara. Í dag
veit ég hvað hann átti við. Mér
var þetta samtal afar minnis-
stætt þegar ég fór með Lóu,
langafastelpuna hans, í heim-
sókn til hans í síðasta skiptið
sem ég sá hann. Hann kannski
orðaði þetta á gamaldags máta
en ég leyfi mér að túlka að hann
hafi verið að vísa í kraftinn,
gleðina, djúpu tengslin, kærleik-
ann og nándina sem skapast við
að barn fæðist. Afa var í mun að
ég fyndi mér kærasta og var ið-
inn við að spyrja mig hvernig
gengi í þeim málum. Óþarfa at-
hugasemdir hugsaði ég á sínum
tíma en í dag sé ég að áhyggjur
hans voru sprottnar út frá þess-
ari lífsspeki hans og út frá kær-
leika.
Vélstjórinn og fyrrverandi
verkstjórinn bjó yfir ýmsum
góðum kostum. Hann var út-
sjónarsamur, laghentur þúsund-
þjalasmiður með röggsamar
skoðanir á málefnum líðandi
stundar. En hann var líka fjöl-
skyldumaður, húmoristi, hlýr og
kærleiksríkur. Þessi blanda
gerði hann að besta afa í heimi.
Þín afastelpa,
Guðrún Ásta.
Genginn er vinur minn og
frændi Guðmundur Einarsson
eftir skamma baráttu við illvígan
sjúkdóm. Þegar ég sest niður til
að skrifa minningarorð um hann
reikar hugurinn til Þórkötlu-
staðahverfisins í Grindavík þar
sem hús og heimili æsku okkar
stóð. Guðmundur bjó á Eyvind-
arstöðum og ég í Hjarðarholti.
Hann kom oft í Hjarðarholtið í
heimsókn enda stutt á milli
húsa. Þessi tenging okkar í
æsku markaði upphaf ævarandi
vináttu. Mæður okkar voru syst-
ur og vorum við meðvitaðir um
skyldleika okkar. Guðmundur
varð snemma fyrirferðarmikill,
hneigðist til frjálshyggju og
einkaframtaks og fór gjarnan
sínar eigin leiðir, hann vildi setja
reglurnar sjálfur. Hann fór ung-
ur til sjós eins og títt var með
unga menn á þeim tíma og varð
fljótt duglegur sjómaður. Guð-
mundur fór til Vestmannaeyja
til að afla sér vélstjórnaréttinda
og nutum við báðir þeirrar
ánægju að vera samtíma vél-
stjórar á vetrarvertíð með Þóra
skipstjóra á Albert GK. Þá vetr-
arvertíð urðum við aflakóngar
Grindavíkur.
Í Vestmannaeyjum kynntist
hann eftirlifandi eiginkonu sinni
Guðrúnu Halldóru Jóhannes-
dóttur og hafa þau ætíð verið
búsett í Grindavík og verið áber-
andi og virk í bæjarlífinu.
Þeir Eyvindarstaðarfeðgar
stofnuðu til útgerðar og síðar
fiskverkunar sem þeir nefndu
Hælsvík, eftir þekktri fiskislóð
sem er úti fyrir Grindavík.
Fyrirtækið ráku þeir með glæsi-
brag í áratugi. Og segja má að
það starf sem þar var unnið sé
sögulegt framlag til grindvískr-
ar atvinnusögu.
Fyrir tæpum þremur áratug-
um erfði stórfjölskylda okkar
lögbýlið Ísólfsskála, þegar
frændi okkar Ísólfur Guðmunds-
son bóndi féll frá. Guðmundur
tók þar strax forystu og stjórn-
aði félagsskapnum sem heldur
utan um staðinn. Snyrtimennska
og væntumþykja fyrir staðnum
var ávallt í fyrirrúmi hjá honum,
hann var vakinn og sofinn yfir
landareigninni og við „Skála-
félagarnir“ kunnum honum eilíf-
ar þakkir fyrir það. Hann skilur
eftir sig stórt skarð sem vanda-
samt verður að fylla upp í.
Nú þegar komið er að kveðju-
stund vil ég votta Gunnu Dóru,
börnum og öllum aðstandendum
mína dýpstu samúð. Blessuð sé
minning Guðmundar Einarsson-
ar.
Hinrik Bergsson.
Guðmundur
Einarsson
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
SVEINBJÖRN Þ. EGILSON,
fyrrverandi leigubílstjóri á A 59,
Möðrufelli, Eyjafjarðarsveit,
lést föstudaginn 22. janúar. Útförin fer fram
frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn 4. febrúar.
Í ljósi aðstæðna verða aðeins hans nánustu
viðstaddir útförina.
Streymt verður frá athöfninni á facebooksíðunni Jarðarfarir í
Akureyrarkirkju – beinar útsendingar.
Sólveig Björk Kristinsdóttir
Sigurbjörn Egilson Fjóla Egedía Sverrisdóttir
Kristín Egilson
Sveinbjörnsd.
Sveinn Karlsson
Jón Egilson Aðalheiður Pálsdóttir
Hólmfríður Egilson Kristján Önundur Hjálmarsson
Sveinbjörn Egilson
Þorvaldur Egilson
afa-, langafa- og skábörn og Mikki kisi
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
MARTA HJARTARDÓTTIR
frá Hellisholti í Vestmannaeyjum,
er látin. Útförin fór fram frá Fossvogskirkju
29. janúar 2021. Aðstandendur þakka
auðsýnda samúð.
Hafdís Daníelsdóttir
Guðbjartur Daníelsson G. Lára Guðmundsdóttir
Guðmundur Bjarni Daníelss. Jóhanna Kristinsdóttir
Daníel Guðni Daníelsson Petrína Sigurðardóttir
Hjörtur Kristján Daníelsson Kristín Guidice
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir
og afi,
PÁLL RAGNARSSON
tannlæknir, Sauðárkróki,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans í
Fossvogi föstudaginn 29. janúar 2021.
Margrét Steingrímsdóttir
Ragnar Pálsson
Helga Margrét Pálsdóttir Jón Þorsteinn Oddleifsson
Anna Rósa Pálsdóttir Gunnar Valur Stefánsson
og barnabörn