Morgunblaðið - 01.02.2021, Page 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. FEBRÚAR 2021
Atvinnuauglýsingar
Blaðberar
Upplýsingar veitir í síma
Morgunblaðið óskar eftir
blaðbera
k
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar Leikfimi með Hönnu kl. 9. Smíðar, útskurður með leiðbein-
anda kl. 9-14. Opin vinnustofa kl. 9-12. Opinn handavinnuhópur kl. 12-
16. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14.15-15.30. Heitt á
könnunni. Allir velkomnir. Grímuskylda og það þarf að skrá sig í
viðburði eða hópa, sími 411 2600.
Boðinn Myndlist kl. 13 í Bjarta sal. Sundlaugin er opin kl. 13.30-16.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Opnunartími kl. 8.10-16. Kaffisopi
og spjall kl. 8.10-11. Myndlistarnámskeið Margrétar Z kl. 9.15-12.15.
Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Handavinnuhornið kl. 13-14.30. Tálgun
með Valdóri kl. 13-15.30. Síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30. Þátttökuskrán-
ing í síma 411 2790 og á skrifstofu. Grímuskylda og fjöldatakmörk
miðast við 20 manns. Virðum allar sóttvarnir. Nánari upplýsingar í
síma 411 2790.
Garðabær Pool-hópur í Jónshúsi kl. 9. Gönguhópur fer frá Jónshúsi
kl. 10. Gönguhópur fer frá Smiðju kl. 13. Stólajóga í Jónshúsi kl. 10 og
11. Bónusrúta fer frá Jónshúsi kl. 12.40. Zumba í sal í kjallara Vídalíns-
kirkju kl. 16.30 og 17.15. Vatnsleikfimi, Sjálandi kl. 14 og 15. Litlakot
opið kl. 13-16. Gæta þarf að handþvotti og smitvörnum.
Gullsmári Handavinna og postulín kl. 9 og 13, skráning í síma 441
9912. Jóga kl. 9.30 og 17. Grímuskylda og tveggja metra reglan
viðhöfð.
Hraunsel Dansleikfimi á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 8.30 og
9.30. Bingó á miðvikudögum kl. 13. Handverk á miðvikudögum kl. 13.
Píla á fimmtudögum kl. 13. Línudans á föstudögum kl. 10 og 11.
Grímuskylda og 2ja metra reglan eru í gildi og nauðsynlegt að skrá
sig í allt starf fyrirfram í síma 555 0142.
Korpúlfar Hugleiðsla og létt jóga hefst á ný í dag kl. 9 í Borgum,
morgunleikfimi kl. 9.45 í Borgum, ganga kl. 10 frá Borgum og Grafar-
vogskirkju og einnig inni í Egilshöll, virðum fjarlægðarmörk. Hreyfi-
þjálfun með ELSU frá Hæfi, allir velkomnir, þátttökuskráning liggur
frammi, hámark 20 manns. Prjónað til góðs kl. 13 í Borgum og tré-
útskurður á Korpúlfsstöðum í umsjón Gylfa. Virðum sóttvarnir og
grímuskylda.
Seltjarnarnes Gler og leir í samráði við leiðbeinendur. Kaffikrókur-
inn opinn öllum að 20 manns. Jóga kl. 10 fyrir íbúa Skólabrautar og
kl. 11 fyrir íbúa utanað. Handavinna, samvera og kaffi í salnum á
Skólabraut kl. 13. Allir velkomnir. Munum að virða fjarlægðarmörk,
og aðrar sóttvarnir. Grímuskylda. Ath. á morgun þriðjudag verður
helgistund í salnum á Skólabraut kl. 13.30.
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Húsviðhald
Hreinsa þakrennur
og tek að mér ýmisskonar húsaviðhald.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
mbl.is
alltaf - allstaðar
Vantar þig
fagmann?
FINNA.is
✝ Hilmar Krist-inn Adolfsson
fæddist á Patreks-
firði 10. mars 1935.
Hann lést á heimili
sínu 22. janúar
2021.
Foreldrar hans
voru Adolf Hall-
grímsson, f. 1907,
d. 1992, og Helga
Guðmundsdóttir, f.
1908, d. 1994, frá
Patreksfirði. Systkini Hilmars
eru Halldór, f. 1937, d. 1940,
Gylfi, f. 1940, Hildigunnur, f.
Sandra Ósk. 2) Berglind Hulda,
f. 7. október 1959, gift Kristni
S. Gunnarssyni, börn þeirra eru
Hilmar Rafn, giftur Evu Sól-
eyju Guðbjörnsdóttur og eru
börn þeirra Kristinn Þór og
Ásta Sóley. Guðni Már, unnusta
hans er Lilja Dröfn Gylfadóttir
og eru börn þeirra Elmar Páll
og Aron Gylfi. Ósk, gift Ómari
Inga Guðmundssyni og eru
börn þeirra Hlynur, Kári og
Svava Lind.
3. Haukur, f. 19. apríl 1970.
Útför Hilmars fer fram frá
Lindakirkju í dag, 1. febrúar
2021, og hefst athöfnin klukkan
13 og verður athöfninni
streymt á þessum tengli:
http://beint.is/streymi/hiddidolla
Hlekk á streymi má einnig
finna á Andlátsvef mbl.is:
https://www.mbl.is/andlat
1945, d. 2006, og
Anna Halldóra, f.
1951, d. 1951.
Hilmar giftist 23.
febrúar 1957
Svövu Hauks-
dóttur, f. 20. júlí
1937, d. 18. nóv-
ember 2004. Börn
þeirra eru: 1) Anna
Björg, f. 10. mars
1957, gift Páli
Skúlasyni, sonur
þeirra er Skúli, giftur Ásdísi
Dröfn Valdimarsdóttur og eru
börn þeirra Alex Örn og
Föðurminning
Englar Guðs þér yfir vaki og verndi
pabbi minn
vegir okkar skiljast núna, við sjáumst
ekki um sinn.
En minning þín hún lifir í hjörtum
okkar hér
því hamingjuna áttum við með þér.
Þökkum kærleika og elsku, þökkum
virðingu og trú
þökkum allt sem af þér gafstu, okkar
ástir áttir þú.
Því viðmót þitt svo glaðlegt var og
góðleg var þín lund
og gaman var að koma á þinn fund.
Með englum Guðs nú leikur þú og
lítur okkar til
nú laus úr viðjum þjáninga, að fara
það ég skil.
Og þegar geislar sólar um gluggann
skína inn
þá gleður okkur minning þín, elsku
pabbi minn.
Vertu góðum Guði falinn er hverfur
þú á braut
gleði og gæfa okkur fylgdi með þig
sem förunaut.
Og ferðirnar sem fórum við um land-
ið út og inn
er fjársjóðurinn okkar pabbi minn.
(Denver/Guðrún Sigurbjörnsdóttir)
Guð gefi þér góða nótt elsku
pabbi.
Anna Björg, Berglind og
Haukur.
Elsku afi Hiddi, takk fyrir allt.
Í bernsku voru margir föstudag-
ar sem ég spurði hvort ég mætti
gista hjá afa Hidda og ömmu
Svövu. Þannig eru mínar fyrstu
minningar af afa Hidda. Þvílíkt
sældarlíf sem það var að fá að
vera í dekri hjá þeim. Ferðirnar
með tjaldvagninn í Borgarfjörð-
inn eru einnig ógleymanlegar
ásamt strákadögum okkar
frænda. Þá tók afi sér frí frá
vinnu heilan dag og var búinn að
skipuleggja daginn af alls kyns
ævintýrum. Aldrei var keyptur
bíll án þess að ráðfæra sig fyrst
við afa og fyrsta bílinn minn
keypti ég með honum af pítsu-
sala. Þegar búið var að sættast á
verð fór afi fram á að við fengjum
tvær pítsur í kaupbæti sem að
sjálfsögðu gekk eftir. Þegar afi
var með verkstæði úti á Kársnesi
þá kom ég reglulega við hjá hon-
um og þar áttum við dýrmætar
stundir saman. Það má vissulega
segja að afi Hiddi hafi verið 100%
afi og sennilega var hann þá 200%
langafi. Það er okkur ómetanlegt
að Kristinn Þór og Ásta Sóley
hafi fengið tækifæri á að kynnast
langafa Hidda. Í því hlutverki
blómstraði langafi Hiddi hvort
sem var að kíkja í heimsókn til
hans eða í spjalli í gegnum spjald-
tölvuna.
Takk fyrir að vera svona
traustur, skemmtilegur og góður
vinur, elsku afi Hiddi. Þú ert
bestur.
Hilmar Rafn, Eva
Sóley, Kristinn Þór
og Ásta Sóley.
Elsku afi Hiddi, nú ertu farinn
og eftir sitja minningar. Yndis-
legar minningar sem erfitt er að
koma á blað, erfitt vegna þess að
söknuðurinn er mikill og erfitt að
velja úr fjöldanum af góðum
minningum. Minningarnar úr
Trönuhjallanum eru mér ofarlega
í huga, þar leið mér best í fanginu
á þér í afastól eða undir sófaborð-
inu hlustandi á skvaldrið í ykkur
fullorðna fólkinu eða á útvarpið
sem þú naust þess svo að hlusta á.
Svo þótti mér nú ekki leiðinlegt
þegar þú laumaðir að mér bréf-
pening nánast í hvert skipti sem
við kvöddumst.
Ég er þakklát fyrir þær stund-
ir sem Hlynur, Kári og Svava
Lind fengu með þér. Ég mun
segja Svövu Lind sögur af því
þegar þið spjölluðuð saman í
gegnum myndsímtöl og andlit
ykkar lýstust upp af gleði. Minna
Kára á hvað honum fannst gaman
að fara á rúntinn með þér í stóln-
um og hvað þú varst alltaf stoltur
af því hvað Hlynur væri klár þeg-
ar hann malaði þig í spilum. Með
þessum endurminningum mun-
um við skála í mjólk og fá okkur
langafakex.
Guð gefi þér góða nótt.
Ósk afadúkka.
Í dag er kvaddur kær frændi
minn Hilmar Adolfsson og á hug-
ann leita minningar frá æskuslóð-
unum í Urðargötu á Patreksfirði.
Við vorum börn systra úr stórum
og samheldnum systkinahópi sem
kenndi sig við æskuheimilið Hól á
Patreksfirði. Stórfjölskyldan
kennir sig enn við Hól og hefur
haldið mörg ættarmót sem hafa
treyst fjölskylduböndin í gegnum
tíðina. Hiddi var nær systkinum
mínum í aldri og þau leikfélagar á
æskuárum en Hildigunnur systir
hans nær mér í aldri og við leik-
systur. Við litum upp til eldri
systkinanna þar sem aldursmun-
urinn var á bilinu 5-10 ár á Urð-
argötu númer 6 og 7 og vorum
spenntar að fá að passa yngri
frændur á númer 9. Samgangur
milli heimila systkinanna þriggja
sem bjuggu með fjölskyldum sín-
um á Urðargötunni var alltaf
mikill, skroppið á milli húsa í
morgunkaffi, að fá lánað ef eitt-
hvað vantaði skyndilega í matar-
gerðinni, passa þau yngri ef
skreppa þurfti frá eða hjálpast að
ef stórviðburðir voru á döfinni.
Má þar nefna afmæli, jólaboð,
skíða/sleðaferðir, berjaferðir eða
hvað annað sem fjölskyldan tók
sér fyrir hendur. Frændi minn
var mikill gleðigjafi og alltaf
hrókur alls fagnaðar við öll tæki-
færi. Hann var frábær sögumað-
ur og einkum þegar hann rifjaði
upp spaugilegar sögur af fólki og
atburðum á Patreksfirði frá fyrri
tíð. Hann var hjálpsamur og
greiðvikinn hvenær sem leitað
var til hans ef mikið lá við. Svava
konan hans, sem var fædd og
uppalin í Reykjavík, féll vel í hóp
stórfjölskyldunnar. Hún vann um
tíma í barnafataverslun sem við
hjónin rákum og var okkur kær.
Þrátt fyrir heilsubrest hin síðari
ár hélt Hiddi alltaf sinni glöðu
lund og græskulausa húmor svo
það var ævinlega gaman að hitta
hann. Ég veit ég tala fyrir hönd
fjölskyldu minnar þegar ég segi
að hans verður sárt saknað. Fjöl-
skyldu hans votta ég mína dýpstu
samúð. Hvíli hann í friði.
Guðrún Gísladóttir
Bergmann.
Ég hringdi í Hidda í haust á
meðan óheimilt var að heimsækja
hann og spurði hvort hann hefði
tíma fyrir frænda. „Það fer eftir
því hvaða frændi það er,“ svaraði
hann. Frægur fyrir fyndni sína,
hann var alltaf fljótur til svara.
Með kveðju hans nú hverfur í
minningarnar mikilvægur þáttur
úr heimi foreldra minna; útilegur,
spilakvöld, skautaferðir og fleira
þar sem Hiddi frændi var alltaf
miðja skemmtilegheita og at-
hafnasemi. Hann hafði sérstakt
lag á að gleðja okkur krakkana,
hvort það var að skauta með segl,
renna sér á tunnustöfum eða
synda í Laugarvatni. Eftir lifa
minningar um tryggð og trúnað
góðs manns öðrum til fyrirmynd-
ar.
Traust hans og föður míns var
sérstakt. Tíu árum eldri sem ung-
lingur hafði faðir minn gripið
hann 2-3 ára gamlan úr brenn-
andi húsi á Patreksfirði og yfir
heila ævi áttu þeir frændur hvor
annan að. Ég man þegar við
strönduðum einu sinni á Vest-
fjörðum á biluðum bíl, og áður en
sól var risin var Hiddi mættur
með teymi úr Reykjavík, vara-
hluti og græjur; gerði við bílinn,
drakk kaffi og keyrði svo alla leið
aftur í bæinn, eins og ekkert hefði
gerst. Við höfum hist stöku sinn-
um yfir árin og Hiddi spurði mig
alltaf af umhyggju eftir mínu
fólki.
Þannig eru minningar mínar
um elskulegan frænda sem hafði
stærsta hjartað af öllum í Hóls-
ættinni, og ég er honum þakklát-
ur fyrir margt, en mest af öllu að
hafa alltaf getað komið foreldrum
mínum til að hlæja.
Elsku Anna Björg, Berglind,
Haukur, Gylfi og fjölskyldur; Guð
styðji sorg ykkar með vissu um að
hann er í góðum hópi og á besta
stað, heill og sáttur.
Freyr
Frændi okkar af Hólsætt frá
Patreksfirði er fallinn frá á 86.
aldursári. Samheldni fjölskyldna
okkar var mikil á æskuárum okk-
ar og verður lengi í minnum höfð
þegar við bjuggum í Reyni-
hvammi í Kópavogi og Hilmar og
fjölskylda í Hlaðbrekku, stein-
snar frá okkur. Á þessum árum
kynntumst við systkinin Hidda
vel, en hann var okkur einstak-
lega góður. Gestrisni hans og fjöl-
skyldu hans var ómetanleg þegar
fjölskylda mín fékk leyfi til að
gista tímabundið í Hlaðbrekk-
unni meðan verið var að leggja
lokahönd á byggingu Reyni-
hvammsins. Þá var oft glatt á
hjalla; við fimm manna fjölskylda
flutt inn á Hidda með sína fimm
manna fjölskyldu. Á efri hæðinni
bjuggu Freyja föðursystir okkar
og Reynir, hugsið ykkur forrétt-
indi okkar krakkanna.
Okkur þótti Hiddi á þessum ár-
um mesti spaðinn í bænum. Hann
starfaði hjá Rolf Johansen heild-
sölu og vegna starfa sinna hafði
hann til umráða Land Rover-bíl,
mjög skreyttan auglýsingum.
Bifreið þessi var mjög áberandi
og var í fararbroddi allra þeirra
ferða sem við fjölskyldurnar fór-
um í um allt Ísland á þessum ár-
um, oft með öðrum meðlimum
Hólsættarinnar.
Ferðirnar byrjuðu oft á hvíta-
sunnu og stefnt var á Húsafell
eða Þjórsárdal, engu skipti þótt
spáð væri slyddu. Af stað skyldi
haldið, steiktar voru kótilettur og
smurt flatbrauð og farangri og
öllu saman komið fyrir í bílum og
brunað af stað í síðasta lagi síð-
degis á föstudegi. Tjöldin eins og
menn þekkja frá þessum árum
segldúkur, enginn botn, enginn
himinn, ekkert fortjald, bara sofa
í svefnpoka alklæddur, tjaldið hit-
að með prímus rétt fyrir svefninn.
Þrátt fyrir þennan takmarkaða
útbúnað, allavega miðað við nú-
tímann, bjuggu þessar ferðir til
minningar sem ekki er hægt að
meta til fjár og á margan hátt má
segja að við krakkarnir höfum
kynnst Íslandi á þessum ferða-
lögum.
Þegar við krakkarnir komumst
á fullorðinsár fækkaði ferðunum
og samskiptin minnkuðu, en alltaf
berum við þessar góðu æsku-
minningar í brjósti okkar. En
Hiddi hélt áfram að vera mesti
spaðinn og þegar maður hitti
hann á seinni árum var hann bú-
inn að losa sig við Land Roverinn
og kominn á annað feiknamikið
farartæki; rafmagnshjólastól sem
bar hann um allt eins og Land
Roverinn gerði forðum. Hann
mátti oft sjá í Kórnum að horfa á
HK-íþróttaleik eða í Smáralind-
inni á ferð með börnum sínum
Önnu Björgu, Berglindi eða
Hauki.
Við minnumst Hidda fyrir ein-
staka vinsemd og drengskap
gagnvart fjölskyldu okkar alla tíð
og sendum frændsystkinum okk-
ar og þeirra fólki innilegar sam-
úðarkveðjur.
Jón Heiðar
Guðmundsson,
Elín Guðmundsdóttir.
Kveðjustundin komin.
Stund þakklætis og trega. Góð-
ur vinur er genginn. Hlýr og
skemmtilegur maður hann Hilm-
ar. Kynni okkar hjóna, hans og
Svölu eiginkonu hans er lést langt
um aldur fram, hófust er sonur
okkar og dóttir þeirra ákváðu að
stofna fjölskyldu. Sú ákvörðun
gaf okkur fjársjóð í formi barna-
hóps sem Hilmar naut ekki síst að
hitta og umfaðma. Hann fylgdist
með þeim í leik og starfi frá sínum
hjólastól. Hann lét ekkert aftra
sér þótt heilsan væri farin að gefa
eftir.
Á Hjúkrunarheimilinu Boða-
þingi fór hann að tálga fugla sem
urðu lifandi í höndum hans. Hann
var hvers manns hugljúfi og skil-
ur eftir sig góðar minningar. Við
þökkum samfylgdina í gegnum
árin og biðjum góðan Guð að
blessa og styrkja fjölskyldu hans.
Gunnar og Erla.
Hilmar Kristinn
Adolfsson
Morgunblaðið birtir minningargreinar
endurgjaldslaust alla útgáfudaga.
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein.
Minningargreinar