Morgunblaðið - 01.02.2021, Qupperneq 27
AFP
Bestir Dönsku leikmennirnir fagna heimsmeistaratitlinum í Egyptalandi í gær eftir sigur á Svíum.
HM 2021
Kristófer Kristjánsson
kristoferk@mbl.is
Danir eru heimsmeistarar í handknattleik ann-
að sinn í röð eftir 26:24-sigur á nágrönnum sín-
um í Svíþjóð í úrslitaleiknum í Egyptalandi í
gær. Danir fögnuðu sínum fyrsta heimsmeist-
aratitli í sögunni með afgerandi sigri gegn Nor-
egi á HM 2019.
Fáa hefði grunað fyrirfram að Svíar myndu
fara alla leið í úrslit á mótinu enda heltist fjöldi
leikmanna úr lestinni af ýmsum ástæðum stuttu
áður en liðið hóf keppni í Egyptalandi. Engu að
síður fóru þeir næstum alla leið en voru þó stöðv-
aðir að lokum af Dönum sem unnu alla níu leiki
sína á mótinu og standa uppi sem verðskuldaðir
sigurvegarar. Leið þeirra í úrslitin var ekki
klippt og skorin. Þeir höfðu betur gegn gestgjöf-
unum í Egytalandi í vítakeppni í fjórðungs-
úrslitum og lögðu svo Spánverja að velli í æsi-
spennandi leik í undanúrslitunum.
Markvörðurinn Niklas Landin var hetjan gegn
Egyptum og Mikkel Hansen átti stórleik gegn
Spánverjum. Það var því kannski við hæfi að þeir
tveir fóru á kostum í úrslitaleiknum í gær. Han-
sen var markahæstur allra með sjö mörk og
Landin varði 14 af 37 skotum, þar af nokkur úr
dauðafærum í lok leiks er Danir sigldu sigrinum í
höfn. Nikolaj Nielsen skoraði fimm mörk og Ja-
cob Holm fjögur fyrir Dani. Í sænska liðinu var
Hampus Wanne markahæstur með fimm mörk
og Albin Lagergren næstur með fjögur. Illa gekk
hjá Andreas Palicka í sænska markinu, hann
varði aðeins sex af þeim 30 skotum sem hann
fékk á sig. Palicka hefur heldur betur slegið í
gegn á mótinu og var til að mynda frábær gegn
Frökkum í undanúrslitunum. Svíar verða því að
bíða eftir sínum fjórða heimsmeistaratitli en þeir
unnu síðast mótið 1999.
Þetta var fimmti úrslitaleikur Dana en þeir
töpuðu þremur fyrstu áður en sigur loks vannst
fyrir tveimur árum. Þá unnu þeir alla tíu leiki
sína á mótinu sem haldið var í Danmörku og
Þýskalandi. Þeir hafa því unnið síðustu 19 leiki
sína í lokakeppni HM.
Spánverjar vildu það meira
Þá runnu bronsverðlaunin til Spánverja sem
unnu 35:29-sigur á Frakklandi fyrr í gær. Spán-
verjar voru með undirtökin allan tímann og voru
strax 7:2 yfir eftir átta mínútna leik. Alex
Dujshebaev var markahæstur með átta mörk og
bróðir hans Daniel skoraði sex.
Meistarar annað sinn í röð
Danir unnu nágranna sína í úrslitum Spánverjar unnu bronsleikinn
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. FEBRÚAR 2021
KÖRFUKNATTLEIKUR
Blue-höllin: Keflavík – ÍR.................... 18.15
HS Orkuhöllin: Grindavík – Stjarnan 20.15
1. deild karla:
Álftanes: Álftanes – Selfoss................. 19.15
Smárinn: Breiðablik – Hrunamenn .... 19.15
Í KVÖLD!
Dominos-deild karla
Þór Ak. – Valur ..................................... 98:89
Haukar – KR....................................... 87:103
Höttur – Njarðvík ................................ 88:83
Þór Þ. – Tindastóll ....................(frl.) 103:104
Staðan:
Stjarnan 6 5 1 581:511 10
Keflavík 6 5 1 551:496 10
Þór Þ. 7 4 3 710:645 8
Njarðvík 7 4 3 611:606 8
Grindavík 6 4 2 541:541 8
KR 7 4 3 646:657 8
ÍR 6 4 2 542:544 8
Valur 7 3 4 583:596 6
Tindastóll 7 3 4 667:665 6
Þór Ak. 7 2 5 641:680 4
Haukar 7 1 6 591:647 2
Höttur 7 1 6 614:690 2
1. deild kvenna
Hamar/Þór – Fjölnir b ......................... 60:68
Njarðvík – Vestri.................................. 88:48
Stjarnan – Tindastóll ........................... 90:52
ÍR – Ármann ......................................... 70:69
Spánn
Baskonia – Zaragoza .......................... 89:61
Tryggvi Snær Hlinason skoraði 4 stig,
tók 4 fráköst og gaf 1 stoðsendingu hjá
Zaragoza á 26 mínútum.
Unicaja Málaga – Valencia................. 85:89
Martin Hermannsson skoraði 6 stig, tók
1 fráköst og gaf 2 stoðsendingar á 17 mín-
útum hjá Valencia.
Þýskaland
Fraport Skyliners – Bonn .................. 84:79
Jón Axel Guðmundsson skoraði 7 stig og
gaf 2 stoðsendingar fyrir Fraport.
Bretland
Leicester Riders – Oakland Wolves .. 71:48
Sara Rún Hinriksdóttir skoraði 15 stig
og tók 4 fráköst á 25 mínútum með Leicest-
er.
Litháen
Siauliai – CBet ................................... 99:105
Elvar Már Friðriksson skoraði 16 stig,
gaf 13 stoðsendingar og tók 2 fráköst á 31
mínútu hjá Siauliai.
Olísdeild karla
Haukar – Þór ........................................ 33:22
Afturelding 5 4 1 0 122:114 9
Valur 6 4 0 2 180:160 8
Haukar 5 4 0 1 140:118 8
ÍBV 5 4 0 1 142:129 8
FH 6 4 0 2 167:148 8
Selfoss 4 2 1 1 100:100 5
Fram 6 2 1 3 140:143 5
KA 5 1 2 2 120:120 4
Grótta 6 1 2 3 137:142 4
Stjarnan 5 1 1 3 129:138 3
Þór Ak. 6 1 0 5 143:166 2
ÍR 5 0 0 5 121:163 0
Grill 66 deild karla
HK – Valur U........................................ 38:21
Fjölnir – Kría ........................................ 27:27
Haukar U – Fram U............................. 26:22
Selfoss U – Hörður............................... 32:36
Olísdeild kvenna
FH – ÍBV .............................................. 14:27
KA/Þór – Fram..................................... 27:23
HK – Valur............................................ 32:32
Staðan:
Valur 7 4 2 1 201:161 10
KA/Þór 7 4 2 1 165:148 10
Fram 6 4 0 2 171:147 8
Stjarnan 6 4 0 2 158:147 8
ÍBV 6 3 1 2 150:134 7
HK 7 2 1 4 175:184 5
Haukar 6 2 0 4 142:162 4
FH 7 0 0 7 135:214 0
Grill 66 deild kvenna
Grótta – Selfoss .................................... 35:28
Afturelding – HK U ............................. 27:24
Valur U – ÍR ..........................................22:19
Þýskaland
Bikarkeppnin, 8-liða úrslit:
Leverkusen – Rosengarten................ 23:24
Hildigunnur Einarsdóttir skoraði ekki
fyrir Leverkusen.
Danmörk
Silkeborg-Voel – Vendsyssel ............. 27:24
Steinunn Hansdóttir skoraði 2 mörk fyr-
ir Vendsyssel. Elín Jóna Þorsteinsdóttir
varði 13 skot í marki liðsins.
Svíþjóð
Malmö – Alingsås ................................ 23:28
Aron Dagur Pálsson skoraði 1 mark fyr-
ir Alingsås.
Knattspyrnumaðurinn Jóhann
Berg Guðmundsson hefur fram-
lengt samning sinn við enska úr-
valsdeildarfélagið Burnley til árs-
ins 2023. Jóhann kom til félagsins
frá Charlton árið 2016 og hefur á
þeim tíma leikið yfir 100 leiki með
Burnley og skorað í þeim sjö mörk.
Íslenski landsliðsmaðurinn var
ekki sá eini sem framlengdi samn-
inginn sinn við Burnley um helgina
því Matthew Lowton, Kevin Long
og Erik Pieters gerðu það einnig.
Jóhann hefur skorað átta mörk í 77
landsleikjum.
Jóhann fram-
lengdi við Burnley
AFP
Samningur Jóhann Berg Guð-
mundsson framlengdi við Burnley.
Elvar Már Friðriksson átti mjög
góðan leik fyrir Siauliai þegar liðið
tapaði naumlega gegn CBet,
99:105, í litháísku úrvalsdeildinni í
körfuknattleik í gær. Njarðvíking-
urinn var með tvöfalda tvennu þar
sem hann skoraði 16 stig, gaf 13
stoðsendingar og tók auk þess tvö
fráköst.
Siauliai er í neðsta sæti litháísku
úrvalsdeildarinnar með átta stig
eftir 15 leiki. Þrátt fyrir það hefur
Elvar Már spilað mjög vel og er
með 15,9 stig, 3,7 fráköst og 7,4
stoðsendingar að meðaltali í leik.
Elvar með
tvöfalda tvennu
Ljósmynd/LKL
Njarðvíkingur Elvar Már Frið-
riksson spilaði mjög vel.
Júlían J.K. Jóhannsson, heims-
methafi í réttstöðulyftu, hafnaði í
fjórða sæti í heildarkeppni í klass-
ískum kraflyftingum á Reykjavík-
urleikunum í gær. Hann lyfti mest
320 kg í hnébeygju, 192,5 kg í
bekkpressu og 255 kg í rétt-
stöðulyftu og var nokkuð frá sínu
besta.
Óvænt úrslit urðu í júdó þar sem
Sveinbjörn Iura, fremsti júdómaður
landsins síðustu ár, mátti þola tap
fyrir Árna Pétri Lund á laugardag.
Sveinbjörn hefur haft það að mark-
miði síðustu mánuði að komast inn
á Ólympíuleikana í Tókýó. Þá bætti
Aldís Kara Bergsdóttir Íslandsmet
í keppni fullorðinna í listhlaupi á
skautum í stuttum æfingum á laug-
ardag. Aldís sýndi mögnuð tilþrif
og fékk 40,93 stig og bætti fimm
ára gamalt Íslandsmet Júlíu Grét-
arsdóttur. Hún gerði svo gott betur
í gær og bætti þriggja ára gamalt
Íslandsmet Margrétar Sólar Torfa-
dóttur þegar hún fékk 123,44 heild-
arstig. Nánar er fjallað um leikana
á mbl.is/sport/reykjavikurleikar/
Morgunblaðið/Íris
Sterkur Júlían J.K. Jóhannsson tekur vel á því á Reykjavíkurleikunum.
Íslandsmet féllu á
Reykjavíkurleikum
Englandsmeistarar Liverpool í
knattspyrnu virðast hafa horfið frá
villu síns vegar og fundið taktinn á
nýjan leik en þeir unnu annan
deildarsigur sinn í röð í gærkvöldi,
3:1 gegn West Ham á útivelli, og
eru farnir að sýna álíka frammi-
stöðu og skilaði liðinu meistaratitl-
inum á síðustu leiktíð.
Eftir fimm leiki í röð án sigurs
virtust meistararnir vera að gefa
eftir í toppbaráttunni en nú virðist
titilvörnin enn á lífi, eftir laglegan
sigur gegn Tottenham í síðustu
viku og svo aftur gegn West Ham í
gær. Mohamed Salah skoraði tvö og
Georginio Wijnaldum eitt áður en
Craig Dawson klóraði í bakkann
fyrir West Ham. Heimamenn hefðu
með sigri farið upp fyrir Liverpool
en eftir leikinn í gær er ljóst að
sveinar Davids Moyes eru ekki al-
veg tilbúnir í það skref. Liverpool
er aftur á móti fjórum stigum frá
toppliði Manchester City, sem á að
vísu leik til góða, en enginn skyldi
afskrifa meistarana, takist þeim að
komast á skrið.
Dapurt hjá Tottenham
Brighton lyfti sér frá fallsæt-
unum með 1:0-sigri á lánlausu liði
Tottenham sem hefur nú tapað
tveimur í röð og er skyndilega 11
stigum frá toppnum. Ekki er langt
síðan liðið sat á toppnum en lítið
hefur gengið hjá Lundúnaliðinu
undanfarið og þá var liðið ansi bit-
laust í fjarveru fyrirliðans Harrys
Kanes sem ekki var með vegna
meiðsla. Þá unnu nýliðar Leeds
sannfærandi 3:1-sigur á Leicester á
útivelli. Leeds er með 29 stig eftir
20 leiki í 12. sætinu en Leicester í 4.
með 39 stig.
Ótímabært að
afskrifa meistarana
AFP
Mættir Englandsmeistararnir virð-
ast vera komnir aftur á skrið.