Morgunblaðið - 03.02.2021, Side 18

Morgunblaðið - 03.02.2021, Side 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 2021 Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30. Söngstund með Helgu kl. 13. Kaffi kl. 14.30, kaffi/kakó og kökusneið kostar 450 kr. Bókaspjall með Hrafni kl. 15. Vegna fjöldatakmarkana þarf að skrá sig í viðburði hjá okkur og jafnframt er grímuskylda í Samfélagshúsinu, gestir bera ábyrgð á að koma með eigin grímu og passa uppá sóttvarnir. Nánari upplýsingar eru í síma 4112701 og 4112702. Góðar stundir. Árskógar Opin vinnustofa kl. 9-12. Smíðar, útskurður með leiðbein- anda kl. 9-14. Stóladans með Þóreyju kl. 10.30. Bónusbíllinn fer frá Árskógum 6-8 kl. 12.55. Spænskukennsla kl. 14. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14.15-15.30. Heitt á könnunni, allir velkomnir. Grímuskylda og það þarf að skrá sig í viðburði eða hópa, 411-2600. Boðinn Handavinnustofa opin frá kl. 13-16, skráning í síma 441-9922. Sundlaugin er opin frá kl. 13.30-16. Grímuskylda er í Boðanum og tveggja metra reglan viðhöfð. Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16. Tálgað með Valdóri frá kl. 9.15. Morgunkaffi í kaffihorninu kl. 10. Opið kaffihús kl. 14.30. Vegna sóttvarnarregla biðjum við ykkur að skrá ykkur fyrirfram í alla viðburði hjá okkur í síma 535-2760. Bústaðakirkja Göngutúr frá Safnaðarheimili Bústaðakirkju kl. 13. Gengið um hverfið,létt og góð ganga. Njótum útiverunnar saman og það er boðið uppá kaffisopa eftir gönguna. Allir hjartanlega velkomn- ir. Hólmfríður djákni. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Opið frá kl. 8.10-16. Kaffisopi og spjall kl. 8.10-11. Línudans kl. 10-11. Upplestrarhópur Soffíu kl. 10-12. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Tálgun með Valdóri kl. 13-15.30. Síð- degiskaffi kl. 14.30-15.30. Þátttökuskráning í síma 411-2790 og á skrif- stofu. Grímuskylda og fjöldatakmörk miðast við 20 manns. Virðum allar sóttvarnir. Nánari upplýsingar í síma 411-2790. Garðabæt Hægt er að panta hádegismat með dags fyrirvara. Pool- hópur í Jónshúsi kl. 9. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Göngu- hópur fer frá Smiðju kl. 13. Stólajóga í Jónshúsi kl. 10 og 11. Málun Smiðju Kirkjuhvoli kl. 13. Zumba í sal í kjallara Vídalínskirkju kl. 16.30 og 17.15. Litlakot opið kl. 13–16. Áfram skal gæta að handþvotti og smitvörnum og virða 2 metra regluna, grímuskylda. Gullsmári Myndlist kl. 9. Postulínsmálun kl. 13. Munum sóttvarnir, grímuskyldu og tveggja metra regluna. Hraunsel Dansleikfimi á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 8.30 og 9.30. Bingó á miðvikudögum kl. 13. Handverk á miðvikudögum kl. 13. Píla á fimmtudögum kl. 13. Línudans á föstudögum kl. 10 og 11. Grímuskylda og 2ja metra reglan eru í gildi og nauðsynlegt að skrá sig í allt starf fyrirfram í síma 5550142. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Útvarps- leikfimi kl. 9.45. Hreyfiþjálfun sjúkraþjálfara hjá Hæfi kl. 10.10. Handa- vinnuhópur kl. 13-16. Framhaldssaga kl. 13.30. Korpúlfar Glerlistanámskeið með Fríðu hefst á ný kl. 9 í dag í Borg- um, þátttökuskráning. Ganga kl. 10 frá Borgum, þrír styrkleikahópar og einnig gengið inni í Egilshöll kl. 10. Sjórnar og nefndarfundur Korpúlfa kl. 10 í Borgum. Keila Egilshöll kl. 10 í dag, hámark 20 manns. Grímuskylda í rýmum félagsstarfssins. Virðum sóttvarnir, handþvott, sprittun og fjarlægðarmörk. Seltjarnarnes Leirnámskeið á Skólabraut kl. 9. Glernámskeið á neðri hæð félagsheimilisins kl. 9 og 13. Botsía á Skólabraut kl. 10. Kaffi- spjall í króknum kl. 10.30. Handavinna, samvera og kaffi í salnum á Skólabraut kl. 13. Virðum fjöldatakmarkanir, grímuskyldu og aðrar persónulegar sóttvarnir. Á morgun fimmtudag verður félagsvist í salnum á Skólabraut kl. 13.30. Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is með morgun- nu Vantar þig fagmann? FINNA.is ✝ Ásta Ragnhild-ur Ólafsdóttir var fædd 17. janúar 1968. Hún lést 15. janúar 2021 úr krabbameini á Landspítalanum. Foreldrar hennar voru Ólafur G. Ein- arsson, fv. ráð- herra, alþing- ismaður og hreppstjóri í Garða- hreppi, og Ragna (Stella) Bjarna- dóttir. Hún ólst upp á Stekkjarflöt í Garðabæ og bjó alla tíð í þeim bæ, síðast í Goðatúni. Eftirlif- andi eiginmaður hennar er Þröstur Sigurðsson. Þau áttu þrjá syni, Ólaf Þór, Fannar Stein og Viktor Inga. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Ég kynntist Ástu fyrst sem kennara við Myndlistarskóla Kópavogs. Ekki leið á löngu þar til hún var orðin félagi minn í myndlistinni og okkar samskipti í allri umræðu voru á jafningja- grundvelli. Þess má einnig geta að maður Ástu, Þröstur, var vin- ur minn á unglingsárum og end- urnýjuðust okkar kynni einnig við brölt Ástu í myndlistinni. Ásta var mjög áköf og eitilskörp í allri samræðu um myndlist sem og hvers kyns heimspeki- legum vangaveltum á því sviði, sem leiddi hana út í mikinn og djúpan lestur í heimspekinni. Þótt pælingarnar væru oft á tíð- um þungar var húmorinn aldrei langt undan sem var einnig áberandi í verkum hennar. Mál- verkin hennar snerust oftar en ekki um áleitnar spurningar mannlegrar tilvistar og það „vesen“ sem því fylgir. Í gegn- um málverkin gat hún tjáð á einstaklega áhrifaríkan hátt hið grátbroslega í manneskjunni þar sem brjóstumkennanlegar fígúrur spruttu fram krumpaðar í krankleik sínum yfir því að þurfa að vera til í frekar erf- iðum heimi með húmorinn einan að vopni. Sem vinur var Ásta einstaklega hlý og góð mann- eskja og sannur vinur. Hún var ásamt mér meðlimur í Anarkíu og hópi listafólks sem rak samnefndan listasal í Kópa- vogi um skeið og á sínum stutta listferli náði hún að skapa gríð- arlegt magn listaverka. Ástríðan og ákafinn var ótrúlegur og ég er þess fullviss að myndlistin hennar á eftir að lifa um ókomna tíð. Þín verður sárt saknað hér í mannheimum og megir þú njóta þín í heimi meðal engla og guða elsku Ásta. Bjarni Sigurbjörnsson myndlistarmaður. Ásta var ein af æskuvinkon- unum: sumar okkar hafa þekkt hana alla ævi, aðrar frá því við vorum í Barnaskóla Garða- hrepps (nú Flataskóli) eða Garðaskóla. Við kveðjum hana með trega og tárum. Hún kynntist Þresti eigin- manni sínum snemma á ævinni. Hann átti eftir að sanna að betri mann væri varla hægt að hugsa sér fyrir Ástu okkar. Hann varð svo góður vinur okkar að það var oft talað um að hann gæti kannski bara verið með í saumó. Hann „fékk“ að halda paraboð fyrir saumaklúbbinn í staðinn, sem öll fóru einstaklega vel fram, svo því sé haldið til haga. Ásta okkar var flugfreyja til margra ára og má í raun segja að hún hafi verið flugfreyja í húð og hár á þeim tíma. Hún gekk með slæðu um hálsinn, tiplandi um á háhæluðum skóm með varalit, naglalakk og upp- sett hár. En svo hætti hún sem flugfreyja og söðlaði um. Hún ákvað að elta drauminn um að verða listamaður og það var eins og hendi væri veifað – slæðan, varaliturinn, naglalakkið og há- hæluðu skórnir hurfu á svip- stundu. Við tók líf listakonunnar – málningarslettur í hárinu, strigaskór og víð, þægileg föt. Þarna var svo komið að við gát- um átt von á því að Þröstur hefði bakað fyrir saumaklúbbinn og að hún væri ekki búin að skipta um föt þegar við mætt- um. Listin átti hug hennar allan, og það var málað alla daga. Svei ef Þresti tókst nokkurn tíma að fá hana til að taka sumarfrí. Ásta var hæfileikarík frá náttúr- unnar hendi í málverkinu og var ekki lengi að finna sinn sérstaka stíl, oft frekar dökkan en samt mjög húmorískan. Hún málaði mikið af fólki, einskonar port- rettmyndir, en ekki af neinum sem maður þekkti, og stundum dúkka sömu karakterarnir upp aftur og aftur. Stíllinn var ekki mjög raunsær, nema augun sem voru alltaf lifandi. Við vinkonurnar eigum flestar verk eftir hana á okkar heim- ilum, sem eru okkur ótrúlega kær í dag. Fallegt heimili þeirra (Ásta var hæfileikaríkur innan- hússhönnuður) breyttist smám saman í listagallerí. Ásta hafði einstaklega góða nærveru – hún var falleg, góð, gáfuð og skemmtileg. Eftir að hún veiktist var hún mikið heima og komust fuglar hverf- isins fljótt að því að þarna bjó kona sem hægt var að treysta á í hörðum vetri. Ár eftir ár komu sömu fuglarnir til hennar, bönk- uðu á gluggann ef þeim fannst hún eitthvað svifasein með mat- inn og komu jafnvel inn til að fá ábót. Ásta skilur eftir sig stórt skarð í hjörtum okkar og minn- ingarnar um hana munu ávallt lifa með okkur. Elsku Þröstur, Óli, Fannar, Viktor og Ólafur G., knús og risafaðmlag til ykkar allra. Elsku vinkona, takk fyrir samfylgdina. Við söknum þín. Ingibjörg Hilmarsdóttir, Margrét Reynolds Viðar, Elísabet Þórunn Elfar, Guðríður Sverrisdóttir, Linda Hilmarsdóttir, Hrönn Hálfdánardóttir og Jóna Einarsdóttir. Ásta R. Ólafsdóttir myndlist- arkona, vinur okkar og félagi, er dáin langt um aldur fram. Að baki er erfitt veikindastríð sem tók sinn toll. Alltaf vorum við samt vongóð um að hún kæmi heil út úr því stríði. Fráfall Ástu er okkur því mikið reiðarslag. Við kynntumst Ástu fyrst á námskeiðum hjá Bjarna Sigur- björnssyni í Myndlistarskóla Kópavogs. Þar sópaði strax að henni, hún var frjó og sjálfstæð í hugsun, forvitin og full af eld- móði. Síðar lágu leiðir okkar saman er við leigðum sameiginlegt vinnustofupláss á Smiðjuvegi í Kópavogi. Okkur varð snemma ljóst að Ásta lagði ekki stund á myndlist bara til að búa til smekklega híbýlaprýði eða til að slaka á frá daglegu amstri. Henni var full alvara. Hún varði öllum lausum stundum á vinnu- stofunni, sköpunargleðin, eljan og afköstin voru með ólíkindum og hún leitaði sífellt nýrra að- ferða og tjáningarmáta. Mynd- listin var henni ástríða og leið til að henda reiður á heiminum og sjálfri sér. Þegar eitthvert okk- ar hinna kom á vinnustofuna var Ásta jafnan þar fyrir að vinna, hvort sem það var við teikn- ingar, textílskúlptúra eða stór og voldug málverk. En alltaf gerði hún hlé á vinnunni og tók fagnandi á móti manni með faðmlagi og vinarhug, til í spjall, glens og grín. Þessar stundir eru greyptar í huga manns og eru svo dýrmætar þegar við minnumst hennar og sjáum hana fyrir okkur hlæjandi, ljóm- andi og glæsilega með síða ljósa hárið, í svörtum síðkjól, alsett- um marglitum málningarslett- um. Ásta var gull af manni. Hún var góður hlustandi og ráðagóð, hafði góða nærveru og það var svo gott að spjalla við hana. Við sátum oft saman á vinnustofunni og ræddum um svo margt, um lífið, listina og tilveruna, bók- menntir, pólitík og heimspeki, en Ásta var víðlesin og drakk í sig bækur og hugmyndir, bæði gamlar og nýjar, sem henni féllu í geð. Svo var hún svo skemmti- leg og hafði hárbeittan húmor sem birtist líka greinilega í mörgum verka hennar. Við kveðjum Ástu með sárum söknuði. Öll erum við reynslunni ríkari eftir kynni okkar af henni. Þresti og sonunum Viktori Inga, Fannari Steini og Ólafi Þór vottum við okkar dýpstu samúð. Aðalsteinn, Dagmar og Helga. Ásta Ragnhildur Ólafsdóttir Svavari Gests- syni kynntist ég í Menntaskólanum í Reykjavík. Hann hafði þá þegar tek- ið trú á þann málstað, sem hann fylgdi alla tíð: „Orðinn pólitískt dýr út í hverja frumu“ svo að notuð séu hans eigin orð. Á þeim tíma undi hann sér betur í leshringj- um í Tjarnargötu 20 en í „skóla yfirstéttardótsins“. Síðar lá leið okkar saman á kappræðufund- um Heimdallar og Æskulýðs- fylkingarinnar, en það voru fjölmennar æfingasamkomur fyrir upprennandi stjórnmála- menn. Svavar var frábær ræðu- maður og lipur penni, skólaður á Þjóðviljanum. Við vorum báðir kjörnir á þing í kosningunum 1978 og sátum þar í rúm 20 ár. Á þeim tíma áttu flokkar okkar aldrei samleið, hvorki í stjórn né stjórnarandstöðu. Bilið milli þeirra var talið nánast óbrúan- Svavar Gestsson ✝ Svavar Gests-son fæddist 26. júní 1944. Hann lést 18. janúar 2021. Útför Svavars fór fram 2. febrúar 2021. legt. Þrátt fyrir það áttum við oft góð og hreinskipt- in samtöl. Um miðjan níunda ára- tuginn fórum við til Tógó á fund Al- þjóðaþingmanna- sambandsins. Það er ógleym- anleg ferð fyrir margra hluta sak- ir. Vegna afar slitrótts símasambands við Ís- land gafst okkur einstakt tóm til að ræða ýmis mál með öðr- um hætti en hægt var að gera í þvarginu heima. Svavar var traustur í sam- skiptum. Hann lagði spilin á borðið. Engin undirmál. Við sátum saman í nefnd, sem Davíð Oddsson forsætisráðherra skip- aði haustið 1997 til að endur- skoða kjördæmaskipan og kosningatilhögun til Alþingis. Fulltrúar allra þingflokka áttu fulltrúa í nefndinni og skoðanir að vonum mjög skiptar. Nefndin setti sér þau mark- mið í upphafi að gera kosn- ingakerfið einfalt og auðskilj- anlegt og reyna til þrautar að ná víðtækri samstöðu. Allir þurftu að slá af sínum ýtrustu kröfum. Ári síðar lá einróma niðurstaða fyrir og var það ekki síst Svavari að þakka. Síðasta samtal okkar var í áliðnum september á síðasta ári. Hann var í Hólaseli með Guðrúnu sinni. Þar leið honum vel í fegurðinni við Breiðafjörð- inn enda bar hann sveitamann- inn í hjarta sér alla tíð. Erindi mitt var að spyrjast fyrir um löngu liðna ættingja mína úr Geiradalnum. Hann benti mér á heimildir og við ætluðum að taka upp þráðinn síðar. Það verður að bíða um sinn. Við Sigríður Dúna vottum Guðrúnu og fjölskyldunni okk- ar dýpstu samúð. Friðrik Sophusson. Það er skrýtið að þekkja mann eins og Svavar Gestsson nánast eingöngu á eigin barna- legu forsendum. Þó að ég hafi alltaf vitað af pólitísku lífi Svavars þá var það eiginlega aukaatriði fyrir mér. Hann hef- ur verið fastur punktur í tilveru minni frá því að ég man eftir mér og annar helmingur tvíeykisins „amma og Svavar“. Ég kallaði Svavar aldrei afa, þótt hann hafi í rauninni verið það. Ég þekkti Svavar fyrst og fremst sem gjafmildan mann. Þegar ég var barn fannst mér gjafmildin einkennast af því að hann leyfði mér alltaf að fá meiri ís óháð því hvað ég var búin að fá mikið. Þegar ég elt- ist skildi ég að gjafmildin litaði allt sem hann var. Svavar var gjafmildur á tíma. Síðan ég var barn gaf hann sér og mér alltaf tíma til þess að hlusta og vildi heyra skoð- anir mínar á öllu á milli himins og jarðar. Með árunum sá ég að hann var þannig við alla, hann gaf öðrum alltaf tíma af því að það sem skipti hann máli var að skilja og þekkja fólk. Gjafmildi Svavars endur- speglaðist þó ekki aðeins í því að hann gæfi sér og öðrum þetta rými til að hlusta og ræða málin því hann tók öllum með opnum hug. Svavar vissi og þekkti alveg ótrúlega mikið en það breytti því ekki að hann lést aldrei vita hvaða skoðun eða upplifun aðrir höfðu á hlut- unum. Hann var því gæddur þeim ótrúlega mannkosti að vilja og ætla að kynnast heim- inum og fólkinu sem í honum býr án þess að vera búinn að ákveða sjálfur hvernig hann væri. Hann vildi vita hvernig líf fólks var í raun og veru á þeirra eigin forsendum. Margir vilja vera svona, ég þar á með- al, en ég hef aldrei vitað neinn sem hefur tekist það jafn vel og Svavari. Ég á eftir að sakna hans alveg ótrúlega mikið. Guðrún Svavarsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.