Morgunblaðið - 03.02.2021, Blaðsíða 22
HANDBOLTINN
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Fram lét ekki slá sig út af laginu
þótt liðið lenti 8:2 undir eftir sjö
mínútna leik gegn Stjörnunni í
Garðabænum í gær í Olísdeild
kvenna í handknattleik. Á 38. mín-
útu var liðið komið með forystuna,
17:16, og landaði sjö marka sigri,
33:26.
„Framarar voru á hælunum á
fyrstu mínútum leiksins og liðið
hrökk ekki almennilega í gang fyrr
en eftir tíu mínútna leik. Þá loksins
fór liðið að spila almennilegan
varnarleik en Frömurum til varnar
voru þeir án fyrirliðans Steinunnar
Björnsdóttur og munar svo sann-
arlega um minna. Eftir því sem lið-
inu óx ásmegin varnarlega fylgdi
sóknarleikurinn í kjölfarið og í síð-
ari hálfleik var svo gott sem eitt lið
á vellinum. Þá átti Katrín Ósk
Magnúsdóttir frábæran leik í
marki Framara og Karen Knúts-
dóttir var öflug sóknarlega, skoraði
sjö mörk og var dugleg að mata
liðsfélaga sína,“ skrifaði Bjarni
Helgason meðal annars í umfjöllun
sinni um leikinn á mbl.is.
Eva Björk Davíðsdóttir var
markahæst hjá Stjörnunni með 9/4
mörk og Ragnheiður Júlíusdóttir
skoraði 9/2 mörk fyrir Fram. Katr-
ín Ósk varði 22 skot í marki Fram
en markverðir Stjörnunnar, Tinna
Húnbjörg og Hildur Öder Ein-
arsdóttir, vörðu samtals 13 skot,
þar af tvö vítaköst.
Fram fer með sigrinum upp í
annað sæti deildarinnar með 10
stig en liðið er með jafnmörg stig
og Valur og KA/Þór. Stjarnan er
áfram í fjórða sætinu með átta stig.
Haukar upp fyrir HK
Haukar unnu afar góðan útisigur
á ÍBV í Vestmannaeyjum, 30:27.
Haukar fóru með sigrinum upp
fyrir HK og eru með sex stig eftir
sjö leiki í 6. sæti deildarinnar. ÍBV
er í 5. sæti með sjö stig eftir sjö
leiki.
Rakel Oddný Guðmundsdóttir
og Sara Odden skoruðu fimm
mörk hvor fyrir Hauka en ellefu
leikmenn skoruðu mörkin 30 fyrir
liðið í kvöld.
Annika Friðheim Petersen varði
15 skot í marki Hauka. Sunna
Jónsdóttir var markahæst hjá ÍBV
með sex mörk og Marta Wawrzy-
kowska varði 14 skot í marki ÍBV.
Miklar sveiflur í
Garðabænum
Góður sigur Hauka í Eyjum
Morgunblaðið/Eggert
Í Garðabæ Ragnheiður reynir að verjast skoti Evu Bjarkar í gær.
22 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 2021
England
Wolves – Arsenal ..................................... 2:1
Rúnar Alex Rúnarsson kom inn á hjá
Arsenal á 75. mínútu.
Sheffield United – WBA .......................... 2:1
Manchester Utd – Southampton ............ 9:0
Newcastle – Crystal Palace..................... 1:2
Staðan:
Manch. City 20 13 5 2 37:13 44
Manch. Utd 22 13 5 4 46:27 44
Liverpool 21 11 7 3 43:24 40
Leicester 21 12 3 6 37:25 39
West Ham 21 10 5 6 31:27 35
Tottenham 20 9 6 5 34:21 33
Chelsea 21 9 6 6 35:23 33
Everton 19 10 3 6 29:24 33
Aston Villa 19 10 2 7 34:21 32
Arsenal 22 9 4 9 27:22 31
Leeds 20 9 2 9 35:36 29
Southampton 21 8 5 8 27:34 29
Crystal Palace 22 8 5 9 27:37 29
Wolves 22 7 5 10 23:31 26
Burnley 20 6 4 10 13:26 22
Newcastle 22 6 4 12 22:36 22
Brighton 21 4 9 8 23:29 21
Fulham 20 2 8 10 17:29 14
WBA 22 2 6 14 18:52 12
Sheffield Utd 22 3 2 17 14:35 11
B-deild:
Millwall – Norwich.................................. 0:0
Jón Daði Böðvarsson var á varamanna-
bekknum hjá Millwall.
Bournemouth – Sheffield Wed................ 1:2
Coventry – Nottingham Forest .............. 1:2
Wycombe – Birmingham......................... 0:0
Staða efstu liða:
Norwich 27 16 7 4 35:21 55
Swansea 26 14 8 4 33:15 50
Brentford 25 13 9 3 45:24 48
Reading 26 14 5 7 40:29 47
Watford 27 13 8 6 31:20 47
Bournemouth 27 11 9 7 40:26 42
Middlesbrough 27 11 7 9 30:24 40
Blackburn 26 11 6 9 41:28 39
Bristol City 26 12 3 11 27:28 39
Stoke 27 9 11 7 32:29 38
Preston 27 11 3 13 31:34 36
Barnsley 27 10 6 11 29:34 36
Luton 26 9 6 11 21:28 33
Millwall 27 6 14 7 22:25 32
Huddersfield 27 9 5 13 30:38 32
C-deild:
Blackpool – Northampton...................... 2:0
Daníel Leó Grétarsson var ekki í leik-
mannahópi Blackpool.
D-deild:
Stevenage – Exeter ................................. 0:1
Jökull Andrésson varði mark Exeter.
Danmörk
Vejle – AGF .............................................. 0:0
Jón Dagur Þorsteinsson lék fyrstu 83
mínúturnar með AGF.
Randers – Horsens .................................. 3:0
Ágúst Eðvald Hlynsson kom inn á hjá
Horsens á 72. mínútu.
Þýskaland
Bikarkeppnin, 16-liða úrslit:
Holstein Kiel – Darmstadt...................... 1:1
Guðlaugur Victor Pálsson lék fyrstu 82
mínúturnar með Darmstadt.
Holstein Kiel áfram eftir vítakeppni.
Belgía
Bikarkeppnin, 32 liða úrslit:
Lommel – Kortrijk .................................. 1:3
Kolbeinn Þórðarson lék allan leikinn
með Lommel.
Union St. Gilloise – Mouscron................ 2:1
Aron Sigurðarson lék fyrstu 57 mínút-
urnar með Royal Union.
Olísdeild kvenna
ÍBV – Haukar ....................................... 27:30
Stjarnan – Fram................................... 26:33
Staðan:
Valur 7 4 2 1 201:161 10
KA/Þór 7 4 2 1 165:148 10
Fram 7 5 0 2 204:173 10
Stjarnan 7 4 0 3 184:180 8
ÍBV 7 3 1 3 177:164 7
Haukar 7 3 0 4 172:189 6
HK 7 2 1 4 175:184 5
FH 7 0 0 7 135:214 0
Evrópudeild karla
D-riðill:
RN Löwen – Kadetten ........................ 30:30
Ýmir Örn Gíslason skoraði tvö mörk fyr-
ir Löwen.
Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar Kadetten.
RN Löwen 7, GOG 6, Kadetten 4, Trimo
Trebnje 4, Pelistar 3, Tatabánya 0.
Þýskaland
B-deild:
Bietigheim – Konstanz ....................... 29:24
Aron Rafn Eðvarðsson varði 13 skot í
marki Bietigheim og var með 36% mark-
vörslu. Hannes Jón Jónsson þjálfar liðið.
Svíþjóð
Guif – Kristianstad.............................. 29:28
Daníel F. Ágústsson varði mark Guif.
Teitur Örn Einarsson skoraði 4 mörk
fyrir Kristianstad og Ólafur Guðmundsson
eitt.
Skövde – IFK Ystad ............................ 30:21
Bjarni Ófeigur Valdimarsson lék ekki
með Skövde.
Lára Kristín Pedersen sem lék með
KR á síðasta tímabili er gengin til
liðs við ítalska knattspyrnufélagið
Napoli. Liðið er næstneðst í ítölsku
A-deildinni þegar keppni er hálfn-
uð og Lára gæti farið beint í leik
gegn Fiorentina um helgina. Guðný
Árnadóttir leikur með liðinu, í láni
frá AC Milan. Lára Kristín er 26
ára gömul og hefur leikið 167 leiki í
úrvalsdeildinni með Aftureldingu,
Stjörnunni, Þór/KA og KR, og á tvo
A-landsleiki að baki. Viðtal við
Láru er að finna á mbl.is/sport/
fotbolti.
Lára Kristín
samdi við Napoli
Morgunblaðið/Eggert
Napoli Lára Kristín Pedersen er
komin til ítalska félagsins.
AGF frá Árósum missti af tveimur
stigum í toppbaráttunni í úrvals-
deild dönsku knattspyrnunnar í
gær. Landsliðsmaðurinn Jón Dagur
Þorsteinsson var í byrjunarliðinu
hjá AGF gegn Vejle á útivelli og lék
fyrstu 83 mínúturnar en leiknum
lauk með markalausu jafntefli. AGF
er með 25 stig í 4. sæti og er tveim-
ur stigum frá efsta sætinu. Midtjyll-
and og Bröndby eru með 27 stig.
Ágúst Eðvald Hlynsson kom inn á
sem varamaður hjá Horsens á 72.
mínútu þegar liðið tapaði 3:0 fyrir
Randers.
AGF missti af
tveimur stigum
Morgunblaðið/Eggert
Landsliðsmaður Jón Dagur
Þorsteinsson í landsleik.
Íþróttafólk sem Vésteinn Haf-
steinsson þjálfar setti tvívegis
landsmet í kastgreinum á aðeins
fjórum dögum. Annars vegar er
um norskt met að ræða innan-
húss í kúluvarpi og hins vegar
sænskt met innanhúss í kúlu-
varpi.
22 ára gamall Norðmaður,
Marcus Thomsen, kastaði 21,09
metra á móti í Växjö í Svíþjóð á
mánudaginn. Kastið er aðeins
einum sentimetra frá ólympíu-
lágmarkinu í greininni en eins og
Morgunblaðið hefur fjallað um
eru lágmörkin í frjálsum orðin æ
erfiðari. Besti árangur Thomsen
utanhúss er 21,03 metrar en
norska metið utanhúss er 21,22
og hefur staðið síðan 1986.
Eins og greint var frá á mbl.is
á laugardaginn setti hin sænska
Fanny Roos Norðurlandamet á
móti í Þýskalandi á föstudag og
kastaði 18,64 metra.
Bæði æfa þau hjá Vésteini í
Växjö í Svíþjóð en Vésteinn þjálf-
ar um þessar mundir fimm kast-
ara frá Svíþjóð og Noregi.
kris@mbl.is
Ljósmynd/Globalthrowing.com
Met Marcus Thomsen og Vésteinn Hafsteinsson í Växjö á mánudaginn.
Tvö landsmet sett
á fjórum dögum
Rúnar Alex Rúnarsson varð í gær-
kvöldi þriðji íslenski knattspyrnu-
maðurinn sem leikur deildarleik
með Arsenal í ensku úrvalsdeild-
inni. Hann kom inn á sem varamað-
ur hjá Arsenal gegn Wolves þegar
Bernd Leno var rekinn af velli á 72.
mínútu. Áður höfðu þeir Albert
Guðmundsson og Sigurður Jónsson
leikið deildarleiki með Arsenal.
Rúnar hélt markinu hreinu og
varði tvö skot frá leikmönnum
Wolves. Staðan var hins vegar von-
lítil því Arsenal var 2:1 undir og
tveimur leikmönnum færri, en Dav-
id Luiz lét einnig reka sig út af og
gaf Wolves einnig vítaspyrnu. Leno
er kominn í eins leiks bann og því
eru líkur á að Rúnar bæti öðrum
leik á ferilskrána strax um næstu
helgi.
Rúnar er fyrsti íslenski mark-
vörðurinn sem leikur í deildinni en
Árni Gautur Arason lék hins vegar
bikarleik með Manchester City. Ís-
lendingarnir sem leikið hafa í efstu
deild karla í Englandi eru nú orðnir
tuttugu og einn talsins. kris@mbl.is
Umfjöllun um leikina í gær er að
finna á mbl.is/sport/enski
Rúnar Alex í fótspor
Alberts og Sigurðar
AFP
Arsenal Rúnar Alex Rúnarsson kemur inn á í leiknum í gær.