Morgunblaðið - 03.02.2021, Síða 21
DÆGRADVÖL 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 2021
Skeifan 3 • 108 Reykjavík • Sími 581 2333 • rafver.is • rafver@rafver.is
ÞRÁÐLAUS SKÚRINGARVÉL
FC 7 PREMIUM
Næsta kynslóð skúringarvéla • Rafhlöðutími u.þ.b. 45 mínútur
LOKSINS
KOMIN AFTUR
förum reglulega á tónleika í Hörpu
og Salnum. Svo á ég mikið safn vínil-
platna sem margar eru orðnar safn-
gripir og enn mikið spilaðar. Ég
lærði á gítar í mörg ár og lauk 4.
stigi á það kröfuharða hljóðfæri.
Hver veit nema ég haldi því áfram á
efri árum.“
Birgir hefur lokið nokkrum nám-
skeiðum í rússneskudeild Háskólans
og tekur eitt námskeið með kennslu,
er núna á framhaldsnámskeiði í bók-
menntum. „Það er mjög áhugavert,
tungumál liggja vel fyrir mér, tók
spænsku og frönsku í kvöldskóla FB
og MH meðan það var í boði.
Ég hef einnig verið í stjórn félags
raungreinakennara til margra ára.
Það hefur staðið fyrir einu til tveim-
ur endurmenntunarnámskeiðum
hvert sumar sem hafa heppnast
mjög vel. Má nefna námskeið um líf í
alheimi, öreindafræði, jarðfræði
Reykjanesskagans og um jöklafræði
sem var sérlega áhugavert.“
Fjölskylda
Eiginkona Birgis er Marina
Shulmina, f. 9.10. 1968, tón-
menntakennari. Þau eru búsett í
Álftahólum í Efra-Breiðholti. For-
eldrar Marinu eru Vladimir Shulm-
in, f. 17.9. 1941, málmsmiður, búsett-
ur í Belaya Kalitva í Rússlandi, og
Nína Shulmina, f. 1.5. 1946, gæða-
stjóri í álveri, búsett í Belaya
Kalitva.
Börn Birgis og Marinu eru Tam-
ara Sh. Birgisdóttir, f. 3.12. 2001, ný-
stúdent, og Jakob Sh. Birgisson, f.
19.5. 2005, grunnskólanemi, bæði
búsett í Álftahólum.
Bróðir Birgis er Heimir Barðason,
skrifstofumaður og veiðileiðsögu-
maður, búsettur í Reykjavík. For-
eldrar Birgis: Barði Árnason, f. 25.2.
1932, d. 23.1. 2016, bankastarfs-
maður og forstöðumaður erlendra
viðskipta í Landsbankanum, var bú-
settur í Garðabæ, og Ingrid Maria
Paulsen, f. 4.11. 1936 í Döbern í aust-
urhluta Þýskalands. Hún kom til Ís-
lands 1957 og var þýskukennari í
Kvennaskólanum og húsmóðir. Hún
er núna búsett á Hrafnistu við
Sléttuveg.
Birgir Martin
Barðason
Jóhanna Sigursturludóttir
bóndakona í Víðikeri
Jón Þorkelsson
bóndi íVíðikeri í Bárðardal
Rebekka Jónsdóttir
húsmóðir í Reykjavík
Árni Jóhannesson
verkamaður í Reykjavík
Barði Árnason
bankastarfsmaður í Garðabæ
Hólmfríður Stefánsdóttir
bóndakona á Sveinsströnd
Jóhannes Friðriksson
bóndi á Sveinsströnd í Mývatnssveit
Marie Engel
húsmóðir í Hannover
Karl Engel
prentari í Hannover, Þýskalandi
Helene Engel
húsmóðir í Hannover, lést ung
Dr. Jes Paulsen
lærði dýralækningar í Hannover, var dýralæknir í Hamborg
Mathie Berthelsen
bóndakona í Gaardeby
Nikolai Paulsen
bóndi í Gaardeby,Danmörku
Úr frændgarði Birgis M. Barðasonar
Ingrid Maria Paulsen
fv. framhaldsskólakennari í Reykjavík
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÞAÐ ER TVEGGJA HÆÐA FULLBÚINN
KJALLARI Í HÚSINU.”
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að vera saman í
einrúmi.
HEFUR ÞAÐ ALDREI HVARFLAÐ
AÐ ÞÉR AÐ AFREKA EITTHVAÐ?
FYRIR UTAN
FULLKOMNUN?
ÞEGAR ÉG LÍT Á ÞIG SÉ ÉG HVER
FRAMTÍÐ MÍN HEFÐI GETAÐ
ORÐIÐ …
ÞAÐ ER ÓÞARFI AÐ
ÞAKKA MÉR!
„ÉG FINN ÓTTALYKT. ER ÞAÐ
EÐLILEGT?”
TIL
SÖLU
Friðrik Steingrímsson orti áBoðnarmiði á fimmtudag:·
Heiðríkjunnar himna skart
hjarta sérhvert gleður,
tunglið fullt og frostið hart,
frábært þorraveður.
Ásta Sverrisdóttir er á svipuðum
nótum:
Enn ertu risin gamla góða sól
gleður þín börn á frostaköldum vetri.
Í gaddi á þorra gyllir völl og hól,
gerir að venju alla daga betri!
Á föstudag sagði Hólmfríður
Bjartmarsdóttir: „Loks birti í gær
og við drifum okkur alla leið til Ak-
ureyrar“:
Þegar sólin yfir lög og láð
landið baðar fegurð tign og ró,
eins og marens eða sykurbráð
öll er jörðin hulin hvítum snjó.
Þann sama dag var frostið 17
gráður. Klukkan rúmlega þrjú orti
Hólmfríður:
Birtir í austri. Barið er hraunið snjó.
Birtir í vestri yfir steingerðum tröllum.
Sandurinn myrkur mjallhvítt brim á sjó
máninn er hvítur hátt yfir bleikrauðum
fjöllum.
Dimmt er í vötnum í dvala, en krapi á
lindum.
Dauflega raular foss, undir klaka
myndum.
Guðmundur Arnfinnsson yrkir
og kallar „Þægileg fæðuöflun“:
Í skóginum aparnir ana
og upp eftir trjánum spana,
þó nóg sé af föngum,
er nærtækast löngum
að ná þar í banananana!
Og hér yrkir Guðmundur um
„Mótlæti“:
Freymóður sagði: „hver fjandinn,“
er úr flöskunni búinn var landinn,
og aumur varð hann,
þegar af honum rann
og Ragnheiður rann út í sandinn.
Þessi staka eftir Völu Magnús-
dóttur er skemmtileg:
Af dálitlum anda en mest þó af mold
var mótað í fyrstu vort synduga hold
og því er nú ljóst, það sem lætur oss
best
er lifandi mold og hún bætir oss flest.
Alkunnur húsgangur:
Laufagosinn liggur frosinn úti;
honum tosa ætla ég inn
upp á mosasvæfilinn.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Fullt tungl og hart
frost á þorra