Morgunblaðið - 03.02.2021, Qupperneq 23
ÍÞRÓTTIR 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 2021
Þýska liðið Rhein-Neckar Löwen og
austurríska liðið Kadetten gerðu jafn-
tefli 30:30 í EHF-bikarnum í hand-
knattleik. Ýmir Örn Gíslason skoraði
tvö mörk fyrir Löwen en Aðalsteinn
Eyjólfsson stýrir liði Kadetten.
Everton festi seint í fyrrakvöld kaup
á norska knattspyrnumanninum Josh-
ua King og greiddi Bournemouth 5,5
milljónir punda fyrir hann. King er 29
ára gamall sóknarmaður og skoraði 48
mörk í 161 leik fyrir Bournemouth í úr-
valsdeildinni á árunum 2015 til 2020.
Portúgalinn André Villas-Boas
hætti í gær störfum sem knattspyrnu-
stjóri Marseille í Frakklandi. Villas-
Boas skýrði óvænt frá því á frétta-
mannafundi að hann hefði lagt inn
uppsagnarbréf eftir að hafa lesið í fjöl-
miðlum í gærmorgun að Marseille
hefði keypt Olivier Ntcham frá Celtic í
Skotlandi án samráðs við sig. Nokkr-
um tímum síðar tilkynnti Marseille að
Villas-Boas væri farinn frá félaginu.
Jürgen Klopp knattspyrnustjóri
Liverpool segir að fréttir á mánudag
um að útlit sé fyrir að Virgil van Dijk
spili síðustu vikur tímabilsins með lið-
inu séu mjög orðum auknar og því
miður ekki horfur á að það gangi eftir.
„Ég hef ekki fengið upplýsingar um
það frá neinum lækni að það sé mögu-
leiki á því að Virgil spili meira á þessu
tímabili. Ég ætla ekki að segja að það
sé útilokað en það er
ekki líklegt.“ Van
Dijk slasaðist á
hné í leik
gegn Ever-
ton 17.
október, í
aðeins fimmta
leik Liverpool í
deildinni á
yfirstandandi
tímabili, og
fór í upp-
skurð í
kjölfarið.
Eitt
ogannað
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Olísdeildin:
Varmá: Afturelding – Haukar.................. 18
Eyjar: ÍBV – Grótta .................................. 18
Höllin Ak.: Þór Ak. – Fram ...................... 19
Kaplakriki: FH – KA............................ 19.30
Origo-höll: Valur – Selfoss................... 19.30
Austurberg: ÍR – Stjarnan.................. 20.15
1. deild kvenna, Grill 66-deildin:
Framhús: Fram U – Víkingur............. 19.30
Í KVÖLD!
Þýskaland
Ulm – Fraport Skyliners .................... 80:76
Jón Axel Guðmundsson skoraði 14 stig
fyrir Fraport, gaf tvær stoðsendingar og
stal boltanum einu sinni.
Spánn
B-deild:
Alicante – Girona ................................ 74:62
Kári Jónsson skoraði 5 stig fyrir Girona,
tók 4 fráköst, gaf 3 stoðsendingar og stal
boltanum tvisvar.
NBA-deildin
Atlanta – LA Lakers .......................... 99:107
Miami – Charlotte.................... (frl.) 121:129
Cleveland – Minnesota....................... 100:98
Chicago – New York ........................ 110:102
Milwaukee – Portland...................... 134:106
New Orleans – Sacramento............. 109:118
Oklahoma City – Houston ............... 106:136
Dallas – Phoenix ............................... 108:109
San Antonio – Memphis................... 102:133
KEFLAVÍK
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Keflavík er með nánast sama leik-
mannakjarna í ár og á síðustu leiktíð
og er það stór ástæða fyrir góðu
gengi liðsins í úrvalsdeild karla,
Dominos-deildinni, í körfubolta á
tímabilinu að sögn Harðar Axels
Vilhjálmssonar, fyrirliða liðsins.
Liðið er með 12 stig í efsta sæti
deildarinnar, hefur unnið sex af sjö
leikjum sínum og að undanskildu
stórtapi gegn Stjörnunni í sjöttu
umferð deildarinnar hefur liðið
varla stigið feilspor.
Hörður Axel hefur verið duglegur
að mata liðsfélaga sína á tímabilinu
en hann hefur skorað 7 stig að með-
altali í deildinni í vetur, tekið fjögur
fráköst og gefið níu stoðsendingar.
„Ég held að við séum bara nokk-
urn veginn á pari,“ sagði Hörður
Axel í samtali við Morgunblaðið.
„Ef þú hefðir talað við mig fyrir
fjórum dögum síðan þá væri ég
mjög sáttur en þessi tapleikur gegn
Stjörnunni situr enn þá í mér þótt
hann eigi kannski ekki að gera það.
Við settum miklar kröfur á okkur
fyrir tímabilið og ætluðum okkur að
halda áfram að byggja ofan á gott
gengi liðsins á síðustu leiktíð.
Við vorum á góðu róli þegar tíma-
bilinu var slaufað í fyrra og okkur
fannst við eiga fullt erindi og tilkall
til Íslandsmeistaratitilsins líkt og
fleiri lið. Það voru fimm til sex lið í
baráttunni, þar á meðal við, og við
vorum virkilega hungraðir eftir
tímabilið 2019-20. Það sýnir sig
kannski best í því að bæði Deane
[Williams] og Dom [Dominykas
Milka] voru tilbúnir að koma aftur
því þeim fannst þér eiga eftir ókl-
áruð verkefni hérna.
Ég er að sjálfsögðu mjög sáttur
með þá ákvörðun þeirra að snúa aft-
ur því það er hundleiðinlegt að þurfa
að byrja upp á nýtt á hverju einasta
tímabili og því frábært að geta hald-
ið áfram að byggja ofan á það sem
vel var gert frá síðustu leiktíð,“
bætti Hörður við.
Mörg vopn í vopnabúrinu
Litháinn Dominykas Milka hefur
verið einn besti leikmaður deild-
arinnar undanfarin tvö ár og skorað
25 stig, tekið tólf fráköst og gefið
tvær stoðsendingar að meðaltali í
fyrstu sjö leikjum tímabilsins.
„Hann er eiginlega þessi stóri
maður sem ég hef beðið lengi eftir
að spila með hérna heima. Hann les
leikinn virkilega vel og rúllar vel á
körfuna. Hann opnar mjög vel fyrir
bæði mig, aðra og sjálfan sig í liðinu.
Það er virkilega auðvelt fyrir mig
sem leikstjórnanda að „koma af
skrínum“ hjá honum og lesa þær
opnanir sem myndast.
Við erum með vopn alls staðar á
vellinum þannig að liðin sem við er-
um að spila gegn þurfa að velja og
hafna hvar og hvernig þau ætla að
verjast okkur. Á sama tíma fæ ég
líka að spila meira eins og ég vil
spila, það er að segja búa eitthvað til
fyrir aðra og lesa vörnina í stað þess
að þurfa að þröngva einhverju í
gegn.
Ég hef ekki verið að skjóta vel á
þessu tímabili og hef ekki enn þá
náð upp takti í skotin hjá mér. Ef
þetta hefði verið raunin fyrir tveim-
ur til þremur árum þá veit ég ekki
hvort við værum búnir að vinna leik
ef ég væri að hitta eins og ég er að
gera í dag.“
Æfum nánast ekki neitt
Það er leikið ansi þétt í deildinni
þessa dagana og því gefst ekki mik-
ill tími til þess að fínpússa hlutina á
æfingum.
„Maður er bara annaðhvort á leið-
inni í leik eða í endurheimt eftir leik.
Það er enginn millivegur þarna á
milli og við æfum nánast ekki neitt.
Það er eins með þetta eins og skot-
in, annaðhvort kemst maður í
ákveðinn takt og nær að halda hon-
um, eða þá maður er í basli að ná
upp takti í sinn leik. Þetta er klár-
lega skemmtilegra svona en ég hefði
kannski viljað fá aðeins meiri tíma
til að æfa áður en keppni hófst að
nýju.
Það hefði verið ágætt að fá einn
til tvo æfingaleiki áður en maður fór
að spila tvisvar sinnum í viku. Fyrir
mig persónulega þá er nóg að gera
þar sem ég er að þjálfa kvennalið
Keflavíkur líka og þar eru tveir leik-
ir í viku. Það þarf að undirbúa liðið
og ferðast í leiki. Þetta reynir jafn
mikið á mig og konuna mína þar
sem fjarveran og álagið er mikið.
Það er samt gaman að fá alltaf
leik eftir leik og ef ég hefði þurft að
bíða í viku eftir leikinn gegn Stjörn-
unni þá hefði ég gert alla gráhærða í
kringum mig.“
Örvænting í Garðabæ
Eini tapleikur Keflavíkur á tíma-
bilinu til þessa kom gegn Stjörnunni
í Garðabæ þar sem Stjarnan fór illa
með Keflavík og vann 40 stiga sigur,
115:75.
„Það eru allir þreyttir, ekki bara
við, og við getum ekki verið að fela
okkur á bak við það. Við byrjuðum
leikinn gegn Stjörnunni ágætlega
finnst mér og við spiluðum okkar
leik. Boltinn var hins vegar ekki að
detta hjá okkur á meðan það datt
allt hjá þeim og þá kom upp ákveðin
örvænting hjá okkur. Við duttum
inn í þeirra leik að fara að taka fljót
skot og leyfðum þeim að keyra upp
hraðann, eitthvað sem við vorum
búnir að tala um fyrir leikinn að
gera alls ekki.
Eftir það datt botninn úr þessu,
við náðum aldrei neinum takti í okk-
ar leik, á meðan þeir spiluðu nánast
óaðfinnanlegan leik. Heilt yfir þá
spiluðum við ekki nægilega vel til
þess að vinna leikinn á meðan þeir
voru frábærir og í þessu leikjaálagi
sem er þá erum við minna í því að
reyna að stoppa blæðinguna ef svo
má segja í miðjum leik. Það kom
tímapunktur í leiknum gegn Stjörn-
unni þar sem við ákváðum bara að
fara að hugsa um næsta leik þar
sem þetta leit illa út undir restina.“
Ekki hægt að bóka sigur
Deildin hefur sjaldan verið jafnari
en aðeins munar fjórum stigum á
liðinu í sjöunda sæti deildarinnar og
því efsta. Þá hafa öll lið deildarinnar
unnið leik það sem af er tímabilinu.
„Ástæðan fyrir nokkrum óvænt-
um úrslitum á leiktíðinni er sam-
blanda af mörgum hlutum held ég.
Þór Akureyri vinnur Val sem dæmi
og ef við segjum það bara eins og
það er þá er Valur með lið í eldri
kantinum. Álagið þar er kannski að-
eins meira þar en annars staðar án
þess þó að ætla að taka eitthvað frá
Þórsurum. Eins með tap Njarðvíkur
gegn Hetti, það voru óvænt úrslit,
en á sama tíma virðist Höttur bara
vera með frábært lið. Það er því
enginn leikur gefins í deildinni í dag.
Þetta er öðruvísi en fyrir tíu árum
sem dæmi þegar maður gat kannski
aðeins bókað stig gegn ákveðnum
andstæðingum. Við þekkjum það
sjálfir að hafa tapað fyrir nýliðum
og þetta er miklu skemmtilegra
svona. Þú getur ekki lengur mætt í
leik og bókað sigur, bara með því að
mæta. Það þarf að taka öll liðin í
deildinni alvarlega og ef ekki þá eru
menn bara teknir í bólinu, svo ein-
falt er það.“
Leggja mikið á sig
Keflavík varð síðast Íslandsmeist-
ari árið 2008 og bikarmeistari 2012.
Biðin eftir bikar hjá karlaliði Kefla-
víkur er því orðin í lengri kantinum.
„Mesta pressan kemur frá okkur
sjálfum. Við æfðum virkilega vel frá
því í október og fram í janúar þegar
gert var hlé á keppni vegna kór-
ónuveirufaraldursins. Við erum að
leggja þvílíkt á okkur til þess að
gera alvöruatlögu að titlum á tíma-
bilinu, líkt og önnur lið. Við gerum
kröfur á okkur sjálfa og þannig á
það að vera því maður nær aldrei
neinum árangri ef maður ætlar að
gera hlutina fyrir einhvern annan en
mann sjálfan.
Sjálfur hef ég haft öðruvísi hvatn-
ingu í gegnum tíðina þar sem stefn-
an var alltaf sett á atvinnumennsku.
Fjölskylduaðstæður hafa hins vegar
orðið til þess að ég er að spila á Ís-
landi en ekki erlendis. Ég hef aldrei
unnið titil heima á Íslandi og það er
tilfinning sem ég sækist eftir, að
verða meistari það er að segja. Það
er eitthvað sem mig dreymir um,
bæði sem leikmaður og þjálfari, og
það drífur mig áfram,“ bætti Hörð-
ur Axel við.
Löngunin að verða meist-
ari sem drífur mig áfram
Keflvíkingar tróna á toppi úrvalsdeildar karla og virðast vera til alls líklegir
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Úrvalsdeildin Keflvíkingarnir Dominykas Milka og Hörður Axel Vilhjálmsson í baráttu við Ragnar Nathanaelsson
úr Haukum. Keflavík er í efsta sætinu og Milka er af mörgum talinn besti leikmaður deildarinnar.
Hörður Axel Vilhjálmsson og félagar í Keflavík leika níu leiki á 28 dögum í
Dominos-deild karla, frá 15. janúar til 12. febrúar, og sama dagskrá er hjá
öllum tólf liðunum í deildinni.
Leikir Keflvíkinga á þessum tíma eru dagana 15., 18., 22, 25. og 29. jan-
úar og 1., 5., 7. og 12. febrúar. Eftir það kemur sextán daga hlé á deildinni
vegna verkefna landsliðsins en þann 12. febrúar verða liðin búin að spila
tíu leiki hvert, af þeim 22 sem eru á dagskrá Íslandsmótsins.
Svo dagskrá Keflavíkur sé áfram notuð sem dæmi er framhaldið þannig
að liðið spilar 28. febrúar, 4., 7., 11., 18., 21., 25. og 28. mars og 1., 4., 8. og
15. apríl. Bikarkeppnin er enn þá ódagsett. Síðan tekur við úrslitakeppnin
um Íslandsmeistaratitilinn í apríl og maí.
Þétt leikjadagskrá til vorsins